Morgunblaðið - 26.06.2001, Blaðsíða 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0028-0625
4507-2800-0004-9377
4507-4500-0030-3021
4543-3700-0015-5815
! "#
"$% &'
()( )$$$
Á MORGUN, 27. júní, verður
Baby Boy frumsýnd í Bandaríkj-
unum, mynd sem kvikmynda-
áhugamenn bíða með talsverðri
eftirvæntingu, því um er að ræða
nýjasta verk kvikmyndagerðar-
mannsins Johns Singletons, sem
vakti gríðarlega athygli með fyrstu
mynd sinni, Boyz Ń the Hood, og
er tvímælalaust einn athyglis-
verðasti kvikmyndagerðarmaður
Bandaríkjanna af afró-amerískum
uppruna. Singleton, sem líkt var
við Orson Welles, hefur ekki náð
að fylgja frumrauninni eftir sem
skyldi, en kvisast hefur út að nú sé
hann kominn með sína bestu mynd
frá sögufrægu upphafinu og gerir
dreifingaraðilinn, Columbia Pic-
tures, sér miklar vonir um að hún
komi Singleton á heiðurslistann á
ný.
Ágætis byrjun
Singleton markaði tímamót í
kvikmyndasögunni fyrir sléttum
áratug, er hann varð fyrsti, þel-
dökki Bandaríkjamaðurinn til að
hljóta Óskarsverðlaunatilnefningu
sem besti leikstjóri og jafnframt sá
yngsti í allri verðlaunasögunni, en
Singleton var aðeins 23ja ára er
frumraun hans, Boyz Ń the Hood,
kom fyrir almenningssjónir.
Líkt og fleiri kynbræður hans,
var Singleton að gera upp eigin
æsku, myndin er sterkt, persónu-
legt verk um líf blökkumanna í
hinu illræmda South Central
hverfi í Los Angeles. Singleton ólst
upp til skiptis hjá foreldrum sín-
um, sem skildu skömmu eftir að
hann fæddist. Þau voru vel mennt-
uð og í ágætum störfum og Single-
ton fékk góða handleiðslu og lauk
námi í handritsgerð við University
of South California. Á meðan á
náminu stóð vann piltur til nokk-
urra handritaverðlauna, sem færðu
honum samning við C.A.A., öfluga
umboðsskrifstofu, á síðasta árinu
við skólann.
Aðeins 23ja ára að aldri, byrjaði
Singleton að fást við frumraunina,
Boyz Ń the Hood, þroskasögu 17
ára stráks, sem einbeitir sér að því
að komast lifandi út úr bernskunni
í South Central. Þótt ungur væri,
naut Singleton trausts gæðaleik-
aranna Laurence Fishburne, Ang-
elu Basset, Cuba Gooding Jr., og
Ice Cube, en myndin var stórt
skref á framabraut þeirra allra.
Boyz Ń the Hood sló í gegn á öll-
um vígstöðvum, hjá gagnrýnendum
jafnt sem áhorfendum. Ekki síst
þeldökkum, sem þótti óvenju heið-
arlega og trúverðuglega að verki
staðið. Myndin er ein sú mest sótta
sem gerð hefur verið af lituðum
leikstjóra og færði honum fyrstum
tilnefningar til tveggja veigamestu
Óskarsverðlaunanna; fyrir leik-
stjórn og frumsamið handrit.
Singleton hlaut margar fleiri rósir
í hnappagatið, var m.a. heiðraður
af samtökum gagnrýnenda í New
York, sem útnefndu hann besta
nýliðann í leikstjórastétt árið ’91.
Fallvölt er frægðin
Flestum reynist erfitt að fylgja
frægðinni eftir og er John Single-
ton engin undantekning. Poetic
Justice kom á markaðinn ’93, með
Janet Jackson í aðalhlutverki hár-
greiðslukonu í South Central, sem
reynir að komast yfir morðið á
unnasta sínum. Myndin er vel leik-
in af Jackson og rapparanum Tu-
pac Shakur, fékk góða aðsókn en
misjafna dóma. Þeir voru ekki allir
sanngjarnir, gagnrýnendur keppt-
ust við að bera Poetic Justice sam-
an við frægan forvera sinn, sem
myndin þoldi engan veginn sam-
anburðinn.
Higher Learning (’95), farnaðist
jafnvel verr. Myndin er veikburða
tilraun til að útskýra afstöðu ólíkra
kynþátta í bandarískum háskóla,
en kemst að óásættanlegri og
klisjukenndri niðurstöðu. Nýtur
góðs af styrkum leik Laurence
Fishburnes, Omars Epps, Micha-
els Rappaports, Ice Cubes, Tyru
Barks, Kristy Swanson, ofl.
Singleton nær sér aftur á strik í
Rosewood (́97), magnaðri þjóð-
félagsádeilu sem naut ekki braut-
argengis meðal almennings, þrátt
fyrir góðar viðtökur gagnrýnenda.
Myndin var „brennheit“, og heyrst
hefur að dreifingaraðilinn hafi ver-
ið smeykur við ofbeldisfulla mynd-
ina, talið að hún gæti virkað einsog
bensín á bál óeirða í blökkumanna-
hverfum sumarið ’97. Önnur,
veigamikil ástæða fyrir litlum vin-
sældum, er tvímælalaust dapur
endirinn, víðsfjarri dæmigerðum
rósrauðum Hollywoodlokum.
Næsta verkefni, endurgerð
Shaft (’00), er af allt öðrum toga,
hress og fjörug. Samuel L. Jack-
son firna góður sem frændi einka-
spæjarans, sem Richard Round-
tree lék með tilþrifum þrjátíu
arum fyrr.
Á morgun beinast augu gamalla
aðdáenda að Baby Boy, sem sögð
er að einhverju leyti framhald
Boyz Ń the Hood. Með aðalhlut-
verkin fara söngkonan Tyrese Gib-
son og Omar Gooding (gæti verið
ættingi Cuba). Hvað sem öðru líð-
ur, verður einkar forvitnilegt að
sjá hvernig leikstjóranum/hand-
ritshöfundinum Singleton tekst að
glíma við gamalt viðfangsefni, eftir
hliðarspor og misjafnt gengi.
JOHN SINGLETONStjörnurkvikmyndannaeftir Sæbjörn Valdimarsson
Aftur í æðstu metorð? Singleton
á tökustað nýju myndarinnar
Baby Boy.
Cuba Gooding Jr. varð stjarna á
einni nóttu eftir frammistöðu
sína í Boyz N the Hood.
Singleton hefur oftar en ekki
valið rappara til að leika í mynd-
um sínum og í nýju myndinni
Baby Boy er röðin komin að
Snoop Doggy Dog.
Svalur Shaft í túlkun Samuels L.
Jacksons.
Rosewood greinir frá átakanlegum viðburðum sem áttu sér stað á þriðja áratugnum.
BOYZ Ń THE HOOD (1991)
Ein besta mynd síðasta áratug-
ar. Framúrskarandi lýsing á
válegu ástandi í hverfum blökku-
manna í stórborgum Bandaríkj-
anna á ofanverðri 20. öld.
Aðalpersónurnar eru skynsamur
unglingspiltur (Cuba Gooding
Jr.), og hálfbræður og félagar
hans. Viðbrögð þeirra við ógnum
umhverfisins, ofbeldinu á götun-
um, eiturlyfjunum, lífi og dauða.
Singleton tekst á við þjóðfélags-
vandann ólíkt því sem kvik-
myndahúsgestir eiga að venjast.
Félagarnir eru mennskir, ekki
óvættir né mislukkaðir vandræða-
gemlingar og byssufóður. Larry
Fishburne leikur föður piltsins,
hann er á öndverðum meiði við
flesta aðra, vill kenna honum
góða siði og varast hætturnar,
sem felast ekki síst í fíkniefnum,
áfengi og slæmum félagsskap
vopnaðra unglingagengjanna allt
um kring. Singleton sýnir vinjar í
eyðimörkinni, vonirnar og von-
brigðin, skörp mörkin á milli
gæfu og ógæfu. Í þroskaðri og
veigamikilli mynd sem tekur
óvenju raunsætt á þjóðfélags-
vanda sem yfirleitt fær yfirborðs-
kennda meðferð, hvort sem er hjá
hvítum eða svörtum kvikmynda-
gerðarmönnum
ROSEWOOD (1997) Hrikaleg, sönn saga frá þriðja
áratugnum, um ótrúlegt kyn-
þáttahatur, ofbeldi og spillingu,
er sögð á magnþrunginn hátt af
Singleton, í hans fjórðu mynd.
Rosewood var vel rekið bæjar-
félag litaðra í Flórídafylki er
lygasaga af nauðgun ærði hvíta
nágranna þess. Fullir af heift og
öfund lögðu þeir bæinn í eyði.
John Voight er framúrskarandi
góður sem eini, hvíti maðurinn
sem reynir að malda í móinn og
Michael Rooker er óneitanlega
áhrifaríkur sem lögreglustjórinn
sem veit allt um málin en gerir
ekkert til að stöðva hildarleikinn.
Singleton forðast málamiðlanir,
myndin skilur eftir vont bragð og
reiði í sálinni yfir miskunnarleysi
og mannvonsku. Myndin endar
því, eins og atburðirnir, og í anda
viðvarandi ástands í kynþátta-
vanda víðast hvar í heiminum – á
vonleysi og skelfingu. Athyglis-
og umhugsunarverð.
SHAFT (2000) Hressandi hliðarskref hjá hin-
um annars alvörugefna leikstjóra,
er e.k. framhald „svartamarkaðs-
myndarinnar“ frá ’71. Samuel L.
Jackson leikur frænda einkaspæj-
arans sem Richard Roundtree
túlkaði svo skemmtilega á sínum
tíma. Frændinn er einnig barn
síns tíma, ekki sama dráttarvélin,
en svalari og skynsamari og er
starfsmaður lögreglunnar í New
York. Viðfangsefni hans er vell-
auðugur, hvítur maður, úrþvætti
sem Christan Bale (American
Psycho), á ekki í vandræðum með
að hrista fram úr erminni. Aðal-
persónurnar eru mun betur upp-
byggðar en menn eiga að venjast
í slíkum myndum, ekki síst vitnið,
sem Toni Collette leikur af
öryggi. Roundtree bregður fyrir
og er gott innlegg í vanmetinni
mynd.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni