Morgunblaðið - 26.06.2001, Blaðsíða 49
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 49
Samfylkingin á
Norðausturlandi
Dagskrá:
Á morgun, miðvikudaginn 27. júní, heimsækja þing-
mennirnir Össur Skarphéðinsson, Einar Már Sigurðarson,
Svanfríður I. Jónasdóttir og Kristján L. Möller fyrirtæki
og stofnanir á Húsavík.
Um kvöldið, kl. 20.30, er stofnfundur Samfylkingarfélags
Húsavíkur á Hótel Húsavík, Bláa salnum.
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar,
ávarpar fundinn.
Fimmtudaginn 28. júní heimsækja þingmennirnir Raufar-
höfn, Þórshöfn og Kópasker. Verður m.a. fundað með
sveitastjórnum og fyrirtæki heimsótt.
Allir velkomnir!
www.samfylking.is
ÚTSALA – ÚTSALA
Ótrúlega lágt verð
60-80% afsláttur
Dæmi um verð Áður Nú
„Slinky“ bolur kr. 3.700 kr. 1.400
Dömurúllukragapeysa kr. 4.900 kr. 1.500
Twill gallajaki kr. 4.400 kr. 1.400
Tunika m/satíni kr. 3.900 kr. 1.400
Dömubolur kr. 2.400 kr. 900
Hlýrabolur kr. 1.900 kr. 700
Kápa kr. 7.800 kr. 1.400
Dömubuxur kr. 3.900 kr. 1.600
Sumarkjóll kr. 3.700 kr. 1.500
Sítt pils kr. 2.900 kr. 900
Herraskyrta kr. 2.900 kr. 1.200
Herrakaðlapeysa kr. 5.900 kr. 2.300
Einnig fatnaður í stærðum 44-52.
Opið frá kl. 10.00 til 18.00
Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík.
Í DAG, þriðjudaginn 26. júní,
verður haldinn síðasti fyrirlestur-
inn í sumar á vegum Karuna, sam-
félags Mahayana-búddista á Ís-
landi, í stofu 101 í Odda, Háskóla
íslands.
Kennari er Venerable Drubchen
sem mun sýna hvernig skýrari
skilningur á huganum og virkni
hans getur dregið úr og jafnvel
eytt neikvæðum hugsunum og til-
finningum sem eru rót allra dag-
legra vandamála og þjáninga, seg-
ir í frétt frá félaginu. Yfirskrift
fyrirlestrarins er „Dvalið í friði“.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
er gjald 1.000 kr. en 500 kr. fyrir
námsmenn og öryrkja. Kennslan
fer fram á ensku og hefst kl. 20.
Fyrirlestur
um búddisma
Í KVÖLD, þriðjudag, verður farin
kvöldganga í Viðey. Í þetta sinn
verður farið um vesturenda eyj-
unnar sem hefur að geyma lista-
verk Richard Serra, merks högg-
myndamanns frá Ameríku.
Er verk hans voru sett niður á
sínum tíma fundust steinar með
áletrunum á frá því búið var á
eynni á 19. öld, en Hallgrímur Pét-
ursson hafði á sínum tíma skrifað
að eyjan hefði þannig steina að
geyma. Verður farið með ferju frá
Sundahöfn kl. 19:30 og hefst sjálf
gangan í eynni við Viðeyjarkirkju.
Ekkert gjald er tekið fyrir leið-
sögnina, en hins vegar er ferjutoll-
ur, 400 kr. fyrir fullorðna og 200
kr. fyrir börn. Fólk er beðið um að
búa sig vel eftir veðri og er brýnt
að vera í góðum skóm.
Kvöldganga í
Viðey
♦ ♦ ♦
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is
Í dag 26. júní verð-
ur frú Oddný Ólafs-
dóttir, Ofanleiti 23, 80
ára. Mamma var fædd
á Látrum í Aðalvík,
þriðja barn ömmu og
afa, Sigríðar Þor-
bergsdóttur og Ólafs
Hjálmarssonar. Ekki
mun ég rekja ættar-
sögu þína mamma mín
– þessi afmælisgrein
er þakkar- og virðing-
arvottur til þín fyrir
langan vinnudag og
dugnað, sem skilar
sér enn í því sem þú
kenndir mér í uppvextinum. Þú
varst þekkt fyrir snilld þína í fata-
saumi og með dugnaði þínum náðir
kjólameistararéttindum 1965. Ég
segi enn og aftur að þú ert á
heimsmælikvarða í fatahönnun. Við
heyrðum oft í saumavélinni langt
fram á nótt – þegar þú varst að
sauma á okkur dætur þínar eftir
langan vinnudag.
Við vorum sagðar af nágrönnum
vera best klæddu litlu telpurnar í
nágrenninu. Oft var úr litlu að
spila og man ég eftir að þú saum-
ODDNÝ
ÓLAFSDÓTTIR
aðir á okkur kjóla úr
hveitipokum. Það var
oft mannmargt á
Laugaveginum og allt-
af var kaffi á könnunni
hjá Nýju eins og vinir
og ættingjar kölluðu
þig sem komu í heim-
sókn alls staðar að og
oft voru ættingjar á
heimilinu mánuðum
saman er komu utan
frá landi til að fara í
skóla og til lækninga í
Reykjavík. Það hafði
verið þinn draumur að
heimsækja gamlar
bernskuslóðir í Ameríku, en þang-
að hafðir þú ekki komið síðan þú
varst barn og bjóst þar í nokkur
ár. Þú lagðir hart að þér með mik-
illi vinnu til að komast í þetta
ferðalag. Ég man hvað þið Kata
vinkona þín og þú hlökkuðuð til
þessarar ferðar. Þið ókuð í Gray-
hound-rútum yfir þver Bandaríkin
og er það þrekvirki og fóruð einnig
á heimssýninguna í Seattle. Svona
dugnað og ákveðni hefur þú alltaf
sýnt í hverju, sem þú tekur þér
fyrir hendur og ákveður að gera,
samanber að læra á bíl á fullorðins-
árum þegar þú hafðir loksins tök á
að fá þér bíl. Við konur vitum að
göfugra og erfiðara starf en móð-
urhlutverkið er ekki að finna. Þú
lagðir mikið á þig að sjá til þess, að
við skildum mátt góðrar menntun-
ar og mátt vera stolt af því verki.
Megir afmælisdagurinn þinn
vera fullur af gleði og ánægju.
Með ást og þakklæti, elsku
mamma mín.
Þín
Guðbjörg (Gugga).