Morgunblaðið - 26.06.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 9
Brúðargjafir Söfnunarstell
Gjafakort Áletranir á glös
Bæja r l ind 1 -3 , s ím i 544 40 44
Brúðkaupsdagar
Full búð af
glæsilegum
undirfötum
P
ó
stsend
um
Laugavegi 4, sími 551 4473
Sumarúlpur og jakkar 20% afsl.
Bankastræti 14, sími 552 1555
Sumartilboð
30% afsláttur af yfirhöfnum
Gott verð
www.oo.is
á barnabílstólum
— úrvalið er hjá okkur
T ILBOÐ
Freeway 9-18 kg.
Tilboðsverð
12.990 kr.
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Jakkar, pils og buxur
frá stærð 34 - 20% afsláttur í 3 daga
Opið frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 10-14
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
Ótrúlegt buxnaúrval allar síddir
Sérhönnun. St. 42-56
bómull, hör, viskos, strets og kakí
Mikið úrval af gluggatjaldaefnum
Skipholti 17a, sími 551 2323
Við ráðleggjum
og saumum fyrir þig
Sumar-
tilboð
20% afsláttur
Hverfisgötu 78 Sími 552 8980
Gjafavörur og listmunir í úrvali
Palazzi breytir heimili í höll
VERSLUNIN PALAZZIFaxafeni 9 S: 562 4040
ALMENNINGUR getur nú nálgast
á vef Almannavarna ríkisins ítarleg-
an gátlista um viðbrögð og forvarnir
gegn náttúruhamförum og annarri
vá. Sólveig Pétursdóttir, dómsmála-
ráðherra, opnaði nýju síðurnar á
fréttamannafundi í stjórnstöð Al-
mannavarna í Reykjavík fyrir helgi.
Síðurnar er að finna á vef Al-
mannavarna undir heitinu „Gerið
heimilisáætlun“, slóðin er www.avr-
ik.is. Á fundinum kom fram að jarð-
skjálftarnir fyrir rúmu ári hafi verið
áminning um gildi forvarna og í kjöl-
farið hafi mörg heimili farið að huga
enn frekar að þeim. Því hafi verið
ákveðið að leggja sérstaka áherslu á
gildi forvarna við endurgerð heima-
síðu Almannavarna. „Íslendingar
búa við viðvarandi umhverfisvá af
ýmsum toga og staðsetning eyjunn-
ar okkar á hnettinum gerir líf okkar
undirorpið sterkum, og oft ófyrirsjá-
anlegum, náttúruöflum. Því er þeim
mun brýnna fyrir okkur að þekkja
hætturnar og búa okkur undir að
takast á við þær,“ sagði dómsmála-
ráðherra í ræðu sinni.
Öll fjölskyldan taki þátt
Í tilkynningu Almannavarna segir
að heimilisáætlunin miði að því að
fólk kynni sér hætturnar í umhverf-
inu, ákveði viðbrögð við þeim og við-
hafi nauðsynlegar forvarnir. Þar er
jafnframt áréttað mikilvægi þess að
heimilisáætlunin sé endurskoðuð
reglulega og að netið auðveldi mjög
allar uppfærslur á henni. Í máli Gyðu
Árnýjar Helgadóttur, sviðsstjóra
forvarnasviðs Almannavarna, kom
fram að áætlunin felist í „fjórum
gullnum skrefum;“ að gera áhættu-
greiningu, framkvæma forvarnir,
semja viðbragðsáætlun og kunna að
bregðast við vá. Á heimasíðunni er
að finna níu lista sem hjálpa fölskyld-
um við þessa skipulagningu. Ætlast
er til að fjölskyldur sameinist um að
fylla út listana á netinu, þeir síðan
prentaðir og geymdir á góðum stað.
Ítrekað var á fundinum mikilvægi
þess að öll fjölskyldan sé höfð með í
gerð áætlunarinnar og að æfð séu
viðbrögð við hættuástandi og rýming
húsnæðis.
Endurbætt heimasíða Almannavarna
Forvarnir í
forgrunni
Morgunblaðið/Jim Smart
Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Sólveig Péturs-
dóttir, dómsmálaráðherra og Hafþór Jónsson, frá Almannavörnum.
ÍSLENDINGADAGURINN og
samtökin United Icelandic Appeal í
Kanada bjóða íslenskum unglingum
á aldrinum 18–23 ára að dveljast um
nokkurra vikna skeið hjá vestur-ís-
lenskum fjölskyldum í Kanada í
sumar.
Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir,
19 ára nemi við Menntaskólann í
Reykjavík, mun ásamt annarri ís-
lenskri stúlku halda af stað til Kan-
ada í vikunni og dveljast þar í landi
fram í ágúst. Að sögn hennar munu
Íslendingarnir eyða fyrstu vikunni í
Kanada í að kynna sér menningu
landsins en eftir það verður gist hjá
vestur-íslenskum fjölskyldum um
nokkurra vikna skeið.
Gert er ráð fyrir að hluta dval-
arinnar muni íslensku ungmennin
sinna mismunandi störfum og kem-
ur Ragnheiður Ásta til með að
starfa á Hekla Island sem aðstoð-
armaður í upplýsingagjöf fyrir
ferðamenn í tvær vikur. Hún hlakk-
ar til fararinnar og býst við að hitta
vestur-íslenska ættingja meðan
dvölinni stendur.
Í fyrsta skipti vestur
Undanfarin þrjú ár hafa komið
hingað til lands kanadísk ungmenni
af íslenskum ættum til sumardvalar
í þeim tilgangi að kynnast rótum
sínum á Íslandi en þetta er í fyrsta
sinn sem íslensk ungmenni halda í
svipaða ferð til byggða Vestur-Ís-
lendinga í Kanada.
Milligönguaðilar verkefnisins á
Íslandi eru Norræna félagið og
Þjóðræknisfélag Íslendinga á Ís-
landi.
Dveljast hjá
Vestur-Ís-
lendingum
Íslenskum ungmennum
boðið til dvalar
í Kanada í sumar
TVEIR nýir yfirlæknar hafa verið
ráðnir hjá Landsspítala – háskóla-
sjúkrahúsi, Eiríkur Jónsson sem
yfirlæknir þvagfæraskurðlækn-
ingadeildar og Halldór Jónsson
yngri sem yfirlæknir bæklunar-
skurðlækningadeildar.
Eiríkur Jónsson lauk prófi frá
læknadeild Háskóla Íslands árið
1984 og nam síðar barnaskurð-
lækningar og þvagfæraskurðlækn-
ingar í Bandaríkjunum. Eftir nám
var Eiríkur sérfræðingur í þvag-
færaskurðlækningum á Borgar-
spítalanum og Landakotsspítala og
síðar yfirlæknir þvagfæraskurð-
lækningadeildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
Hann var settur yfirlæknir þvag-
færaskurðlækningadeildar Land-
spítala – háskólasjúkrahúss frá 1.
febrúar 2001.
Halldór Jónsson lauk prófi frá
læknadeild Háskóla Íslands árið
1980 og doktorsprófi í bæklunar-
lækningum í Svíþjóð 1992. Halldór
var áður sérfræðingur við bækl-
unardeild háskólasjúkrahússins í
Uppsölum og síðar í bæklunar-
lækningum á Landspítalanum.
Hann hefur verið dósent í bækl-
unarskurðlækningum við lækna-
deild HÍ frá 1999. Halldór var yf-
irlæknir og síðan forstöðulæknir
bæklunarlækningadeildar Land-
spítalans. Hann var settur yfir-
læknir bæklunarskurðlækninga-
deildar Landspítala –
háskólasjúkrahúss frá 1. febrúar
2001.
Nýir yfir-
læknar
á tveimur
skurð-
deildum
♦ ♦ ♦