Morgunblaðið - 26.06.2001, Side 11

Morgunblaðið - 26.06.2001, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 11 REFSIFANGI á Litla-Hrauni sem ákærður var fyrir umfangsmikil fjársvik hefur verið sýknaður af flestum ákæruatriðum fyrir Héraðsdómi Suð- urlands. Sýslumaðurinn á Selfossi ákærði mann- inn fyrir að hafa með blekkingum fengið banka- starfsmenn til að millifæra rúmlega 2,3 milljónir króna af bankareikningum annarra yfir á eigin reikning eða vitorðsmanna sinna. Í tveimur til- vikum tókst bankastarfsmönnum að stöðva færslur að upphæð 1,2 milljónir. Hin meintu svik framdi maðurinn í fangelsinu á Litla-Hrauni með því að hringja í bankana og fá starfsmenn til að taka út fé af reikningum ým- issa aðila, m.a. bryta á Litla-Hrauni, lögfræðings og samfanga síns. Maðurinn, sem samkvæmt ákæru er greinilegur höfuðpaur málsins, neitaði eindregið sök. Meðal sönnunargagna sem ákæru- valdið lagði fram var skrá yfir símanotkun mannsins. Föngum á Litla-Hrauni er úthlutað leyninúmeri sem þeir þurfa að slá inn til að geta hringt. Fyrir dómnum var hins vegar leitt í ljós að fangar skiptast gjarnan á leyninúmerum og því ekki hægt að slá því föstu að maðurinn hefði hringt úr símanum þó að leyninúmer hans hefði verið notað. Í ljós kom að klukka sem skráir nið- ur símtöl fanga á Litla-Hrauni var alls ekki rétt en talsvert misræmi var í gögnum frá fangelsinu um tímasetningar símtala og frá bönkunum. Því þótti dóminum að ekki væri hægt að draga nokkrar ályktanir af tímasetningum símtala og millifærslum bankanna. Slíkur vafi léki á sekt mannsins að sýkna bæri hann af flestum ákæruatriðunum. Játaði eitt brot og var sakfelldur fyrir það Eina brotið sem maðurinn var sakfelldur fyrir var að hafa sent umsókn um Eurocard-greiðslu- kort með fölsuðum undirskriftum en þetta brot játaði maðurinn. Hann var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi. Maðurinn sem er um 35 ára gamall á að baki langan brotaferill. Frá 1983 hefur hann hlotið 17 refsidóma, þ.m.t. allnokkra fyrir þjófnað og skjalafals og brot á lögum um ávana- og fíkni- efni. Fimm voru ákærðir fyrir hylmingu í málinu. Einn þeirra varð var við að 300.000 krónur voru lagðar inn á bankareikning hans. Sambýliskona hans tjáði honum að hinn umræddi refsifangi hefði lagt inn féð vegna tölvukaupa. Maðurinn kannaðist hins vegar ekkert við það og athugaði málið hjá bankanum. Þar fékk hann þær upplýs- ingar að bryti á Litla-Hrauni hefði lagt inn féð. Hann hafði samband við manninn og sagði hon- um málavexti og ræddi einnig við bankann um málið. Féð millifærði hann hins vegar inn á reikning sambýliskonu sinnar. Hann sagðist fyrir dóminum hafa gert sér grein fyrir því að hann hefði eytt peningum sem hann átti ekki og væri tilbúinn til að greiða þá til baka. Maðurinn, sem einnig á langan sakaferil að baki, var sakfelldur en ekki gerð sérstök refsing. Aðrir sem ákærðir voru fyrir hylmingur voru sýknaðir. Einn þeirra, kona, var reyndar dæmd til að greiða 40.000 krónur í sekt og svipt ökurétti í sex mánuði en hún ók bíl sínum um Selfoss undir áhrifum ýmiss konar lyfja. Bótakröfum var öllum vísað frá dómi enda væri ekki ljóst á hendur hverjum þessar bóta- kröfur væru. Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp dóminn. Refsifangi sýknaður af ákæru um stórfelld fjársvik Í FLUGI Flugleiða til Boston á laugardaginn gerðist sú ný- lunda að áhöfnin var skipuð kvenkyns flugmönnum en karl- kyns flugþjónum. Hjá Flug- leiðum starfa um 240 flugmenn og flugstjórar og eru átta þeirra konur. Þá starfa þar 600 flugliðar og þar af eru 32 karl- kyns. Tákn um nýja tíma Í tilefni af þessum sérstæða atburði sendi Jafnréttisstofa öll- um í áhöfninni blómvönd með eftirfarandi kveðju: „Þau sem brjóta múra kynjastaðals sam- félags kunna að dansa. Þau sem fljúga eiga ævintýraþrá. Við óskum Flugleiðum og þér til hamingju með þennan áfanga á ævintýradansleik kynjanna.“ Guðrún Olsen, flugstjóri í ferðinni, segir að þetta sé ein- faldlega tákn um nýja tíma í upphafi nýrrar aldar. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Áhöfnin með blómvendina sína frá Jafnréttisstofunni fyrir flug á laugardaginn. Fengu blómvendi frá Jafn- réttisstofu UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að úr- skurður málskotsnefndar LÍN hafi ekki verið í samræmi við lög í máli finnskrar konu, sem synjað var um námslán úr sjóðnum. Konan hafði verið búsett hérlendis frá árinu 1993 og sótti um námslán til að stunda dýralæknanám í Noregi. Henni var synjað um námslán á þeim grundvelli að réttur hennar til námslána væri takmarkaður við að hún stundaði nám á Íslandi auk þess sem hún hefði ekki starfað á hinu Evrópska efnahags- svæði í fimm ár sbr. reglur LÍN og lög um lánasjóðinn. Í kæru sinni til málskotsnefndar vísaði konan m.a. í álit umboðsmanns Alþingis í máli frá 1996 sem hún taldi alveg hliðstætt sínu. Umboðsmaður taldi að málskots- nefndinni hefði borið að taka málefna- lega og rökstudda afstöðu til þess hvort og þá með hvaða hætti þau sjón- armið sem rakin voru í málinu frá 1996 ættu við í máli konunnar. Bar nefndinni þannig að taka fullnægj- andi afstöðu til þess hvort og þá hvaða áhrif ákvæði samstarfssamnings milli Norðurlandanna frá 1962 með áorðn- um breytingum hefðu á úrlausn um rétt konunnar til námslána. Í því efni hefði ekki verið fullnægjandi að segja það eitt að tiltekin ákvæði úthlutunar- reglna lánasjóðsins hefðu „að hluta til [verið] settar vegna samkomulags Norðurlandanna um námsaðstoð“.“ Þá hefði það komið eitt fram í úr- skurðinum um réttarstöðu konunnar samkvæmt reglum EES-samningsins um farandlaunþega, sbr. 3. mgr. 13. gr. laga nr. 21/1992, að „óumdeilt“ hefði verið að konan hefði ekki verið starfandi á hinu Evrópska efnahags- svæði í fimm ár. Hefði nefndin þannig ekki tekið til rökstuddrar úrlausnar mál konunnar er lutu að því hvernig hún taldi að skýra ætti áðurnefnda lagagrein með hliðsjón af fyrirmælum EES-samningsins um farandlaun- þega. Taldi umboðsmaður Alþingis að þessi vinnubrögð nefndarinnar væru í ósamræmi við lagakröfur um rök- stuðning úrskurða á kærustigi, sbr. 4. tölul. 31. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 1. mgr. 22. gr. sömu laga. Úrskurður mál- skotsnefndar LÍN ekki í sam- ræmi við lög NÚ STENDUR yfir lokaáfanginn í vegaframkvæmdum um Gemlu- fallsheiði milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar í Ísafjarðarbæ. Þeg- ar vinnu lýkur síðsumars verða allir byggðakjarnarnir fjórir í Ísafjarðarbæ tengdir með vegi með bundnu slitlagi. Kaflinn sem nú er í vinnslu, alls 3,2 km, er norðanvert í heið- inni og í Bjarnardal í Önund- arfirði. Veginum er breytt og hann lækkaður með því að fara utan í hól efst í brekkunni, sem nú er farið yfir. Við breytinguna minnkar halli vegarins úr 11% í 7,5-8% auk þess sem hann lækkar og er vonast til að vegurinn verði mikið lengur fær í snjóum en áð- ur var. Það er verktakafyrirtækið Höttur frá Fjarðarhorni í Hrúta- firði sem sér um verkið. Þjóðvegurinn um vestanverðan Ísafjarðarbæ, það er frá Þingeyri að bæjarmörkunum við Vest- urbyggð á Dynjandisheiði og það- an áfram, er enn malarvegur. Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Um 120 þúsund rúmmetra af efni þarf að flytja til vegna nýja vegarins. Bundið slitlag til Þingeyrar Ísafjörður. Morgunblaðið. Flug Flugleiða til Boston ÞJÓÐGARÐURINN Snæ- fellsjökull verður formlega opnaður við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 28. júní á Mal- arrifi. Hann verður fjórði þjóðgarður Íslendinga, en fyr- ir eru Þingvallaþjóðgarður frá árinu 1928, þjóðgarðurinn í Skaftafelli sem stofnaður var 1967 og þjóðgarðurinn í Jök- ulsárgljúfrum frá 1973. Undirbúningur hefur staðið yfir frá 1993 Samkvæmt upplýsingum frá umhverfisráðuneytinu hef- ur undirbúningur stofnunar þjóðgarðsins á utanverðu Snæfellsnesi staðið yfir frá árinu 1993, en hugmyndin að þjóðgarði á þessum slóðum er mun eldri. Samningar um upp- kaup jarða innan fyrirhugaðs þjóðgarðs hafa tekið lengri tíma en menn ætluðu í upp- hafi. Allt landið innan þjóð- garðsins verður í eigu ríkisins. Mörk þjóðgarðsins verða í suðri við Háahraun í landi Dagverðarár og í norðri við Gufuskála. Stærstur hluti jök- ulsins verður innan þjóðgarðs. Yst á Snæfellsnesi er að finna einstakar náttúruminjar og af- ar sérstakt landslag við rætur Snæfellsjökuls. Þarna er mik- ill fjöldi sögulegara minja, m.a. frá verstöðvunum í Drit- vík og Gufuskálum. Þjóðgarð- urinn Snæ- fellsjökull opnaður „Ríkisstjórnin ákvað að styðja ASÍ til verðlagseftirlits með fjár- framlagi. Ég veit ekki hvort þeir eru ennþá komnir af stað með það,“ bætti Davíð við. „Í febrúar sl. var það niðurstaða stjórnvalda að leggja ASÍ til nokkra fjármuni til að sinna verðlagseftirliti, sem að okkar mati er mjög mikilvægt starf sem ber að sinna af kostgæfni og höfum við full- an hug á því. Fjárveitingin nær til þriggja ára og reikna ég með að við sinnum reglulegu verðlagseftirliti á þeim tíma, “ sagði Grétar. Niður- staðna úr þessari fyrstu verðlags- könnun ASÍ er að sögn Grétars að vænta um næstu mánaðamót. ASÍ sinnir verð- lagseftirliti „ALÞÝÐUSAMBAND Íslands hefur fyrir allnokkru ráðið starfsmann í fullt starf til að sinna verðlagseftirliti og er hann þessa dagana að vinna úr upplýs- ingum úr verðkönnun sem hefur nýlega verið framkvæmd,“ sagði Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, þegar hann var inntur svara við ummælum Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í Morgunblaðinu þar sem ráðherrann sagði m.a. að væri ný verðkönnun DV varðandi hækkun á verði matvöru rétt, þá væru menn að taka sér hækkanir langt umfram gengisbreytingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.