Morgunblaðið - 26.06.2001, Page 16

Morgunblaðið - 26.06.2001, Page 16
AKUREYRI 16 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÖLUDEILD símar, 461 3014 og 848 2727 Ahorn Camp Gott verð LOKSINS NÝIR HÚSBÍLARNÝR HÚSBÍLL TIL SÖ U ARCTIC Open-golfmótinu lauk á Jaðarsvelli við Akureyri um helgina. Um er að ræða miðnæt- urgolfmót og er spilað fram á nótt. Veðrið lék við kylfingana að þessu sinni svo sem oft áður en mótið var haldið í 16. sinn. Sífellt fleiri útlend- ir kylfingar sækjast eftir að vera með enda þykir þeim mikið varið í að leika golf um bjartar nætur. Sigurpáll Geir Sveinsson varð í fyrsta sæti á mótinu í flokki án for- gjafar, Ingvar Karl Hermannsson varð í öðru sæti, Ólafur A. Gylfason í því þriðja, David Barnwell í fjórða sæti og Ómar Halldórsson í því fimmta. Í flokki án forgjafar varð John Smit frá Suður-Afríku í fyrsta sæti, Hal Corbin frá Bandaríkjunum ann- ar og Sveinn Viðarsson í því þriðja. Morgunblaðið/Rúnar Þór Þegar miðnætursólin sýndi sig upp úr miðnætti gáfu golfararnir sér góðan tíma og nutu útsýnisins. Í logum miðnætursólar PÉTUR Bjarnason, Akureyri, hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Frumkvöðlaset- urs Norðurlands og hefur hann störf á næstu dögum. Pétur útskrifaðist sem sjáv- arútvegsfræðingur frá Háskólanum í Tromsö 1980 og hefur að mestu starfað innan sjávarút- vegsins síðan þá. Pétur hefur síðustu árin verið formaður og fram- kvæmdastjóri Fiski- félags Íslands og mun áfram sinna stjórnun- arstörfum í hlutastarfi hjá því félagi. Frumkvöðlasetur Norðurlands mun hafa starfsstöðvar á Dalvík, Ak- ureyri og Húsavík. Markmið með stofnun setursins er að aðstoða frum- kvöðla til þess að koma atvinnuskap- andi hugmyndum í framkvæmd og að taka þátt í stofnun og starfsemi félaga, sem fela í sér ný- mæli í atvinnulífinu og eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á Norðurlandi. Þeir sem standa að setrinu eru: Fjárfesting- arfélagið Urðir hf., Tækifæri hf., Iðntækni- stofnun Íslands, Ný- sköpunarsjóður at- vinnulífsins, Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, At- vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, At- vinnuþróunarfélag Þingeyinga hf. og Há- skólinn á Akureyri. Stjórn Frumkvöðlaseturs Norður- lands skipa: Rúnar Þór Sigursteins- son, formaður; Andrés Magnússon, Arne Vagn Olsen, Björgvin Njáll Ingólfsson, Hólmar Svansson, Ingi Rúnar Eðvarðsson, Jóhann Antons- son, Sveinn Þorgrímsson og Tryggvi Finnsson. Frumkvöðlasetur Norðurlands Pétur Bjarnason ráðinn fram- kvæmdastjóri Pétur Bjarnason BÆJARRÁÐ Akureyri hefur sam- þykkt að hækka þjónustugjaldskrár Akureyrarbæjar um 10%. Hækkun- in tekur gildi 1. júlí næstkomandi. Þetta er gert að því er fram kom í bæjarráði, til að unnt sé að mæta hluta af þeim kostnaðarhækkunum sem orðið hafa í rekstri bæjarsjóðs. Nefndum bæjarins hefur verið falið að útfæra gjaldskrárnar. Bæjarráð Akureyrar Þjónustugjaldskrár hækka um 10% GAUI litli og félagar gróðursettu 24 stór tré í svonefndum Feitalundi í Átvaglaskógi, nú um helgina, en hann er í landi Hamra við Akureyri. Í lundinum hefur verið reist tré- stytta, „Vambarpúkinn“ sem Aðal- steinn Svanur Sigfússon gerði, en hann er eins konar grátmúr feita mannsins. Stefnt er að því að Át- vaglaskógur verði í framtíðinni stærri en Vaglaskógur! Fjögur ár eru nú liðin frá því Gaui litli fór af stað með aðhalds- námskeið í World Class í Reykjavík og Akureyri og hefur fólk sem sótt hefur þessi námskeið á tímabilinu misst samtals 19 tonn af fitu. Fyrsta árið var Landgræðslu rík- isins gefin rúm 3 tonn af áburði til dreifingar á hálendinu, en síðustu tvö ár hafa trjáplöntur verið gróð- ursettar fyrir hvert fallið kíló. Nú í ár hafa fallið 6 tonn af fitu, hjá börnum, unglingum og fullorðnu fólki sem sótt hefur námskeiðin. Nemur fitumissirinn alls um 10 brettum af fitu en þau rúmast í 20 feta gámi. Morgunblaðið/Rúnar Þór Gaui litli við gróðursetningu í Feitalundi ásamt fjölskyldu og fleirum. Gaui litli og félagar 24 tré gróðursett í Feitalundi AÐALHEIÐUR S. Eysteins- dóttir og Jón Laxdal bjóða upp á daglega dagskrá í vinnustofum sínum að Kaup- vangsstræti 24, allt fram til 19. júlí næstkomandi. Þessi dagskrá nefnist „Á slaginu sex“ og eins og nafnið ber með sér hefst hún kl. sex eða 18 daglega. Vinir og vanda- menn þeirra hjóna, Aðalheið- ar og Jóns, munu sjá um listauka á þessum „Listsýn- ingum í vinnustofum“. Í dag, þriðjudaginn 26. júní, verður það Þórey Óm- arsdóttir sem sér um dag- skrána, Aðalheiður verður með dagskrá á morgun, mið- vikudag, Steinunn Sigurðar- dóttir á fimmtudag, Heimir Hlöðversson á föstudag, Jón Erlendsson á laugardag, óvænt uppákoma verður á sunnudag, en næsta mánu- dag, 2. júlí, mæta þær Arn- finna Björnsdóttir og Hólm- fríður Steinþórsdóttir „á slaginu sex“. Á slag- inu sex Listsýningar á vinnustofum Aðalheiðar og Jóns

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.