Morgunblaðið - 26.06.2001, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 51
DAGBÓK
LJÓÐABROT
KVÖLDVÍSA
Hnígur hlýskjöldur,
heimsljósið bjarta,
seint á vesturvegu,
hinztum lýstur
himingeisla
yfir frjóvga fold.
Döggvuð rís
fyrir dásemd þinni
rós af blómgum beð.
Ljúf eru þau
litaskipti
hógvært heims um kvöld.
Sit ég einn
í ægisheimi
og yfir löndin lít.
Sofna taka nú
sorgir mínar
í eyglóar örmum.
Benedikt Gröndal.
Árnað heilla
Þjóðunum í Evrópu hefur
fjölgað mikið á síðasta ára-
tug og það kemur auðvitað
fram í fjölda þátttakenda á
alþjóðamótum. Á Möltu
1999 var slegið met en þá
tóku 37 þjóðir þátt í EM
opna flokksins. Var brugðið
á það ráð að fækka spilum í
hverjum leik í 20. Áður hafði
verið fækkað niður í 24 úr
32. Ítalir unnu þar sinn
þriðja sigur í röð en Ísland
endaði í 21. sæti. Liðið var
skipað Magnúsi Magnús-
syni, Þresti Ingimarssyni,
Antoni Haraldssyni, Sigur-
birni Haraldssyni, Ásmundi
Pálssyni og Jakobi Kristins-
syni og fyrirliði var Ragnar
Hermannsson. Gullaldarlið
Austurríkismanna var með-
al þátttakenda en einn
þeirra besti spilari fann þó
ekki bestu leiðina í þessum
þremur gröndum:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 102
♥ ÁK6
♦ D862
♣ DG86
Vestur Austur
♠ G864 ♠ Á75
♥ D5 ♥ G1084
♦ G43 ♦ 105
♣ÁK109 ♣7532
Suður
♠ KD93
♥ 9732
♦ ÁK97
♣4
Ítalir voru mótherjar
Austurríkismanna og
Feichtinger í suður fékk út
spaða frá Boccki í vestur eft-
ir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Bocchi Terraneo Duboin Feicht-
inger
-- -- Pass 1 hjarta
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Bláa laufið er enn vinsælt
hjá eldri kynslóðinni í Aust-
urríki og því vekur suður á
hjarta en ekki tígli. En það
er út af fyrir sig aukaatriði.
Duboin tók á spaðaás og
spilaði aftur spaða. Feichtin-
ger stakk upp kóng og dúkk-
aði hjarta. Sem var ógæti-
legt því austur komst inn og
gat spilað spaða og byggt
upp slag gosa vesturs. Vörn-
in hefur nú opnað fimm slagi
og þegar hjartað féll ekki 3-3
hlaut spilið að tapast.
Auðvitað er eðlilegt að
reyna við níunda slaginn á
hjarta. En Feichtinger átti
kost á fallegri „slaufu“ sem
gat gefið honum vinning í
hagstæðri lauflegu. Hann
átti að spila hjarta á ásinn,
fara heim á tígul og spila aft-
ur hjarta. Þegar drottningin
kemur úr vestrinu er dúkk-
að! Vestur getur auðvitað
ekki spilað spaða og verður
að koma sér hlutlaust út á
tígli. En það gefur sagnhafa
færi til að spila laufi að litlu
hjónunum. Í þessu tilfelli á
vestur bæði ás og kóng og
því er hægt að fría níunda
slaginn á lauf í rólegheitum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson.
80 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 26. júní
er áttræð Oddný Ólafsdótt-
ir, kjólameistari, hjúkrun-
arheimilinu Eir, áður að
Stórholti 27, Reykjavík. Í
tilefni dagsins ætlar Oddný
að hafa heitt á könnunni fyr-
ir ættingja og vini á heimili
dóttur sinnar Jóhönnu að
Þrastarlundi 1, Garðabæ,
eftir kl. 19:30.
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, miðviku-
daginn 27. júní, verður sjö-
tugur Guðmundur Ó. Egg-
ertsson, húsgagnasmíða-
meistari, Heiðargerði 76,
Reykjavík. Af því tilefni
taka Guðmundur og eigin-
kona hans, Vilhelmína
Adolfsdóttir, á móti vinum
og ættingjum milli kl. 18–21
á afmælisdaginn, í Veislusal
að Skipholti 70, Reykjavík.
STAÐAN kom upp á helg-
arskákmótinu á Akureyri er
fór fram um hvítasunnu-
helgina. Hvítt hafði Björn
Þorfinnsson (2265) gegn
Lenku Ptácníkovu (2185).
21.Ba6+ Rb7 22.Rd5! og
svartur lagði niður vopnin
enda tapar hann drottning-
unni eða verður mát.
Skákin tefldist í heild
sinni: 1.d4 Rf6 2.Bg5
Re4 3.Bh4 d5 4.e3 g5
5.Bg3 h5 6.f3 Rxg3
7.hxg3 Bg7 8.f4 g4
9.Bd3 c5 10.c3 b6
11.Re2 f5 12.c4 e6
13.Rbc3 dxc4 14.Bxc4
cxd4 15.Rxd4 De7
16.Db3 Bxd4 17.exd4
Rc6 18.O-O-O Ra5
19.Db5+ Bd7 20.De5
O-O-O o.s.frv. Þriðja
helgarskákmótinu í
helgarmótasyrpu
SÍ lauk um síðustu helgi.
Taflfélag Reykjavíkur hélt
það en lokastaða efstu
manna varð þessi: 1. Arnar
E. Gunnarsson 7½ vinning
af 9 mögulegum 2. Helgi
Ólafsson 7 v. 3.-4. Helgi Áss
Grétarsson og Sigurður Páll
Steindórsson 6 v. 5.-8. Stef-
án Kristjánsson, Björn Þor-
finnsson, Þorsteinn Þor-
steinsson og Magnús Örn
Úlfarsson 5½ v. 9.-10. Guð-
mundur Kjartansson og Sig-
urjón Sigurbjörnsson 5 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Með morgunkaffinu
Hver
ykkar var
á vakt í
nótt?
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert hreinskilinn og átt
stundum til að koma of bratt
að fólki þegar þú ræðir við
það umbúðalaust.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að tala skýrt og
skorinort, ef þú vilt ekki eiga
á hættu, að einhverjir mis-
skilji þig. Taktu jákvæðri
gagnrýni vel því hún er upp-
byggjandi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt veraldleg gæði séu nauð-
synleg, snýst lífið um fleira en
þau. Vanræktu ekki þinn
innri mann, heldur gefðu þér
tíma til að sinna andlegum
þörfum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vertu óhræddur við að bera
upp þær spurningar, sem þér
liggja á hjarta. Taktu það
ekki óstinnt upp, þótt svörin
láti stundum bíða eftir sér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú verður að finna sköpun-
arþrá þinni farveg og sinna
henni sem mest þú mátt.
Börn eru einkar einlæg og
samband við þau er sérstak-
lega gefandi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gengur með margar djarf-
ar hugmyndir í maganum.
Hvernig væri að slaka einni
eða tveimur og sjá hvernig
fólk bregzt við þeirri fram-
takssemi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Eins og það er gott, þegar
menn hjálpast að, getur það
stundum orðið til trafala,
þegar of margir koma að
verki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Einhver vandræði koma upp í
samskiptum þínum við aðra
þannig að þú þarft að leita
þér að bandamanni. En
mundu að lengi má manninn
reyna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er stundum nauðsynlegt
að lesa milli línanna, því að-
eins þannig fæst rétt mynd af
því sem raunverulega er að
gerast.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú er rétti tíminn til að
hrinda í framkvæmd þeim
áætlunum, sem þú hefur svo
lengi unnið að af kostgæfni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér er nauðsyn að finna tíma
fyrir sjálfan þig. Ef vinir og
ættingjar leyfa það ekki,
verður þú að tala alvarlega
við þá, þangað til þeir skilja
þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú kannt að bjarga þér út úr
erfiðri aðstöðu, sem þú lendir
í, en þarft þó að taka á öllu,
sem þú hefur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhverjir hnökrar koma upp
á vinnustað og þú þarft að
taka á honum stóra þínum til
þess að samstarfið endi ekki
með ósköpum. Haltu ró þinni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
Bébécar AT barnavagnar,
Reider AT kerrur og
Easybob bílstólar,
sem passa á
vagnagrindur og kerrur.
Nýir litir
Hlíðasmára 17, Kópavogi, sími 564 6610,
verslun.strik.is/allirkrakkar
Gullsmiðir
Nýbýlavegi 12 - sími 554 4433
Ódýrir sumarbolir frá kr. 1.200
Hnepptar peysur frá kr. 1.990
Stuttbuxur kr. 1.490
Sumarferð Dómkirkjunnar
Fimmtudaginn 28. júní
verður farin árleg ferð eldri borgara.
Farið verður kl. 13 frá Safnaðarheimilinu í
Lækjargötu 14a. Ekið verður um Þrengslaveg
að Strandarkirkju, þar sem verður helgistund
og staðarskoðun. Að því búnu verður ekið
áfram um Suðurstrandarveg til Grindavíkur
þar sem boðið verður upp á
kaffiveitingar.
Heimkoma er áætluð kl. 19.
Innritun í ferðina verður í síma
562 2755 kl. 10-12 á mánudag og
þriðjudag. Gjald er kr. 1.000.
Tvö frábær fyrirtæki
1.Rótgróin bílaleiga til sölu. Bílaleigan er á milli 30-40 bílar. 95%
nýting allt árið. Mikil framlegð, lítill tilkostnaður. Góð viðskipta-
sambönd fylgja með og hægt að auka viðskiptin stórlega. Frá-
bær tækifæri fyrir þá sem vilja vera sjálfstæðir og eiga vel
rekið fyrirtæki. Mikil aukning í ferðageiranum og pottþétt fjár-
festing til framtíðar.
2. Stórt og glæsilegt veitingahús með veitingasölum til útleigu.
Mikil aukning á hverju ári. Veisluþjónusta og matarsala. Mjög
vinsælt fyrir árshátíðir, erfidrykkjur, þorrablót og í allar aðrar
veislur. Tekur 250 manns í sæti. Allt nýupptekið. Sami eigandi
í áratugi og vill fara að hvíla sig.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.