Morgunblaðið - 26.06.2001, Síða 56

Morgunblaðið - 26.06.2001, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. Vit 234 NÝTT OG BETRA Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit nr. 7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífum þeirra að eilífu. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 236. Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 16. Vit nr 238. www.sambioin.is Fjögur súpermódel og ein venjuleg stúlka. Strákurinn í næsta húsi á ekki möguleika. …frá þeim sem áttu upphaflegu hugmyndina að There Is Something About Mary  strik.is  KVIKMYNDIR.is 1/2 Hugleikur Sá snjalli er bxunalaus! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 242. Nýi Stíllinn Keisarans Sýnd kl. 3.45. Vit nr. 213 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 235. B.i. 12 ára HÁSKÓLABÍÓ þar sem allir salir eru stórir Hagatorgi sími 530 1919 Einlæg, dramatísk og bráðskemmti- leg bresk mynd sem lætur engan ósnortinn strik.is1/2 Hugleikur  KVIKMYNDIR.is Svikavefur Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16 KEANU REEVES JAMES SPADER Sýnd kl. 4.30 og 8. B. i. 12. Sýnd kl. 10. Síðustu sýningar. B. i. 14Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6 og 8.  ÓHT Rás 2 PEARL HARBOR 7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu. 31 þúsund áhorfendur YFIR eitt þúsund manns voru við- staddir opnun á yfirlitssýningu Errósafnsins í Listasafni Reykja- víkur – Hafnarhúsi sl. laugardags- kvöld og hafa aldrei verið jafn margir við einstaka opnun Lista- safnsins frá opnun þess. Borgarstjóri Reykjavíkur, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, opnaði sýninguna en við sama tækifæri fór í fjórða skipti fram afhending úr Listasjóði Guðmundu S. Krist- insdóttur, móðursystur Errós. Sjóð- inn stofnaði Erró til minningar um frænku sína og er honum ætlað að efla og styrkja efnilegar listakonur. Framlag sjóðsins féll að þessu sinni í skaut listakonunnar Gabríelu Friðriksdóttur og nemur upphæðin þrjúhundruðþúsund krónum. Gabríela hefur haldið margar einka- og samsýningar allt frá því hún lauk námi árið 1997. Mikill áhugi er fyrir yfirlitssýn- ingu þessa heimsfræga íslenska myndlistarmanns, en daginn eftir opnunina komu yfir 600 manns að sjá sýninguna. Soffía Karlsdóttir, kynningarstjóri safnsins, segir það greinilegt að gríðarlegur áhugi ríki meðal almennings um verk Errós. „Það var ekki aðeins metaðsókn, heldur rokseldust rit og bækur um Erró sem við erum með til sölu í safninu. Það er greinilegt að áhugi fyrir lífi og list Errós er mikill og einlægur meðal Íslendinga,“ segir Soffía. Aldrei fleiri gestir Myndlistarmaðurinn Sigurður Árni og listakokkurinn Rúnar Marvinsson áttu í hrókasamræðum við Erró. Það var glatt á hjalla hjá Sveini Einarssyni, Erró og Birni Bjarnasyni. Bragi Ásgeirsson og Erró hafa þekkst í áratugi. Myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir tekur við styrknum úr hendi Eiríks Þorlákssonar. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Djasstríóið Flís lék fyrir Erró og vini hans. Opnun á yfirlitssýningu Errós BANDARÍSKI blústónlistarmað- urinn Taj Mahal leikur á Broadway 27. júlí nk. Hann kemur hingað á ferð sinni frá Evrópu til Bandaríkjanna og og með honum leikur stórsveitin The Hola Bluesband frá Hawaii. Taj Mahal er goðsögn í blúsheim- inum, einn virtasti blústónlistamað- ur Bandaríkjanna og lærifaðir margra yngri tónistarmanna. Hann er opinn fyrir alls kyns nýjungum og hefur þar af leiðandi starfað með fjölda tónlistarmanna hvaðanæva úr heim- inum, en þ.á m má nefna Miles Davis, Bob Marley, John Lee Hooker, Jimi Hendrix, Bob Dylan, B.B. King, Bonnie Roatt, Eric Clapton og fleiri. Tónlist hans er skemmtileg blanda af karabísk-hawaiískri tónlist og bandarískum blús, hún er hrynheit, dansvæn og þykir sérlega hljómfög- ur. Taj Mahal með kassagítarinn. Goðsögn í blúsheiminum Taj Mahal á Íslandi ÍRSKA söngkonan Sinead O’Connor er löngu orðinn sérfræðingur í að koma fólki í opna skjöldu þegar einkalíf hennar er annars vegar. Ekki alls fyrir löngu til- kynnti hún fjölmiðlum það á rækilegan hátt að hún væri komin út úr skápnum, að hún væri lesbísk og hefði í raun ætíð verið það innst inni. Gott og vel. Nú hefur hún hins vegar tilkynnt að hún hyggst ganga í hjónaband í annað sinn, nú með breska blaða- manninum Nick Sommerlad sem er, eins og flesta vænt- anlega grunar, karlmaður. Hin 34 ára O’Connor og 27 ára gamli Sommerlad eru víst búin að vera í sambandi síðan í febrúar en hann ku vera fjarskildur ættingi Sylvíu Svíadrottningar. Vegir Sinead O’Connor eru órannsakanlegir Sinead O’Connor hefur ástæðu til þess að brosa þessa dagana. Í hjónaband á ný

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.