Morgunblaðið - 30.06.2001, Qupperneq 1
146. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 30. JÚNÍ 2001
JAPANIR, 65 ára og eldri, eru
nú í fyrsta sinn orðnir fleiri en
unga fólkið en þá er átt við þá,
sem eru 14 ára eða yngri.
Í Japan búa nú rétt tæplega
127 milljónir manna, þar af 22,3
milljónir 65 ára eða eldri eða
17,5% þjóðarinnar. Þeir, sem
eru 14 ára eða yngri, eru 18,45
milljónir eða 14,5%. Í tilkynn-
ingu frá stjórnvöldum segir, að
gamla fólkinu hafi fjölgað um
4,01 milljón frá 1995 eða um
22%.
Fjöldi aldraðra Japana hefur
fimmfaldast á síðustu 50 árum
og ber öllum saman um, að
þessi þróun sé eins og tifandi
tímasprengja í japönsku sam-
félagi. Ástæðan er sú, að það er
unga fólkið, sem verður að bera
uppi kostnaðinn, til dæmis við
tryggingakerfið, með vinnu
sinni en því fækkar hlutfalls-
lega með ári hverju.
Meðalbarnafjöldi japanskra
kvenna fór í fyrsta sinn niður
fyrir tvö börn 1975 og 1999 var
talan komin niður í 1,34 börn.
Aldraðir
fleiri en
ungir í
Japan
Tókýó. AFP.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins tilkynnti í gær að
alþjóðlegir styrktaraðilar hefðu alls
heitið ríflega 130 milljörðum króna
til uppbyggingar í Júgóslavíu. Ráð-
stefna um fjárstuðning við landið
hófst í Brussel í gær í kjölfar þess að
Slobodan Milosevic, fyrrverandi
Júgóslavíuforseti, var framseldur til
Stríðsglæpadómstóls Sameinuðu
þjóðanna í fyrradag. Það eru Evr-
ópusambandið (ESB) og Alþjóða-
bankinn sem standa fyrir ráðstefn-
unni.
Haft er eftir talsmönnum ESB á
fréttavef BBC að framsal forsetans
fyrrverandi marki þáttaskil í sam-
skiptum Júgóslavíu og alþjóðasam-
félagsins. Í sama streng tók Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sem sagði að þessi ákvörð-
un yfirvalda í Belgrad myndi ýta
undir viðbrögð alþjóðlegra styrktar-
aðila.
Milosevic hefur verið ákærður fyr-
ir glæpi gegn mannkyninu í
tengslum við átökin í Kosovo-héraði
1999. Málið á hendur Milosevic verð-
ur þingfest næst-
komandi þriðju-
dag. Hefur
forsetinn fyrrver-
andi farið fram á
að júgóslavneski
lögmaðurinn
Zdenko Tomano-
vic verði mála-
flutningsmaður
sinn. Tomanovic
er einn tíu lög-
manna sem vörðu Milosevic þegar
hann var ákærður af júgóslavnesk-
um dómstólum fyrir spillingu og
valdníðslu.
Viðbrögð ríkjanna sem sitja ráð-
stefnuna í Brussel létu ekki á sér
standa þegar yfirvöld í Júgóslavíu
létu undan þrýstingi alþjóðasam-
félagsins um að framselja Milosevic.
Framkvæmdastjórn ESB hefur lof-
að tæplega 46 milljörðum króna og
Alþjóðabankinn 15,5 milljörðum í
fjárframlög til Júgóslavíu á næstu
árum.
Þá hafa Bandaríkin, sem ásamt
fleiri löndum ákváðu ekki að koma á
fundinn fyrr en eftir að fréttir bárust
af framsali Milosevic, heitið 18,7
milljarða fjárstyrk. Einnig hafa yf-
irvöld í Þýskalandi sagst ætla að
veita 5,6 milljarða króna fjárstyrk.
Yfirvöld í Júgóslavíu hafa gert
áætlun til næstu fjögurra ára um
hvernig megi rétta við efnahag
landsins eftir 13 ára efnahagslega
óstjórn fyrrverandi forseta og al-
þjóðlegar refsiaðgerðir. Mikillar
uppbyggingar er einnig þörf í land-
inu eftir 78 daga sprengjuárás Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) árið
1999. Í áætluninni er gert ráð fyrir
að þörf sé á 400 milljörðum króna.
Jákvæð viðbrögð
alþjóðasamfélagsins
Viðbrögð alþjóðasamfélagsins við
framsali Milosevic hafa almennt ver-
ið mjög jákvæð. Leiðtogar vest-
rænna ríkja hafa nánast allir sem
einn fagnað framsalinu. Þannig lýstu
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Jacques Chirac, forseti
Frakklands, ánægju sinni með at-
burðina í Belgrad í fyrradag. Enn
fremur er haft eftir Gerhard Schröd-
er, kanslara Þýskalands: „Þær
hindranir sem hingað til hafa staðið í
vegi fyrir því að hægt væri að veita
landinu fjárhagsaðstoð eru nú úr
veginum.“
George Bush Bandaríkjaforseti
kvað framsalið vera merki um þá
ætlun nýrra leiðtoga í Belgrad að
snúa baki við hinni hræðilegu fortíð
landsins og taka stefnuna í átt til
bjartari framtíðar. Greint var frá því
í gærkvöldi að Bush myndi fara í
heimsókn til Kosovo 24. júlí nk.
Forsætisráðherra Júgóslavíu,
Zoran Zizic, sagði af sér í gær í mót-
mælaskyni við að Milosevic skyldi
vera framseldur. Sagði Zizic fram-
salið brot á grundvallarréttindum
sem stjórnarskrá landsins tryggði.
Vekur afsögnin spurningar um stöð-
ugleika stjórnarinnar í miðju því
uppnámi sem framsalið hefur valdið.
Samkvæmt stjórnarskránni verður
stjórnin að fara frá ef forsætisráð-
herrann segir af sér.
Forsætisráðherra Júgóslavíu segir af sér vegna framsals Milosevic
130 milljarða króna styrk
heitið til uppbyggingar
Brussel. Reuters, AP, AFP.
Reuters
Hollenskir lögreglumenn fylgja Slobodan Milosevic úr þyrlunni sem flutti hann til Scheveningen. Mun Milosevic hafa verið handjárnaður.
Sagður eiga yfir/21
Zoran Zizic
„TAKTU þig til, þú ert á förum,“
var sagt við Slobodan Milosevic,
fyrrverandi Júgóslavíuforseta, þeg-
ar fangaverðir birtust óvænt í klefa
hans í fangelsinu í Belgrad sl.
fimmtudag. Milosevic virtist brugð-
ið og sagði: „Hvert er ég að fara?“
Fangavörður svaraði: „Til Haag.“
Fjölmiðlar í Júgóslavíu hafa birt
nákvæmar lýsingar á því hvernig
flutningi forsetans fyrrverandi til
Haag var háttað. Þegar honum
hafði verið sagt að hann væri á för-
um mun hann hafa beðið um að fá að
pakka niður. Þá hafi hann enn-
fremur falast eftir að fá að hringja í
fjölskyldu sína. Mun honum hafa
verið neitað um það, að sögn dag-
blaðsins Glas Javnosti. Í um fimm
mínútur hafi Milosevic veitt mót-
spyrnu, en svo reynst samvinnu-
þýður. Ekki var ljóst hvort átt var
við að hann hefði veitt líkamlega
mótspyrnu.
Hann var fluttur til flugvallar
friðargæsluliðs Atlantshafsbanda-
lagsins í Tuzla í Bosníu. Þar mun
hann hafa spurt gæslumenn sína:
„Vitið þið að í dag er Vidovdan?“ Í
Serbíu er það helgidagur, kenndur
við heilagan Vitus. Frá Tuzla var
haldið flugleiðis til fangelsis í Schev-
eningen, skammt frá Haag. Sagði
forsætisráðherra Hollands að flutn-
ingurinn hefði gengið snurðulaust.
„Taktu
þig til“
SENDIHERRAR Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) samþykktu
formlega í gær áætlanir um að senda
3.000 manna lið til Makedóníu til að
aðstoða við afvopnun albanskra upp-
reisnarmanna ef viðvarandi pólitískt
samkomulag og vopnahlé næst.
Áætluninni verður einungis fram-
fylgt ef stjórnvöld í Makedóníu og
stjórnmálaleiðtogar albanska minni-
hlutans í landinu leysa deilumál sín,
sagði Yves Brodeur, talsmaður
NATO í Brussel í gær. „Uppreisn-
armenn verða líka að heita því að
leggja niður vopn og hætta að berj-
ast,“ sagði hann. NATO væri nú
reiðubúið til að framfylgja áætlun-
inni „ef réttar aðstæður eru fyrir
hendi“.
Ekki valdbeiting
Liðið myndi hafa eftirlit með af-
vopnun hermanna Frelsishersins
sem láta eiga vopn sín af hendi sjálf-
viljugir. Brodeur bætti við að
NATO-liðið myndi ekki beita valdi til
að afvopna skæruliðana. Fimmtán
aðildarríki NATO, þar á meðal
Bandaríkin, munu leggja til mann-
skap, en búist er við að Bandaríkin
veiti einungis liðsinni við skipulagn-
ingu.
NATO samþykkir lið til Makedóníu
Brussel. AP.