Morgunblaðið - 30.06.2001, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 30.06.2001, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Þorvarður Jó-hann Lárusson fæddist í Krossnesi í Eyrarsveit 24. maí 1938. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 24. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Lárus Guðmunds- son, f. 1893, d. 1952, og Sigurlaug Skarp- héðinsdóttir, f. 1904, d. 1942, og var hann sjöundi af átta systkinum. Systkini hans voru Guðmundur Vernharður, f. 1926, d. 1985, Lára, f. 1927, d. 1989, Jóna, f. 1930, d. 1981, Guðni Ingi, f. 1931, d. 1995, Guðrún Ragn- heiður, f. 1934, Helgi, f. 1936, d. 1997, og Lýður Valgeir, f. 1939, d. 1964. Þorvarður kvæntist Ásdísi Valdimarsdóttur, f. 1933, en þau slitu samvistum 1978. Dóttir hennar er Kolbrún Sjöfn Matth- íasdóttir, f. 1951, maki Haukur Richardsson, f. 1950. Hennar börn eru Ásdís Jónsdóttir, f. 1972, og Þorvarður Jóhann Jóns- son, f. 1975. Þorvarður og Ásdís eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Valdimar, f. 1958, d. 1989, börn d. 1982. Hennar börn eru Einar Einarsson, f. 1959, dætur hans eru Fanný, f. 1979, og Rebekka, f. 1987. Sigurður Einarsson, f. 1962. Inga Fríða Einarsdóttir, f. 1965, hennar börn eru Sigurður Freyr Pétursson, f. 1986, Hólm- fríður Hulda Pétursdóttir, f. 1988, Þórunn Sunneva Péturs- dóttir, f. 1991, og drengur Ingu- son, f. 2001. Guðmundur Freyr Guðmundsson, f. 1967, maki hans er Linda Magnúsdóttir, f. 1968, dóttir þeirra er Hulda Björg, f. 1997. Eftirlifandi eiginkona Þorvarð- ar er Eygló Guðmundsdóttir, f. 1940, þau hófu sambúð 1988. Hennar börn eru Vilhjálmur Wiium, f. 1964, maki hans er Guðlaug Erlendsdóttir, f. 1967, dætur þeirra eru Dagmar Ýr, f. 1988, og Tinna Rut, f. 1992. Dav- íð Wiium, f. 1975, maki hans er Sigríður Hallsteinsdóttir, f. 1976, sonur þeirra er Ísak Máni, f. 1999. Jóhanna Þorvarðardóttir (ættleidd), f. 1978, maki hennar er Elías Guðmundsson, f. 1976, sonur hennar er Daníel Viðar Guðmundsson, f. 1998. Þorvarður hóf sjómennsku 14 ára og lauk skipstjórnarnámi 1965. Hann var með eigin útgerð ásamt öðrum á árunum 1966– 1984. Eftir það starfaði hann sem skipstjóri þar til hann lét af störf- um 1991 vegna heilsubrests. Útför Þorvarðar fer fram frá Grundarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. hans eru Svanur Þór, f. 1975, Ólöf Hugrún, f. 1982 og Valdimar, f. 1989. 2) Lárus Guð- bjartur, f. 1959, kona hans er Pia Bertel- sen, f. 1962, börn þeirra eru Anna Maria, f. 1984, og Jó- hann, f. 1988. 3) Jó- hannes Guðjón, f. 1961, kona hans er Kolbrún Reynisdótt- ir, f. 1964, þeirra börn eru Lýður Val- geir, f. 1988, Hinrik, f. 1992, og Sæþór, f. 1996. 4) Sigurður Ólafur, f. 1963, kona hans er Sjöfn Sverrisdóttir, f. 1964, þeirra börn eru Hlynur, f. 1987, Hafdís Dröfn, f. 1991, og Gréta, f. 1997. 5) Sævör, f. 1964, hennar maki er Einar Guðmunds- son, f. 1959, þeirra börn eru Sæ- varður, f. 1986, Jóhannes Fann- ar, f. 1989, Valdimar, f. 1991, Jón Þór, f. 1993, og Snædís Ólafía, f. 1995. 6) Jón Bjarni, f. 1967, kona hans er Anna Dóra Markúsdóttir, f. 1965, sonur hennar er Markús Karlsson, f. 1986, börn þeirra eru Saga Björk, f. 1991, og Þorvarð- ur, f. 1992. Þorvarður bjó með Hólmfríði Huldu Gunnlaugsdóttur, f. 1941, Það var mér erfið stund síðasta sunnudag þegar mamma var búin að tilkynna mér að hann Varði væri lát- inn. Aðeins kvöldið áður hafði hún sagt mér að batavonin væri góð. En skjótt skipast veður í lofti. Þung voru sporin að segja Gullu og dætrunum hvað hafði gerst. Mér er enn í fersku minni þegar ég hitti Varða fyrst. Ég hafði heyrt af einhverjum skipstjóra að vestan sem var farinn að venja komur sínar til mömmu. Svo þegar ég hitti hann í eig- in persónu var það til að keyra hann og mömmu á ball – ég einn frammí og þau afturí. Syninum leist nú ekki al- veg á blikuna. Sjálfsagt leið mér svip- að og föður sem horfir í fyrsta skipti á eftir táningsdóttur sinni fara út að skemmta sér. En Varði var ekki lengi að vinna traust mitt og var ég stoltur svaramaður mömmu þegar þau giftu sig haustið 1990. Þegar ég lít til baka og hugsa um Varða kemur mér fyrst í hug hversu ótrúlega bjartsýnn hann alltaf var. Alveg var sama hversu erfiðum að- stæðum hann stóð frammi fyrir – allt- af gat hann fundið bjartar hliðar á málunum. Stundum þegar við hringd- um viðurkenndi hann með semingi að hann fyndi nú aðeins til, en honum fannst miklu meira máli skipta að hann hefði getað gengið upp að tanki þann daginn eða skroppið í búðina. Efast ég ekki um að þessi mikla bjart- sýni hafi hjálpað honum yfir margan hjallann þar sem aðrir hefðu fyrir löngu verið búnir að gefast upp. Þegar ég sit nú við eldhúsborðið hér í Namibíu og hripa niður þessi fá- tæklegu orð koma fram ýmsar minn- ingar um Varða. Börnum fannst virki- lega gott að vera hjá honum og voru dætur mínar, Dagmar og Tinna, eng- ar undantekningar þar á. Þar sem við höfum búið erlendis í nær tíu ár hittu stelpurnar hann Varða afa ekki eins oft og þær og hann hefðu viljað, en alltaf var jafnmikil tilhlökkun að koma á Smiðjustíginn og gott var að sitja með afa í rauða sófanum og borða með honum flatkökur og hangi- kjöt. Svo eldaði Varði stórkostlegar kjötsúpur og ekki var verra saltkjötið og baunirnar. Þetta eldaði hann handa okkur „útlendingunum“ hve- nær sem tækifæri bauðst og var ekki laust við að þyrfti að víkka beltið um gat eða tvö. Þegar við bjuggjum á Írlandi komu Varði og mamma í heimsókn til okk- ar. Varða fannst merkilegt að keyra öfugu megin á veginum og einhverju sinni fékk hann að taka í bílinn hjá okkur. Man ég hversu mikill strákur kom upp í honum við þetta tækifæri og ætlaði hann nú að sjá til þess að all- ir fréttu af því að hann hefði ekið bíl á vinstri vegarhelmingi. Sérstaklega átti Hallgrímur læknir að heyra um þetta því hann hafði víst sagt Varða að ókeyrandi væri á Írlandi og alls ekki fyrir hjartveika því Írar væru svo miklir fautar í umferðinni. Þó að afturdekkið lenti nokkrum sinnum uppi á gangstétt var hins vegar auka- atriði sem alger óþarfi var að minnast á. Svo eru til myndir af Varða á reið- hjóli á Írlandi. Hann hafði ekki sest á þannig farartæki í tugi ára en hjólaði þarna eins og herforingi og var strax farinn að skipuleggja í huganum hjólatúra sem hann gæti farið um Grundarfjörð. Alltaf óbilandi bjart- sýnn og jákvæður. Síðast hitti ég Varða á Portúgal í fyrra og eyddi tveimur dögum þar með honum og mömmu. Leigðum við okkur bíl og ókum um sveitirnar. Varði var augljóslega kvalinn, en ekki vildi hann ræða það mikið og ekki lét hann kvalirnar aftra sér frá því að njóta ferðalagsins. Man ég að hann keypti sér Ecco-sandala og fannst þetta bara allt annað líf og hálfskoppaði um allt til að undirstrika hversu miklir úrvalsskór þetta væru. Fannst honum endilega að ég þyrfti að kaupa svona skó og fara með til Gullu. Þó að við værum komin langt frá skóbúðinni var það bara aukaat- riði – Gulla þurfti svona skó, sagði hann – og var snúið við og eknir margir kílómetrar til baka til að kom- ast aftur í búðina. Þrátt fyrir veikindi Varða hafa hann og mamma ferðast vítt og breitt um heiminn. Núna í júní stóð til að þau kæmu með okkur til Kanada, m.a. til að fara yfir Klettafjöllin, en Varði sagði mér að alltaf hefði hann langað til að sjá þau. Því miður kipptu örlögin í taumana og hann komst ekki í þetta ferðalag. Í staðinn fór hann í ferðalagið langa og efast ég ekki um að hann muni þar sjá Klettafjöllin. Vilhjálmur Wiium. Fyrsta minningin mín um Varða fósturföður minn var þegar hann sat við eldhúsborðið heima á Hagameln- um. Ég var rétt 10-11 ára en ekki man ég hvað okkur fór í milli nema það að ég man að hann sýndi mér einföld töfrabrögð sem vöktu talsverða lukku. Síðar, vorið 1988, fluttumst við til Grundarfjarðar og ég man að þetta voru blendnar tilfinningar hjá mér, ég var ekki viss um að ég vildi yfirgefa höfuðborgina. En þær vangaveltur hurfu fljótlega, árin í Grundarfirði voru góð og Varði reyndist mér ein- staklega góður, ég er t.d. enn að furða mig á því hvað hann var góður að leyfa okkur strákunum í plássinu að spila fótbolta í garðinum hjá okkur, oft var heill her af strákum langt fram á kvöld og bletturinn var hálfónýtur öll þessi ár. Ég minnist þess líka hvað hann tók öllu með ró og stillingu þótt mikið gengi á í kringum hann, það var ekki oft sem ég sá hann skipta skapi. Veikindin settu mark sitt á hann, hugur hans var alltaf á sjónum og ég held að það hafi verið honum mjög erfitt að þurfa að koma í land og hætta að vinna, erfiðara en margan grunaði. Hann hélt þó áfram að upp- lifa sjómennskuna í gegnum syni sína og það er gaman að minnast þess þeg- ar ég var á sjó á sumrin og við rædd- um saman við eldhúsborðið hvernig túrinn hefði gengið þegar ég kom í land, þar var hann á heimavelli. Nú var enn einni aðgerðinni lokið og við öll bundum vonir við að nú tæk- ist honum að ná heilsu. Það tókst ekki og þótt ég vissi að svona gæti farið þá gat ég varla trúað þessu þegar símtal- ið frá mömmu kom. En ég veit að þetta var orðið mjög erfitt fyrir hann, ótal spítalaferðir og heilsan mjög lé- leg. Í dag er ég óskaplega þakklátur fyrir þá stund sem við mamma eydd- um saman með honum á 17. júní, þótt það hafi kannski ekki virst vera merkilegt þá. Elsku Varði minn, ég veit að þér líður betur núna, takk fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig og allar minn- ingarnar, þær munu lifa áfram hjá mér og fjölskyldu minni. Þinn Davíð. Margt er í lífinu mikilvægt með því ég nokkurn tilgang finn. Fyrir það sem þú hefur gert ég þakka þér fyrir, pabbi minn. Með þessum orðum færi ég þér mína hinstu kveðju. Þín dóttir, Jóhanna. Mig langar í örfáum orðum að minnast tengdaföður míns, Þorvarðar Jóhanns Lárussonar, sem er látinn. Varði var búinn að berjast við hjarta- sjúkdóm í tíu ár og oft var baráttan búin að vera erfið, en hann var alltaf ákveðinn í að vinna bug á þessu. Alltaf stóð hún Eygló hans honum við hlið eins og klettur enda hjartahlý og ynd- isleg kona. Þegar Varði tók ákvörðun um að fara í þessa aðgerð með von um betri heilsu var ég svo vongóð um að þetta myndi fara á betri veg. En elsku Varði minn, nú ertu farinn yfir móð- una miklu. Ég á svo erfitt með að trúa því, þú sem varst svo stór hluti af okk- ar daglega lífi. Nú er svo tómlegt að fá þig ekki í heimsókn og fá sér kaffi- sopa með þér. Þú varst ekki bara mér sem góður tengdafaðir heldur líka góður vinur. Alltaf gátum við rætt saman um alla hluti þótt skoðanir okkar lægju kannski ekki alltaf sam- an. Ætíð varstu tilbúinn að styðja við bakið á okkur ef eitthvað bjátaði á, þó að heilsan væri ekki alltaf sem best. Börnin okkar umvafðir þú hlýju og ást og sakna þau þín nú mikið. Þeim þótti alltaf gott að koma á Smiðjustíg- inn til ömmu og afa því þar voru alltaf hlýjar móttökur og eitthvert góðgæti. Því í raun eru það forréttindi að eiga góða ömmu og afa. Fyrir það vil ég þakka. Ég þakka þér allar samveru- stundirnar og á eftir að geyma þær minningar í hjarta mínu. Elsku Varði minn, ég veit að þér líður vel núna. Guð geymi þig. Þig faðmi liðinn friður guðs og fái verðug laun þitt góða hjarta, glaða lund og göfugmennska í raun. Vér kveðjum þig með þungri sorg og þessi liðnu ár með ótal stundum ljóss og lífs oss lýsa gegnum tár. (Jón Trausti.) Þín tengdadóttir, Sjöfn. Það er undarlegt til þess að hugsa að Varða njóti ekki við lengur, sem var svo stór hluti af okkar daglega lífi, eins oft og hann kom í kaffi til að fylgjast með gangi mála og fá fréttir af strákunum sínum á sjónum. Þrátt fyrir erfið veikindi sín var hann alltaf tilbúinn til að hlusta á aðra og gefa okkur góð ráð. Hann vildi hafa líf og fjör í kringum sig og skemmtilegar minningar leita á hugann frá þeim mörgu stundum sem fjölskyldan og vinir komu saman í kaffi eða til að skemmta sér saman. Þá var oft glatt á hjalla og rifjaðar upp gamlar minn- ingar og sagðar sögur af sjónum og samferðarmönnum. Varði hafði oft hvatt syni sína til að hefja útgerð sjálfir. Það er því gaman að hann skyldi fá að upplifa það þegar synir hans hófu útgerð í vor. Ég minnist þess hversu áhugasamur og ánægður hann var, þá var eins og Varði yrði ungur í annað sinn. Þrátt fyrir erfiða æsku þar sem Varði missti foreldra sína ungur og marga ástvini á sinni lífsleið, var hann lífsglaður og hjarta- hlýr maður. Þessa eiginleika hafa börnin hans einnig tileinkað sér og hefur fjölskyldan ávallt staðið saman í gleði og sorg. Við eigum örugglega eftir að minnast hans með bros á vör og söknuð í hjarta. Ég þakka fyrir samfylgdina þau 18 ár sem ég hef ver- ið tengdadóttir þín. Kolbrún Reynisdóttir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífs þíns nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. ( Þórunn Sig.) Elsku Eygló og fjölskylda, guð gefi ykkur styrk í sorginni. Þín mágkona, Lilja. Þorvarður afi. Ég hef þekkt þig alla mína ævi og þú varst mér góður afi. Þegar þú komst heim til mín gafstu okkur alltaf nammi. Þegar við Mark- ús, Þorri og ég komum heim til þín þegar skólinn var búinn gafst þú okk- ur að borða. Þegar við vorum þreytt fórum við í sófann þinn og lögðum okkur. Þú og amma komuð alltaf í af- mælið okkar og gáfuð okkur fallegar gjafir. Alltaf á jólunum gaf ég þér og ömmu eina gjöf sem þú og amma vor- uð ánægð með, og ánægð með mig, Sögu. Besti afi í heimi. Þú sem gafst mér alltaf að borða í hádeginu í skólanum og gafst mér alltaf nammi að borða á laugardögum og varst alltaf svo góð- ur. Ég elska þig. Þorvarður Jónsson. Elsku besti afi, þú varst okkur hlýr og góður en nú ert þú dáinn. Við eig- um bágt með að trúa því. Við munum ætíð sakna þín alla okkar ævi því þú varst svo góður við okkur. Hlynur, Hafdís Dröfn og Gréta. Við minnumst í dag föðurbróður okkar Þorvarðar Lárussonar, eða Varða eins og allir kölluðu hann. Varði var okkur ljúfur og góður frændi sem við munum sakna. Varði var sjómaður, skipstjóri og útgerðarmaður í áratugi. Í huga okk- ar voru Varði, frændur hans og synir hinir sönnu íslensku sjómenn. Svolítið hrjúfir, uppátækjasamir, stórtækir þegar þeir skemmta sér og alltaf til- búnir að rétta hjálparhönd. Varði hafði fyrir venju að koma með bátinn í slipp í Njarðvík, hugsanlega vegna þess að þar var hann nálægt ættingj- unum á Suðurnesjum. Það var oft glatt á hjalla í káetunni, lyft glösum, sagðar sögur og „vilt þú bollu, vinur.“ Gestrisni Varða var við brugðið. Það virtist alveg saman hvernig á stóð, hann var alltaf glaður að fá gesti og voru móttökurnar fyrsta flokks. Hann tók gjarnan fram grillsvuntuna og grillaði ofan í mannskapinn og þá skipti ekki máli hversu margir voru í mat. Hann var „Varði bróðir besti“ í augum pabba og vináttan var gagn- kvæm. Varði átti það til að kynna sig sem Þorvarð Lárusson, bróður Helga ÞORVARÐUR JÓHANN LÁRUSSON ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.