Morgunblaðið - 30.06.2001, Blaðsíða 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!"#
$! !% & !
!!!' !(! !)! * ($!+ ! *,
"#
! !
!!-
./ 0(1((% !
!2$3!0 #$% & $
*!(!4( 3 *
*!)!$
*!
!
5!6# !7
8!6#8!9%8!:%)!6 0(
8!:%)!;
8!:%)!<
8!4=)
(!4
!7 >
8!4=)!(!4
!4#8!2$#
!;
8!2)!;
8!2)!<
!
5
5
6
3
78
9,
?$$
"
?
(0
4
#$>
@!10
A(!20%
#3 >*
:=
2
!?#
6
! BC
D$
<
!-
<7!?
$
20
D$
?$$
E(
C
"((
:
!<(%C
D$
6(3!4
E($.
4
7
D$
7.
?F4
1( %
1
!F(
4
"0!G
3 !6
7$
.
H! !=!$
!
2
(
7 !4.6 I ( !J.!
!4 !<
#3 >*
E!"0! !J
>
!3
"!(! ( !-! BC !KE !7 3$L
-(MN!F (
(
9 3
!"0(
G!!O(
9(!20(
<
*!
<
!!6
E(
C
<
:!<(
-(MN! J!<(5!"0!A
7/
J
!(!2 $$
!!9C!<
F (
(!2(!1(!
(!"0!;
?
- .0
2(!A
.!
!<(
P
2(
F4G
F
2(
2(
2)
F
2$
P
P
-(MN
B
B
P
2)
P
F4G
F4G
2(
-(MN
P
P
"!4
F4G
64E
2(
B
F4G
64E
TÓNLEIKAR Rammstein í Laug-
ardalshöll hafa heldur en ekki
dregið rokkvænan dilk á eftir
sér því þriðja hljóðversskífa
þýsku ofurrokkarana, Mutter,
hlammar sér af fullum þunga aftur í toppsætið!
Rokkþorsti íslenskrar æsku sem annarra virðist og
botnlaus því að hljómleikaplata sveitarinnar frá árinu
1999, Live Aus Berlin, gerir sér lítið fyrir og klifrar upp í
17. sætið. Það er sannarlega rokk á róli á fróni um
þessar mundir enda sumarið tíminn eins og maðurinn
sagði.
Og allir saman nú: RAMMSTEIN!
Heitur
hamall!
ÆRINGJARNIR í Blink 182
eru mættir inn á Tónlistann
með fjórðu breiðskífuna
sína, Take Off Your Pants
And Jacket! Fyrsta plata pilt-
anna kom út árið 1994 og
hafa þeir verið í óþreytandi gamangír allar götur síðan.
Þessi adrenalínskotna, pönklegna stuð- og gleðisveit
sló óforvarandis í gegn á síðustu plötu sinni, Enema Of
The State, hvar salerniskímnigáfan og grallaraskap-
urinn keyrði flesta vinsældalista um koll með lögum
eins og „What’s My Age Again? “ og „All The Small
Things.“ Nýja platan verður að öllum líkindum algengur
gestur í grill- og gamanveislum sumarsins enda fátt
fjörugra en krassandi keyrslulag frá Blink 182.
Stuðpönk!
ÖNNUR breiðskífa íslensku
hrynhitasveitarinnar Jagúar,
Get The Funk Out, stekkur
sjóðheit og fersk, beint í átt-
unda sæti Tónlistans. Ólíkt fyrri
plötunni, sem var mestmegnis
tekin upp „lifandi“, beint inn á
band, gáfu Jagúarhvolparnir
sér dægigóðan tíma við að
vinna þennan grip, lágu yfir
lagasmíðum og nostruðu og gældu við þær. Útkoman
er enda fyrirtaks rassadillandi fúnk; blásturshljóðfæri
og emjandi gítar út um allt. Þess má og geta að gerð
var sérstök kvikmynd í tengslum við plötuna, Jaguar –
The movie, sem sækir eðlilega áhrif sín í öskrandi
sveittar fúnkmyndir áttunda áratugarins.
Hámarkshrynhiti!
GOÐSÖGNIN Bob Marley virðist
ætla að verða með langlífustu og
vinsælustu dægurtónlistar-
mönnum. Aðeins Bítlarnir og Elvis
Presley taka Marley fram hvað
varðar þá guðlegu dýrkun sem um-
leikur hann; líf hans og tónlist. Ný-
útkomin er safnskífan One Love –
The Very Best Of Bob Marley & The
Wailers, þar sem er að finna öll
þekktustu lög meistarans. Hörð-
ustu Marleymenn, sem eiga líkast til allt það sem eftir
manninn liggur, fá og eitthvað fyrir sinn snúð því á plöt-
unni er áður óútgefið lag, kallast það „I Know A Place“.
Reggíkóng-
urinn lifir!
BANDARÍSKA harðkjarnafyrir-
tækið Victory hefur lengi verið í
fremstu röð í útgáfu á þannig tón-
list, eða allt síðan það var stofnsett
árið 1989 í Chicago. Harðkjarna-
tónlistin („hardcore“ upp á ensku)
og afsprengi hennar hafa verið með
frjóustu öngum neðanjarðarrokks
síðasta áratuginn eða svo og eins og
fram kom á síðum þessa blaðs fyrir
ekki löngu gerði íslenska hljóm-
sveitin Mínus samning við Victory
en plata þeirra, Jesus Christ Bobby,
kemur út þann 10. júlí næstkomandi.
Victory-menn og konur hafa annars
aldrei verið hrædd við að dýfa tám
annars staðar en í harðkjarnatjörn-
ina og á mála hjá þeim eru sveitir
sem spila melódískt tilfinningapönk,
„ska“ og „rockabilly“ m.a.
Áður en við gætum að nýjum út-
gáfum er svo rétt að líta aðeins á
sögu þessa risa grasrótarinnar, en
nú sem fyrr er Victory algerlega
óháð útgáfa, án tengsla við nokkurt
þeirra stórfyrirtækja sem starfa
innan tónlistarheimsins.
Í fyrstu voru starfsmenn aðeins
tveir, stofnandinn Tony Brummel og
aðstoðarmaður en árið 1995 var
starfsmönnum svo fjölgað í tuttugu.
Styrkur Victory hefur legið í 100%
ástríðu og trú þeirra sem þar hafa
starfað og ráða hljómsveitirnar sér
og sinni list algerlega. Útgáfan nýt-
ur trausts og virðingar og er umtöl-
uð fyrir skilvirk og samviskusöm
vinnubrögð en Brummel sjálfur er
oft og tíðum niðri í vörugeymslunni,
límandi saman plötuumslög og sinn-
andi hinu og þessu tilfallandi.
Sumarútgáfa Victory er annars
að komast á fullt stím um þessar
mundir og vert að geta eftirfarandi
titla sem eiga eftir að hoppa inn í
búðir á næstu mánuðum eða svo.
Nýútkomin er plata Hoods,
Time...The Destroyer en sveitin sú
hefur verið að gera það gott á veg-
um úti undanfarin 6 ár og spilað
með sveitum eins og Earth Crisis,
Papa Roach og Hatebreed. Einnig
er tiltölulega nýútkomin safnplata
með æringjunum úr Blood For
Blood, svo og ný plata með hinni níð-
þungu Buried Alive, Last Rites, en
kunnugir telja þá sveit vera með
fremstu harðkjarnasveitum. Einnig
leikur nýjabrumið enn um síðustu
plötur No Innocent Victim, Reach
The Sky og ungliðasveitarinnar
Thursday.
Í byrjun næsta mánaðar kemur
svo út önnur plata hinnar mikilhæfu
þýsku sveitar Thump, 3.
Í ágúst koma svo plöturnar So
Sedated, So Secure með Darkest
Hour, Headfirst, Straight To Hell
með tilfinningarokkurunum í
Grade, Never Kill The Boy On The
First Date, sem er fyrsta plata þýsku
sveitarinnar Waterdown, Playin To
Live, Livin’ To Play með pönk/ska
sveitinni River City Rebels og síðast
en ekki síst safnplata með meist-
urunum í Integrity og kallast hún In
Contrast Of Tomorrow.
Einnig eru svo væntanlegar nýjar
plötur með Hatebreed, All Out War
og Snapcase.
Nýjar plötur frá Victory
Í heimahöfn
harðkjarnans
Buried Alive er eitt af flaggskipum Victory Records-útgáfunnar.