Morgunblaðið - 30.06.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LÁGMYND af Matthíasi Johann-
essen, fyrrverandi ritstjóra Morg-
unblaðsins, eftir Erling Jónsson
myndhöggvara var afhjúpuð við
athöfn á ritstjórnarhæð Morg-
unblaðshússins í Kringlunni í
gær. Stjórn Árvakurs hf., útgáfu-
félags Morgunblaðsins, lét gera
lágmyndina til heiðurs Matthíasi
sem var ritstjóri Morgunblaðsins
í ríflega 41 ár og lét af störfum
um síðustu áramót.
Það var Hanna Johannessen,
eiginkona Matthíasar, sem af-
hjúpaði lágmyndina en áður hafði
Haraldur Sveinsson, stjórnar-
formaður Árvakurs, sagt nokkur
orð um tengsl Morgunblaðsins og
Matthíasar.
„Eins og okkur er öllum kunn-
ugt lét Matthías af störfum í lok
síðasta árs og höfum við í stjórn
Árvakurs langað til að kveðja vin
okkar á einhvern eftirminnilegan
hátt,“ sagði Haraldur.
Sagðist hann vilja nota sér það
að hafa Matthías sér við hlið og
mæla til hans nokkrum orðum til
þess að tjá honum þakklæti
þeirra Árvakursmanna, svo og
allra Morgunblaðsmanna, fyrir
samstarfið, samvinnuna og vinátt-
una á undanförnum áratugum.
Færðar þakkir fyrir unnin
störf um áratugaskeið
„Það verður ekki unnt að gera
því þakklæti, sem við vildum
fram færa, þau skil sem verðugt
væri. Ég veit að vinur okkar tek-
ur viljann fyrir verkið,“ sagði
Haraldur enn fremur og bætti við
kærum þökkum fyrir liðnu árin
og að hafa orðið þeirrar gæfu að-
njótandi að kynnast og starfa
með Matthíasi og sjá árangurinn
af samstarfinu speglast í vexti og
velgengni Morgunblaðsins allan
þann tíma.
Að lokinni afhjúpun lágmynd-
arinnar flutti Erlingur Jónsson
myndhöggvari nokkur af ljóðum
Matthíasar. Þá afhenti hann hon-
um lítið listaverk sem persónu-
legan vinarvott og sem þakklæti
fyrir skáldskapinn og fegurðina í
ljóðum hans.
„Ég held að í dag sé Matthías
mesta skáld Íslendinga, núlifandi,
og hann hefur lengi verið einn
þeirra sem ég hef dáð takmarka-
laust,“ sagði Erlingur m.a. í
ávarpsorðum sínum.
Ráðinn á Morgunblaðið
fyrir hálfri öld
Matthías Johannessen gat þess
í gamansömum tón, eftir ljóða-
flutning Erlings, að þarna væri
komin skýringin á því hvað hann
hefði verið að fást við á Morgun-
blaðinu í öll þessi ár.
„Þegar ég nú lít um öxl staldra
ég við Ísafoldarhúsið í Austur-
stræti, en þar var Morgunblaðið
þegar ég réðst þangað fyrir
hálfri öld,“ sagði Matthías. „Nú
hefur þetta hús verið flutt í Að-
alstræti. Það er sem sagt komið á
eftirlaun. Og það þarf að venjast
nýrri götu, nýju umhverfi. En
Morgunblaðið er annars staðar.
Þá er ekkert annað eftir en að
flikka upp á þennan kumbalda og
gleyma sögu hans. En það er bót
í máli að nú er kominn bar í
húsið. Hann var það eina sem
vantaði þegar við vorum þar að
bardúsa og reyna á þolrif fólksins
í landinu á þessum hráslagalega
vígvelli kalda stríðsins.“
Matthías sagði að hvað sem
þessu liði væri Morgunblaðið í
reynd blað allra landsmanna; eins
konar aþenskt torg; andrúm sam-
tímans, einnig skvaldursins.
„Ég þakka ykkur öllum
ánægjulega samfylgd á langri –
og stundum býsna háskasamlegri
– leið. Ég þakka einnig hvernig
ég var kvaddur í blaðinu. Hér hef
ég eignast marga af mínum bestu
vinum. Sumir eru látnir.
Ég óska ykkur velfarnaðar og
þakka góðar gjafir. Og þá ekki
síst þessa stund við lágmynd
Erlings og listrænt handbragð
hans. Það eru ekki allir sem fá
tækifæri til að vera viðstaddir
minningarathöfn um sjálfan sig.
Til þess þarf hestaheilsu. Og
mátulegan skammt af húmor,“
sagði Matthías Johannessen enn
fremur.
Sameiginlegur starfstími
tveggja ritstjóra 76 ár
Lágmynd Erlings Jónssonar af
Matthíasi stendur á vegg á 2. hæð
Morgunblaðshússins í Kringlunni,
þar sem eru ritstjórnarskrifstofur
blaðsins. Á sama stað stendur
höggmynd af Valtý Stefánssyni,
fyrrverandi ritstjóra Morgun-
blaðsins, sem sat á ritstjórastóli
frá árinu 1924 og til dauðadags,
árið 1963.
Þeir Valtýr og Matthías voru
um nokkurra ára skeið samtímis
ritstjórar Morgunblaðsins en sam-
eiginlegur starfstími þeirra nær
yfir 76 ár af 87 ára sögu blaðsins.
„Ég þakka ykkur
öllum ánægju-
lega samfylgd“
Morgunblaðið/Jim Smart
Við lágmyndina af Matthíasi Johannessen, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, við athöfnina í gær. F.v. Har-
aldur Sveinsson, stjórnarformaður Árvakurs, Agnes Jóhannsdóttir, eiginkona Haraldar, Hanna Johannessen,
eiginkona Matthíasar, Matthías, Erlingur Jónsson myndhöggvari og dóttir hans, Jóhanna.
Erlingur Jónsson myndhöggvari flutti nokkur af ljóðum Matthíasar.
Gæfa að kynnast og starfa með Matthíasi
Johannessen, sagði Haraldur Sveinsson, stjórn-
arformaður Árvakurs, þegar lágmynd af
Matthíasi var afhjúpuð á ritstjórn Morgunblaðsins
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra
er í opinberri heimsókn í Finn-
landi ásamt Ástríði Thorarensen
eiginkonu sinni. Heimsóknin hófst
í gær með óformlegum fundi Dav-
íðs og Törju Halonen forseta Finn-
lands. Í viðtali við Morgunblaðið
sagði forsætisráðherra að á fund-
inum hefði verið farið yfir helstu
mál sem nú eru uppi í Evrópu og
þau mál sem tengjast samskiptum
Finnlands og Íslands. Davíð átti
síðar í gær fund með Paavo Lipp-
onen, forsætisráðherra Finnlands.
Aðspurður sagði forsætisráð-
herrann að þar hefði verið farið í
meiri smáatriðum yfir einstaka
hluti. „Á fundinum var farið yfir
atriði sem snerta samskipti Ís-
lands og Finnlands sem eru með
miklum ágætum.“
Davíð sagði að á fundinum hefði
enn fremur verið farið yfir þá
stöðu sem nú er uppi varðandi
þróun Evrópu og stækkun Evr-
ópusambandsins (ESB). „Það er
mat finnska forsætisráðherrans að
samningur okkar við EES sé í
fullu gildi og endist mjög vel. Á
hinn bóginn sagðist Lipponen
gjarnan vilja sjá okkur í hópi
ESB-ríkjanna þegar fram líða
stundir. Ég útskýrði fyrir honum
afstöðu okkar. Að lokum var farið
yfir norræna samstarfið og þá
þætti sem þar eru á ferðinni.“
Rætt um
stækkun ESB
Þá sagði Davíð að á fundi hans
og Lipponen hefði verið rætt um
fundina sem haldnir voru á dög-
unum hjá ESB og Atlantshafs-
bandalaginu og stækkunarferli
þessara samtaka.
Inntur eftir því hvernig stækk-
unarmál ESB blasi við Finnum
segir Davíð það hafa komið glöggt
fram að þeir telji stækkun sam-
bandsins vera þeim sjálfum og
ESB til hagsbóta. „Að stækkun
ESB verði sem fyrst og sem
öruggust er þeim ofarlega í huga.“
Á sunnudag og mánudag verður
sameiginlegur fundur forsætisráð-
herra Norðurlandanna haldinn í
Finnlandi. Þar segir Davíð að svip-
uð mál verði á dagskrá. „Á hinn
bóginn eru sumarfundir af þessu
tagi ekki eins alvöruþrungnir og
flestir fundir forsætisráðherra,“
sagði Davíð Oddsson að lokum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra í opinberri heimsókn í Finnlandi
Evrópumál of-
arlega á baugi
Reuters
Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands, ásamt Törju Halonen, forseta
Finnlands, sem handleggsbrotnaði á fimmtudag.
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra hefur lagt til að eftir að nýtt
brunabótamat tekur gildi 15. sept-
ember nk. verði lánveitingar
Íbúðalánasjóðs miðaðar við kaup-
verð fasteigna, en að lánið verði
aldrei hærra en brunabótamati
nemur. Páll hefur óskað eftir fundi
með seðlabankastjóra til að ræða
þessar breytingar, en brunabóta-
matið lækkar að meðaltali um 4% í
endurskoðuðu mati sem birt var í
byrjun vikunnar.
Tvisvar áður hefur ráðherra
viðrað hugmyndir um að hækka
lánshlutfallið af brunabótamati við
seðlabankastjóra, en hann hefur
ráðið gegn því þar sem það hefur
þótt of þensluhvetjandi.
Einungis reglugerðarbreytingu
þarf til að breyta lánsreglum
Íbúðalánasjóðs og segir Ingi Valur
Jóhannsson, deildarstjóri í félags-
málaráðuneytinu, að ráðherra vilji
ræða þetta nánar við Seðlabank-
ann, áður en hann tekur endanlega
ákvörðun. Hann segir að fundur-
inn muni eiga sér stað á næstu
dögum.
Lán fari
ekki yfir
bruna-
bótamat