Morgunblaðið - 30.06.2001, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Oh, ég er svo spennt, mig langar að heyra allt um þetta heimsins besta kvótakerfi.
Ananda Marga-munkur á Íslandi
Samfélagsþjón-
usta og íhugun
ANANDA Marga-hreyfingin varstofnuð árið 1955 á
Indlandi með það markmið
að auka fræðslu um and-
legt líferni. Á vegum henn-
ar er meðal annars rekinn
leikskólinn Sælukot við
Þorragötu. Áhugamenn
um hugleiðslu og andlega
rækt geta þessa dagana
sótt námskeið á vegum An-
anda Marga á Íslandi. Ind-
verskur munkur að nafni
Dada Acarya Satyatmak-
ananda Avadhut, eða Dada
Satya, er staddur á Íslandi
til að taka þátt í starfi
hreyfingarinnar og halda
námskeið í hugleiðslu, jóga
og ýmsu öðru sem kemur
að andlegum efnum. Dada
Satya mun dvelja hér á
landi til 25. júlí við kennslu og önn-
ur störf í þágu Ananda Marga.
„Ég held ókeypis kynningar-
tíma um jógahugleiðslu á hverju
mánudagskvöldi klukkan átta.
Námskeið um jógaheimspeki og
slökun eru haldin þriðjudaga og
fimmtudaga klukkan átta og mið-
vikudaga og föstudaga klukkan
sex. Einnig höfum við opna tíma í
jóga og slökun á fimmtudögum og
laugardögum klukkan sex. Í þess-
um námskeiðum förum við yfir
grundvallaratriði jógaheimspeki,
hugleiðslu og slökunar.“
Hver er meginboðskapur An-
anda Marga?
„Kjarni hugmyndafræði An-
anda Marga felst í tveimur hlut-
um, sjálfsskilningi og þjónustu við
mannkyn. Til að öðlast sjálfsskiln-
ing verða menn að stunda hug-
leiðslu og stunda andlega íhugun
og eiga andlegan lífsgrunn dag frá
degi.
Samfélagsþjónustan, þjónustan
við mannkyn, felst í því að við
reynum að vinna að bættum lífs-
kjörum fólks í heiminum, mennt-
un, landbúnaði, heilbrigðisþjón-
ustu og hvers konar hjálp sem við
getum veitt samfélaginu auk þess
sem við reynum að auka meðvit-
und almennings um andleg mál-
efni.
Hvað olli því að þú ákvaðst að
helga líf þitt þjónustu á vegum An-
anda Marga?
„Það er erfitt að nefna eina or-
sök, en ég held að megin ástæðan
sé að maður finnur innri þrá til að
öðlast andlega upplýsingu. Einnig
má nefna þjónustuþörfina. Ég hef
fyrir löngu sagt skilið við hina litlu
fjölskyldu. Alls staðar í heiminum
eru bræður mínir og systur. Ég
aðgreini engan með tilliti til stétt-
ar, litar eða trúar. Á sanskrít er til
orðtak sem segir Hara Hara Pita,
Gaurii mata, Sva Desh Drivuni,
hinn æðsti faðir er faðir minn,
náttúran er móðir mín og alheim-
urinn er heimili mitt. Við stefnum
að því að skapa hafsjó kærleiks í
hjörtum fólksins.“
Margir tala um að
jógaiðkun sé líferni
sem æskilegt sé að
flétta inn í daglegt líf,
hver er þín skoðun á
þessu?
„Á sanskrít þýðir
orðið jóga eining einstaklingsvit-
undarinnar við alheimsvitundina,
sameining sjálfsins við guð. Í dag
geta allir stundað jóga. Margir
halda að jóga sé einungis líkams-
æfingar. Það er ekki andi jóga.
Þrátt fyrir að vissulega sé nauð-
synlegt að gera hinar líkamlegu
æfingar er það aðeins fyrsti hluti
jóga. Jóga greinist í þrjá hluta,
hinn líkamlega, hinn hugræna og
hinn andlega. Lífið sjálft greinist á
sama hátt. Jóga eru í raun vísindi
þess að rækta líkama, hug og anda
á hverjum degi. Á hverjum degi
þurfum við að gera vissar líkam-
legar æfingar til að hreinsa líkam-
ann og gera hann heilbrigðan.
Hugleiðsla hreinsar hugann og
býr hann undir einingu við and-
ann. Þriðja svið jóga er síðan að
kanna hina guðlegu ást, að skapa
ást til allra vera í heiminum, ekki
einungis til manna, heldur einnig
til dýra og plantna. Við hjálpum
fólki að nálgast jóga frá þessum
þremur áttum. Lífið er ekki aðeins
að eta, drekka og vera glaður. Líf-
ið er að gera sér grein fyrir sjálf-
um sér. Fólk veit svo margt, en
þekkir ekki sjálft sig. Jóga stefnir
að því að kanna þá orku sem býr í
hverri veru.“
Nú ferðast þú mikið, hvernig
skilgreinir þú hugtakið heimili?
„Í raun eru til mörg hugtök sem
fjalla um heimilið. Á sanskrít er
hægt að segja að heimili sé stað-
urinn þar sem maður er líkamlega,
og finnur tengslin við fólkið sem
býr þar. Á þessari plánetu eru
mismunandi menningarheimar og
mismunandi staðir og mismunandi
fólk. Þar sem fólk býr lengi festist
það oft við landafræðileg, loftlags-
leg og menningarleg skilyrði. Ég
er fæddur í Indlandi, en mér finnst
ég ekki eiga heima í Indlandi. Mér
finnst allur heimurinn
vera heimili mitt. Ég er
skyldur öllum verum
heims. Heimili mitt er
ekki einn sérstakur
staður. Nú bý ég á Ís-
landi í þessu húsi í þess-
ari borg og upplifi tengsl við fólkið
hér. Heimili er því tengsl líkam-
legra og andlegra róta. Ég tel mig
mjög heppinn vegna þess að
venjulega eru munkar menn sem
búa uppi í fjalli í klaustri langt frá
fólkinu. Ananda Marga munkar
eins og ég lifa í samfélagi með fólk-
inu og vinna með því. Því er ég
alltaf heima hjá mér.“
Þeir sem eru áhugasamir um
námskeið hjá Dada Satya geta
haft samband við Ananda Marga
hreyfinguna í síma 554-7434.
Dada Satyatmakananda
Dada Acarya Satyatmak-
ananda Avadhut fæddist í Vihir-
héraði á N-Indlandi 1. janúar
1941. Hann lauk prófi í stærð-
fræði frá Pagalbur-háskóla á
Indlandi og kenndi stærðfræði í
menntaskóla áður en hann hóf
störf sín fyrir Ananda Marga-
hreyfinguna. Dada Satyatmak-
ananda hefur síðan 1963 til-
einkað líf sitt sjálfboðastarfi á
vegum Ananda Marga um allan
heim. Hann hefur unnið í Norð-
ur- og Suður-Ameríku, Evrópu,
Asíu, og Ástralíu, meðal annars
við fræðslustörf, landbúnað og
hugleiðslu.
Fólk veit svo
margt, en
þekkir ekki
sjálft sig
ÁSGEIR Eiríksson, fjár-
málastjóri hjá Reykjalundi í
Mosfellsbæ, hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri
Strætó bs., sem er nýtt sam-
einað fyrirtæki um almenn-
ingssamgöngur á höfuð-
borgarsvæðinu.
Ásgeir er menntaður
rekstrarhagfræðingur frá
háskólanum í Uppsala í Sví-
þjóð og hefur víðtæka
reynslu af stjórnunarstörfum auk
þess að hafa unnið sem strætóbíl-
stjóri með námi, bæði í Reykjavík og
Svíþjóð. Lokaritgerð hans í
háskólanum í Uppsala var
unnin fyrir Uppsalabus AB
og fjallaði um þátttöku
starfsmanna í stjórnun og
ákvarðanatöku innan fyrir-
tækisins. Ásgeir er sonur
Eiríks Ásgeirssonar, sem
um árabil var forstjóri SVR.
Hann er kvæntur Kristrúnu
Davíðsdóttur lyfjafræðingi.
Ásgeir tekur við starfinu í
september nk. Um 250 starfsmenn
starfa hjá Strætó bs. og ársveltan er
liðlega tveir milljarðar króna.
Ráðinn framkvæmda-
stjóri Strætó bs.
Ásgeir
Eiríksson
BILUN varð í Boeing 757 vél Flug-
leiða á Kastrup-flugvelli í Kaup-
mannahöfn um klukkan 22.10 að
staðartíma í fyrrakvöld. Vélin stóð
við brottfararhlið þegar hluti hægri
hjólabúnaðar gaf sig.
Öllum 180 farþegum vélarinnar
var boðin hótelgisting um nóttina en
önnur 757 vél Flugleiða lenti með
farþegana í Keflavík kl. 8.40 í gær-
morgun.
Orsök bilunarinnar er ekki ljós, en
rannsókn á atvikinu er hafin hjá
Boeing-verksmiðjunum og hjá
tæknistöð Flugleiða.
Bilun í vél
Flugleiða