Morgunblaðið - 30.06.2001, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðaflugmálastofnun, ICAO, hef-
ur skilað niðurstöðum sínum vegna
úttektar á rannsókninni á flugslys-
inu í Skerjafirði 7. ágúst árið 2000,
er TF-GTI fórst. Er niðurstaða
stofnunarinnar sú að rannsókn og
skýrsla Rannsóknarnefndar flug-
slysa, RNF, um flugslysið standist
fyllilega þær kröfur sem unnið er
eftir í flugheiminum. Því sé ekki
ástæða til frekari rannsókna á slys-
inu.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra kynnti í gær niðurstöður
ICAO, en í apríl síðastliðnum fór
hann fram á það við stofnunina að
hún legði mat á framkvæmd flug-
öryggismála hjá Flugmálastjórn Ís-
lands. Þá óskaði ráðherra jafnframt
eftir því að ICAO legði mat á hæfi
RNF til að rannsaka flugslys, með
því að skoða starfsaðferðir og verk-
lag nefndarinnar, en tilefni þessarar
beiðni var flugslysið í Skerjafirði.
Í bréfi forseta ICAO segir að
RNF hafi kannað alla þá þætti
slyssins er máli skipta. Þær tillögur
um úrbætur í öryggisátt sem lagðar
hafi verið fram miði að því að koma í
veg fyrir að koma í veg fyrir frekari
flugslys, auk þess sem þær auki ör-
yggi í flugi og þannig hafi markmið
rannsóknarinnar verið uppfyllt.
Sérfræðingarnir, sem komu hing-
aði til lands í maí síðastliðnum á
vegum ICAO, gerðu úttekt á
skýrslu RNF í kjölfar rannsóknar
hennar á flugslysinu í Skerjafirði. Í
skýrslu sérfræðinga ICAO kemur
fram að þeir séu þess fullvissir að
rannsókn RNF hefði náð til allra
þátta sem máli skiptu varðandi slys-
ið og að RNF hefði gert viðeigandi
tillögur í öryggisátt.
Sturla sagði að í ljósi úttektar og
niðurstöðu ICAO telji ráðuneytið
ekki efni til frekari rannsókna á
flugslysinu í Skerjafirði. Engu að
síður muni ráðuneytið að sjálfsögðu
taka tillit til framkominna athuga-
semda og leita allra leiða til að
tryggja öryggi flugsins á Íslandi. Sú
ákvörðun að óska eftir úttekt ICAO
á málinu hefði meðal annars grund-
vallast á yfirþjóðlegri og hlutlausri
stöðu stofnunarinnar og sagði hann
að hlutlausari eða tæknilega betri
úttekt á RNF en sú sem nú liggi
fyrir, hefði ekki fengist með því að
leita til annarra sérfræðinga.
Tillaga um breytingu
á lögum um RNF
Sturla greindi einnig frá því að í
undirbúningi væri tillaga til breyt-
ingu á lögum um RNF, sem hann
hygðist leggja fyrir Alþingi innan
skamms. Í breytingunni felist að
reynt verði að tryggja að upplýs-
ingastreymi um rannsóknir sé sem
best, sem og almennt vinnulag. Þar
sé ekki átt við að ráðherra eða ráðu-
neytið hlutist til um einstaka rann-
sóknir, heldur að reglum um upplýs-
ingaflæði verði komið í fastar
skorður og að almennt vinnulag
nefndarinnar verði rætt innan ráðu-
neytisins.
Niðurstaða Alþjóðaflugmálastofnunar vegna úttektar í kjölfar flugslyssins í Skerjafirði
Rannsókn og
skýrsla RNF standast
fyllilega kröfur
ÞEGAR lög um brunatryggingar
voru til endurskoðunar árið 1999 var
meðal annars í umræðunni hvort af-
nema ætti skyldubrunatryggingu
fasteigna.
Kjartan Gunnarsson, skrifstofu-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu, sem
jafnframt var formaður nefndar sem
hafði lögin til endurskoðunar, segir
að fjölmargir hagsmunaaðilar hafi
verið beðnir um að gefa umsögn um
hvort þeir teldu rétt að skyldutrygg-
ingin væri afnumin. Allir vildu þeir
halda skyldutryggingunni, að
Bændasamtökum Íslands og Sam-
bandi íslenskra tryggingafélaga
undanskildum, og var ákveðið að
halda óbreyttu kerfi.
Sigmar Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri SÍT, segir að þar sem
almenn samstaða hafi verið um að
halda skyldutryggingunni hafi
tryggingafélögin ákveðið að leggjast
ekki gegn því.
Sigurður Helgi Guðjónsson, for-
maður Húseigendafélagsins, segist
alls ekki vilja afnema þá skyldu-
tryggingu sem felst í brunabótakerf-
inu. „Maður sér hversu andvaralaust
fólk er um hagsmuni sína þegar hús
brenna og innbú er óvátryggt,“ segir
Sigurður. „Ég held að við myndum
fyrst lenda í vandræðum, ef skyldu-
tryggingin væri afnumin.“
Vátryggingafélögin bjóði
upp á viðbótartryggingu
Brunabótamat lækkar um 4% á
landsvísu, í endurskoðuðu bruna-
bótamati sem barst landsmönnum í
byrjun síðustu viku. Sigurður Helgi
segist telja nauðsynlegt að trygg-
ingafélögin fari að bjóða upp á við-
bótartryggingu á húseignir sem þau
hafa ekki gert til þessa og að Hús-
eigendafélagið muni beita sér fyrir
því. Skyldutryggingin eigi aðeins að
veita lágmarksvernd. „Menn hafa
hér talið sig vera nógu vel tryggða
til þessa og hafa haft möguleika á að
fá brunabótamatinu breytt ef það er
bersýnilega rangt,“ segir hann.
„Miðað við hve fátíðir eldsvoðar
eru hér á landi, þar sem hér er yf-
irleitt hitað upp með heitu vatni,
ætti það ekki að vera óyfirstíganleg
áhætta og kostnaður fyrir trygg-
ingafélögin.“
Framkvæmdastjóri SÍT segir
hins vegar að sé brunabótamatið
réttilega unnið sé þar komin eðlileg
vátryggingarfjárhæð sem beri að
leggja til grundvallar við bruna-
tryggingar húseigna. Ástæða sé til
að ætla að brunabótamatið í þeirri
mynd sem sérfræðingar hafi lagt
grunninn að nú, komist nær eðlilegri
vátryggingarfjárhæð, en áður var.
„Félögin hljóta því að vera mjög
varkár í því að selja viðbótartrygg-
ingar vegna nákvæmlega þessarar
áhættu, þ.e.a.s. að húseignin
skemmist í eldi,“ segir hann.
Sigmar segir að þar sem bruna-
tryggingar húseigna taki fyrst og
fremst á efnislegu verðmæti gætu
félögin hugsanlega verið reiðubúin
til að bjóða upp á einhvers konar
hagsmunatryggingu vegna óbeins
tjóns. „Það að missa húsið sitt hefur
í för með sér margvíslegt óhagræði
og ýmsan kostnað, eins og t.d. að
taka nýtt hús á leigu,“ segir hann.
„Það verður að vera samræmi milli
áhættunnar sem félagið er að taka á
sig og þeirra hagsmuna sem eru í
húfi.“
Afskriftir ekki nýjar af nálinni
Ástæða þess að brunabótamat
lækkar, er að í endurskoðuðu mati
er í fyrsta sinn unnið eftir lagabreyt-
ingunni frá árinu 1999 þar sem segir
að tekið skuli tillit til afskrifta eigna
með hliðsjón af aldri, sliti og ástandi
eignar.
Það er þó ekki nýtilkomið að af-
skriftirnar séu teknar með í reikn-
inginn. Það hefur verið gert frá því
brunatrygginar voru lögboðnar á
fyrri hluta tuttugustu aldar, en þær
hafa verið reiknaðar út eftir á.
Hvað varðar afskriftarákvæðin
segir Sigurður Helgi að hann sjái
ekki hvaða öðrum reglum væri hægt
að beita við útreikning vátrygging-
arupphæðar, þótt hann segist ekki
vera sáttur við afskriftirnar. „Það er
hrópandi ósamræmi í því hvernig
verðmiklar gamlar eignir koma út úr
þessu mati,“ segir Sigurður. „Þetta
getur verið mjög hastarlegt, en er í
samræmi við reglur og sjónarmið
sem gilda í vátryggingarrétti bæði
hér á landi og erlendis.
Sigurður segir breytinguna þó
hafa verið góða þegar á heildina er
litið. „Sum hús voru allt of lágt
tryggð og önnur of hátt. Það er
grundvallarsjónarmið að jafnræðis
sé gætt í stjórnsýslu, að sambæri-
legar eignir séu teknar sambæri-
legum tökum. Yfir heildina er þetta
leiðrétting og samræming, en lækk-
unin kemur í sumum tilfellum á
óvart.“
Hætt verði að miða
við brunabótamat
Sigurður segir þann mikla mun
sem gjarnan er á milli markaðsverðs
og brunabótamats, sérstaklega á
höfuðborgarsvæðinu, vera bagaleg-
an. Hann segir að fjöldi fólks hafi
haft samband við Húseigendafélagið
og margir hafi haft áhyggjur að hús-
bréfalánum sínum þar sem matið á
veðhæfni eignarinnar fellur niður.
Einnig hafi fólk haft áhyggjur af
yfirvofandi skattahækkunum vegna
hækkunar fasteignamatsins og segir
Sigurður að Húseigendafélagið
muni beita sér gegn hækkun eigna-
skatts.
Lánshæfi er einnig metið út frá
brunabótamati og segir Sigurður að
honum sýnist á forstjóra Íbúðalána-
sjóðs og félagsmálaráðherra að sam-
staða sé um að taka þurfi á því máli.
„Félagsmálaráðherra talaði um að
lánsprósenta af brunabótamati yrði
hækkuð, en við viljum helst kasta
brunabótamatinu út sem viðmiði og
nota frekar kaupverð, eða markaðs-
verð fasteignar,“ segir Sigurður.
Morgunblaðið/Billi
Þverpólitísk samstaða kom fram í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í gær um að skattkerfið verði tekið til
endurskoðunar fyrir næstu áramót. Verði álagningarprósentunni ekki breytt er talið að skatttekjur hins opin-
bera muni aukast um fimm milljarða.
Skyldubrunatrygging
séríslenskt fyrirbrigði
Skyldubrunatrygging
fasteigna er séríslenskt
fyrirbæri, þótt hún tíðk-
ist einnig í nokkrum
fylkjum í Þýskalandi og
einhverjum kantónum í
Sviss. Á Norðurlönd-
unum og meginlandi
Evrópu, þar sem bruna-
tíðni er mun hærri en
hér á landi, er fólki í
sjálfvald sett hvort það
kaupi sér brunatrygg-
ingu eður ei.
VILHJÁLMUR Egilsson, alþing-
ismaður og formaður efnahags- og
viðskiptanefndar, segir nauðsyn-
legt að farið verði í heildarend-
urskoðun á skattkerfinu í kjölfar
endurskoðaðs fasteigna- og bruna-
bótamats sem tekur gildi í haust
og felur í sér 14% hækkun á fast-
eignamati að meðaltali og 4%
lækkun á brunabótamati.
Hann segir að fasteignamats-
stofninn hækki um 200 milljarða
króna í heild við þessar breytingar
og að slegið hafi verið á að breyt-
ingarnar gætu þýtt fimm milljarða
króna í auknar skatttekjur hins
opinbera, miðað við óbreytta
álagningarprósentu. Vilhjálmur
segir að þar af sé hlutur sveit-
arfélaga um 1900 milljónir og hlut-
ur ríkisins um þrír milljarðar.
Þverpólitísk
samstaða
Efnahags- og viðskiptanefnd
kom saman til fundar í gærmorg-
un til að ræða heildaráhrif endur-
skoðaða matsins og segir Vilhjálm-
ur að almenn samstaða hafi verið í
nefndinni um að ráðast í heildar-
endurskoðun á skattkerfinu strax í
haust en breytingarnar koma ekki
inn í skattgreiðslur fyrr en á
næsta ári.
Hann telur vafasamt að nota
brunabótamat sem mat á veð-
hæfni, frekar eigi að miða við
kaup- eða markaðsverð. „Í eðli
sínu er hlutverk brunabótamatsins
að vera mælikvarði á þau verð-
mæti sem tapast verði altjón í
bruna en þegar fólk kaupir fast-
eign er það líka að kaupa lóðina og
þær framkvæmdir sem fylgja
henni, eins og t.d. lagnir. Það
sama má segja um staðsetningu;
eftir því sem hún er farin að skipta
meira máli í verðlagningu verður
brunabótamatið ekki eðlileg við-
miðun hvað veðhæfni varðar,“ seg-
ir Vilhjálmur.
Skoðað hvort breyta
þurfi hlutföllum
Vilhjálmur segir að í kjölfar
lækkunar brunabótamats verði að
skoða hvort breyta þurfi því hlut-
falli sem tekið er af brunabótamati
í ýmis opinber gjöld.
Hann segist telja að þessi end-
urskoðun á fasteigna- og bruna-
bótamati hafi verið nauðsynleg og
að vel hafi verið að henni staðið.
Fundur efnahags- og
viðskiptanefndar í gær
Skatt-
kerfið
verði end-
urskoðað
í heild