Morgunblaðið - 30.06.2001, Page 20
ÚR VERINU
20 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HUGINN VE, nýtt nóta- og tog-
veiðiskip útgerðarfélagsins Hugins
ehf. í Vestmannaeyjum, kom til
heimahafnar í Eyjum í fyrsta sinn í
gær eftir nærri mánaðarsiglingu
frá Talcahuano í Chile þar sem
skipið var smíðað. Fjöldi manns
fagnaði komu skipsins í Eyjum,
enda 8 ár frá því að nýsmíði kom
síðast til hafnar í Vestmannaeyjum,
þegar Herjólfur lagðist að bryggju
í fyrsta sinn. Almenningi var boðið
að skoða skipið eftir að séra Krist-
ján Bjarnason hafði blessað það.
Samningur um smíði skipsins var
undirritaður milli Hugins ehf. og
Asmar skipasmíðastöðvarinnar í
Chile þann 18. desember árið 1998
og hófst vinna við smíðina í ágúst
árið 1999. Skipið var sjósett þann 6.
maí á síðasta ári og afhent eig-
endum þann 31. maí sl.
Fjórða skip útgerðarinnar
Huginn VE er fjórða skipið í eigu
Guðmundar Inga Guðmundssonar,
útgerðarmanns og eiganda Hugins
ehf. í Vestmannaeyjum, og þriðja
skipið sem smíðað er fyrir útgerð-
ina. Guðmundur stofnaði útgerðar-
félagið fyrir 42 árum, eða árið 1959,
í félagi við Óskar Sigurðsson þegar
þeir festu kaup á 41 tonns trébáti
sem gefið var nafnið Huginn VE.
Árið 1964 lét útgerðin smíða stál-
skip í Noregi sem hlaut nafnið
Huginn II en fjórum árum seinna
keypti Guðmundur Ingi og kona
hans, Kristín Pálsdóttir, hlut Ósk-
ars í fyrirtækinu og hefur útgerðin
síðan þá verið í eigu þeirra hjóna og
fjölskyldu þeirra.
Hinn 18. desember árið 1973
undirritaði Guðmundur Ingi samn-
ing um smíði á nýjum Hugin, stál-
skipi sem smíðað var í Noregi og
afhent útgerðinni árið 1974 og hef-
ur skipið verið í eigu hennar síðan.
Vonandi sem fyrst á miðin
Guðmundur Huginn Guðmunds-
son, skipstjóri, var að vonum
ánægður með að vera kominn heim
til Vestmannaeyja eftir tæpra 26
sólarhringa siglingu frá Chile.
Hann var ekki síður ánægður með
nýja skipið. „Það fór vel um okkur
á leiðinni, þrátt fyrir hitann, enda
aðstaðan um borð eins og best
verður á kosið. Skipið reyndist í
alla staði mjög vel á leiðinni. Við
fengum á okkur haugasjó í Kar-
íbahafinu og skipið fór mjög vel í
sjó. Það var ekki laust við að maður
fyndi fyrir viðbrigðum þegar komið
var upp í brú á skipinu og byrjaði
að sigla, því brúin er svo há í sam-
anburði við gamla Hugin. En það
vandist fljótt og skipið lætur prýði-
lega að stjórn. Siglingin heim gekk
að óskum, utan tæplega þriggja sól-
arhringa seinkun við Panama vegna
viðgerðar á Panamaskurðinum.“
Guðmundur Huginn segir að
næsta skref sé að koma skipinu á
veiðar. „Það liggur ekki ennþá fyrir
hvort við förum á loðnu eða kol-
munna. Skipið er enda hannað til
allra veiða og við þurfum í raun
ekki að ákveða það fyrr en á út-
stíminu á hvaða veiðar skal haldið.
Það þarf að huga að einu og öðru
áður en haldið er til veiða en von-
andi komumst við sem fyrst á mið-
in. Það á til dæmis enn eftir að
setja vinnslubúnaðinn um borð en
það stóð alltaf til að það yrði gert
hér heima.“
Guðmundur Huginn segist ekki
geta sagt til um það með vissu hver
kostnaðurinn við smíði skipsins sé,
annað en að hann sé sanngjarn.
Hins vegar sé ljóst að gengislækk-
un krónunnar hafi töluverð áhrif á
endanlegt verð skipsins. Tafir á
smíðinni komi hinsvegar á móti
heildarkostnaðinum en skipasmíða-
stöðin taki þann kostnað á sig.
„Þrátt fyrir tafirnar er ég mjög
sáttur við skipið, það hefur verið
vandað mjög til verksins. Þó að
skipið hafi verið smíðað í Chile þá
er allur búnaður í það keyptur í
gegnum íslenska aðila eða er fram-
leiddur í Chile. Segja má að fyrir
utan stálið sé skipið rammíslenskt
en það hafi hinsvegar verið sett
saman í Chile.“
Guðmundur Huginn segir að
þrátt fyrir nýja skipið sé einnig fyr-
irhugað að útbúa gamla Hugin VE
á veiðar en hluti af áhöfn gamla
skipsins verði á því nýja.
Áttuðu sig ekki á kröfum
Íslendinga
Samkvæmt samningi átti smíði
skipsins að vera lokið þann 31. júlí
á síðasta ári en afhendingu þess var
ítrekað seinkað. Huginn VE er
þriðja skipið sem Asmar skipa-
smíðastöðin smíðar fyrir Íslendinga
og hafa orðið umtalsverðar tafir á
smíði allra skipanna. Þá hafa einnig
orðið tafir á afhendingu Hákons
ÞH sem nú er í smíðum í stöðinni
en vonast er til að skipið leggi af
stað til Íslands eftir u.þ.b. mánuð.
Grímur Gíslason, sem hafði eft-
irlit með smíði Hugins VE í Chile,
segir ástæðu seinkunarinnar á
smíði skipsins sennilega vera að
Chilemennirnir hafi einfaldlega
ekki áttað sig á þeim kröfum sem
Íslendingar gera til skipasmíði.
„Það urðu nokkrar tafir á smíði
Árna Friðrikssonar RE og kannski
hafa þær sett áætlanir þeirra um
smíði skipanna sem á eftir komu, úr
skorðum. Vonandi hafa þeir lært af
þessu og þegar upp er staðið er ég
ánægður með skipið almennt. Smíð-
in kostaði hinsvegar óhemju vinnu
og eftirlit og ég held að það hafi
enginn orðið eins feginn og starfs-
menn skipasmíðastöðvarinnar þeg-
ar ég fór,“ sagði Grímur.
Huginn VE er 68,3 metra langur
og 14 metra breiður. Skipið mælist
alls 2.392 brúttótonn en burðarget-
an er um 2.000 tonn í 8 kælitönkum
en tveir af þeim eru útbúnir sem
frystilestar. Lestarnar eru þar að
auki búnar RSW kælibúnaði. Í
skipinu er 5.840 hestafla MAK að-
alvél og ganghraði þess er um 16,5
mílur. Skipið er auk þess búið
tveimur Caterpillar ljósavélum,
samtals 1.300 kílóvött. Í skipinu eru
öll nýjustu siglingar- og fiskleitar-
tæki og íbúðir fyrir 22 manna
áhöfn.
Séra Kristján Bjarnason blessaði skipið og áhöfn þess.
„Skipið er
rammíslenskt“
Nýr Huginn VE kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Vestmannaeyjum í gær
Vel á annað hundrað manns fagnaði komu Hugins til Vestmannaeyja.
Huginn VE siglir inn til heimahafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn.
Morgunblaðið/Sigurgeir