Morgunblaðið - 30.06.2001, Blaðsíða 22
Tíðni ákveðinna
fæðingargalla
lækkað um 19%
SÍÐAN yfirvöld í Bandaríkjunum
ákváðu að vítamíninu fólasíni
skyldi bætt í grunnfæðutegundir
eins og kornvörur og kjöt hafa 19%
færri börn fæðst með ákveðna fæð-
ingargalla í mænu og heila. Áður
en viðbæturnar hófust fæddust ár-
lega 2.500–3.000 börn í landinu
með annars vegar klofinn hrygg,
sem er mænusjúkdómur er getur
leitt til lömunar, og hins vegar
heilaleysi sem leiðir til dauða. Vís-
indamenn við forvarna- og sjúk-
dómaeftirlit Bandaríkjanna gerðu
rannsóknina en niðurstöður henn-
ar birtust í tímaritinu Journal of
the American Medical Association.
Árið 1996 leyfðu yfirvöld að fól-
ansýru yrði bætt í ákveðnar grunn-
fæðutegundir eins og brauð, pasta,
hrísgrjón, hveiti og morgunkorn
en 1998 kröfðust þau þess þar sem
rannsóknir sýndu að margar konur
fengju of lítið af henni og aðeins
29% kvenna fylgdu hvatningu yf-
irvalda um að fá a.m.k. 400 mík-
rógrömm af fólansýru á dag. Rann-
sókn sem gerð var í október sýndi
að konur á aldrinum 15–44 ára
höfðu þá yfir tvöfalt meiri fól-
insýru í blóðinu en áður en viðbæt-
urnar hófust.
Í Evrópu hefur þessi leið ekki
verið farin heldur hafa heilbrigð-
isyfirvöld hvatt konur á barneign-
araldri til að fá nægilegt magn af
fólasíni á dag, að sögn Laufeyjar
Steingrímsdóttur forstöðumanns
Manneldisráðs. „Það gæti þó komið
til greina að fara þessa leið hér á
landi. Rannsóknir hafa sýnt að ekki
er nóg að taka fólansýru eingöngu
eftir að konur eru þungaðar heldur
er nauðsynlegt að konur á barn-
eignaraldri fái nóg af henni.“ Hún
segir að hægt sé að fá nægjanlegt
magn fólansýru úr fæðunni, hana
sé sérstaklega að finna í dökk-
grænu grænmeti, t.d. brokkolí og
papriku, sítrusávöxtum en einnig í
litlu magni í mjólkurvörum. „Fól-
ansýra hefur einnig aðra eig-
inleika, t.d. bendir margt til þess
að hún minnki líkur á hjarta- og
æðasjúkdómum og krabbameini,
þannig að hún er ekki eingöngu
æskileg konum á barneignaraldri
heldur er holl fyrir aðra líka.“
Pétur Lúðvíksson, sérfræðingur
í taugasjúkdómum barna, segir að
viðbætur í fæðu horfi nokkuð öðru-
vísi við hér á landi vegna þess hve
samfélagsgerð í Bandaríkjunum er
ólík þeirri íslensku. „Þetta er mik-
ilvægt í löndum þar sem ekki næst
til nema takmarkaðs hóps í gegn-
um heilbrigðiskerfið og fólk leitar
mun sjaldnar til læknis og þung-
aðar konur kannski ekki fyrr en á
síðustu vikum meðgöngu. Því þarf
ekki að vera að slíkar viðbætur í
fæðu eigi við á Íslandi.“
Fólasíni bætt í fæðu í Banda-
ríkjunum frá 1998
NEYTENDUR
22 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
VERÐ á kjúklingi hefur hækkað
að undanförnu hjá heildsölum og
framleiðendum og segja tals-
menn þeirra skýringuna vera
hækkað verð á kjúklingafóðri.
Hjá Ísfugli hækkar verð um 7%
að sögn Helgu Hólm, fram-
kvæmdastjóra Ísfugls. „Samn-
ingar við viðskiptavini hafa mis-
langan gildistíma svo hækkunin
gengur mishratt yfir. Hún kemur
til vegna hækkunar á fóðri til
framleiðenda en einnig hafa um-
búðir hækkað í verði.“
Hjá Ferskum kjúklingum er
hækkunin mismikil eftir tegund-
um eða frá 2-3% og upp í 9%, að
sögn Ólafs Jóns Guðnasonar
framkvæmdastjóra. Hann segir
ástæðuna fyrst og fremst vera
hækkað fóðurverð en einnig
hækkað verð á umbúðum og
launahækkanir.
Hjá Reykjagarði varð 8%
hækkun á öllum vörum nema
kjúklingabringum sem hækkuðu
um 12%, að sögn Páls Ásmunds-
sonar skrifstofustjóra. „Aðal-
ástæðan fyrir hækkuninni er 9%
hækkun á kjúklingafóðri.“ Hann
tekur fram að pylsur og álegg
frá fyrirtækinu hafi ekki hækkað
í verði.
Hársnyrtivörur
hækka um 5–12%
Hjá heildversluninni Árgerði
varð, í síðustu viku, 5–12%
hækkun á hársnyrtivörum m.a.
frá Matrix og Joico, að sögn
Hjálmars Kristmannsonar fram-
kvæmdastjóra. „Hækkanirnar
eiga að mestu leyti rætur sínar
að rekja til gengisbreytinga.
Langstærstur hluti okkar vara
kemur frá Bandaríkjunum en
dollarinn hefur hækkað um 30%
frá því um áramót. Við höfum
beðið átekta og vonast til að
þurfa ekki að hækka verð en hjá
því varð ekki komist.“
Hækkun á appelsínusafa
Hagkaup hækkuðu verð á
McCain appelsínusafa úr 189
krónum í 198 krónur sem er 4%
hækkun, að sögn Sigurðar Reyn-
aldssonar innkaupastjóra Hag-
kaupa. „Kostnaðarverð vörunnar
hefur hækkað um 8,6% frá ára-
mótum og er þessi hækkun að-
lögun að því.“
Kjúklingar hækka um
2–12 prósent í verði
LÍNUR eru nú teknar að skýrast í
baráttunni um leiðtogaembættið í
breska Íhaldsflokknum. Tilkynnt var
á miðvikudagskvöld að framboðs-
frestur rynni út 5. júlí og ekki er búist
við að fleiri gefi kost á sér en þeir
fimm sem þegar hafa lýst yfir fram-
boði.
Michael Portillo, talsmaður Íhalds-
flokksins í ríkisfjármálum og fyrrver-
andi varnarmálaráðherra, varð fyrst-
ur til að lýsa yfir framboði, fimm
dögum eftir að William Hague sagði
af sér í kjölfar ófaranna í þingkosn-
ingunum 7. júní. Tæpri viku síðar, 19.
júní, gáfu kost á sér þeir Iain Duncan
Smith, talsmaður í varnarmálum, sem
er af mörgum talinn leiðtogi hægri
armsins í flokknum, og þingmaðurinn
David Davis. Flokksformaðurinn
Michael Ancram bættist í hópinn
tveimur dögum síðar og Kenneth
Clarke, fyrrverandi fjármálaráð-
herra, batt loks enda á óvissu um
framboð sitt sl. þriðjudag, þegar hann
gaf formlega kost á sér.
Allir hafa þeir lýst því yfir að Evr-
ópumál megi ekki lengur kljúfa
Íhaldsflokkinn og fullyrt að nauðsyn-
legt sé fyrir flokkinn að höfða til
breiðari kjósendahóps. Þó er greini-
legur áherslumunur á frambjóðend-
unum og víst er að ágreiningurinn
innan flokksins, bæði um afstöðuna til
Evrópusamstarfsins og milli íhalds-
samari og frjálslyndari fylkinganna,
verður ekki auðleystur.
Michael Portillo og Kenneth
Clarke tilheyra frjálslyndari armi
flokksins, en Iain Duncan Smith,
Michael Ancram og David Davis þeim
íhaldssamari. Togstreitan milli þess-
ara fylkinga hefur verið að ágerast á
undanförnum árum og baráttan mun
án efa harðna eftir því sem nær líður
leiðtogakjörinu. Clarke hefur þá sér-
stöðu að vera eini frambjóðandinn
sem er yfirlýstur Evrópusinni og
hlynntur inngöngu í Efnahags- og
myntbandalag Evrópu (EMU).
Ljóst þykir að úrslit leiðtogakjörs-
ins muni ráða miklu um hvaða stefnu
flokkurinn tekur á næstu árum, jafnt
á hægri/vinstri-kvarðanum sem í
Evrópumálunum.
Úrslitanna ekki að vænta
fyrr en síðsumars
Fyrirkomulag leiðtogakjörsins er
nokkuð flókið og tímafrekt. Undir-
búningur þess gat ekki hafist fyrir al-
vöru fyrr en á miðvikudag, þegar
samtök óbreyttra íhaldsþingmanna,
kennd við árið 1922, kusu sér nýjan
formann, en hann sér venju sam-
kvæmt um framkvæmdina.
Nýi formaðurinn, Sir Michael
Spencer, tók strax ákvörðun um að
framboðsfrestur rynni út næstkom-
andi þriðjudag, 5. júlí.
Kjörið fer þannig fram að þing-
menn Íhaldsflokksins þrengja fram-
bjóðendahópinn niður í tvo, sem al-
mennir flokksmenn greiða svo
atkvæði um. Fyrsta umferð atkvæða-
greiðslunnar í þingflokknum fer fram
10. júlí og sá frambjóðendanna sem
fær fæst atkvæði fellur úr leik. Næst
verður kosið 12. júlí og loks 17. júlí. Þá
standa tveir uppi, sem skráðir flokks-
menn velja á milli í póstkosningu.
Skráðir félagar í Íhaldsflokknum
eru um 300 þúsund og póstkosningin
gæti tekið dágóðan tíma. Úrslitanna
er ekki að vænta fyrr en í byrjun
ágúst í fyrsta lagi, en allt kapp verður
lagt á að ljúka kjörinu fyrir miðjan
september, þegar landsþing flokksins
verður haldið.
Könnun The Times staðfestir
vinsældir Clarkes
Michael Portillo þykir ennþá sig-
urstranglegastur, enda nýtur hann
mikils stuðnins innan þingflokksins.
Kenneth Clarke hefur þó allan tím-
ann mælst með meira fylgi meðal al-
mennra kjósenda. Hinir frambjóð-
endurnir þrír þykja eiga mun minni
möguleika.
The Times birti í gær skoðana-
könnun frá MORI-stofnuninni, sem
staðfestir vinsældir Clarkes. Af al-
mennum kjósendum svara 32% því til
að Clarke væri best til þess fallinn að
leiða Íhaldsflokkinn. 17% nefna
Portillo, 7% Iain Duncan Smith , 6%
nefna Michael Ancram og 4% David
Davis.
Forskot Clarkes á Portillo minnkar
til muna þegar aðeins eru tekin svör
stuðningsmanna Íhaldsflokksins.
Clarke hefur þá 29% fylgi og Portillo
25%. Duncan Smith nýtur stuðnins
13% aðspurðra, Ancram fylgir fast á
hæla honum með 12% og David Davis
rekur lestina með 5%.
Portillo nýtur mests stuðnings
meðal miðstéttanna og fólks undir 45
ára aldri, sem eru þeir kjósendahópar
sem Íhaldsflokkurinn þarf helst að
vinna á sitt band til að eiga möguleika
á sigri í næstu kosningum. Clarke og
Duncan Smith njóta hins vegar meiri
stuðnings meðal eldri aldurshópa,
sem eru reyndar í meirihluta af
skráðum flokksmönnum.
Eins og fyrr greinir gegnir þing-
flokkurinn lykilhlutverki í leiðtoga-
kjörinu. Af þeim þingmönnum sem
hafa opinberlega lýst stuðningi við
einhvern frambjóðendanna fylgja
flestir Portillo að málum, eða 31, sam-
kvæmt fréttavef BBC. Hann nýtur
jafnframt stuðnings tveggja þriðju af
skuggaráðuneyti Íhaldsflokksins. 16
þingmenn hafa lýst stuðningi við
Duncan Smith, 11 við Clarke, 9 við
Davis og 7 við Ancram. Íhaldsflokk-
urinn á 161 sæti í neðri deild þingsins.
Vinsælir en umdeildir
Þótt Clarke og Portillo njóti mestra
vinsælda eru þeir jafnframt umdeild-
astir frambjóðendanna.
Clarke er eindreginn Evrópusinni,
sem gerir honum erfitt fyrir, þar sem
meirihluti stuðningsmanna Íhalds-
flokksins er tortrygginn gagnvart
Evrópusambandinu og andvígur aðild
að EMU. Hefur Clarke jafnvel sjálfur
lýst efasemdum um að Evrópusinni
geti leitt flokkinn.
Þess má geta að BBC gerði nýlega
könnun meðal formanna flokksfélag-
anna í kjördæmum landsins og aðeins
tæpur helmingur þeirra tók undir þá
fullyrðingu að aðildin að ESB hefði
orðið Bretum til góðs.
Þá hafa ýmsir talið Clarke of gaml-
an til að taka við leiðtogaembættinu,
en hann fagnar 61 árs afmæli á mánu-
daginn og yrði því væntanlega 65 eða
66 ára er næstu kosningar fara fram.
Hinir frambjóðendurnir fjórir eru all-
ir um fimmtugt. Clarke vísar því hins
vegar alfarið á bug að aldurinn sé
honum hindrun.
Menn hafa að sama skapi skiptar
skoðanir á Portillo. Hann þótti á árum
áður afar hægrisinnaður og var í
miklu uppáhaldi hjá Margréti
Thatcher. Eftir að hann missti þing-
sæti sitt í Enfield Southgate í kosn-
ingunum 1997, þegar Verkamanna-
flokkurinn náði völdum, hefur hann
hins vegar færst nær miðju í pólitík-
inni. Frá því Portillo náði aftur kjöri í
aukakosningum árið 1999, fyrir kjör-
dæmið Kensington og Chelsea, hefur
hann verið álitinn einn helsti talsmað-
ur frjálslyndra viðhorfa í flokknum.
Íhaldssamari arminum þykir nóg um
og hafa ýmsir forvígismenn hans sak-
að Portillo um að iðka „vinsældapóli-
tík“ í anda Tony Blairs og nýja Verka-
mannaflokksins.
Ekki bætti úr skák þegar Portillo
viðurkenndi fyrir tveimur árum,
vegna þrýstings fjölmiðla, að hafa átt
kynlífsreynslu með karlmönnum á
sínum yngri árum. Stór hluti dygg-
ustu stuðningsmanna Íhaldsflokksins
er afar íhaldssamur í siðferðismálum
og hafa andstæðingar Portillos not-
fært sér þetta óspart til að grafa und-
an honum.
Línur að skýrast í leiðtogaslag breska Íhaldsflokksins
Clarke vinsæll en Port-
illo sigurstranglegur
Leiðtogaefnin tala öll um að breikka verði kjósendahópinn og að
Evrópumál megi ekki lengur kljúfa flokkinn. Að sögn Aðalheiðar
Ingu Þorsteinsdóttur er mikill áherslumunur á frambjóðendunum.
aith@mbl.is
Reuters
Michael Portillo
AP
Kenneth Clarke