Morgunblaðið - 30.06.2001, Page 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 23
Fríkort fylgir ekki sjálfkrafa
debetkortum barna
Ef börn 11-12 ára fá debetkort hjá
Íslandsbanka fá þau sjálfkrafa Frí-
kort sent heim til sín?
Að sögn Finns Bragasonar, sér-
fræðings hjá markaðsdeild Íslands-
banka, er ekki um það að ræða. „Þau
fá ekki sjálfkrafa Fríkort, þau þurfa
að sækja um það sérstaklega. Ef sótt
er um þetta á Netinu er hægt að
merkja sérstaklega við ef fólk vill fá
sent Fríkort.“ Taka þarf skýrt fram
að börn undir 14 ára geta ekki fengið
venjuleg debetkort heldur fá hrað-
bankakort sem einungis er hægt að
nota til að taka út úr hraðbönkum.
Í raun eru þetta því tvö sjálfstæð
ferli fyrir börn undir 14 ára. Á Netinu
er gefin upp kennitala, heimilisfang
og fleira. Út frá því er Fríkortið sent
ef óskað er eftir því. Svo þarf að fara
með umsóknina á Netinu í útibú
bankans og sækja þar um reikning og
þar með hraðbankakortið.
Almenn debetkort hjá Íslands-
banka eru hins vegar öll tengd Frí-
kortinu og safna sjálfkrafa frípunkt-
um þegar verslað er hjá þeim
fyrirtækjum sem taka Fríkort, að
sögn Elísabetar Sveinsdóttur verk-
efnisstjóra á einstaklingsdeild Ís-
landsbanka. Ef þeir sem hafa ekki
hugsað sér að safna frípunktum eru
mótfallnir þessu fyrirkomulagi bend-
ir hún þeim á að hægt sé að aftengja
kortið þegar sótt er um, en það sé
ekki gert nema um það sé beðið. Hún
bendir fólki á að punktarnir fyrnist ef
þeir eru ekki notaðir og því breyti
þessi tenging engu fyrir þá sem ekki
vilji safna frípunktum.
Hvernig á að verja
jarðarberjaplöntur?
Hvernig er best að verja jarðar-
berjaplöntur fyrir ágangi fugla og
snigla?
Lára Jónsdóttir garðyrkjufræð-
ingur segir auðveldara að leysa fyrra
vandamálið en hið seinna. „Til að
verja fyrir fuglum er best að setja
bara yfir fuglanet. Það hafa verið til
sérstök net til að fleygja yfir berja-
runna til að fuglarnir komist ekki að
þeim til að kroppa í. Þau eru til bæði
fyrir rifsber og jarðarber.“ Það er
ekki eins gott að verjast sniglumen
Lára bendir á að gott sé að planta í
gegnum jarðvegsdúka svo berin liggi
ekki á jörðinni. „Einnig eru til ein-
hver sniglaeitur. Það sem við í
Blómavali erum með núna er Fertos-
an-sniglaeyðir. Virka efnið í því er ál-
súlfat, svo það er nú ekkert eitur svo
sem.“ Lára segir þetta efni ekki hafa
áhrif á plönturnar heldur þurrka upp
sniglana og hindra að egg þeirra
klekist út á plöntunni.
Hafa Soda Stream-fyllingar
tvöfaldast í verði?
Kona nokkur sem keypt hefur
Soda Stream-kolsýruhylki reglu-
lega tók eftir því að verð þeirra tvö-
faldaðist dag einn. Hver er skýring-
in á því?
Sigurður Gunnlaugsson, markaðs-
stjóri hjá Vífilfelli, segir að verðið hafi
ekki hækkað hjá þeim en telur að
þetta gæti hugsanlega verið byggt á
misskilningi hjá annaðhvort neytand-
anum eða verslununum. „Nokkuð
hefur verið um að neytendur, við-
skiptavinir, hafi misskilið verð á kol-
sýruhylkjum fyrir Soda Stream-tæki.
Rétt eins og með gaskúta fyrir grill
þá kosta kolsýruhylkin meira ef ekki
er komið með tóm hylki í staðinn.“
„Þar sem það er skilagjald á hylkj-
unum getur verð út úr búðum verið
mismunandi eftir því hvort skilað er
öðru hylki eða ekki. Skilagjaldið er
um 400 kr. á hvert hylki. Við viljum
því hvetja neytendur til þess að muna
að skila inn tómu kolsýruhylkjunum
þegar nýtt er keypt.“
Að sögn Jóhanns Ólasonar, versl-
unarstjóra í Nóatúni, Hringbraut,
hefur verð á Soda Stream-hylkjunum
ekki hækkað hjá þeim undanfarið.
„Þetta hefur ekki hækkað neitt und-
anfarið.“
Undir þetta tekur Kári Tryggva-
son, verslunarstjóri Nýkaups í
Kringlunni, og segir þessa vöru ekki
hafa hækkað hjá Nýkaup nýlega.
„Mér skilst samt að það hafi orðið
einhver misskilningur í verslun hér í
bæ með verðlagningu á hylkjunum
þannig að þrátt fyrir að hylki hafi
verið skilað hafi verið rukkað fullt
gjald.“
Hver tekur við kvörtunum
vegna tannlækna?
Hvert á fólk að snúa sér ef það
hefur farið til tannlæknis og er
óánægt með þjónustuna?
Fyrir svörum varð Mattías Hall-
dórsson aðstoðarlandlæknir. „Í heil-
brigðisráðuneytinu er starfandi yfir-
tannlæknir sem er deildarstjóri
tannheilsudeildar og sér um skipu-
lagningu þeirra mála. Tannlæknar
eru undir faglegu eftirliti landlæknis
eins og aðrar heilbrigðisstéttir.
Stundum eru kvartanir fjárhagslegs
eðlis og þá kemur til kasta yfirtrygg-
ingatannlæknis sé verkið greitt af
Tryggingastofnun ríkisins. Sé ein-
staklingur óánægður með þá greiðslu
sem honum er gert að inna af hendi
hjá sjálfstætt starfandi tannlækni má
snúa sér til svokallaðrar sáttanefndar
Tannlæknafélags Íslands.“
Kosta bréfpokar 65 krónur
hjá Body Shop?
Hvers vegna þurfa viðskiptavinir
Body Shop að greiða 65 krónur fyrir
að fá bréfpoka í stað plastpoka?
Að sögn Önnu Katrínar Þorvalds-
dóttur hjá Body Shop er hér eflaust
um misskilning að ræða. „Venjulega
burðarpoka seljum við ekki, en hins
vegar seljum við gjafapoka. Samt er
rétt að taka fram að alltaf getur kom-
ið upp misskilningur á milli fólks og
hér gæti hafa verið um slíkt að ræða.“
Spurt og svarað um neytendamál
Morgunblaðið/Golli
NETVERSLUN Á mbl.is
Drykkjarbrúsi
aðeins kr. 400