Morgunblaðið - 30.06.2001, Qupperneq 26
Regluleg líkams-
þjálfun getur í
sumum tilfellum
komið í staðinn
fyrir lyfjameðferð við
háum blóðþrýstingi
Spurning: Hver er ástæðan fyrir
því að blóðþrýstingur lækkar við
áreynslu?
Svar: Hjá heilbrigðum ein-
staklingum hækkar blóðþrýsting-
urinn meðan á áreynslu stendur en
að henni lokinni lækkar blóðþrýst-
ingurinn aftur og oftast niður fyrir
það sem hann var áður en áreynsl-
an hófst.
Blóðþrýstingurinn er margfeldi
af því magni af blóði sem hjartað
dælir á tímaeiningu og viðnámi
æðakerfisins. Það er þess vegna
tvennt sem getur lækkað blóð-
þrýstinginn; í fyrsta lagi minnkuð
starfsemi hjartans (t.d. lækkuð
hjartsláttartíðni) og í öðru lagi
minnkað æðaviðnám. Þeir sem eru
með háan blóðþrýsting eru næstum
allir með aukið æðaviðnám og með-
ferðin sem beitt er miðar að því að
lækka þetta viðnám. Blóðþrýst-
ingnum er stjórnað á mjög öflugan
hátt, í hálsæðum og meginslagæð
(ósæð) eru þrýstingsnemar og ef
þeir skynja breytingu á blóðþrýst-
ingi berast samstundis boð til heil-
ans sem gerir ráðstafanir til að
leiðrétta breytinguna með því að
hafa áhrif á starfsemi hjartans og á
vídd æða. Þetta gerist til dæmis
þegar við stöndum upp, þá fellur
blóðþrýstingurinn og það er leið-
rétt svo fljótt, með því að auka
starfsemi hjartans, að venjulega
tökum við ekki eftir neinu. Við
áreynslu verða mjög miklar breyt-
ingar á líkamsstarfsemi, m.a. á
hjarta og æðum. Það sem er einna
mest áberandi er aukið blóðflæði til
beinagrindarvöðva (hreyfivöðva)
sem verður vegna æðavíkkunar og
minnkunar á æðaviðnámi til vöðv-
anna. Við mikla áreynslu getur
blóðflæði til beinagrindarvöðva
aukist allt að 35 sinnum. Við þetta
aukna blóðflæði til vöðva og minnk-
aða æðaviðnám myndi blóðþrýst-
ingurinn falla mikið ef ekki kæmu
til boð frá heila um aukna hjarta-
starfsemi sem er aukin hjartslátt-
artíðni og aukinn samdráttar-
kraftur hjartavöðvans. Við þetta
dælir hjartað meira blóði á tímaein-
ingu og blóðþrýstingurinn hækkar.
Hjá heilbrigðum einstaklingi gerir
aukin hjartastarfsemi við áreynslu
meira en að vega upp á móti auknu
blóðflæði til vöðva þannig að blóð-
þrýstingurinn hækkar venjulega.
Þannig er það hjá heilbrigðum að
við áreynslu hækkar blóðþrýsting-
urinn en þegar áreynslunni lýkur
lækkar hann aftur og getur lækkað
svo mikið að einstaklingurinn fái
svima í svolitla stund. Þessi blóð-
þrýstingslækkun eftir áreynslu er
oft á bilinu 5–20 mmHg (efri mörk
eða slagbilsþrýstingur) sem er tals-
vert mikið miðað við að blóðþrýst-
ingur hjá heilbrigðum er oftast á
bilinu 120-140 mmHg. Þessi lækk-
un á blóðþrýstingi getur staðið í
klukkustund og dálítil lækkun get-
ur staðið mun lengur eða allt að 12
klst. Það er vitað að eitt af því já-
kvæða sem regluleg líkamsþjálfun
hefur í för með sér er svolítil lækk-
un á blóðþrýstingi á milli þess sem
reynt er á sig og þessi lækkun er
meiri hjá þeim sem eru með blóð-
þrýsting í hærri kantinum eða eru
með of háan blóðþrýsting. Ekki er
vitað með vissu hvernig á þessari
lækkun blóðþrýstings að lokinni
áreynslu stendur og þar kemur
áreiðanlega margt til, m.a. breyt-
ingar á starfsemi hjarta og beina-
grindarvöðva, þegar blóðþrýstings-
hækkunin er lítil, auk þess sem
líkamsþjálfun hefur jákvæð áhrif á
blóðfitu, vinnur gegn offitu og eyk-
ur almenna vellíðan.
Þegar alvarlegur hjartasjúk-
dómur er til staðar, t.d. krans-
æðasjúkdómur með hjartabilun,
getur hjartað ekki aukið starfsemi
sína. Við áreynslu getur ekki orðið
aukning á hjartastarfsemi og blóð-
þrýstingurinn fellur. Blóðþrýst-
ingsfall við áreynslu verður aðeins
þegar hjartasjúkdómur er til stað-
ar.
Áreynsla og blóðþrýstingur
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax
5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
26 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Læknirinn
Blóðþrýstingur
lækkar eftir áreynslu
Kettir
Ofnæmisfríir kettir
væntanlegir eftir tvö ár
Sólin
Föt sem veita góða
sólvörn fá vöruvottun
Reykingar
Reykingavarnalyfið
Zyban getur haft
aukaverkanir
HEILSA
TVÆR nýbirtar rannsóknir sýna
svo óyggjandi er að neysla græn-
metis, ávaxta og annarra fitulítilla
matvæla hefur beinlínis verndandi
áhrif gegn hjarta- og æðasjúkdóm-
um. Í fyrri rannsókninni tóku þátt
84 þúsund konur og um 42 þúsund
karlmenn. Við það eitt að bæta
daglega við einum skammti af
grænmeti eða ávöxtum minnkuðu
líkur á hjartasjúkdómum um 4 pró-
sent. Þar vó þyngst grænt græn-
meti, og ávextir eins og appelsínur
og grape. „Niðustöður okkar styðja
það að aukin neysla ávaxta og
grænmetis, sérstaklega grænna
káltegunda og ávaxta sem inni-
halda mikil C- vítamín, beinlínis
verndi gegn hjarta- og æðasjúk-
dómum,“ segir dr. Kaumudi J.
Joshipura og samstarfsmenn hans
við Harvard-háskólann í Boston,
Massachusetts. Aðferð rannsak-
enda fólst í að endurskoðuð voru
gögn úr tveimur stórum rannsókn-
um um hvað hefði mest áhrif á
heilsu miðaldra fólks en þær rann-
sóknir birtust í júníhefti Annals of
Internal Medicine. Þar mátti sjá að
þeir sem borðuðu mest af ávöxtum
og grænmeti urðu eldri, lifðu heil-
brigðara lífi og reyktu minna.
Tengsl voru milli þess að borða
mikið af grænmeti og ávöxtum og
minnkaðrar hættu á hjarta- og
æðasjúkdómum, jafnvel þótt þáttur
reykinga eða líkamsræktar væri
ekki tekinn með í myndina. Hin
rannsóknin sem birtist í blaðinu
segir frá að fæða sem innihaldi litla
fitu, mikið af grænmeti, ávöxtum,
hnetum og kornmeti bæti blóðflæði
og verji frumur innan á slagæðun-
um fyrir skemmdum hjá þeim sem
hafa hátt kólesterólmagn í blóði en
skemmdir á þessum frumum eru
undanfari æðakölkunar.
Grænmeti lengir lífið
New York. Reuter
Morgunblaðið/Ásdís
Girnilegir og hollir.
ERFÐABREYTTUR köttur sem
gerir fólki með kattaofnæmi kleift að
halda dýrið án þess að sýna ofnæm-
iseinkenni verður framleiddur í
Bandaríkjunum innan tveggja ára,
að því er gæludýraeinræktunarfyr-
irtæki tilkynnti í vikunni.
Dýrin verða klónuð og framleidd
af fyrirtækinu Transgenic Pets í
Syracuse í Bandaríkjunum.
Nokkur fyrirtæki hafa þegar boð-
ið upp á einræktun gæludýra, en tal-
ið er að þetta sé í fyrsta sinn sem
breyta á eiginleikum dýranna. Dr.
Xiangzhong Yang, við Háskólann í
Connecticut, sem sinnir rannsóknum
fyrir fyrirtækið, segir að eftir tvö ár
megi vænta þess að hægt verði að
framleiða ofnæmisfrían kött.
Læknirinn David Avner stofnaði
Transgenic Pets ásamt konu sinni,
Jackie, vegna þess að þau eru bæði
miklir kattavinir en hafa ofnæmi fyr-
ir þeim. Til þess að koma í veg fyrir
að kettir valdi ofnæmissvörun á borð
við hnerraköst, útbrot eða augn-
þrota þarf að fjarlægja Fe1 d1-arf-
berann. Hann stuðlar að því að húð
kattarins haldist rök, en veldur enn-
fremur ofnæmissvörun.
Verðið á kisu mun að líkindum
verða á bilinu 80-100 þúsund krónur
stykkið og verða þeir vanaðir fyrir
afhendingu.
Framleiða
ofnæmis-
fría ketti
Morgunblaðið/ÁsdísMá ég fara út?
Washington. The Daily Telegraph.
FRÁ janúar til apríl 2001 fjölgaði
tilkynningum um aukaverkanir
lyfja til breska lyfjaeftirlitsins um
þriðjung. Fjölgunina má rekja til
lyfsins Zyban eins og fram kemur
á fréttavef Reuter. Að sögn Pét-
urs Gunnarssonar, lyfjafræðings
hjá Lyfjastofnun, er misbrestur á
að heilbrigðisstéttir hér á landi
láti vita af hugsanlegum auka-
verkunum lyfja.
Skráning aukaverkana Zybans
hófst í Bretlandi í júlí á síðasta á
ári. Í maí sendi breska Lyfjastofn-
unin læknum bréf um breytingu á
skammtastærð lyfsins ásamt að-
vörun um aukverkanir tengdar
notkun þess. Þar kom fram að 5
þúsund tilkynningar höfðu borist
um aukaverkanir af völdum þess
og að það tengdist hugsanlega 40
dauðsföllum. Talsmaður breska
lyfjaeftirlitsins segir að taka beri
tillit til að hér sé um nýtt og mikið
notað lyf að ræða og læknar hefðu
verið beðnir um að tilkynna auka-
verkanir sem þeir teldu að tengja
mætti notkun Zyban.
Tilkynningar vanræktar
Morgunblaðið hafði samband
við Pétur Gunnarsson lyfjafræð-
ing hjá Lyfjastofnun vegna frétta
af þessum aðvörunum. Að sögn
Péturs er hér um að ræða nýtt lyf
sem mikið er notað. Innflytjendur
lyfsins hér á landi, GlaxoSmith-
Kline, hafi sent læknum bréf og
kynnt þeim breytta skammta-
stærð Zyban og einnig beðið um
að lyfjayfirvöldum sé tilkynnt um
hugsanlegar aukaverkanir af lyf-
inu. „Við hjá Lyfjastofnun höfum
ekki orðið vör við fjölgun tilkynn-
inga um aukaverkanir af þessu
lyfi en þess ber að gæta að hér á
landi er misbrestur á að heilbrigð-
isstéttir láti vita af hugsanlegum
aukaverkunum lyfja. Allir sem að
lyfjamálum koma, framleiðendur,
innflytjendur og við hér hjá Lyfja-
stofnun, teljum mjög áríðandi að
tilkynnt sé um hugsanlegar auka-
verkanir og viljum hvetja heil-
brigðisstéttir til að sinna þessari
tilkynningaskyldu,“ sagði Pétur.
Aukaverkanir af Zyban
London. Reuter.
MARGIR hafa áhyggjur af hætt-
unum sem fylgja geislum sól-
arinnar og grípa til þess ráðs að
klæða hana af sér til að vernda
eigið skinn. En fataefni veita alls
ekki öll sömu vörn. Það liggur
nokkuð beint við að þeim mun
þéttar sem þau eru ofin þeim
mun betri vörn veita þau og einn-
ig skiptir þyngd efnisins og litur
máli. Til hagræðis fyrir framleið-
endur og til að taka af allan vafa
hjá kaupendum hefur breska
staðlastofnunin brugðist við og
hyggst markaðssetja merki til
vöruvottunar á föt sem eiga að
tryggja notendum hámarks vörn
gegn útfjólubláum geislum sól-
arinnar. Gert er ráð fyrir að
vöruvottunin sem hér um ræðir
verði á öllu frá sundfötum til
skíðasamfestinga, þannig að nú
munu menn geta varið viðkvæma
líkamsparta sérstaklega eða all-
an búkinn ef að þannig ber undir.
Varinn búkur?
Morgunblaðið/Kjartan Þorbjörnsson