Morgunblaðið - 30.06.2001, Page 28
UMRÆÐAN
28 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
JÓN Ísberg skrifar mér svo:
„Heill og sæll, Gísli.
Ég þakka þér fyrir útskýring-
ar þínar og vonandi verða menn
fróðari eftir. Það sem angrar
mig núna og hefir oft áður gert,
er þegar menn hafa „ollað“ ein-
hverju. Tvisvar hefi ég nú heyrt
menn segja þetta í sjónvarpinu
með fárra daga millibili og alltaf
finnst mér þetta vitlaust. En viti
menn. Ég var að lesa í Fornrit-
unum, XIV. bindi, Kjalnesinga-
sögu, á bls. 115: „... en nú hefir
bróðir þinn því ollað, að þú hef-
ir“ o.s.frv., og nú spyr ég: er
þetta virkilega rétt? Er öll mín
gremja og ergelsi einskis verð?
Er rétt að segja: „ég hefi ollað
þessu“ í stað þess að segja: „ég
hefi valdið þessu“? Spyr sá sem
ekki veit. Með bestu kveðju.“
Nei, nei. Ergelsi Jóns er ekki
einskis vert. Kennari okkar,
Halldór Halldórsson, segir í
kennslubók sinni (Halldóru):
„Beyging sagnarinnar valda
er þannig:
Fornmál: valda olla(flt. ollum)
valdit (hvk.)
Nútíðarmál:valda olli
(flt. ollum) valdið (hvk.)“
Þó að „ollað“ hafi komið fyrir í
Kjalnesinga sögu, hefur sú orð-
mynd ekki náð festu og er ekki
„viðurkennd rétt“ mál. Um rétt
og rangt í máli hef ég skrifað
rækilega áður oftar en einu
sinni og læt þær málalengingar
vera að sinni.
Ég vil ekki kveða svo fast að
orði, að „ollað“ sé „vitlaust“ mál,
en með háttvísi má mæla með
„valdið“ með þeim rökum, að
títt sé að lýsingarháttur þátíðar
af sögnum hljómi eins og nafn-
háttur, sbr. fara, hef farið,
heita, hef heitið, gráta, hef
grátið. Og svo finnst mér valdið
bara svo miklu fallegra en „oll-
að“. Við bekkjarbræðurnir
munum því eftir sem áður segja
að eitthvað hafi valdið okkur
ánægju.
Salómon sunnan sendir:
Mælti Bergþóra: Ég á í basli,
þeir biðja að völl ég mér hasli
Þjórsár í verum,
en þar ef ég fer um,
verð ég þrautpínd að ríða á drasli.
Drasill er hestur, bætir hann
við til skýringar, sbr. drösull.
Þá er hér skemmtilegt inn-
legg í „Púllamálið“. Ingimar
Halldórsson í Reykjavík sendi
mér þetta góða bréf:
„Sæll, Gísli.
Í þáttum þínum hefur nokkuð
verið fjallað um orðtakið „Ætli
ekki það, kvað Púlli“. Illgresi
Arnar Arnarsonar hefur að
geyma ljóðaþýðingu þar sem
orðtakið kemur fyrir og er end-
urtekið.
Hver leynir sér við hurðir hér?
O, hér er bara hann Púlli.
Farðu sem bráðast burt frá mér.
Ég bíð um stund, kvað Púlli.
Er þjófur sá, sem úti er?
Aðgættu sjálf, kvað Púlli.
Þú gerir eitthvað illt af þér.
Ætli ekki það, kvað Púlli.
En ef ég vildi opna fljótt?
Þú opnar, sagði Púlli.
Þá fengi ég engan frið í nótt?
Nei, fráleitt, sagði Púlli.
Þú ferð víst ekki brátt á burt?
Ég bíð um stund, kvað Púlli.
Til morguns eflaust ertu um kjurt?
Ætli ekki það, kvað Púlli.
Ef ég þér loksins leyfði inn?
Ó, leyf mér inn, kvað Púlli.
Þá kemurðu eflaust annað sinn?
Ætli ekki það, kvað Púlli.
Ef eitthvað skeður heima hér.
Það hefur það, kvað Púlli.
Þú segir engum eftir mér.
Þegi eins og steinn, kvað Púlli.
Ég vil aðeins benda á þetta
skemmtilega ljóð. Hvort það
hefur þýðingu fyrir umfjöll-
unina um Púlla veit ég þó ekki.
Með bestu kveðju.“
Hlymrekur handan kvað:
Stóð munkur hjá Miðjarðarhafi
í mussu með hálsgyrtu trafi
en var þó svo feiminn
og hræddur við heiminn,
að hann synti alltaf í kafi.
Jón Kristjánsson í Hjarðar-
dal í Önundarfirði hringdi til
mín og vildi ræða um orðið al-
ræmdur. Við vorum sammála
um að al væri herðandi for-
skeyti og ræmdur merkti um-
talaður, dregið af rómur eða
sögninni að róma. Þá var spurn-
ingin hvort alræmdur væri allt-
af haft í niðrandi merkingu, og
svo virðist vera í nútímamáli.
En orðabækur kunna frá því að
greina að á árum áður hefði það
getað verið hlutlaust, alræmdur
merkti þá bara altalaður. Um
það má finna dæmi úr Njálu og
Heilagra manna sögum. En nú
myndum við ekki segja um góð-
an predikara að hann væri al-
ræmdur kennimaður. Öll dæm-
in í Orðastað Jóns Hilmars gefa
til kynna mjög neikvæða merk-
ingu, svo sem alræmdur glæpa-
maður, en í Blöndal og Orða-
bók Menningarsjóðs er fram
tekið að alræmdur gæti verið
hlutlaust áður fyrr, og hvorug-
kynið alræmt merkti ekkert
annað en altalað.
„Raunar eru fáar syndir læ-
vísari en sú ábyrgðarlausa
værð, sem hreiðrar um sig bak
við frjálslyndi. Því frjálslyndi er
í tygjum við þann andlega ræf-
ildóm, sem kann ekki greinar-
mun á frelsi og lausungu. Eðli
frjálslyndis er bilbugur, heilla-
ráð þess í hverjum vanda er
uppgjöf; en sönn menning sæk-
ir á brattann.“ (Helgi Hálfdan-
arson í Mbl. 1974.)
Auk þess segir mér Bernharð
Haraldsson, fyrrv. skólameist-
ari, að Akureyringar hafi lag-
fært dönskuna „butterdej“ í
bútudeig. Þetta er ekki í Ás-
geiri Blöndal.
Og blaðið AK fær plús fyrir
brautskráning í stað „útskrift-
ar“. Svo og Þorsteinn Gunnars-
son rektor. Þá þykir mér rangt
mál að segja „herra“ Davíð
Oddsson. Hann er forsætisráð-
herra. Og enn: Að kvöldi
þjóðhátíðardags var tölustafur-
inn 1 lesinn „vonn“ í Sjónvarp-
inu. Er þetta hægt?
ÍSLENSKT MÁL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1.116. þáttur
SUNNUDAGINN 1.
júlí nk. mun nýtt fyrir-
tæki, Strætó bs., sem er
í eigu allra sjö sveitar-
félaganna á höfuðborg-
arsvæðinu, taka yfir nú-
verandi rekstur AV og
SVR. Frá sama tíma
mun taka gildi nýtt
sameiginlegt leiðakerfi
að hluta til og ný sam-
eiginleg gjaldskrá. Nýtt
og heildstætt leiðakerfi
á svæðinu öllu mun svo
taka við af núverandi
kerfum að tveimur ár-
um liðnum. Stefnt er að
upptöku rafræns
greiðslukerfis á sama tíma. Áherslu-
breyting í þessum efnum er löngu
tímabær og eðlilegt að stefna að því
að hlutfall almenningssamgangna í
heildarferðafjölda á svæðinu þokist
eitthvað í áttina að því sem þekkist
erlendis, enda er skynsamleg efling
almenningssamgangna allra hagur.
Nokkurs misskilnings hefur gætt
vegna gildistöku nýrrar gjaldskrár
og því jafnvel verið haldið fram að um
verulegar hækkanir sé að ræða.
Óhjákvæmilegt er því að leiðrétta
þennan misskilning til að hann skaði
ekki hið nýja fyrirtæki meira en orðið
er. Áður en ég fer í einstök atriði er
þó rétt að geta þess að almennt má
segja að fargjöld með almennings-
vögnum hér á landi séu tiltölulega
lág, þótt auðvitað sé ljóst að oft og tíð-
um er um tekjulitla ein-
staklinga að ræða sem
nýta sér þjónustuna.
Þegar jafnframt eru
hafðir í huga stórauknir
ferðamöguleikar á
svæðinu öllu með einu
fargjaldi eftir breyt-
inguna, þar sem skipti-
miðar koma nú til með
að gilda alls staðar,
hlýtur þjónusta Strætó
að teljast afar hag-
kvæmur ferðamáti,
a.m.k. ef farþegar eru
vakandi fyrir því að
velja jafnan ódýrustu
fargjöldin.
Markmiðið að fjölga farþegum
Við setningu nýrrar gjaldskrár
fyrir hið nýstofnaða fyrirtæki hafði
stjórnin tvennt að höfuðmarkmiði;
annars vegar að miða við að gjald-
skrárbreytingar myndu færa fyrir-
tækinu u.þ.b. 10% tekjuauka m.v. nú-
gildandi gjaldskrá og hins vegar þótti
rétt að leggja alveg nýjar áherslur að
þessu sinni til þess að gjaldskráin
væri betra tæki til að þjóna okkar
tryggustu viðskiptamönnum annars
vegar og svo hins vegar að hún gæti
orðið hvati til að óreglulegir farþegar
myndu nýta sér þjónustuna í auknum
mæli, eða m.ö.o. fjölga farþegum, en
um það snýst auðvitað málið fyrst og
fremst. Alger samstaða var í stjórn
um þessar áherslur og gjaldskrána í
heild. Það er því meðvitað um alger-
lega nýja gjaldskrá að ræða en ekki
einhvers konar einfaldan framreikn-
ing á núgildandi gjaldskrám. Þegar
um er að ræða jafn samsetta gjald-
skrá og raun ber vitni er auðvitað um
vissan vanda að ræða þegar meta á
áhrif gjaldabreytinga. Samanburður
á einstökum fargjöldum hefur auðvit-
að enga þýðingu í þessum efnum þar
sem auðvitað þarf einnig að skoða
hvað er á bak við hvern einstakan
gjaldskrárlið, eða m.ö.o. hversu
margir munu nýta sér hvern einstak-
an kost. Með því að vega þessa tvo
þætti saman, þ.e. einstakar fargjalda-
breytingar annars vegar og svo sam-
setningu farþega hins vegar, fæst út
svokallað vegið meðaltal. Vegið með-
altal þeirra breytinga sem nú hafa
verið gerðar þýðir u.þ.b. 10% tekju-
auka frá því sem nú er ef engin gjald-
skrárbreyting hefði verið gerð.
Gjaldskrá SVR var síðast breytt í júlí
1999, en hjá AV um síðustu áramót.
Því var innbyggð meiri hækkunar-
þörf hjá SVR en AV við þessa sam-
eingu en verið hefði ef SVR hefði
einnig hækkað um áramótin. Al-
mennar verðlagshækkanir frá júlí
1999 til dagsins í dag nema rúmlega
12,5 prósentum, en hækkanir á
rekstrarvörum strætisvagnaþjón-
ustu hafa auðvitað hækkað miklu
meira á tímabilinu, einkum launaliðir,
tryggingar og hráolía, en hún hefur
hækkað meira en 100% á tímabilinu,
úr 23 kr. í 49 krónur. Þrátt fyrir þess-
ar staðreyndir ákvað stjórnin að
freista þess að láta fyrrnefnda 10%
meðaltalshækkun nægja.
Skiptimiðar gilda alls staðar
Með upptöku nýju gjaldskrárinnar
verða verulegar áherslubreytingar
eins og fyrr er rakið og má að sumu
leyti líkja því við hliðstæða fram-
kvæmd, t.d. hjá sundlaugunum, en
þar er um að ræða verulegan mun á
verði eftir því hvort keyptur er að-
gangur í eitt einstakt skipti eða hvort
viðkomandi er fastur viðskiptavinur.
En hverjar eru þá lækkanirnar og
hagræðið sem kemur á móti hækk-
unum einstakra gjaldskrárliða? Full
þörf er að gera sérstaklega grein fyr-
ir þeim þar sem þeim hefur lítt verið
haldið á lofti í umræðunni. Í fyrsta
lagi koma skiptimiðar nú til með að
gilda á svæðinu öllu, en það eitt og sér
er metið sem 10% tekjulækkun hjá
fyrirtækinu, en auðvitað samsvarandi
kjarabót hjá notendum þjónustunn-
ar. Í öðru lagi lækka nú mánaðarkort-
in, Grænu kortin úr kr. 3.900 í 3.700,
en þau hefðu að sjálfsögðu átt að
hækka um a.m.k 500 kr. ef hefðu þau
sætt verðlagshækkunum. Í þriðja
lagi er tekinn upp nýr valkostur, gula
kortið, sem ætlað er að gilda í 2 vikur,
og verður það selt á kr. 2.200 krónur.
Í fjórða lagi er stefnt að upptöku 3
mánaða afsláttarkorts sem sérstak-
lega verður sniðið að þörfum fram-
haldsskólanema, þótt aðrir muni að
sjálfsögðu einng geta nýtt sér það. Í
fimmta lagi munu fargjöld hjá ung-
mennum á aldrinum 15-18 ára lækka
úr 125 í 100 kr. ef keypt eru farmiða-
spjöld, þar sem aldursmarkið hefur
verið hækkað um þrjú ár. Síðast en
ekki síst er boðið upp á stóraukna
ferðamöguleika á svæðinu í heild sem
hljóta að vera nokkurs virði þótt erf-
itt sé að verðleggja það sérstaklega.
Upptaka nýs kerfis þýðir marg-
háttaðar breytingar. Ein af þeim er
sú að hún gerir ríkari kröfur til neyt-
enda um að vera á varðbergi og nýta
sér ávallt hagkvæmasta kostinn. Við
hjá Strætó bs. berum fyllsta traust til
farþega og að þeir bregðist við með
skynsamlegum hætti og nýti sér stór-
aukna möguleika og hagkvæmari far-
gjöld þar sem það á við.
Öflugar almenningssam-
göngur – allra hagur
Skúli Bjarnason
Strætó
Fargjöld með almenn-
ingsvögnum hér á landi,
segir Skúli Bjarnason,
eru tiltölulega lág.
Höfundur er stjórnarformaður
Strætó bs.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
íþróttaskór
á dömur og herra
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 14-18 og laugard. kl. 10-14.
Skóbúðin
Brunaslöngur
Eigum á lager 25 og 30 m
á hjóli og í skáp
Ármúla 21,
sími 533 2020
HEILSALA - SMÁSALA