Morgunblaðið - 30.06.2001, Page 29

Morgunblaðið - 30.06.2001, Page 29
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 29 UNDANFARIN missiri hafa menn deilt um það í blöðum og víðar, hvort virkja eigi á Austurlandi, til að knýja norska ál- bræðslu á Reyðarfirði. Og hér er ekki venju- legt íslenzkt skamm- degisþras á ferðinni – mönnum er alvara, sérstaklega þeim, sem heimta álið og trúa því að fyrirtækið muni leysa atvinnumál Austfirðinga. Mér er spurn, hvers vegna eigum við Ís- lendingar að sökkva náttúruperl- um okkar undir uppistöðulón til að virkja fyrir Norðmenn, sem tíma ekki lengur að virkja fyrir sjálfa sig í eigin landi. Vitanlega verðum við að halda áfram að virkja í þessu landi. En í því efni verður að fara fram af fyllstu gát og þyrma náttúruger- semum landsins, svo sem frekar er kostur. En þær virkjanir eiga eingöngu að vera í þágu Íslendinga einna og alls ekki til að keyra mengandi er- lent álver. Við höfum nóg þarfara við raforkuna að gera og skulum þar að auki fara okkur hægt og huga að hagsmunum okkar af ferðamannaiðnaðinum, er vex með ári hverju. Á árinu 1999 nam heildarsala á raforku hér á landi 16,521 millj- örðum ísl. króna. Þar af greiddi stóriðjan 3,837 milljarða, en aðrir raforkunotendur 12,684 milljarða. Stóriðjan notaði 63,5% raforku- framleiðslunnar og greiddi kr. 0,90 á kílóvattstund, en aðrir notendur greiddu 5,15 kr. fyrir kólóvatt- stundina og notuðu 36,5% af heild- arraforkuframleiðslunni. (Heimild: Orkustofnun.) Á sama ári (1999) voru gjaldeyr- istekjur þjóðarinnar af erlendum ferðamönnum 27,852 milljarðar ísl. króna, eða rúmlega sjö sinnum meiri tekjur en af raforkusölu til stóriðju. (Heimild: Seðlabanki Ís- lands.) Samkvæmt þessu mega menn sjá, að það er hagkvæmara fyrir hið íslenzkaþjóðarbú að virkja ferðamannastrauminn, heldur en straum íslenzkra fallvatna í þágu erlendrar stóriðju. Við verðum áfram að virkja til innlendra þarfa til heimilis- og búsþarfa, til iðnaðar og ylræktar og síðast en ekki sízt til þess að framleiða vetni í þeim tilgangi að knýja bíla- og skipaflota lands- manna. Þar getum við gert Ísland mengunarlaust og með því orðið til fyrirmyndar meðal þjóða heims. Það er skemmra í þetta en menn halda nú. Það væri því glapræði að vera búinn að binda raforkuna í stóriðju fyrir útlendinga, er við þörfnumst hennar sjálfir í eigin þágu. Hitt er annað mál, að þegar við byrjum að framleiða vetni í stórum stíl er sjálfsagt að kanna hag- kvæmni þess að reisa vetnisverk- smiðju á Austurlandi, e.t.v. á Reyðarfirði, ef því er að skipta. Það gæti engu síður en álver styrkt eitt- hvað atvinnulíf í Aust- firðingafjórðungi. Þá er og á það að líta, að þaðan er stytzt til meginlands Evrópu ef/þegar til þess kem- ur, að við hefjum út- flutning á vetni til annarra landa. Kannski er það ekki eins fjarlægur draum- ur og menn kunna að halda í dag. En þetta eitt leysir ekki atvinnuvandamál hinna dreifðu byggða þessa lands. Þar þarf fleira til að koma. Gefa á „trillukörlum“ frjáls- ar hendur um land allt. Í því efni er efst á blaði að breyta lögunum um stjórn fiskveiða (kvótakerfinu). Að sjálfsögðu eiga trillukarlar að greiða auðlindagjald til eigandans, íslenzku þjóðarinnar, fyrir afnotin. Það gjald á hins vegar að miðast við verðmæti þess afla sem þeir færa að landi, en ekki þyngd hans. Það er hjátrú, en ekki vísindi að halda því að mönnum, að smá- bátaveiðar við strendur landsins stofni fiskistofnum á Íslandsmiðum í hættu. Það er þvert á móti kvótakerfið, sem það hefir gert. Aflinn við Íslandsstrendur var áratugum saman á seinustu öld helmingi meiri en sá afli, sem nú er færður að landi. Þetta stafar af brottkastinu, sem kvótakerfið hefir í för með sér – illu heilli. Það er sennilega drepið jafnmik- ið á Íslandsmiðum í dag eins og fyrir kvóta. Mismuninum er bara kastað aftur í sjóinn, engum til gagns – nema hýenum hafsins. Alllengi hafa menn óttast fólks- flóttann frá hinum dreifðu byggð- um Íslands til Reykjavíkursvæð- isins. Til þess að sporna við þeim flótta hefir mönnum m.a. dottið í hug að koma upp svokölluðum menningarhúsum á landsbyggð- inni. Þeir sem þannig hugsa skilja ekki vanda landsbyggðarinnar. Menning hennar er um þessar mundir fyrst og fremst atvinnu- menning. Það eru trillukarlar og strandveiðimenn er halda þeirri menningu uppi. Ef við gefum þeim frjálsar hendur, siglir „hin menn- ingin“ í kjölfarið. Sumir fiskifræðingar, og e.t.v. fleiri álíta að unnt sé að halda fiskistofnum á vöxtum í fiskveiði- lögsögu Íslands. Þetta leyfi ég mér að draga mjög í efa, enda sannar reynzlan af kvótakerfinu hið gagn- stæða. Hitt veit ég, að náttúruperl- ur Íslands eru „auðlegð á vöxtum í Guðanna ríki“ (E.B. Einræður Starkaðar.) Því skulum við flýta okkur hægt. Að virkja og veiða Magnús Thoroddsen Virkjanir Auðvitað verðum við að halda áfram að virkja, segir Magnús Thorodd- sen, en fara verður að gát og þyrma náttúru- gersemum landsins. Höfundur er hæstaréttarlögmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.