Morgunblaðið - 30.06.2001, Page 37
nístandi stefið „Ég skil þetta eigi. Ég
skil það ennþá eigi“, úr Systurláti
Hannesar Hafstein í huga minn, því
þótt vitund um bjartari lífsvang sé
huggun í harmi, – eru ómar efans í
huga og hjarta sárir. Já, við skiljum
þetta ekki. Við finnum til, en fáum
engin svör og kannski er líka best að
fá að finna til og leita engra svara en í
hljóðri bæn þakka fyrir að hafa feng-
ið að njóta samfylgdar góðs drengs
um tíma og átt samvistarstundir sem
geta ekki gleymst. Hannes heldur
áfram og lýsir systur sinni eins ég
vildi einnig lýsa Jóni Berki „Þú hafð-
ir fagnað með gróandi grösum og
grátið hvert blóm, sem dó. Og þér
hafði lærzt að hlusta unz hjarta í
hverjum steini sló.“
Þannig er minning mín um Jón
Börk.
Ég blikna í hvarmi og er sár í
hjarta og verð að líta undan stað-
reyndum síðustu mánaða, yfir til
þess sem er ævarandi og fyrir allar
kynslóðir, ástina á lífinu, þrátt fyrir
allt. Lífinu sem var lifað og er lifað.
Við sjáum skógarlundina fagur-
grænu í Öskjuhlíðinni sem breiða
blíðusvipmót yfir hrjóstrugt landið
og sýnist alltaf geta án áreynslu tekið
á sig norðanvindinn sem svo oft
bylgjar sig niður frá Esjunni og er
ævinlega kaldur og þróttmikill, eftir
ferðalagið yfir sundin. Sólin vermir
og næring hlíðarinnar gefur líf og
styrk, en kærleiki ræktunarmanna
frá því að fræi var sáð gefur kraftinn.
Og við skiljum að það sem færir fram
og nærir svo mikla mannlega reisn
og styrk sem fjölskyldan hans Jóns
Barkar hefur þurft að hafa í frammi
og sýnt síðustu mánuði, er kærleik-
ans kraftur frá kærleikans fræi sem
Jón Börkur hafði sáð í hvert hjarta
sinna samferðamanna og hlúð var að
af foreldrum og systrum og stórfjöl-
skyldunni allri. Kærleikurinn var að
verki. Guð blessi þessa sterku kær-
leiksríku fjölskyldu í sárum harmi
hennar. En við sem í jaðrinum eru
þökkum góðar og dýrmætar stundir
með Jóni Berki og fjölskyldu hans.
Fyrir þær viljum við þakka nú þegar
baráttu vinar er lokið með reisn og
fullnaðarsigri á sársaukanum. Guð
blessi látinn vin og gefi hinum líkn
sem lifa.
Jóhanna Guðnadóttir.
„Ég ætla að segja ykkur frá bróð-
ur mínum. Bróður mínum, Jóni
Berki, ég ætla að segja frá honum.
Mér finnst það næstum eins og æv-
intýri og svolítið eins og draugasaga
líka, og samt er það allt satt. Enginn
veit það betur en ég og Jón Börkur.“
Þessi útgáfa af upphafsorðum sög-
unnar okkar „Bróðir minn Ljóns-
hjarta“ eftir Astrid Lindgren kemur
mér í hug þar sem ég sit hér aftur í
Gautaborg og geri mér grein fyrir
því að þú komir aldrei aftur.
En þegar ég er með fjölskyldunni
minni, með fjölskyldunni þinni og
vinum okkar, verður mér hugsað til
þín. Sú minning er afar ljúf. Hún er
af góðum og tillitssömum bróður sem
verður mér alltaf björt fyrirmynd.
Ég sé fyrir mér þegar við vorum
litlir. Þá lékum við okkur á Studie-
gången og hjóluðum niður að Här-
landa Tjärn. Við veiddum froskaegg,
komum þeim fyrir í rauðum þvotta-
bala fyrir utan hjá mér og fylgdumst
með seiðum vaxa og verða að frosk-
um yfir sumarið. Og það gerðir þú
líka, óxt úr grasi, þannig að stóri
Freyr varð allt í einu orðinn að litla
Frey. Ég man þegar þú snerir þér
við og tróðst yfir mig í fyrsta skipti.
Þar var strákur með glampa í augum
sem ég er þakklátur og stoltur af að
hafa þekkt. Við áttum svo margar
góðar stundir saman.
Þegar ég er með fjölskyldunni
minni, með fjölskyldunni þinni og
vinum okkar, munum við gleðjast
saman yfir því að hafa þekkt þig.
Elsku Hófí, Jónsi, Una og Ása
Karen mín, mikið vildi ég að ég væri
heima svo ég gæti að minnsta kosti
tekið utan um ykkur.
Bless, Jón Börkur minn. Jón
Börkur okkar. Sjáumst í Nangijala.
Freyr Hermannsson.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 37
✝ Sigríður Sigurð-ardóttir var
fædd á Nauteyri, N-
Ísafjarðarsýslu, 1.
mars 1927. Hún lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði 25.
júní 2001.
Foreldrar Sigríð-
ar voru Sigurður
Pálsson, f. 4. apríl
1897, d. 23. júní
1973, og Sigurveig
Jónsdóttir, f. 23.
október 1900, d. 26.
nóvember 1991.
Systkini Sigríðar
eru Arndís, f. 1924, gift Ólafi
Bjarnasyni. Páll, f. 1928, kvæntur
Hólmfríði Pálsdóttur. Helga Guð-
rún, f. 1934, d. 5. Júlí 1991, gift
ey, Guðbjörg Rós og Pétur Al-
bert. 2) Berta Kolbrún f. 1952
gift Jóni Gesti Hermannssyni, f.
1948. Synir þeirra Gunnar Þór
og Ingi Björn. 3) Sigurveig, f.
1953, gift Hermanni A. Hákon-
arsyni. Börn þeirra Unnar, Há-
kon og Dagný. 4) Bjarni Kristján,
f. 1966, kvæntur S. Evu Frið-
geirsdóttur, f. 1970. Synir þeirra
eru Magnús Pétur og Friðgeir
Óli. Langömmubörn Sigríðar eru
sex.
Sigríður stundaði nám við Hér-
aðsskólann í Reykjanesi og var
síðan einn vetur í húsmæðraskóla
að Löngumýri í Skagafirði.
Sigríður var félagi í Kven-
félaginu Hlíf, Kvenfélagi Ísa-
fjarðarkirkju og Oddfellow-stúk-
unni Þórey, auk þess söng hún
með Sunnukórnum á Ísafirði og
Kirkjukór Ísafjarðarkirkju í ára-
tugi.
Útför Sigríðar fer fram frá Ísa-
fjarðarkirkju laugardaginn 30.
júní kl. 14.00.
Geir Guðbrandssyni,
d. 23. nóv. 2000 og
Elínborg, f. 1941, gift
Guðbirni Ingasyni.
Í september 1951
giftist Sigríður Gunn-
ari Péturssyni bif-
reiðastjóra, f. 1. mars
1930, þau bjuggu all-
an sinn búskap á Ísa-
firði, fyrst á Græna-
garði en síðan á Hlíð-
arvegi 17. Foreldrar
hans voru hjónin Al-
bertína Elíasdóttir og
Pétur Pétursson,
Grænagarði.
Börn Sigríðar og Gunnars eru:
1) Sigurður, f. 1950, kvæntur
Lindu Rós Kristjónsdóttur, f.
1948. Börn þeirra Sigríður Lauf-
Ísafjörður skartaði sínu fegursta
þann 25. júní sl., pollurinn var
spegilsléttur, sólin skein og amma
á Hlíðarveginum kvaddi okkur.
Ein af fyrstu minningum okkar um
ömmu er þegar hún var að vinna í
Niðursuðuverksmiðjunni en þar
vann hún í rúm 20 ár eða allt til
ársins 1999 er hún lét af störfum
fyrir aldurs sakir.
Þegar við vorum lítil fengum við
stundum að koma með henni í
vinnuna, sitja við bandið og pilla
rækjuna með henni en þegar við
urðum eldri fórum við að vinna þar
með henni.
Amma var mikil handavinnu-
kona og eftir að langömmubörnin
fæddust prjónaði hún peysur og
sokka á þau og gaf þeim í jólagjaf-
ir. Langömmubörnunum fannst
alltaf gaman að koma til ömmu og
afa á Hlíðarveginn og var hún ætíð
ánægð að sjá þau. Hún hafði gam-
an af að lesa, syngja og spila við
þau og var alltaf kátt á hjalla þeg-
ar þau voru hjá henni. Ekki spillti
fyrir að alltaf var til ís á Hlíð-
arveginum og vissu þau nákvæm-
lega hvar hann var geymdur.
Söngurinn var ömmu mjög mik-
ilvægur og söng hún mikið fyrir
okkur systkinin. Hún var mjög
lagviss og spilaði á píanó og harm-
onikku. Varla var sú samkoma inn-
an fjölskyldunnar að ekki væri
tekið lagið og var hún þá ávallt í
fararbroddi.
Amma spilaði mikið á spil og
kenndi hún okkur að spila, leggja
kapla og gera spilagaldra en síð-
asta spilagaldurinn kenndi hún
okkur í vetur eftir að hún veiktist.
Amma tók mikinn þátt í öllum
merkum atburðum í lífi okkar.
Hún aðstoðaði við allan undirbún-
ing og bakaði fyrir fermingar og
útskriftir okkar og núna síðast fyr-
ir skírn hjá langömmubörnunum.
Einnig bakaði hún brúðkaupstert-
una fyrir Guðbjörgu og Hannes sl.
sumar og gerði hún það með
glæsibrag.
Á haustin tók amma alltaf slátur
en síðastliðið haust kenndi hún
okkur að taka slátur og getum við
örugglega gert það skammlaust
næsta haust því leiðbeiningarnar
voru slíkar.
Um verslunarmannahelgar er
það venja hjá fjölskyldunni að hitt-
ast á Nauteyri og er þá alltaf tekið
í spil og voru hún og Geir mágur
hennar þar fremst í flokki. Næst
þegar fjölskyldan hittist á Naut-
eyri verður tekið í spil og þá taka
áreiðanlega nýir við spilunum og
spila rakka eins og þeim var einum
lagið.
Sumarið er búið að vera fallegt á
Ísafirði. Blómin í fullum blóma og
fuglarnir syngja. Við kveðjum
ömmu með söknuði og þökkum
fyrir allar góðu stundirnar sem við
áttum með henni.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja,
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðsta blund.
Sigríður, Guðbjörg og Pétur.
Á stundum sem þessum er erfitt
að koma skýrum hugsunum á blað.
Sama hversu snilldarleg ritsmíðin
gæti orðið á endanum mun hún
aldrei ná að lýsa henni Siggu
ömmu okkar með viðeigandi hætti.
Hún var nefnilega svo einstök og
yndisleg manneskja að ómögulegt
er að gera því skil í fáeinum orð-
um. Nokkrar hendingar verða þó
að nægja þar til við hittumst á ný.
Hún Sigga amma okkar var fast-
ur og ómissandi punktur í tilver-
unni öll okkar uppvaxtarár á Ísa-
firði. Hvergi var betri staður fyrir
okkur en á Hlíðarveginum hjá afa
og ömmu. Þar var litlum sálum frá
upphafi búinn griðastaður og æv-
intýraheimur þar sem margt var
brallað með ömmu og Gunnari afa.
Ávallt var tíminn nægur til að
sinna jafnvel okkar minnstu hugð-
arefnum. Þar komum við t.d. sam-
an um jólin ár hvert og áttum
margar okkar bestu stundir sam-
an. Góðu stundirnar voru sann-
arlega ófáar.
En hún Sigga amma átti sinn
eiginn griðastað. Það varð okkur
sífellt ljósara eftir því sem við
komumst til vits og ára. Sá staður
var á Nauteyri við Ísafjarðardjúp,
hennar uppvaxtarstaður og hennar
eigin ævintýraheimur. Aldrei var
ánægjulegra að vera í kringum
Siggu ömmu en þegar við komum
saman á Nauteyri og það reyndum
við að gera sem flest a.m.k. einu
sinni á hverju sumri. Þar samein-
uðust allir þeir þættir sem gerðu
hana ömmu okkar svo yndislega og
birtust öllum greinilega sem það
vildu sjá. Ást hennar og umhyggja
fyrir landinu, náttúru Íslands, fólki
og fjölskyldunni. Ömmu munum
við alla tíð tengja kvöldvökum á
Nauteyri, samræðum við kertaljós
um lífið og tilveruna eða stutt spil.
Á Nauteyri var Siggu ömmu frá
blautu barnsbeini alin sú ást á list-
um sem fylgdi henni alla tíð. Hún
var vel spilandi á píanó og ógleym-
anleg er minningin um hana í stof-
unni á Hlíðarveginum með stóru
harmonikuna í fanginu sem Gunn-
ar afi gaf henni. Hún var mikil
félagsvera og fátt þótti henni
skemmtilegra en að taka lagið
enda afbragðs söngkona. Fengu
fjölmargir, ef ekki hreinlega allir,
íbúar Ísafjarðar að njóta þess með
einhverjum hætti í gegnum þátt-
töku hennar í allskyns söng- og
félagsstarfi áratugum saman.
Hún Sigga amma var svo sann-
arlega gleðigjafi og aldrei lét hún
styggðarorð falla í garð nokkurrar
manneskju. Við hlið hennar stóð
ávallt Gunnar afi, eins og klettur í
hafinu í gegnum súrt og sætt, og
umhverfis þau stór og samheldin
fjölskylda. Hún fékk án efa sína
stærstu ósk uppfyllta í því að eiga
þessa fjölskyldu – allt þetta fólk
sem hún gaf svo ríkulega alla sína
tíð. Fram á síðasta dag hafði hún
áhyggjur af því hvort barnabarna-
börnin hefðu ekki örugglega fengið
afmælisgjafir. Fátt getum við gert
betra í framtíðinni henni til heið-
urs en hlúð að fjölskyldunni henn-
ar og haldið áfram á þeirri braut
sem amma markaði svo skýrt fyrir
okkur. Ekkert var henni hjart-
fólgnara en velferð fjölskyldumeð-
lima og ófáar spurningarnar sem
við þurftum að svara um okkar
hagi nánast í hvert sinn er við hitt-
um hana. Stundum þótti okkur nóg
um áhugann á okkar oft fábrotna
einkalífi, en nú stendur eftir tóma-
rúm sem ekki verður fyllt. Áhug-
inn var umhyggja. Spurningarnar
væntumþykja.
Sigga amma verður okkur ævar-
andi fordæmi og leiðarvísir fyrir
lífið. Ef að leiðarlokum verður
hægt að segja um okkur að við
höfum lifað lífinu í samræmi við
lífshlaup Siggu ömmu, þá höfum
við gert gott með veru okkar í
þessum heimi. Hún var svo lífsglöð
og stráði þvílíkri birtu og yl hvar
sem hún kom, að líklega var það
rétt ákvörðun hjá almættinu að
taka hana svo skjótt til sín þegar
ljóst var orðið hvert stefndi. Feg-
urstu rósirnar eiga ekki skilið að
visna.
Hún Sigga amma var smávaxin
kona en í raun stærsta kona sem
við höfum kynnst. Ef einhver hef-
ur átt skilið veglegar móttökur hið
efra með tónlist og söng þá er það
í okkar huga hún amma okkar. Í
hvert sinn sem við minnumst
hennar verður það ósjálfrátt með
bros á vör og gleði í hjarta. Því í
hvert sinn heyrum við gleðióm af
tónlist og söng svo greinilega af
himnum ofan. Sá ómur mun fylgja
ömmu um alla eilífð.
Megum við öll bera gæfu til að
vera jafn góðar manneskjur og
hún Sigga amma okkar.
Unnar, Sigríður og strák-
arnir, Hákon og Dagný.
Það er komin kveðjustund. Að
baki er erfið sjúkdómslega minnar
góðu vinkonu Sigríðar Sigurðar-
dóttur, hún fékk hægt og friðsælt
andlát í faðmi fjölskyldunnar sem
hún unni svo mjög, þau sem áttu
kærleika hennar allan.
Fjölskyldan var Siggu, eins og
hún var alltaf kölluð, allt – en það
voru svo margir aðrir sem fengu
notið vináttu hennar og um-
hyggju.
Sigga var þeim mannkostum bú-
in að rétta hjálparhönd hvort sem
var á gleði- eða sorgarstund ef vin-
ir hennar og kunningjar þurftu á
aðstoð að halda.
Að eiga góðan vin er mikils virði
fyrir hverja manneskju. Sigga var
mér sannur vinur í orðsins fyllstu
merkingu. Þau eru orðin mörg ár-
in sem ég og fjölskylda mín hefir
notið hlýju hennar umhyggju og
kærleika og það var ekki gert með
hávaða eða eftirtölum. Samvera
okkar Siggu hefir verið á svo
margvíslegan máta, – við höfum
starfað saman í kórum og ýmsum
félagasamtökum þar sem Sigga
skilur eftir svo mörg góð og vel
unnin störf. Hún sagði við mig sl.
vetur þegar við vorum að koma frá
að hnoða laufabrauðið fyrir jóla-
markaðinn okkar til eflingar Tón-
listarskólanum: Geigei, þetta er í
síðasta sinn sem ég verð við að
baka laufabrauðið. Sigga var ein af
stofnendum Styrktarsjóðs til
byggingar Tónlistarskóla á Ísa-
firði. Hún hafði verið við að hnoða
og baka laufabrauðið frá upphafi,
fyrir utan svo margt annað sem
hún lagði af mörkum fyrir þennan
göfuga málstað, oftast eftir langan
og stundum erfiðan vinnudag.
Sigga var félagi í Kvenfélagi Ísa-
fjarðarkirkju og hefir átt sæti í
stjórn félagsins í mörg ár, nú síð-
ast gjaldkeri, samstarf okkar þar
eins og annars staðar var svo náið.
Hún var trúuð kona og vildi auðga
starf kirkjunnar sem mest og best,
hún hefir sungið við messur og at-
hafnir í Ísafjarðarkirkju í fjölda
mörg ár. Sigga þurfti ekki alltaf að
hafa sálmabók fyrir framan sig því
fjölda sálma kunni hún utan að.
Það bar þess vott að snemma hefir
litla stúlkan frá Nauteyri lært að
fara með ljóð og lög.
Á þessari stundu hrannast upp
minningar um svo mörg liðin ár
sem ég hefi átt með minni elsku-
legu vinkonu. Hún hafði einstak-
lega gott skap, var réttsýn og trú
sinni skoðun og vildi miðla til ann-
arra, henni leið illa ef vinir hennar
áttu á einhvern hátt erfitt hvort
sem það voru veikindi eða ein-
hverjir mannlegir brestir, það voru
hennar mannkostir að hafa gleði
og kærleika í fyrirrúmi. Þær eru
líka margar minningarnar frá
gleðistundum, mikið sungið og
hlegið og Sigga sett við píanóið ef
enginn var undirleikarinn. Þá hló
Sigga og sagði: Ég kann ekkert að
spila. Enginn heyrði það og píanó-
leikarinn spilaði og spilaði en ekki
nóg með það, því hún kunni alla
texta og þurfti því jafnóðum og
sungið var að kenna textana. Þær
eru margar minningarnar sem
verða geymdar og munu ylja um
ókomna tíma – það verður vand-
fyllt skarðið sem hún Sigga skilur
eftir. Ég hefi aldrei getað nógsam-
lega þakkað allt það sem þessi
góða kona hefir verið mér, ég held
þó að henni þættu það dýrmæt
laun ef allir hugsuðu um að rækta
gleði og kærleika og hafa það í
fyrirrúmi í mannlegum samskipt-
um.
Hún kvaddi þetta jarðlíf í sumri
og sól og við biðjum að leiðin
hennar nú verði sumar og sól.
Kæri Gunnar, það hafa verið
erfiðir tímar hjá þér og fjölskyldu
þinni undanfarna mánuði, þar sem
þú hefir gengið í gegnum erfiða
aðgerð samhliða veikindum þinnar
elskulegu konu, þar sem þið öll
lögðuð alla ykkar alúð og kærleika
til að henni liði sem best. Við Jón
biðjum Guð að gefa þér sem best-
an bata á ný og biðjum að minn-
ingin um kærleiksríka mannkosta-
konu létti ykkur sporin.
Geirþrúður Charlesdóttir.
SIGRÍÐUR
SIGURÐARDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um Jón
Börk Jónsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minning-
@mbl.is). Nauðsynlegt er, að
símanúmer höfundar/sendanda
fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í
blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina