Morgunblaðið - 30.06.2001, Page 41
Lár. Það að viðmælandinn hafði hugs-
anlega enga hugmynd um hver Helgi
Lár var skipti minna máli. Þeir bræð-
ur höfðu sama húmorinn og gátu
skemmt sér og öðrum tímunum sam-
an við að segja ýkjusögur með til-
heyrandi eftirhermum og látbragði.
Við vitum að líf Varða var ekki allt-
af dans á rósum og hann varð fyrir
áföllum. En hann tók ágjöfum með
einstöku æðruleysi og varðveitti já-
kvætt lífsviðhorf.
Þegar við vorum að alast upp var
það mikið ferðalag að fara í Grund-
arfjörðinn og heimsækja Varða og
fjölskyldu. Í minningunni var alltaf
sól og blíða. Með sama hætti munu
minningar okkar um Varða vera ljós-
ar og bjartar. Við sendum samúðar-
kveðjur til Eyglóar og allrar fjöl-
skyldu Varða.
Lára, Sigurður og Dagný.
Kær vinur okkar, Þorvarður Lár-
usson, er látinn.
Þegar góður vinur kveður þennan
heim setur mann hljóðan, en hugur og
hjarta þakka fyrir að hafa notið vin-
áttu hans.
Þótt það væri svo hér áður, að allir
þekktust í Grundarfirði og við búið
lengi í nágrenni við Varða, eins og
hann var kallaður í daglegu tali, höfð-
um við ekki persónuleg kynni af hon-
um fyrr en fyrir sjö árum. Það var
með svolítið sérstökum hætti að
Eygló og Varði fóru með okkur hjón-
unum í ógleymanlega ferð til Brasilíu
og Kanaríeyja. Fyrirvarinn var stutt-
ur, aðeins tveir sólarhringar áður en
farið var í loftið.
Ég man þegar við sátum í flugstöð-
inni, Varði, og biðum eftir að ganga
um borð að þú spurðir hvort við vær-
um alveg viss um að við vildum hafa
ykkur Eygló með. Þú hafðir oft orð á
því, Varði minn, að þetta hefði verið
besta og sérstakasta ferð sem þú
hefðir farið í til þessa. Í þessari ferð
mynduðust sterk og órjúfanleg vin-
áttubönd við ykkur hjónin og síðan
höfum við átt margar yndislegar og
ógleymanlegar stundir.
Þótt Varði hafi á þessum árum átt
við veikindi að stríða lét hann sig aldr-
ei muna um að koma til okkar, um-
vafði okkur hlýju og gaf okkur styrk á
erfiðum stundum.
Varði var einstaklega hjartahlýr
maður og næmur á tilfinningar ann-
arra og sá margt sem aðrir sáu ekki.
Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum
um hann en uppgjöf var eitthvað sem
ekki var til í hans huga.
Hann var ævinlega þakklátur fyrir
það sem lífið hafði gefið honum, stór-
an barnahóp, sem hann átti sjálfur,
mörg fósturbörn og ekki síst Jóhönnu
litlu sem þau hjón ættleiddu.
Þegar ég rita þessi fátæklegu orð
kemur í hugann, ásamt mörgu öðru,
þegar við ræddum um lífið og dauð-
ann, hvað þú hafðir sterka trú og hvað
þú trúðir sterkt á að það væri líf eftir
dauðann. En hvort sem það er eða
ekki vitum við að fjörðurinn fagri sem
þú unnir svo heitt verður aldrei sam-
ur þegar þú ert farinn.
Kæra Eygló, við biðjum Guð að
gefa þér og öllum börnunum ykkar
styrk á erfiðri stundu.
Far þú í friði, vinur.
Elsa og Reynir.
Við hjónin vorum í sumarfríi á Krít,
þegar okkur barst sú harmafregn að
Varði væri dáinn. Þetta tók mikið á,
og okkur fannst erfitt að trúa því að
þetta gæti virkilega verið rétt og síð-
ustu dagar frísins urðu einhvern veg-
inn svo tómlegir.
Varði var góður félagi og vinur.
Hann átti stóran vinahóp og það er
ávallt mikill gestagangur á heimili
hans og Eyglóar, og þangað var alltaf
gott að koma, en mikill samgangur er
milli heimila okkar.
Það kom ósjaldan fyrir, þegar við
vorum að vinna um helgar, að Varði
og Eygló hringdu og buðu okkur í
kaffi og pönnukökur.
Grundarfjörður verður ekki samur
eftir að Varði hefur kvatt þetta líf.
Við kveðjum þig með söknuði,
elsku Varði, þú lifir áfram í huga okk-
ar.
Guð veiti þér styrk til að takast á
við mótlætið á þessum erfiðu tímum,
elsku Eygló.
Sigrún og Kristján.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 41
Nú er hótel Ísland við Jens
Bjelkesgt. 78 í Ósló ekki lengur op-
ið. Með ótímabæru fráfalli elsku-
legrar mágkonu minnar, sem við
lútum höfði fyrir, er þessum þætti
lokið. En hótel Ísland var heimili
hennar gjarnan nefnt, því svo lengi
leituðu ættingjar og vinir til hennar
er þeir lögðu land undir fót, og þar
stóðu þeim allar dyr opnar og allt
talið svo sjálfsagt. Okkur finnst svo
óraunverulegt að hún skuli vera
horfin, hún kletturinn, alltaf svo
sterk, svo hress, svo jákvæð. En
Guð ræður öllu og ræður vel. Jú, við
vitum öll að tími okkar kemur og
sættum okkur við það, þó að oft
vakni spurningar um tíma og að-
stæður. Við Jóna kynntumst fyrir
rúmum 40 árum. Þau kynni gegnum
árin eru mér og mínum dýrmæt.
Þótt hún væri svona fjarri okkur, þá
var mjög náið samband milli allra
hennar hér heima. Hún og við öll
nutum þeirra stunda er hún kom
heim, en það var hennar líf og yndi.
Fjölskyldutengslin voru einkar
sterk, og venjan var sú að deilt var
niður dvalartímanum hér þannig að
hvert systkinanna (fjölskylda) fékk
nokkra daga með henni hvert fyrir
JÓNÍNA
DÝRLEIF
ÓLAFSDÓTTIR
✝ Jónína fæddist íÓlafsfirði 4.8.
1934. Hún lést 15.
maí sl. á Lovisenberg
Hospital í Ósló.
Minningarathöfn fór
fram frá Fossvogs-
kirkju 19. júní sl.
Foreldrar hennar
voru þau Jónína
Kristín Þorsteins-
dóttir frá Ósbrekku í
Ólafsfirði f. 4.1.
1914, d. 13.11. 1989,
og Ólafur Lillendal
Ágústsson frá
Saurbæ í Eyjafirði f.
16.4. 1905, d. 15.7. 1977. Systkini
Jónínu eru 1) Þorgeir, f.
5.12.1935, 2) Gunnar f. 19.4.1939,
d. 16.9.1941, 3) Guðrún f.
19.1.1943, 4) Ólöf f. 8.3.1945 og 5)
Friðrik f. 14.9. 1948.
sig, þannig að ekkert
systkinabarn eða af-
komendur þeirra vissu
ekki hver Jóna frænka
var. Hún átti stað í
hjarta þeirra allra.
Mér finnst ekki
hægt að tala um Jónu
án þess að minnast á
Ingrid, en vinátta
þeirra var svo einstæð,
og vita það allir sem til
þekktu. Ingrid er okk-
ur mjög kær, og er erf-
itt að vita af henni
aldraðri án Jónu, tak-
ast á við lífið. Við biðj-
um henni styrks og blessunar Guðs.
Jóna giftist ekki og eignaðist ekki
börn en því meira nutu systkina-
börnin og afkomendur þeirra elsku
hennar, og þakka fyrir það
Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir
að hafa hlotnast að eiga hana að
kærum vini og mágkonu, og kveð
hana með virðingu og þökk.
Megi ljós Guðs lýsa henni.
Hulda Haraldsdóttir.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
!"
#
!
"
#
$% $$%
$
%& '(
)&
&
*
(
&
+
$
&
, -
.
&
/*011
2 3 -&
# 4
#- ( #
'
(
)
*
$ +
,-
.
- & .
5*6
/
0
-
1
2 .
3
( .
4 *
-
3
3#
.
03
.
.
,0*7*6 * 88.
,-
.
%& &
0
& &
,
$ /- &
- ,
&
%& , &
/ 2
/ &6 #,
/ 9 &
3 3
3 3 3 .
)
-
0
0
/6:;/*;6%< :700 :
2 3==
/ 2 2
5
6-
$$%
7
0 ) -
0)89
0
:
%$%#/;#1%%%<
$ > 6 ?@
- %&
, : &
- -
+ , - &
$ /.> .>
/ 2 / 23- & %& 7 #
.
4 *
.* 3
#
6
1 2-
$ AB
2
.
0-
. - . &
2- # .
5
, @/CD, 0*1601
2( ( -&
(
EB
#- ( #
9
=
,
1
,
' '%%
7
0 ,
00
2 # F+
3- &
(%&
( &
3 3
3 3 3 .
-
;DG /*:700
2,23
/
>
!
.
?
-
' $$%
3 / &
/ ).%& &
6.%& &
22 ,.%& &
%&.%&
.