Morgunblaðið - 30.06.2001, Side 42
MINNINGAR
42 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Baldvina Bald-vinsdóttir fædd-
ist 22. desember 1913
að Hvammi í Laxár-
dal, hún lést 15. júní
síðastliðinn á Heil-
brigðisstofnuninni á
Siglufirði.
Foreldrar hennar
voru Baldvin Gísla-
son og Guðrún Þor-
leifsdóttir.
Á fjórða ári var
Baldvina tekin í fóst-
ur af móðurbróður
sínum Guðmundi
Þorleifssyni. Var þar
hluta úr ári og fór þá til eldri
hjóna að Róðhóli í Sléttuhlíð, sem
hétu Sveinn og Anna. Níu ára
gömul fór hún til hjónanna Frið-
björns Jónassonar
og Sigríðar Hall-
dórsdóttur að
Syðstahóli í Sléttu-
hlíð. Hún var hjá
þeim þar til árið
1948, er hún fór aft-
ur til Guðmundar
frænda síns og Ingi-
bjargar konu hans
sem þá bjuggu á
Siglufirði. Baldvina
bjó á Siglufirði upp
frá því. Baldvina á
þrjár systur, þær
eru, Þórleif, Kristín
og Margrét Einars-
ína. Baldvina á þrjár fóstursystur,
þær eru, Dana Arna Sigurvins-
dóttir, Sólveig Stefánsdóttir og
Sigrún Ólöf Tómasdóttir.
„Elsku Balda mín“, svona hef ég
alltaf byrjað bréfin mín til þín í
gegnum tíðina, bæði sem barn og
síðar sem fullorðin kona. Þetta sé
ég þegar ég kalla fram öll bréfin
mín í tölvunni minni og les þau yfir
svona í síðasta sinn, þau verða víst
ekki fleiri því að morgni föstudags-
ins 15.júni sofnaðir þú svefninum
langa, þreytt eftir erfiða sjúkdóms-
legu. Alltaf sagðir þú að þetta væri
bara „íslensk leti“ sem hrjáði þig og
gerðir lítið úr þessu öllu saman. Það
var þér líkt, gerðir létt grín að erf-
iðleikum og varst alltaf svo jákvæð,
hlý og heil í öllu sem þú tókst þér
fyrir hendur.
Þegar ég frétti að þú værir dáin,
fann ég fyrir miklum söknuði og
líka fyrir létti fyrir þína hönd. Ég
vissi að þitt aðalsmerki var að vera
engum háð og sjálfstæð á öllum
sviðum. En eins og sjúkdómurinn
hafði leikið þig síðustu mánuðina þá
veit ég að þér fannst þetta ekkert
líf. Þú, sem alltaf varst önnum kafin
við að hjálpa gamla fólkinu á elli-
heimilinu á Siglufirði, fólki sem
hafði verið samferða þér í gegnum
lífið, og var nú orðið gamalt og
þreytt. Þú þeyttist um með bakk-
elsi, slátur og hvað ég á að nefna,
alltaf til að gleðja þetta gamla fólk
og stytta því stundir á löngum dög-
um á elliheimilinu. Þú, sem grófst
þig út úr húsinu á Háveginum á
snjóþungum vetrardögum, lést þig
renna á rassinum niður hálar
brekkurnar til að komast í bæinn að
versla, settir niður kartöflur á
hverju ári jafnvel þótt þú yrðir að
grafa niður í gegnum þykka snjó-
skafla í garðinum og koma niður
einhverju smáræði eins og þú
nefndir það, fórst í berjamó upp í
Hvanneyrarskálina til að geta fært
fólki smá glaðning og þannig get ég
endalaust talið. Þú lifðir lífinu þann-
ig að þú vildir sjá um allt sjálf og
aldrei biðja nokkurn um hjálp, sagð-
ir aldrei slæmt orð um nokkra sálu
og nýttir hvert tækifæri til að
hjálpa og gleðja aðra. Það er ekki
nema von að þín sé sárt saknað af
mörgum.
Ég minnist stundanna okkar sem
við áttum á Siglufirði á sumrin í litla
húsinu á Hávegi, við fjölskyldan. Þú
leyfðir okkur Huldu alltaf að kíkja á
loftið í allar kisturnar sem okkur
fundust fullar af leyndardómum, í
kjallaranum sátum við og smíðuðum
eða lágum í leyni og horfðum á
fuglana sem þú samviskusamlega
sást um að fóðra og svo alla villi-
ketti Siglufjarðar sem fengu að
borða á túninu fyrir framan húsið.
Meira að segja mátti ekki drepa
flugurnar sem villtust inn í húsið,
stórar hlussur sem okkur bauð við,
þær tókstu í viskustykki og settir
þær út. Þú máttir ekkert aumt sjá,
allt var sköpun Guðs og það átti að
virða.
Hjá þér kynntist ég því að líf
væri eftir dauðann og ég man eftir
síðasta skiptinu sem ég kom til þín
sem unglingur, þá leiddir þú mig
inn i þennan undarlega heim þar
sem dauðinn er aðeins atburður í
lífinu en lífið sjálft heldur áfram,
bara á öðru stigi. Þú lagðir fram
bækur um Hannes miðil og fleiri
spíritista og sagðir að mér væri vel-
komið að lesa þær. Bækurnar
drakk ég í mig og þær hafa verið
mér vegarnesti síðar meir í lífinu,
t.d. núna þegar ég sakna þín og þú
ert dáinn og það er svo erfitt að
venjast þeirri hugsun að fá ekki að
heyra í þér aftur. Þá þarf ég aðeins
að ýta við mér og minna sjálfa mig
á að við eigum eftir að hittast og
heyrast aftur, bara á öðru tilvist-
arstigi.
Eftir að ég eignaðist börn og
flutti til Danmerkur, höfum við allt-
af verið reglulegu í sambandi. Ég
sendi þér handavinnu og bréf og
teikningar frá börnunum og þú
sendir á móti handavinnuna full-
unna og alltaf einhvern glaðning.
Það var alltaf líf og fjör þegar pakki
kom frá Böldu á Sigló. Svo varstu
svo dugleg að hringja og spjalla og
það var ómetanlegt. Undir það síð-
asta heyrði ég að þú gekkst ekki
heil til skógar og þetta var ekki
bara leti eins og þú vildir að ég
héldi. Ég veit að það er vel tekið á
móti þér þarna „hinum megin“, allt
þetta góða fólk sem þú hefur þurft
að sjá á eftir yfir móðuna miklu í ár-
anna rás sér um það.
Ástarkveðjur frá okkur Héðni,
Þórkötlu, Þráni og Toggu og þakka
þér fyrir alla þína hugulsemi og
hlýju sem ég hef átt aðgang að allt
mitt líf.
Margrét Þráinsdóttir
Árósum.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga
tárin eru beggja orð.
(Ólöf frá Hlöðum.)
Umgjörð daglegs lífs Böldu var
Siglufjörður, náttúran, menn og
málleysingjar. Andardráttur um-
hyggju hennar snerti allt. Lotning
hennar fyrir lífsins höfundi var
átakalaus. Hvern helgan dag sat
hún á kirkjubekknum meðan heils-
an leyfði. Hún var á bænavakt alla
daga. Hún höfðaði ávallt til hins
góða í manninum og gaf alltaf meira
en hún þáði.
Balda var ekki stór kona að sjá,
en þeim mun stórbrotnari var henn-
ar innri maður, góðvild hennar
meiri og umhyggja fyrir öllum og
öllu. Hún fór hávaðalaust gegnum
lífið, en skildi engu að síður eftir sig
djúp spor í hjarta samferðamanna
sinna.
Gæfa okkar var að eignast hana
að vini, njóta umhyggju hennar og
ástúðar. Hún var okkur dýrmæt
gjöf lífsins. Nú drúpum við höfði og
þökkum allt í þeirri vissu að hún er í
landi guðs um tíma og eilífð.
Friðþóra Stefánsdóttir
og fjölskylda.
Þegar ég var að alast upp heima
hjá afa mínum og ömmu upp úr
miðri nýliðinni öld var oft mikið að
gera í síldarbænum. Mér fannst
fullorðna fólkið vinna mjög mikið og
lífsbaráttan vera allt of hörð. Eftir á
að hyggja hafa sjálfsagt flestir haft
nóg með sjálfa sig og sitt fólk. En
hún Balda sem bjó hjá Guðmundi
frænda sínum og Ingibjörgu konu
hans að Hávegi 12b hafði sínar
skoðanir á því hvernig bæri að lifa
þessu lífi. Þær fólust aðallega í því
að ef einhver vildi gera eitthvað fyr-
ir hana var það óþarft með öllu, en
ef hún gæti gæti gert eitthvað fyrir
náungann bæri brýna nauðsyn til að
gera það sem fyrst. Þegar skoðaðar
eru þær einföldu lífsreglur sem hún
lifði eftirmá hver og einn sjá hversu
þessi heimur væri miklu betri ef
fleiri væru eins og hún. Þarna á
brekkunni myndaðist lítið og sam-
hent samfélag góðra nágranna sem
réttu hver öðrum hjálparhönd þeg-
ar einhver þurfti á því að halda.
Deildu með sér sorg og gleði, sigr-
um og ósigrum. Undanfarin ár og
áratugi hefur þetta góða fólk smám
saman verið að flytja búferlum. Það
hefur kvatt þetta jarðlíf og flutt sig
um set, yfir á annað tilverustig. Og
eftir því sem fækkað hefur í röðum
okkar sem hérna megin búa hafa
fleiri og fleiri gamlir vinir verið að
hittast á ný, í hinu landinu sem við
öll eigum eftir að heimsækja.
Frá því að ég man fyrst eftir mér
sem lítill strákur á brekkunni heima
á Sigló fannst mér hún Balda alltaf
vera verðugur fulltrúi þess góða
sem býr í manninum og þar sem
hún hefur nú kvatt okkur um sinn
veit ég að hún hefur fengið góðar
móttökur í nýjum heimkynnum og
mun dvelja í glöðum hóp hjá góðu
fólki um alla tíð. Við, sem höfum
orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
að verða nágrannar þínir, vinir og
samferðarfólk í lífsins ólgusjó, vilj-
um senda þér okkar bestu kveðjur
og þakkir fyrir samfylgdina.
Fyrir hönd fyrrum granna á
Hverfisgötu 11.
Leó R. Ólason.
BALDVINA
BALDVINSDÓTTIR
✝ María Samúels-dóttir fæddist 31.
október 1906 á Gests-
stöðum í Kirkjubóls-
hreppi í Strandasýslu
og lést 15. júní 2001 í
Sjúkrahúsinu á
Hólmavík. Foreldrar
hennar voru Samúel
Guðmundsson, lengst
bóndi í Miðdalsgröf,
og Magndís Friðriks-
dóttir. María átti tvö
alsystkini, Þuríði, f.
1903, og Grím, f.
1916, auk margra
eldri hálfsystkina
samfeðra. Maður hennar var Jón
Sigurðsson frá Stóra-Fjarðar-
horni, f. 9. ágúst 1899 á Bessastöð-
um, Ytri-Torfustaðahreppi, V.
Húnavatnssýslu. Börn þeirra eru:
1. Jónas, f. 11. marz 1937, kona
hans er Guðríður Káradóttir, þau
eiga tvö börn. 2. Gísli, f. 12. marz
1937, kona hans er Hlín Sigurð-
ardóttir, þau eiga
þrjú börn.
3. Sigurrós, f. 11.
febrúar 1939, henn-
ar maður er Páll
Garðarsson, þau
eiga tvö börn. 4. Sig-
urður, f. 21. desemb-
er 1940, kona hans
er Elsa Bjarnadóttir,
þau eiga einn son. 5.
Sigríður, f. 8. febr-
úar 1949, hennar
maður er Sigurður
Marinósson, þau
eiga fjóra syni.
María og Jón bjuggu
í Stóra-Fjarðarhorni til 1975 að
þau fluttu til Reykjavíkur og
bjuggu þar til 1989. Eftir lát Jóns
bjó María hjá Sigríði dóttur sinni,
en var síðustu árin í Sjúkrahúsinu
á Hólmavík.
Útför hennar fer fram frá
Kollafjarðarneskirkju laugardag-
inn 30. júní klukkan 14.
Elskuleg föðursystir mín er látin.
Ég kynntist henni Maríu fyrst þegar
ég kom 13 ára og dvaldi í nokkrar
vikur hjá henni á Stóra-Fjarðar-
horni. Síðan hitti ég hana ekki í 15-16
ár, en þá var hún stödd í bænum og
hringdi í mig og kom í heimsókn.
Hún benti mér á að nú færi að stytt-
ast í veru þeirra Jóns í sveitinni, svo
ef mig langaði að koma aftur væri
ekki seinna vænna. Við fórum svo
fjölskyldan og var vel tekið eins og
þeirra var von og vísa, Jón tók börn-
in með sér niður í fjöru að vitja um
netin og leggja aftur. Um kvöldið
fengum við nýjan silung og börnum
mínum leist ekki vel á að borða bleik-
an fisk, hann átti að vera hvítur. Um
morguninn fóru þau aftur með Jóni
að vitja netanna og þegar við fórum
um hádegi urðum við að taka með sil-
ungana sem „þau“ veiddu. Þegar sá
silungur kom á borð var ekki fúlsað
við honum og bleikur fiskur kónga-
fæði eftir það.
Um haustið fluttu þau svo til
Reykjavíkur og þannig vildi til að
íbúðin þeirra var hinum megin við
sömu lóð og okkar. Þó að við flyttum
fáum árum seinna í stærri íbúð var
samt stutt á milli og ef við vorum
báðar í Reykjavík hittumst við oftast
minnst einu sinni í viku. Þótt nær
fjörutíu ár skildu á milli okkar urð-
um við perluvinkonur og mér þótti
mjög skemmtilegt hvað hún var opin
fyrir nýjungum. Hún var til í að
prófa allt, en ef henni líkaði ekki
sinnti hún því ekki frekar, en tók upp
það sem betur líkaði. Hún hafði
ákveðnar skoðanir en virti alltaf
skoðanir annarra og oft sátum við og
rökræddum um heima og geima, Við
þurftum ekki endilega að vera sam-
mála. María var ekki þeirrar gerðar
að biðja um aðstoð ef möguleiki var
að hún gæti gert hlutina sjálf, nema
fyrir aðra, en mér þótti ákaflega
vænt um að oft bað hún mig um smá
viðvik sem hún kannski ekki vildi
ónáða aðra með. Þegar svo bar við
voru það ófáir kleinupokarnir eða
kæfubitarnir sem hún sendi mig með
til baka, því alltaf varð hún að launa
fyrir sig. Eftir 13 ára búsetu í
Reykjavík var Jón orðinn svo lasinn
að þau gátu ekki verið lengur ein og
fluttu til Sigríðar að Kollafjarðar-
nesi. Þar undu þau vel meðan heilsan
leyfði.
Ég þáði ótalda kaffibollana hjá
Maríu en það sem lengst situr eftir
er ýmislegt sem hún sagði mér frá
afa og ömmu og öðrum ættingjum og
þar sem hún var 10 árum eldri en
pabbi mundi hún margt fyrir hans
tíð. Hún frænka mín var sannarlega
orðin hvíldar þurfi eftir langa ævi
þar sem hún hlífði sér aldrei. Veri
hún Guði falin og ég þakka fyrir mig
og mína.
Magndís Grímsdóttir.
MARÍA
SAMÚELSDÓTTIR
EIGI minningargrein að birtast á
útfarardegi (eða í sunnudagsblaði
ef útför er á mánudegi), er skila-
frestur sem hér segir: Í sunnu-
dags- og þriðjudagsblað þarf grein
að berast fyrir hádegi á föstudag. Í
miðvikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir birt-
ingardag. Berist grein eftir að
skilafrestur er útrunninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingar-
degi. Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist innan
hins tiltekna skilafrests.
Skilafrestur minningargreina
/
*
.*
3
3
.
-
%7;G:H *6 7*6:700G % -# IJ
1 &
.
0-
. )
7 2
/ / &
$ 7 2 & %& /
727 2 & (
6#7 2
7 2 &
2- #.
@)
)
, 0;%7/:700 1 2$ 2-
## '#
9/
1
3
3 3 .
5
)
)
/G D :700 ## 4
#
,)
?
-
.
A
2 .
3
7/.'
2- # .