Morgunblaðið - 30.06.2001, Qupperneq 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Í KVÖLD. Lau 30. júní kl. 20 LAUS SÆTI
Fös 6. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 14. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason
Söngleikur fluttur af nemendum
Verslunarskóla Íslands
Þri 3. júlí kl. 20 – Forsýning,
miðaverð kr. 1.200
Mið 4. júlí kl. 20 – Frumsýning
Lau 7. júlí kl. 20
Sun 8. júlí kl. 20
Fim 12. júlí kl. 20
Fös 13. júlí kl. 19
Fös 13. júlí kl. 23
Fim 19. júlí kl. 20
Sun 22. júlí kl. 20
Fim 26. júlí kl. 20
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR!
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Á leikferð um landið:
(3 B.)C>
C>D
$C>,
-
+'C>
/
;>C> =
AC>(-
%C> .C>E
=#
C>,
$C>/
+C>"
0
'C>
!" #" $% $&''()&
% *+ "" ,% &-- ..'&'//**!""0+1!2/!
333 & ( $4 & (
HEDWIG KL. 20.30
Forsýning mið 4/7 UPPSELT
Frumsýning fim 5/7 UPPSELT
Lau 7/7 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda
örfá sæti laus
Fös 13/7
Lau 14/7
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
fim 5/7 nokkur sæti laus
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
TUGIR þúsunda lutu höfði undir
minningarorðum um þá sem létust á
Hróarskelduhátíðinni fyrir réttu ári,
áður en tónlistin tók við á opnunar-
athöfninni á fimmtudag. Tregafullir
opnunartónarnir, Imagine eftir John
Lennon, leikið á trompet, voru und-
anfari rokkveislu sem hófst með
trukki og dýfu, bandarísku hljóm-
sveitinni Deaftones. Um 150 tónleikar
eru fyrirhugaðir á 31. Hróarskeldu-
hátíðinni, sem er óneitanlega haldin í
skugga harmleiksins síðasta ár. Ör-
yggisráðstafanir hafa verið hertar
mjög og eru nú líkar því sem gerist á
ámóta stórum tónlistarhátíðum, t.d. á
Bretlandi.
Stemmningin á opnunardegi hátíð-
arinnar var afslöppuð enda lék veðrið
við tónleikagesti, þrátt fyrir hraklega
veðurspá. Nær uppselt er á hátíðina
en ákveðið var að takmarka fjöldann
við 70.000 manns af öryggisástæðum.
Fyrir nokkrum árum var ótakmark-
aður aðgangur en horfið hefur verið
frá því, auk þess sem hátíðarsvæðið
hefur verið stækkað. Auk gestanna
70.000 eru um 20.000 starfsmenn,
blaðamenn og aðrir sem tengjast tón-
listarfólkinu á svæðinu.
Stíur við sviðin
Öryggisráðstafanirnar hafa verið
hertar vegna slyssins í fyrra en þó
vilja hvorki forráðamenn hátíðar-
innar né lögreglan viðurkenna að
eitthvað hefði mátt betur fara við
öryggisgæslu og samræmingu
læknavakta. Þrátt fyrir þessar yfir-
lýsingar hefur um 120 milljónum ísl.
kr. verið varið í öryggisbúnað m.a.
girðingar sem komið er fyrir fyrir
framan tvö stærstu sviðin, það app-
elsínugula þar sem rými er fyrir um
60.000 áhorfendur, og græna sviðið
þar sem 16.000 manns geta verið.
Girðingarnar eru nokkurs konar
stíur sem fólki er smalað inn í en á
milli þeirra eru gangar sem örygg-
isverðir geta farið um og kippt fólki
upp úr ef þrengslin verða of mikil.
Deftones höfðu ekki leikið lengi þegar
þeir fyrstu voru orðnir aðframkomnir
af loftleysi og hita og fengu aðstoð
varðanna. Þeir sem ekki vilja vera
innan girðingar geta rölt um að vild
en ekki er lengur hægt að troðast að
sviðunum eins og verið hefur.
Forráðamenn hátíðarinnar höfðu
búið sig undir pirring vegna þessa og
fengu því til liðs við sig öryggisverði
sem hafa langa reynslu af gæslu á
rokktónleikum enda er það hægara
sagt en gert fyrir nýliða að sýna festu
þegar hundruð æstra og drukkinna
aðdáenda vilja komast að sviðinu.
Þá er lögregla með nokkuð lið til að
koma í veg fyrir fíkniefnasölu og
neyslu, en það kom þó ekki í veg fyrir
að 28 ára gamall Svíi lést úr hjarta-
áfalli á miðvikudag. Grunur leikur á
að hann hafi tekið of stóran skammt
af eiturlyfjum.
Alls eru sjö svið á víð og dreif um
svæðið en hljómsveitirnar og plötu-
snúðarnir sem fram koma þá fjóra
daga sem hátíðin stendur yfir, eru 151.
Ekki koma mörg stór nöfn á hátíðina,
heldur er áherslan lögð á ungar og
upprennandi hljómsveitir. Einna
mesta spennan er í kringum tónleika
Robbie Williams sem leikur í kvöld,
laugardagskvöld. Þá voru margir
spenntir að sjá P.J. Harvey, Nick
Cave and the Bad Seeds og Beck sem
léku í gærkvöldi. Góð stemmning var á
Wycliff Jean opnunarkvöldið og það
sama verður vafalaust uppi á tening-
unum þegar aldursforsetarnir Bob
Dylan og Patti Smith troða upp.
Þá eru hljómsveitirnar Basement
Jaxx og Placebo á uppleið auk ótölu-
legs fjölda annarra, ekki síst frá Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð. Þeir sem
hrifnir eru af danstónlist með aust-
urlenskum tóni fá heilmikið fyrir sinn
snúð, m.a. hina egypsku Natöchu Atl-
as, Bretann Talvin Singh og síðast en
ekki síst rai-konunginn sjálfan, Khal-
ed frá Alsír.
Íslendingar eiga einn fulltrúa á
Hróarskeldu, hljómsveitina Apparat,
sem leikur á sunnudag.
Mannlífsskoðun
Íslenski fáninn, reyndar nokkuð lú-
inn og óhreinn, blakti á stöng í áhorf-
endaskaranum á tónleikum Wycliff
Jean enda lögðu fjölmargir Íslending-
ar leið sína á hátíðina. Þeir hverfa þó í
fjölda Dana, sem eru um helmingur
hátíðargesta, svo og Svía og Norð-
manna sem fjölmenna. Aðrar þjóðir
eiga svo mun færri fulltrúa á hátíð þar
sem áhugafólk um mannlífsskoðun
fær nóg að horfa á.
Heittrúaðir aðdáendur hinna ýmsu
tónlistarstefna svífa um svæðið með
litað hár, útgötuð eyru og fatnað þar
sem hugmyndafluginu hefur verið
gefinn laus taumurinn. Ný og gömul
kærustupör umvafin hvort öðru og
aðrir sem finna sér helst huggun á
botni bjórglass. Ungir jafnt sem
gamlir stappa og dilla sér í takt við
tónlistina og á sunnudaginn er öllum
yfir fimmtugu boðinn ókeypis að-
gangur til að sýna fram að tónlistar-
áhuginn á sér engin aldurstakmörk.
sem heitir Cinga til að sýna okkur fá-
tækrahverfin. Hann er sjálfur fædd-
ur og uppalinn í hverfunum og býr
þar enn. Hann sagðist skyldi fara
með okkur um hverfin, en þó alfarið á
okkar eigin ábyrgð,“ segir Sigríður.
„Glæpatíðni er mjög há í Suður-Afr-
íku, sérstaklega í fátækrahverfunum.
Lögreglumenn hætta sér meira að
segja ekki inn í sum þessara hverfa.
Sem dæmi eru framið morð á hálf-
tíma fresti í Suður-Arfríku og nauðg-
un á 26 sekúndna fresti. Það þýðir
m.a. að þriðjungi kvenna þar í landi
er nauðgað einhvern tímann á lífs-
leiðinni, en hluti af því vandamáli
tengist þeirri almennu fáfræði að
karlmenn með eyðni læknist af sjúk-
dómnum hafi þeir mök við óspjallaða
stúlku.“ Sigríður fór og heimsótti fólk
á heimilum þess en auk þess heim-
sótti hún athvarf fyrir fórnarlömb
nauðgana, útfararstofu, heimili fyrir
fatlaða og þroskahefta, diskótek og
vúdú-lækni svo eitthvað sé nefnt.
„Það er 60% atvinnuleysi í fátækra-
hverfum Suður-Afríku en þau 40%
sem hafa einhverja vinnu hafa svo lág
laun að þau hafa varla í sig og á.
Megnið af þessu fólki hefur reyndar
aldrei haft vinnu alla sína ævi,“ segir
Sigríður.
„Það er ekki boðið upp á atvinnu-
leysisbætur eins og við þekkjum þær
og maður furðar sig óneitanlega á því
hvernig fólk kemst yfirleitt af. Fyr-
irvinnan er kannski bara ein á mann-
mörgu heimili. Fjölskyldan þarf því
stundum að láta sér nægja einn kjúk-
ling í matinn út vikuna.“ Sigríður seg-
ir aðbúnað fólks í fátækrahverfunum
ömurlegan. Flestir búa í hreysum,
einhvers konar híbýlum þar sem
byggingarefnið er gjarnan lélegar
spónaplötur, ryðgað bárujárn eða
jafnvel pappakassar. Flest þessara
húsa eru einungis klædd að innan
með dagblöðum til einangrunar, sem
dugar þó skammt þegar rignir, eða á
veturna þegar kaldur vindurinn næð-
ir um.
Búið á öskuhaugum
„Eftir að aðskilnaðarstefnan var
tekin upp var hörundsdökkt fólk rek-
ið úr borgum eins og Höfðaborg og
látið koma sér fyrir utan borgar-
markanna. Dæmi voru þess að þús-
undir manna þurftu jafnvel að byggja
VIÐ FÓRUM til Suður-Afríku
snemma á síðasta ári og ætluðum
upphaflega að gera þátt um vínfram-
leiðslu þar í landi. Þegar komið var á
staðinn og við kynntumst af eigin
raun því hörmulega ástandi sem
svarti maðurinn býr enn við, fannst
okkur við þyrftum að segja þeirra
sögu frekar en nokkuð annað, svo við
skiptum um gír og fórum úr lysti-
semdum vínekranna í ömurleika fá-
tækrahverfanna,“ segir Sigríður að-
spurð um tildrög þáttarins.
„Á meðan við biðum eftir að finna
einhvern sem myndi vilja fara með
okkur um þessi hverfi, sem reyndist
erfitt, heimsóttum við svo fangelsið á
Robin-eyju þar sem Nelson Mandela
var fangi í næstum tvo áratugi.“
„Við fengum að lokum ungan mann
heimili sín á gömlum öskuhaugum
þar sem hvergi var vatn að fá.“ Sig-
ríður segir að þegar maður standi
andspænis þessum ömurlegu aðstæð-
um sé manni hugsað til þeirra for-
réttinda sem við höfum víða í hinum
vestræna heimi eins og hér á Íslandi,
þar sem sjálfsagt þykir að geta geng-
ið að læknisþjónustu og almennum
tryggingum. „Við hittum m.a. fyrir
unga stúlku, sem hafði verið keyrt á
fyrir nokkrum árum en þar sem for-
eldrar hennar höfðu ekki efni á að
leita lækningar fyrir hana skemmd-
ust fætur hennar þannig að í dag get-
ur hún aðeins gengið um á hnjánum.“
Mennt er máttur
En hvernig eru menntunarmögu-
leikar fyrir börn í Suður-Afríku? „Al-
menn skólaganga er fimm ár og börn-
in læra að skrifa og lesa. Öllum á að
vera kleift að stunda framhaldsnám
eftir þessi fimm ár en reyndin því
miður ekki svo,“ svarar Sigríður.
„Við heimsóttum dæmigerðan
barnaskóla og kynntumst þar hvern-
ig skólastarfinu er háttað. Aðbúnaður
er í sjálfu sér viðunandi í skólanum
sjálfum en skólinn er samsafn gam-
alla flutningsgáma þar sem kennslu-
borð og stólar eru af mjög svo skorn-
um skammti. Aftur á móti er skortur
á námsgögnum og ritföngum og
skorturinn er þvílíkur að spara þarf
sjálfa töflukrítina.
Þegar maður verður vitni að svo
miklum hörmungum þá langar mann
svo að hjálpa en það er auðvitað ekki
hægt að hjálpa öllum,“ segir Sigríður.
„Mesta hjálpin er líklega fólgin í
því að hjálpa yngstu kynslóðinni til
menntunar og til að hjálpa sér sjálfri.
Okkur langaði til þess að láta eitthvað
gott af okkur leiða sem þakklætisvott
fyrir vingjarnlegar móttökur þessa
fólks. Þess vegna datt okkur í hug að
stofna bankareikning og styrkja
þennan barnaskóla í Crossroads fá-
tækrahverfinu og gera þannig nem-
endunum hans kleift að standa jafn-
fætis öðrum börnum á leið til þroska
og frekari menntunar í framtíðinni.
Það sem inn á reikninginn kæmi yrði
notað til kaupa á bókum og náms-
gögnum.“
> Reikningurinn er í Landsbank-
anum Múlaútibúi og er númer 0139-
05-64400.
Íslenska heimildarmyndin um fátæktina í Suður-Afríku
Einn kjúklingur á viku
Annað kvöld sýnir Sjón-
varpið heimildarmynd-
ina Þyrstan dreymir
vatn. Birta Björns-
dótttir hitti umsjónar-
mann þáttarins, Sigríði
Guðlaugsdóttur, sem
heimsótti fátækrahverfi
Höfðaborgar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigríður Guðlaugsdóttir: „Þriðjungi kvenna þar í landi er nauðgað ein-
hvern tímann á lífsleiðinni, en hluti af því vandamáli tengist þeirri al-
mennu fáfræði að karlmenn með eyðni læknist af sjúkdómnum hafi þeir
mök við óspjallaða stúlku.“
Úr Þyrstan dreymir vatn: Börnin þrífa sjálf skólann einu sinni í viku.
AP
Appelsínugula tjaldið fræga verður sem fyrr aðalsvið Hróarskeldu en
öryggisgæsla við það hefur verið bætt til muna.
Hátíð í skugga harmleiks
Stemningin á Hróars-
kelduhátíðinni er af-
slöppuð en slysið sem
kostaði níu menn lífið á
síðasta ári er þó ekki
gleymt. Urður Gunn-
arsdóttir var á opnun-
ardegi hátíðarinnar.