Morgunblaðið - 30.06.2001, Síða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 53
Í NÝRRI könnun sem tónlistartíma-
ritið Uncut gerði meðal tónlistar-
manna, á því hver væru 50 bestu lög
Bítlanna er John Lennon höfundur 8
af þeim 10 lögum sem fengu flest at-
kvæði. Hljóta þetta að teljast all slá-
andi niðurstöður því hingað til hefur
virst ríkja nokkurt jafnræði í aðdáun
á verkum hans og McCartneys. Það
sem meira er þá kemst lag eftir
McCartney ekki ofar en í 9. sæti, en
það er „Helter Skelter“, sem er
tveimur sætum á eftir lagi George
Harrison á topp tíu, „Something“.
Það lag sem hlaut flest atkvæði
meðal tónlistarmannanna og þykir
þar af leiðandi besta Bítlalagið í
þeirra hópi er „A Day in A Life“,
lokalag Stg. Peppers Lonely Hearts
Club Band plötunnar margrómuðu.
McCartney er reyndar sagður eiga
stuttan millikafla í því lagi en annars
er það alfarið hugarsmíð Lennons.
Í öðru sæti er lag Lennons af smá-
skífu sem margir telja hina bestu í
sögunni, „Strawberry Fields For-
ever“, sem kom út í febrúar 1967 en
hin hliðin, „Penny Lane“, eftir
McCartney er talið 15. besta lagið,
en þess má geta að samkvæmt One
safnplötunni er samt litið á „Penny
Lane“ sem aðallag skífunnar.
Svo koma þau koll af kolli, lög
Lennons; „I Am The Walrus“ í 3.
sæti, „Tomorrow Never Knows“ í 4.,
„In My Life“ í 5., „Across The Uni-
verse“ í því 6., B-hliðarlagið „Rain“ í
því 8. og í 10. sæti „Happiness Is A
Warm Gun“.
Þátttakendur í könnuninni voru
yfir 100 tónlistarmenn, upptöku-
stjórar, höfundar tónlistarbóka,
skáld, leikarar og leikstjórar á öllum
aldri og úr öllum áttum. Lengi vel
var útlit fyrir að „Paperback Writer“
eftir McCartney fengi góða kosningu
en á endanum lenti það í 11. sæti.
Blaðamönnum Uncut þótti sérlega
áberandi hversu mjög menn hömp-
uðu „sínum“ Bítli, þ.e. nefndu ein-
vörðungu lög eftir Lennon, Mc-
Cartney eða Harrison. Einnig voru
þó nokkrir sem vildu ólmir fá að
nefna B-hliðina á „Abbey Road“ í
heild sinni en samkvæmt ströngustu
reglum er hún ekki gjaldgeng sem
eitt lag.
Álit erlendra tónlistarmanna
Lennon á 8 af 10
bestu Bítlalögunum
Lennon er greinilega Bítill
tónlistarmanna.
Ást eða föðurland: Saga Arturo
Sandoval
(For Love or Country: The Arturo
Sandoval Story)
S a n n s ö g u l e g
Leikstjórn Joseph Sargent. Aðal-
hlutverk Andy Garcia, Charles Dut-
ton. (120 mín.) Bandaríkin 2000.
Skífan. Öllum leyfð.
Í ÞESSARI átakasögu úr nú-
tímanum, sem byggir á sönnum at-
burðum, segir frá
kúbverska tromp-
etleikaranum Art-
uro Sandoval og
þeim aðstæðum
er leiddu til þess
að hann sótti um
pólitískt hæli í
Bandaríkjunum á
fyrri hluta tíunda
áratugar síðustu
aldar. Þrátt fyrir að vera dáður í
heimalandinu fyrir hæfileika sína
taldi hann sig ætíð vera í fjötrum
Castros. Samkvæmt myndinni voru
yfirvöld ætíð tortryggin í garð
Sandovals sökum tengsla hans við
erlenda listamenn og framúrstefnu-
legrar tónlistarsköpunar hans, sem
braut í bága við „smekk“ bylting-
araflanna. Andy Garcia leikur
þennan tilfinningaríka trompetleik-
ara af þvílíkum fítonskrafti að tæp-
ast getur talist að hann hafi gert
betur. Dutton er jafnframt
skemmtilega sannfærandi sem góð-
vinur Sandoval og bjargvættur
Dizzy Gillespie.
Hér er því á heildina litið enn ein
gæðamyndin úr smiðju HBO-sjón-
varpsstöðvarinnar. Trúverðug,
dramatísk og um fram allt áhuga-
verð.
Skarphéðinn Guðmundsson
Í fjötrum
föðurlands
Sólsetursstræti
(Sunset Strip)
G a m a n / d r a m a
Leikstjóri: Adam Collins. Handrit:
Randall Jahnson og Russell De-
Grazier. Aðalhlutverk: Simon Bak-
er, Anna Friel, Nick Stahl og Jared
Leto. Bandaríkin, 2000. Skífan (92
mín.). Öllum leyfð.
KVIKMYNDIR sem gerast á
tíma litríkrar tísku sjöunda og
fyrri hluta átt-
unda áratugarins
(sem tískuiðnaður
dagsins í dag er í
óðaönn að endur-
skapa og endur-
endurskapa) virð-
ast einstaklega
vinsælar um þess-
ar mundir. Villtir
tímar glitrandi
galla, eiturlyfja, óhefts kynlífs og
tiltekinna tónlistarstefna, eru upp-
hafnir og atburðarásin vandlega
krydduð með tónlist tíðarandans.
Minna fer hins vegar fyrir um-
ræðu um pólitískt inntak umrædds
tíma, og verður manni hugsað til
þess hvort ekki sé fyrst og fremst
verið að nota hina litríku tíma til
skrauts, nú þegar allt virðist
hrokkið aftur í baklás íhaldssem-
innar og peningahyggjunnar. Sól-
setursstræti forðast að nokkru
leyti að falla í þessa gryfju, þar
sem hún dregur upp fremur óupp-
hafna mynd af fortíðinni en bætir
samt engu við fyrri flóru.
MYNDBÖND
Glitrandi
gallar
Heiða Jóhannsdótt ir