Morgunblaðið - 10.07.2001, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 11
2001Ríkisbréf
Útboð miðvikudaginn 11. júlí
Á morgun, miðvikudaginn 11. júlí, kl. 14:00, fer fram
útboð á ríkisbréfum hjá Lánasýslu ríkisins. Í boði verður
eftirfarandi markflokkur:
Ríkisbréf í flokki RIKB 07 0209 eru gefin út rafrænt hjá Verðbréfa-
skráningu Íslands hf. og er lágmarkseining ein króna þ.e. nafnverð
er það sama og fjöldi eininga.
Ríkisbréf eru skráð á Verðbréfaþingi Íslands.
Sölufyrirkomulag:
Ríkisbréf verða seld með tilboðsfyrirkomulagi. Heimilt að bjóða
í ríkisbréf að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki
lægri en 10 milljónir. Öll tilboð í ríkisbréf þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14:00 á morgun, miðvikudaginn 11.
júlí 2001. Útboðsskilmálar, önnur tilboðsgögn og allar nánari
upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma
540 7500.
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 540 7500 • Fax: 562 6068
www.lanasysla.is • utbod@lanasysla.is
Áætlað hámark
Flokkur Gjalddagi Lánstími Núverandi staða* tekinna tilboða**
*Milljónir króna að nafnverði
**Milljónir króna að söluverði
RIKB 07 0209 9. feb. 2007 Nú 5,6 ár 7.665 500-
STEFÁN Carlsson, formaður Félags
íslenskra bæklunarlækna, undrast að
ákveðið hafi verið að leggja niður pró-
fessorsstöðu og dósentsstöðu í slysa-
lækningum við læknadeild Háskóla
Íslands og taka upp kennslu í bráða-
lækningum í staðinn. Hann segist
telja að læknanemar eigi eftir að líða
fyrir breytinguna, sérstaklega þeir
sem ætli í framhaldsnám í bæklunar-
lækningum.
Reynir Tómas Geirsson, forseti
læknadeildar, segir að þessi breyting
hafi um nokkurn tíma verið rædd í
kennsluráði læknadeildar sem og
stjórn deildarinnar, samfara öðrum
breytingum í kennslu læknanema.
Hann segir að ákvörðunin hafi verið
tekin á grundvelli greinargerða sem
sérfræðingar í slysa-, bæklunar- og
bráðalækningum, sem kenna á veg-
um deildarinnar, tóku saman um
hvert þessar fræðigreinar stefni.
Reynir Tómas segir að bráðalækn-
ingarnar séu víðtækari grein en
slysalækningar. Þar sé tekið á öllu
sem komi inn á borð lækna á bráða-
móttöku, öllu frá beinbrotum til eitr-
ana, svo dæmi séu tekin. Á bráða-
deildum sé öllu bráðaástandi sinnt,
byrjað að meðhöndla sjúklingana og
þeir síðan sendir til þeirra sérfræð-
inga sem við eigi hverju sinni, t.d.
hjartalækna eða bæklunarlækna.
„Starfsvettvangur á bráðamóttökum
er að breytast og við viljum laga
kennsluna að þessum veruleika,“ seg-
ir Reynir Tómas. Þess vegna hafi þær
stöður sem byggðust eingöngu á
bráðum stoðkerfisvandamálum ekki
átt lengur við.
Stefán Carlsson bendir á að milli
60 og 70% þeirra sjúklinga sem leiti á
slysadeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss eigi við stoðkerfisvanda-
mál að stríða og að margir hverjir
þurfi þeir á meðhöndlun bæklunar-
lækna að halda.
„Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti
bráðalækningum, en þetta er bara
pínulítil grein innan læknisfræðinnar
og tiltölulega ung,“ segir Stefán. „Það
er ekki, að mér vitandi, neinn
læknaháskóli sem ekki hefur prófess-
orsstöðu í bæklunarlækningum. Nú á
að leggja niður þá stöðu sem var þó
að hluta til staða í bæklunarlækning-
um og taka upp stöðu í bráðalækn-
ingum sem er lítið svið. Bæklunar-
lækningasviðið verður útundan og er
látið líða fyrir þessa litlu grein,“ segir
hann.
Prófessorsstaða
í burðarliðnum
Stefán segir að þetta horfi undar-
lega við og bendir á að aðeins ein
bæklunardeild sé starfandi á Land-
spítalanum-háskólasjúkrahúsi á höf-
uðborgarsvæðinu, sem hann segir
alltof litla. Heimildir Morgunblaðsins
herma að læknar deildarinnar séu nú
að undirbúa aðgerðir til að koma mót-
mælum á framfæri við forseta lækna-
deildar.
Reynir Tómas segir að þessi breyt-
ing sé að ryðja sér til rúms bæði í
Bandaríkjunum og Evrópu. „Slysa-
lækningar byggðar á bæklunarlækn-
ingum er eitthvað sem við viljum
breyta núna. Ég er ekki að segja að
þær séu úreltar, þær eru bara einn
þáttur af því sem fellur undir bráða-
lækningar,“ segir Reynir Tómas. Nú
er ein dósentsstaða í bæklunarlækn-
ingum við læknadeild og segir Reynir
að unnið sé að því að breyta þeirri
stöðu í prófessorsstöðu til að auka
vegsemd greinarinnar innan lækna-
deildar. Hugsanlegt sé að dósentinn
sem kennir bæklunarlækningar geti
fengið framgang um prófessorsstöðu.
Stefán segir Félag íslenskra bækl-
unarlækna vera mótfallið því að pró-
fessorsstaðan verði ekki auglýst.
„Þetta er ný staða, það hefur aldrei
fyrr verið prófessor í bæklunarlækn-
ingum og er þess vegna óeðlilegt að
staðan skuli ekki vera auglýst,“ segir
Stefán. Hann segir að engin sérgrein
innan læknisfræðinnar hafi jafn hátt
hlutfall lækna sem hafa unnið dokt-
orsverkefni, en 40% bæklunarskurð-
lækna eru með doktorsnafnbót. Þetta
segir Stefán styðja enn frekar að
staðan verði auglýst.
„Það er með öllu óásættanlegt að
Háskólinn samþykki átölulaust að
Landspítalinn-Háskólasjúkrahús
noti prófessorsstöður sem skiptimynt
við hrossakaup innan spítalans eins
og virðist hafa verið markmiðið með
umræddum breytingum. Því mót-
mælir stjórn Félags íslenskra bækl-
unarlækna umræddum áformum Há-
skólans harðlega,“ segir í
fréttatilkynningu frá félaginu.
Kennt í bráðalækningum í stað slysalækninga
Kennslan aðlöguð
að breyttu starfi
VEITINGASKIPIÐ Thor hefur nú
verið opnað á ný eftir flutning frá
Hafnarfirði til Reykjavíkur. Að
sögn Þórsteins Þórs yfirþjóns
fannst skipverjum heldur lítið um
mannaferðir í Sundahöfninni í
Hafnarfirði.
Varðskipið Thor var smíðað árið
1951 í Danmörku. Skipið vann við
landhelgisgæslu, björgunarstörf,
fiskirannsóknir og fleiri störf á
vegum Landhelgisgæslunnar. Thor
tók einnig þátt í öllum þorskastríð-
um Íslendinga.
Skipið gekkst undir nokkrar
breytingar áður en það var opnað á
ný og miðuðu þær flestar að því að
gera umgang um skipið þægilegri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veitinga-
skipið Thor
opnað á nýj-
an leik
EFNAHAGS- og orkumálaráðherra
Ungverjalands, dr. Matolcsy Gy-
örgy, er staddur hér á landi í op-
inberri heimsókn ásamt hópi emb-
ættismanna, en tilgangur heim-
sóknarinnar er að kynna sér
jarðhitanýtingu á Íslandi til raforku-
framleiðslu, húshitunar, jarðhita-
ræktunar og til annarra nota eins og
heilsubaða.
György er hér í boði iðnaðar- og
viðskiptaráðherra og mun dvöl hans
standa fram á fimmtudag. Munu hin-
ir ungversku gestir skoða helstu
jarðhitamannvirki hér á landi og
ræða við forráðamenn þessara fyr-
irtækja og auk þess munu þeir skoða
Garðyrkjuskólann að Reykjum og
Heilsustofnun Náttúrulækninga-
félagsins í Hveragerði.
Ungverjaland er eitt helsta jarð-
hitasvæði á meginlandi Evrópu og
þar hefur jarðhiti verið nýttur um
langa hríð en þó mest til baða og
heilsuræktar. Hafa Ungverjar
áhuga á að efla samstarf við Íslend-
inga á þessu sviði á næstu árum, en
fyrir 11 árum unnu íslensk fyrirtæki
í samstarfið við ungverskt fyrirtæki
að hagkvæmnisathugun á gerð hita-
veitu í sjö bæjum í Ungverjalandi, en
sú áætlun hefur ekki enn komið til
framkvæmda.
Orkumálaráðherra
Ungverjalands í
opinberri heimsókn
Kynnir sér
jarðhita-
nýtingu
á Íslandi
TVEIR komust lífs af þegar slys átti
sér stað við lendingu eins hreyfils
Cessna vélar í Narsarsuaq á Græn-
landi á laugardag, en fyrirstaða á
flugbrautinni varð til þess að vélin
valt á hliðina í lendingu.
Vélin, sem skráð er í Bandaríkj-
unum, var á leið frá Keflavík til
Narsarsuaq þegar slysið varð, og var
ferð hennar heitið áfram til Nuuk.
Mennirnir tveir um borð í vélinni
sem báðir eru bandarískir og sjötug-
ir að aldri slösuðust nokkuð og voru
fluttir á sjúkrahús í Narsarsuaq, og
þaðan stóð til að flytja þá á sjúkra-
hús í Nuuk. Ekki kviknaði í vélinni
við slysið en hún er þó talin gjörónýt.
Fórst á
leið frá
Keflavík
til Nuuk