Morgunblaðið - 10.07.2001, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NEMENDURNIR í fyrsta til sjö-
unda bekk Öskjuhlíðaskóla þurfa
ekki að láta sér leiðast þó að sum-
arið sé komið og enginn skóli að
sækja. Í Vesturhlíð starfrækir
Íþrótta- og tómstundaráð nefni-
lega sumarleikjanámskeið sem
sérstaklega eru ætluð þessum
hópi og eins og á öðrum leikja-
námskeiðum ÍTR er deginum eytt
við ærsl og leik og spennandi vett-
vangsferðir.
Sigurður Fjalar Jónsson er um-
sjónarmaður námskeiðanna og
segir hann slík námskeið hafa ver-
ið starfrækt í nokkur ár. „Það
kom í ljós að hefðbundin leikja-
námskeið hjá íþrótta- og tóm-
stundaráði hentuðu ekki þessum
krökkum. Því var brugðið á það
ráð að búa til námskeið sem kæmi
betur til móts við þeirra þarfir,“
segir hann.
Minni hraði á hlutunum
Sem dæmi um þetta er að tíu
starfsmenn eru á námskeiðunum
en að meðaltali eru um 20 krakkar
á hverju námskeiði. Hvert nám-
skeið stendur yfir í eina viku og
byrjar skipulögð dagskrá klukkan
níu á morgnana og stendur til
klukkan fjögur en boðið er upp á
gæslu frá kortér í átta og einnig
er gæsla fram til klukkan fimm.
„Hugmyndin er sú að hafa þetta
í sama stíl og hefðbundin leikja-
námskeið ÍTR með skipulagðri
dagskrá og vettvangsferðum. Við
förum til dæmis í heimsóknir í
varðskip, í Elliðaárdalinn, Hall-
grímskirkju, Ásmundarsafn, Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn og svo
mætti lengi telja. En þetta er
dempað aðeins niður þannig að
það er aðeins minni hraði á hlut-
unum. Það eru helmingi færri
vettvangferðir og gæslan er
miklu, miklu meiri. Til dæmis er
einn starfsmaður á hverja tvo
krakka að meðaltali og eins og á
öðrum námskeiðum hjá ÍTR er
ofuráhersla lögð á öryggisþátt-
inn,“ segir Sigurður Fjalar.
Hann segir námskeiðin vel sótt
og aukning hafi verið ár frá ári
þannig að hann er ekki í vafa um
að þörfin fyrir þau sé mikil enda
komi margir krakkarnir aftur og
aftur. Vikunámskeið kostar það
sama og önnur leikjanámskeið
ÍTR að sögn Sigurðar Fjalars eða
3.400 krónur.
Sá Jesú í kirkjunni
Hörpu Maríu Ívarsdóttur, 10
ára, og Jóni Margeir Sverrissyni,
8 ára, finnst báðum mjög gaman.
Skemmtilegast sé að róla hratt en
þau vegi líka salt og fari í fótbolta.
Daginn áður hafði verið mjög
gaman. „Við fórum í báta eða
varðskip, er það ekki?“ spyr
Harpa Fjalar og í ljós kemur að
henni líkar greinilega betur að
spyrja spurninga en að svara
þeim. Jón Margeir lætur hins veg-
ar ekki alveg skilið við varðskips-
ferðina. „Við sáum fullt af
byssum,“ segir hann með stór
augu og það er greinilegt að þetta
hefur verið tilkomumikil sjón.
„Hvað gerðum við á mánudag-
inn?“ spyr Harpa og Fjalar upp-
lýsir að þá hafi hópurinn hennar
farið í Hallgrímskirkju en hópur
Jóns Margeirs hafi farið í Elliða-
árdalinn. „Við vorum bara í labbi-
túr,“ segir Jón Margeir en Harpa
upplýsir að hún hafi séð Jesú í
kirkjunni. „Ég fór upp á topp,“
segir hún og bætir því við að hún
hafi séð alla borgina en ekki húsið
sem hún býr í. „En ég sá Landspít-
alann.“
„Eigum við að fara í kapp?“
spyr Jón Margeir og er greinilega
með keppnisskapið í lagi því
reglulega ítrekar hann þessa
spurningu sína.
Bæði segjast þau ætla að fara
aftur á leikjanámskeið og í beinu
framhaldi af því kemur Jón Mar-
geir með mikilvægar upplýsingar.
„Ég á hlaupahjól,“ segir hann og
Harpa hefur sömu sögu að segja.
„Fjalar ætlar líka að kaupa sér
hlaupahjól,“ heldur Jón Margeir
áfram og kemur þannig kaupand-
anum á óvart sem kannast ekkert
við fyrirætlanirnar. Þessu fylgir
skæðadrífa af spurningum frá
Hörpu sem vill fá nákvæma áætl-
un vikunnar útlistaða og þar með
tekur hún yfir viðtalið, greinilega
gott efni í forvitinn blaðamann.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Hörpu Maríu og Jóni Margeiri finnst langskemmtilegast að róla hratt. Sigurður Fjalar hjálpar stundum til.
Leikjanámskeið ÍTR fyrir börn í Öskjuhlíðarskóla vel sótt
„Eigum við að koma í kapp?“
Á leikvellinum nýttu krakkarnir sér leiktækin til hins ýtrasta.
Suðurhlíðar
NÝ fræðsluskilti, sem sett hafa ver-
ið upp við merka staði og við göngu-
og reiðstíga í Mosfellsbæ, verða
vígð í dag.
Alls hafa verið sett upp 13
fræðsluskilti auk útsýnismyndar á
Lágafellsklifi þar sem vel sést til
allra átta. Fyrir eru sjö skilti sem
vígð voru í desember síðastliðnum.
Flest skiltanna eru staðsett með-
fram fræðslustíg sem liggur frá Úlf-
arsá með ströndinni upp að Reykj-
um.
Það var Árni Tryggvason sem
hannaði skiltin en Bjarni Bjarnason
sá um textagerð og valdi mynd-
irnar.
Vígsluathöfnin verður á Lága-
fellsklifi og hefst klukkan 20. Í
tengslum við vígsluna verður efnt
til skiltagöngu og verður safnast
saman við Skiphól neðan við hest-
húsahverfið klukkan 20:30.
Þrettán
ný fræðslu-
skilti vígð
Mosfellsbær
BÆJARVERKFRÆÐINGUR hef-
ur kynnt niðurstöður útreikninga á
umferðarhávaða meðfram helstu um-
ferðargötum í Garðabæ. Samkvæmt
niðurstöðunum er aðgerða þörf við
um 40 hús í bænum vegna umferð-
arhávaða en í flestum tilvikum má
bæta ástandið með jarðvegsmönum
eða skermveggjum. Þá er lagt til að
sérstaklega verði hugað að leikskól-
um og skólum við Vífilsstaðaveg.
Bæjarráð og bæjarstjórn hafa
fjallað um málið og hefur því verið vís-
að aftur í bæjarráð þar sem lagt er til
að frekari hávaðamælingar verði
gerðar, sem bornar verði saman við
fyrri mælingar. Þá er lagt til að bær-
inn taki upp viðræður við Vegagerð-
ina um úrbætur vegna hávaðameng-
unar.
Óskir um hljóð-
einangrun ítrekaðar
Í greinargerðinni segir að markmið
athugananna hafi verið að leita að
íbúðarhúsum þar sem jafngildishljóð-
stig fyrir sólarhring sé um eða yfir 65
dB.
Við útreikningana er tekið tillit til
fjölda bíla á sólarhring, hlutfall
þungra bíla, hámarkshraða, halla
gatna ásamt vegalengd, lögun og gerð
milli hljóðgjafa og húshliða.
Í mælingum á hávaða frá Hafnar-
fjarðarvegi milli Arnarnesvegar og
Vífilsstaðavegar kemur fram að jafn-
gildishljóðstig sé um og yfir 65 dB á
vesturhliðum allra húsa meðfram
Silfurtúni en mest 63 dB við norður-
og suðurhliðar húsanna.
Hávaði við önnur hús í Túnunum er
lægri.Við Sjávargrund reyndist háv-
aði mestur 64 dB. Hávaði frá Hafn-
arfjarðarvegi milli Vífilsstaðavegar
og Álftanesvegar reyndist 63 til 69 dB
en fram kemur að hljóðstig við mörg
húsanna í grennd, meðal annars við
Löngufit, muni lækka þegar göngu-
brú verður byggð yfir Hafnarfjarðar-
veg með tilheyrandi jarðvegsfyll-
ingum og enn frekar þegar
Hafnarfjarðarvegur verður grafinn
niður í framtíðinni.
Íbúar við Löngufit hafa ítrekað
óskir sínar við bæjarráð um að hljóð-
einangrun verði sett upp milli Hafn-
arfjarðavegar og Löngufitjar. Sam-
þykkt var á bæjarráðsfundi að kynna
niðurstöður athugananna fyrir íbúum
við Silfurtún og Löngufit.
Hávaði of mikill
við skólahúsnæði
Hávaði var mældur frá Vífilsstaða-
vegi og Bæjarbraut. Við Sveinatungu,
þar sem rekin er skólagæsla fyrir 1.
til 6. bekk og æfingaaðstaða fyrir
hljómsveitir, reyndist hljóðstig vera á
bilinu 65 til 66dB, við Garðaskóla voru
gildin nálægt 63dB og við Flataskóla
61 til 62dB. Bent er á að í reglugerð
um hávaða nr. 933 sé kveðið á um að
jafngildishljóðstig megi ekki fara upp
fyrir 60dB fyrir utan glugga á
kennslu- og sjúkrastofum. Segir að
ástæða sé til að skoða þetta nánar.
Eiríkur Bjarnason bæjarverkfræð-
ingur sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að fáir gluggar í kennslustofum
skólanna vísuðu út á umferðargötur
og að aðallega væri um að ræða ganga
skólanna. Á öðrum stöðum meðfram
Vífilsstaðavegi og Bæjarbraut reynd-
ist hávaði minni. Hávaði frá Reykja-
nesbraut milli Arnarnesvegar og Víf-
ilsstaðavegar reyndist mestur vera
við vesturhliðar húsa í Eskiholti næst
Reykjanesbraut eða um 63dB.
Bent er á að leita þurfi lausna fyrir
þessi hús þegar hugað verður að tvö-
földun Reykjanesbrautar. Þá var háv-
aði mældur frá Arnarnesvegi milli
Bæjarbrautar og Reykjanesbrautar
og munu nokkur hús við Nónhæð
væntanlega verða skoðuð nánar í
tengslum við mislæg gatnamót Arn-
arnesvegar og Reykjanesbrautar.
Aðgerða
þörf við 40
hús í bænum
Garðabær
Niðurstöður útreikninga á hávaða
meðfram helstu umferðargötum
UMHVERFIS- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur hefur samþykkt tillög-
ur gatnamálastjóra og Heilbrigðis-
eftirlitsins um aðgerðir til að minnka
neikvæð áhrif svifryksmengunar.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá gera tillögurnar ráð fyrir
því að tekið verið upp gjald fyrir
notkun nagladekka auk þess sem
hugað verði að því hvort steypt slit-
lag geti dregið úr svifryksmengun.
Þá er lagt til að rannsóknir á svif-
ryksmengun verði efldar, meðal ann-
ars með auknum loftmælingum.
Í kjölfar samþykktar umhverfis-
og heilbrigðisnefndar mun borgar-
ráð fjalla um málið og taka afstöðu til
tillagnanna.
Nagladekkja-
gjald sam-
þykkt í um-
hverfisnefnd
Reykjavík