Morgunblaðið - 10.07.2001, Qupperneq 16
VIÐSKIPTI
16 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
VESTURLANDSDEILD Rauða
kross Íslands og félag hjartasjúk-
linga á Vesturlandi færðu Sjúkra-
húsinu á Akranesi höfðinglega gjöf á
dögunum er þau afhentu tækjabún-
að til gjörgæslu hjartasjúklinga. Hér
er um að ræða mjög þarfan búnað,
en hliðstæður tækjabúnaður sjúkra-
hússins var orðinn gamall og erfitt
að viðhalda honum. Áætlað verð-
mæti þessarar gjafar er röskar fjór-
ar milljónir króna og er hér um að
ræða eina stærstu gjöf sem félaga-
samtök hafa fært Sjúkrahúsinu.
Lyflækningadeild Sjúkrahúss
Akraness hefur um áratuga skeið
veitt viðtöku bráðveikum hjartasjúk-
lingum. Þessir sjúklingar hafa eink-
um komið af Vesturlandi og hafa í
auknum mæli komið sjúklingar sem
dveljast í sumarbústaðabyggðum í
nærliggjandi héruðum. Með tilkomu
Hvalfjarðarganga hefur ekki dregið
úr aðsókn þessara sjúklinga nema
síður sé. Flestir fá alla meðferð á
sjúkrahúsinu þar sem kostur hefur
verið að gefa nútíma meðferð. Sumir
sjúklingar með bráðan kransæða-
sjúkdóm þurfa skjótt eftir greiningu
að fá sérstakar rannsóknir og með-
ferð sem aðeins fara fram á Land-
spítalanum við Hringbraut og hefur
verið mjög góð samvinna við deildina
þar og sjúklingar iðulega sendir
þangað í framhaldsrannsókn þegar
svo ber undir.
Til þess að nútíma þekking í
hjartalækningum komi að fullu
gagni þarf nútímalegan tækjabúnað
til gjörgæslu hjartasjúklinga. Bún-
aður sá er nú var afhentur saman-
stendur af hjartahágæslutæki og
fjargæslubúnaði og er mikill fengur
fyrir sjúkrahúsið. Á síðasta ári voru
lagðir inn 209 sjúklingar með hjarta-
sjúkdóm sem aðalsjúkdómsgrein-
ingu á Sjúkrahús Akraness, sem er
um 30% af þeim fjölda sem lagðir eru
inn. Yfirlæknir lyflæknisdeildar er
Þorkell Guðbrandsson og auk hans
starfar Sigurpáll Scheving hjarta-
sérfræðingur á deildinni.
Frá afhendingu gjafarinnar. Þorkell Guðbrandsson yfirlæknir lyflækn-
ingadeildar veitir gjöfinni viðtöku. Með honum á myndinni eru Magnús
Þorgrímsson formaður félags hjartasjúklinga á Vesturlandi og Arin-
björn Kúld fulltrúi Vesturlandsdeildar Rauða Krossins.
Sjúkrahúsi Akraness
gefinn tækjabúnaður
Akranes
MALARVINNSLAN hf. á Egils-
stöðum byggir nú brú yfir Jök-
ulsá í Fljótsdal undan bænum
Brekku. Smiðir steypa hér
millistöpul en með endastöplum
hvílir brúin á sjö, sem eru steypt-
ir ofan á marga steypustaura sem
reknir voru niður í árbotninn.
Stöplarnir sem verið er að steypa
nú eru undir vatnsborði og holum
umhverfis haldið þurrum með því
að dæla stöðugt með stórvirkum
dælum, knúnum af traktorum.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Steypa
brúarstöpul
Norður-Hérað
Framkvæmdir við Jökulsá í Fljótsdal
GRÍMUR Sæmundsen, stjórnarfor-
maður Lyfjaverslunar Íslands, lítur á
áskorun Sturlu Geirssonar, forstjóra
fyrirtækisins, sem vangaveltur og tel-
ur Sturlu draga upp of dökka mynd.
Lárus L. Blöndal, stjórnarmaður í
Lyfjaverslun Íslands, segir fulla
ástæðu fyrir stjórn fyrirtækisins að
taka mark á áskorun Sturlu, sem birt
var í Morgunblaðinu á sunnudag.
Í áskorun Sturlu kemur m.a. fram
að svo gæti farið að verulega verði á
brattann að sækja gagnvart mörgum
af helstu viðskiptavinum Lyfjaversl-
unar Íslands, nái samningurinn um
kaup LÍ á Frumafli fram að ganga.
Einnig að framundan geti verið stefn-
ur og dómstólastríð, hverjar sem
málalyktir verða.
Grímur Sæmundsen, stjórnarfor-
maður Lyfjaverslunar Íslands, segir
tillögu Sturlu að lausn í málinu ólík-
lega sáttaleið, þar sem með því að
falla frá samningi um kaup á Frum-
afli sé aðeins gengið að kröfum ann-
ars aðilans. „Sú ábending Sturlu um
að stefnur og dómstólastríð séu fram-
undan, er að mínu mati mikilvægust
af því sem fram kemur í bréfi hans og
gerir mjög ríka kröfu til málsaðila að
leita ítrustu leiða til sátta,“ segir
Grímur.
Ágreiningurinn að
komast á nýtt stig
Grímur segir að sér sýnist að
ágreiningurinn um Frumafl sé að
komast á nýtt stig. „Allt þar til á síð-
ustu dögum hefur ágreiningurinn
verið um það að Frumafl væri of dýrt
en ekki að menn hefðu ekki áhuga á
að þróa starfsemi Lyfjaverslunar inn
á ný svið. Það kemur mér á óvart ef
viðhorf manna hafa breyst í þessu
efni. Sturla virðist telja
að gangi þessi gjörningur
eftir, hrynji fyrirtækið.
Hann tók þátt í þeirri
stefnumótun að fyrirtæk-
ið víkkaði út starfsemi
sína inn á þjónustusviðið
fyrir mörgum mánuð-
um.“
Í áskorun Sturlu kem-
ur fram að ef kaupin á
Frumafli ganga eftir geti
svo farið að heilbrigðis-
stofnanir muni líta á
Lyfjaverslun sem keppinaut og leita
leiða til að beina viðskiptum sínum
annað. Grímur segir þetta nýtt við-
horf af hálfu Sturlu. Hann segir að áð-
ur hafi verið komist að þeirri niður-
stöðu að það myndi ekki ógna rekstri
Lyfjaverslunar að þróa starfsemina
inn á ný svið.
„Í áskoruninni er Sturla fyrst og
fremst að lýsa áhyggjum sínum og
velta vöngum yfir ástandinu. Sturla
segist skrifa bréfið með hagsmuni
félagsins í huga. Því miður finnst mér
bréfið vera mjög neikvætt fyrir félag-
ið og það kemur mjög á óvart svona
rétt fyrir hluthafafund. Ég hefði hald-
ið að Sturla myndi vanda betur til
ábendinga sinna en hann gerir í þessu
bréfi en að mínu mati málar hann
þetta allt of dökkum litum. Um leið
skil ég að Sturla og starfsmenn fyr-
irtækisins hafa verið uggandi og gíf-
urlegt álag hefur verið á öllum hlut-
aðeigandi.“
Dómstólaleiðin skoðuð
„Það eru þeir sem reka fyrirtækið
sem skora þarna á stjórnina og það er
vissulega ástæða til að hlusta á það
sem þeir segja og taka það alvarlega,“
segir Lárus L. Blön-
dal um áskorun
Sturlu.
Í áskoruninni kem-
ur m.a. fram að um-
rædd kaup á Frumafli
séu mjög illa séð af
stjórnvöldum. „Það
hefur komið fram að
heilbrigðisráðherra
ætlar sér ekki að
einkavæða meira á
þessu kjörtímabili,
stjórnarandstaðan
hefur sett fram sínar skoðanir á þessu
máli og þetta virðist allt á sömu bók-
ina lagt. Ég held að mönnum finnist
það mjög sérkennilegt ef hægt er að
selja þennan samning fyrir einn millj-
arð. Það hefur auðvitað áhrif á hvern-
ig stjórnvöld koma til með að halda
áfram með einkavæðingaráform sín,“
segir Lárus.
Í áskoruninni kemur einnig fram
að stefnur og dómstólastríð virðast
vera framundan, hvort sem samningi
verður rift eða ekki. Lárus segir ljóst
að ef hópurinn sem tilheyrir minni-
hluta stjórnarinnar, þ.e. Lárusi og
Erni Andréssyni, nái ekki þeim ár-
angri á hluthafafundi eða í framhaldi
hans að kaupin verði ógild, verði
skoðað hvaða möguleikar séu fyrir
hendi, m.a. dómstólaleiðin.
Lárus leggur áherslu á að staða
Lyfjaverslunar sé sterk. „Lyfjaversl-
un stendur vel og það sem fram kem-
ur í áskorun Sturlu er ekki til þess
fallið að draga úr þeirri trú minni. Þar
er því eingöngu lýst hvaða áhrif það
hefði á fyrirtækið ef Frumaflssamn-
ingurinn verður keyptur eins og nú-
verandi stjórn hefur lagt alla áherslu
á.“
Stjórnarformaður og stjórnarmaður í LÍ um áskorun forstjóra
Vangaveltur eða
umhugsunar-
verðar ábendingar
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
úrskurðaði í gær að Lyfjaverslun
Íslands og Jóhanni Óla Guðmunds-
syni bæri að taka þátt í að greiða
málskostnað vegna málareksturs
hluthafa í Lyfjaversluninni sem
freistuðu þess að fá lögbann sett á
kaup fyrirtækisins á hlutabréfum í
Frumafli ehf.
Jóhann Óli og LÍ skulu greiða
sóknaraðilum, Lárusi L. Blöndal,
Aðalsteini Karlssyni og Guðmundi
A. Birgissyni málskostnað að fjár-
hæð 200 þúsund krónur.
Upphaflegar kröfur sóknaraðila,
Lárusar L. Blöndal, Aðalsteins
Karlssonar og Guðmundar A.
Birgissonar, voru á þá leið að felld
yrði úr gildi ákvörðun sýslumanns-
ins í Reykjavík frá 20. júní um að
synja um lögbann á samning um
kaup Lyfjaverslunar á Frumafli.
Samdægurs komst á endanlegur
samningur á milli Lyfjaverslunar
Íslands og Jóhanns Óla Guð-
mundssonar um kaup LÍ á Frum-
afli.
Í kjölfarið var fallið frá kröfunni
um að felld yrði úr gildi synjun
sýslumanns á lögbannsbeiðninni
en eftir stóð krafan um að Lyfja-
verslun og Jóhann Óli greiddu
málskostnað og úrskurðaði héraðs-
dómur á þann veg.
Lögmaður sóknaraðila, Lárusar
L. Blöndal, Aðalsteins Karlssonar
og Guðmundar A. Birgissonar,
lýsti því yfir hjá sýslumanni 20.
júní sl. í viðurvist lögmanna varn-
araðila, að málinu væri skotið til
héraðsdóms. Að mati dómsins
hefði sú yfirlýsing átt að vekja
varnaraðila; Jóhann Óla, fulltrúa
Lyfjaverslunar Íslands og lög-
menn þeirra, til vitundar um að
óheimilt kynni að vera að ljúka við
gerð þess samnings, sem lögbann-
ið átti að afstýra að gerður yrði.
„Þótt ekki sé bann lagt við til-
teknum verknaði í lögum, þarf það
ekki ávallt að leiða til lögmætis
hans. Slíkt ræðst af aðstæðum
hverju sinni,“ segir í niðurstöðu
héraðsdóms.
Á móti kæmi að hluthafarnir
gerðu Lyfjaversluninni og Jóhanni
Óla ekki grein fyrir því að þeir
hygðust falla frá öllum kröfum í
málinu, að málskostnaðarkröfunni
undanskilinni, fyrr en í þinghaldi í
málinu 29. júní sl. Þá hefðu lög-
menn varnaraðila unnið að gerð
greinargerða og gagnaöflunar og
varið til þess dýrmætum tíma.
LÍ og Jóhann Óli
greiði málskostnað
MIKIL viðskipti áttu sér stað með
hlutabréf í Lyfjaverslun Íslands á
Verðbréfaþingi í gær. Gengi bréf-
anna hækkaði um 14,8% í 46 við-
skiptum. Heildarviðskipti námu
tæpum 40 milljónum króna.
Lokagengi hlutabréfa LÍ var
6,20.
Hlutabréf Lyfjaverslunar
hækka um 14,8% HORFUR eru á því að afkoma Tangahf. verði undir væntingum fyrstu sex
mánuði ársins. Í tilkynningu til Verð-
bréfaþings segir að lakari afkomu
megi fyrst og fremst rekja til geng-
islækkunar íslensku krónunnar á
árinu og sjómannaverkfalls í vor.
Afkomuviðvör-
un frá Tanga hf.
Í TILEFNI af því sem fram hefur
komið í fréttum Bylgjunnar að
samningi á milli Íslandsbanka og
Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. hafi
verið rift, vill Íslandsbanki koma
eftirfarandi á framfæri: „Markmið
hlutafjáraukningar Íslenska sjón-
varpsfélagsins var að laga stöðu
skammtímaskulda hjá félaginu. Við
upphaf verksins komu aðilar sér
saman um ákveðin tímamörk. Á
þeim tíma sem gefinn var til verks-
ins tókst að ljúka sem nemur 65%
af áætlaðri endurfjármögnunarþörf
félagsins. Var það sameiginlegt mat
Íslandsbanka og forsvarsmanna Ís-
lenska sjónvarpsfélagsins á þeim
tíma, að eðlilegast væri að leita
annarra leiða við öflun frekara fjár-
magns og því er aðkoma bankans
ekki lengur talin þörf. Í kjölfar þess
komust aðilar að samkomulagi um
samningslok. Það er því alrangt
sem komið hefur fram í fjölmiðlum
að umræddum samningi hafi verið
rift.“
Hlutafjárútboð Íslenska
sjónvarpsfélagsins
Samningi við
Íslandsbanka
ekki rift
♦ ♦ ♦