Morgunblaðið - 10.07.2001, Qupperneq 17
UM helgina seldi Goði hf. öll sín vöru-
merki og kjötvinnslur til Norðlenska
sem er í meirihlutaeigu KEA. Kjöt-
vinnslurnar sem um ræðir eru í Borg-
arnesi og við Kirkjusand og Faxafen í
Reykjavík en samanlagt velta þær
um einum og hálfum milljarði og um
hafa um 140 starfsmenn.
Upphaflega stóð til að félögin tvö,
Norðlenska og Goði, yrðu sameinuð
en viðræðurnar fóru út um þúfur í lok
síðasta mánaðar. Ráðamenn félag-
anna eru þó sammála um að hagræð-
ingin sem hefði orðið með sameiningu
náist með þessum samningum. „Aðal-
ástæða sölunnar er að við sjáum mik-
ið hagræði í því að sameina kjöt-
vinnslurnar. Þessi grein býr við mjög
erfið rekstrarskilyrði og því þarf að
nýta öll tækifæri til að hagræða og
það er það sem við erum að gera.
Sameining kjötvinnslnanna er mikil-
vægt skref þar sem það skapar gíf-
urleg samlegðaráhrif. Hvorugur aðili
vildi missa af þeim ávinningi þó svo að
ekki næðist full sameining,“ segir
Kristinn Geirsson, framkvæmda-
stjóri Goða.
Eiríkur Jóhannsson, stjórnar-
formaður Norðlenska og kaupfélags-
stjóri KEA, tekur í sama streng. „Það
hefði verið mjög áhættusamt fyrir
okkur að yfirtaka Goða. Með þessum
samningi náum við fram hagkvæmn-
inni án þess að auka áhættu. Með sölu
á sínum vinnslum og vörumerkjum
nær Goði að tryggja sín verðmæti en
á þó áfram hlutdeild í þeim þar sem
félagið fær greitt með hlutabréfum í
Norðlenska,“ segir Eiríkur. Að sögn
Eiríks nær Norðlenska að nýta eignir
sínar betur með kaupunum.
Í kjötvinnslu Goða á Kirkjusandi
starfa nú rúmlega 40 manns en með
sölunni leggjast öll þessi störf niður.
Hins vegar munu skapast um 20 ný
störf í kjötvinnslum Norðlenska á
Norðurlandi. Framkvæmdastjóri
Norðlenska er Jón Helgi Björnsson.
Hann segir félagið ekki hafa í hyggju
að breyta kjötvinnslum Goða í Faxa-
feni og Borgarnesi en að vinnslunni á
Kirkjusandi verði hins vegar lokað og
verkefnum dreift á aðrar vinnslur.
Hann segir ennfremur nauðsynlegt
að hagræða í þessum erfiða iðnaði í
þeim tilgangi að auka framleiðni.
Með samningnum flytjast öll vöru-
merki Goða yfir til Norðlenska. Eirík-
ur segir þó ljóst að með kaupunum á
Goða eignist Norðlenska of mörg
vörumerki og því og því verði áhersla
lögð á þau sterkustu. Jón Helgi segir
að með kaupunum eignist Norðlenska
sterk vörumerki. „Við lítum á það sem
einn meginstyrk félagsins að hafa yfir
að ráða vörumerkjum eins og Goði,
KEA og fleiri. Við gerum ráð fyrir að
við munum sérhæfa merkin og þá
stendur félagið eftir með nokkur
sterk vörumerki,“ segir Jón Helgi.
Vinnslur og vörumerki
Goða til Norðlenska
Kjötvinnslu á Kirkjusandi hætt og tuttugu ný störf skapast á Akureyri
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 17
Þú eyðir 1/3 hluta
ævinnar í rúminu!
Með því einu að snerta takka getur þú
stillt rúmið í hvaða stellingu sem er.
Með öðrum takka færð þú nudd sem
þú getur stillt eftir eigin þörfum og látið
þreytuna eftir eril dagsins líða úr þér.
Með stillanlegu rúmunum frá Betra Bak
er allt gert til þess að hjálpa þér að ná
hámarks slökun og þannig dýpri og
betri svefni.
...gerðu kröfur um
heilsu & þægindi
20”
THOMSON á betra
verði í BT
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477
Opið: Mán. - fös kl. 10-18
ÞAÐ ER ALLT BRJÁLAÐ
VIÐSKIPTI
SAMHERJI og Síldarvinnslan hafa
stofnað nýtt félag, Sæblik. Hvort
félagið á um 50% hlut í hinu nýja
félagi. Sæblik mun annast sölu á öll-
um frosnum og söltuðum síldar-,
loðnu- og kolmunaafurðum félag-
anna. Þó er Japansmarkaður undan-
skilinn en SH hefur selt fyrir Síld-
arvinnsluna inn á Japansmarkað.
Að sögn Björgólfs Jóhannssonar
forstjóra Síldarvinnslunnar sem verð-
ur framkvæmdastjóri hins nýja félags
mun dagleg stjórnun vera að mestu
leyti í höndum Svanbjörns Stefáns-
sonar gæða- og framleiðslustjóra sem
hefur aðsetur í Neskaupstað og Ein-
ars Eyland sölustjóra sem hefur að-
setur á Akureyri. Björgólfur segir að
með þessu sé verið að ná saman sölu-
og markaðsstarfi á öllum frosnum og
söltuðum síldar-, loðnu og kolmuna-
afurðum félaganna. „Þetta er eðlilegt
skref í að búa til öflugra kerfi í kring-
um sölu- og markaðssetningu afurða
Samherja og Síldarvinnslunnar. Við
teljum að einn anginn sem vantar inn
í íslensk sjávarútvegsfyrirtæki sé
þekking á markaði. Markmiðið með
stofnun þessa fyrirtækis er að bæta
við og byggja upp sölu og markaðs-
þekkingu,“ segir Björgólfur.
SÍF hefur að mestu leyti séð um
sölu á þessum afurðum Síldarvinnsl-
unnar fram að þessu. Björgólfur segir
að það geti vel verið að ekki verði
breyting á sölufyrirkomulagi afurða
Síldarvinnslunar. SÍF geti keppt á
jafnréttisgrundvelli við aðra aðila um
sölu á þessum tilteknu afurðum fyr-
irtækisins. Markmið Síldarvinnslunn-
ar sé að hámarka það verð sem fæst
fyrir afurðirnar félagsins segir Björg-
ólfur.
Áætluð verðmæti afurða sem seld
verða í gegnum Sæblik er um þrír
milljarðar á ári.
Samherji og Síldar-
vinnslan stofna Sæblik
Áætlað
söluverð-
mæti af-
urða 3
milljarðar
♦ ♦ ♦
GJALDÞROTUM og nauðungar-
uppboðum í Danmörku hefur farið
ört fjölgandi á öðrum fjórðungi árs-
ins miðað við þann fyrsta eða um
11% og bendir það til erfiðara
rekstrarumhverfis fyrirtækja, segir
í Politiken. Þegar tölur um fjölda
gjaldþrota fyrirtækja eru bornar
saman á milli ára er útlitið enn
dekkra: gjaldþrotin á öðrum árs-
fjórðungi hafa aukist um 44% miðað
við sama tímabil í fyrra. Aukningin
er ekki bundin við sérstakar atvinnu-
greinar ef frá er talinn byggingar-
iðnaðurinn, en þar fjölgar gjaldþrot-
um um 63% milli ára.
Fleiri gjaldþrot
í Danmörku