Morgunblaðið - 10.07.2001, Qupperneq 18
VIÐ Húnaflóa eru ein stærstu heim-
kynni sela við landið, segir þjóðfræð-
ingurinn og leiðsögumaðurinn Gunn-
ella Þorgeirsdóttir og undir það tekur
skipstjórinn Bragi Árnason sem sigl-
ir út Húnaflóann og stýrir bátnum
Kópi HU 2 frá Blönduósi til þess m.a.
að skoða seli og fugla af ýmsu tagi,
m.a. lunda sem hreiðrar um sig í
björgum víða svo ekki sé minnst á
hvalina sem sýna sig stundum.
Ferðir með Kópi eru nýlunda en
hafa mælst vel fyrir það sem af er
sumri, að sögn áhafnarinnar. Ferð-
irnar verða sér í lagi eftirminnilegar
því fjöldann allan af þjóðsögum kann
Gunnella um svæðið sem siglt er um
og ýmsan fróðleik um selina og
fuglana.
Siglingin tekur um það bil tvær
klukkustundir en á leiðinni er stopp-
að m.a. við fallega hamra, strandstað
varðskipsins Þórs sem fórst á Sölva-
bakkaskerjum árið 1929. Svo er siglt
að Eyjarey sem liggur mitt á milli
Skagastrandar og Blönduóss þar sem
selirnir liggja makindalega ásamt
kópum sínum en rísa upp þegar bát-
urinn nálgast því forvitnir eru þeir og
sumir eru gæfir og nálgast bátinn
hægt en örugglega. Lundinn er þar
einnig í stórum stíl og í hömrunum
eru híbýli fugla; máva, fýls, ritu og
æðarfugls. Gunnella bendir á hreiðrin
og hvernig tegundirnar raða sér í
flokkum á syllurnar, fýlarnir halda
saman og riturnar eru þar skammt
frá.
Sjóstangveiði á
bakaleiðinni
Á leiðinni til baka gefst fólki kostur
á að renna fyrir fisk og stunda sjó-
stangveiði undir tryggri leiðsögn
skipstjórans sem ólst upp við Húna-
flóa. Bragi þekkir vel til byggðar við
flóann fyrr á tímum og lumar á alls
kyns sögum frá fyrri tímum.
Kópur UH2 tekur hámark 19 far-
þega en séu fleiri í hóp er unnt að fara
með helming farþega í einu og stíga á
land á Skagaströnd og snæða jafnvel
hádegisverð í Kántríbæ. Hinn helm-
ingurinn bíður í heimkynnum Hall-
björns eftir að komast í siglingu til
Blönduóss.
Í sumar eru áætlaðar ferðir með
Kópi frá bryggjunni á Blönduósi kl.
10 og kl. 21 daglega en einnig er unnt
að panta ferðir á öðrum tímum.
Upplýsngar og pantanir í
síma 864-4823 og 452-6778
Veffang:www.islandia.is/selir
Selir og kópar í hvíldarstöðu á Eyjarey við Húnaflóa.
Morgunblaðið/Hrönn Marinósdóttir
Ungir jafnt sem aldnir hafa gaman af siglingu um Húnaflóa.
Á selaslóðum
við Húnaflóa
NEYTENDUR
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Minjasafnið er við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal
NEYTENDUR eiga alltaf að geta
séð upprunalegt vöru sem þeir eru
að skoða á útsölum og þannig metið
verðlækkunina sem boðið er uppá.
Anna Birna Halldórsdóttir for-
stöðumaður markaðsmálasviðs hjá
Samkeppnisstofnun segir nauðsyn-
legt að upprunalegt verð vörunnar
komi fram. „Það verður að koma
greinilega fram hvert upprunalegt
verð vörunnar var fyrir útsölu. Hvað
varðar skilareglur eru til leiðbein-
andi reglur fyrir verslanir, útgefnar
af viðskiptaráðuneytinu og Samtök-
um verslunar og þjónustu. Þetta eru
þó aðeins leiðbeinandi reglur og
verslunum því í sjálfsvald sett hvaða
reglum þær fylgja.“
„Reglur um skilarétt gallalausrar
vöru eru ekki til sem slíkar“ segir
Sesselja Ásgeirsdóttir fulltrúi hjá
kvörtunarþjónustu Neytendasam-
takanna. „Þetta er samkomulag sem
gert er og er mismunandi eftir versl-
unum. Það stendur oft á útsöluvör-
um að þeim sé ekki hægt að skila né
skipta, eða að aðeins sé hægt að
skipta meðan á útsölu stendur. Ef
ekkert er tekið fram þarf neytandinn
að spyrjast fyrir um reglur þeirrar
verslunar sem keypt er af.“
Gölluð vara
alltaf í ábyrgð
Aðspurð um reglur varðandi gall-
aðar vörur segir Sesselja: „Gölluð
vara er alltaf í ábyrgð. Það eina sem
getur breytt því er ef varan er seld á
lægra verði vegna þess að hún er
með ákveðinn galla. Þá er gallinn
sjálfur ekki í ábyrgð en varan í
ábyrgð að öðru leyti.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Engar reglur eru til um skilarétt gallalausrar vöru.
Upprunalegt verð
verður að koma
fram á útsöluvöru
FERÐALÖG
Í NÝRRI rannsókn á OTA-hafra-
grjónum, sem unnin var af danska
matvælaeftirlitinu fyrir dönsk neyt-
endasamtök, kom í ljós að í grjón-
unum eru leifar af efninu chlorme-
quat. Efninu er sprautað á
hafraakra til að stjórna vexti
plantnanna. Rannsóknin hefur vak-
ið sterk viðbrögð í Danmörku og
hafa neytendafrömuðir jafnt sem
þingmenn lýst yfir hneykslan á
þessu. Þetta kemur fram á heima-
síðu Neytendasamtakanna
www.ns.is.
Efnið chlormequat er ekki bann-
að í fæðu heldur er það takmörk-
unum háð í Evrópusambandinu.
Samkvæmt heimasíðu Neytenda-
samtakanna sýna tilraunir á dýrum
að efnið getur meðal annars haft
áhrif á eistu karldýra sem éta efnið
auk þess að hafa áhrif á frjósemi
kvendýranna. Leyfilegt magn
chlormequats eru þau sömu í dýra-
fóðri og afurðum ætluðum til mann-
eldis, 2 milligrömm í hverju kílói af
korni en 5 milligrömm í hverju kílói
af höfrum. Í OTA-hafragrjónunum
fundust 2 milligrömm í hverju kíló-
grammi sem er því undir leyfilegum
mörkum fyrir hafra.
Danskir landbúnaðarráðunautar
hafa lengi haft þá stefnu að ekki
skuli nota hálm af korni, sem úðað
hefur verið með chlormequat, í
dýrafóður. Í sama streng taka
svínaræktendur sem segja ekki gott
að nota fóður sem inniheldur efnið.
Segja vöruna
hættulausa
Í fréttatilkynningu frá framleið-
endum OTA-hafragrjóna segir að
það magn sem fannst af chlorme-
quati í þeirra vörum sé langt undir
viðmiðunarmörkum og því algerlega
í lagi að neyta þeirra. Einnig er
bent á að aðrar vörur innihaldi einn-
ig þessi efni, sérstaklega annað
korn og jafnvel ávextir.
Innflytjandi OTA-hafragrjón-
anna er HÓ&B. Alfreð Jóhannsson
sölustjóri ítrekar að þetta sé vel
innan við leyfileg mörk. „Þetta efni
finnst víða, í korni, ávöxtum, kart-
öflum og auk þess í öllum höfrum.“
Gildi undir leyfilegum
hámarksgildum
Að sögn Sjafnar Sigurgísladóttur,
forstöðumanns matvælasviðs Holl-
ustuverndar ríkisins, er leyfilegt
magn chlormequats í vörum hér á
landi það sama og í Evrópusam-
bandinu, eða 2 milligrömm í hverju
kílógrammi af korni en 5 grömm í
hverju kílógrammi af höfrum.
En hver verða þá viðbrögð Holl-
ustuverndar ríkisins?
„Þessi gildi eru öll undir leyfileg-
um hámarksgildum“ segir Sjöfn.
„Þess vegna getum við ekki aðhafst
neitt í málinu. Hámarksgildi 5 milli-
grömm í hverju kílógrammi segir
okkur að allt að því magni er álitið
hættulaust og því ekki ástæða til að
innkalla vöruna þó í henni séu 2
milligrömm í hverju kílói.“
Umdeilt efni í hafragrjónum
FYRIR nokkru var sagt frá því á
neytendasíðu Morgunblaðsins að
foreldrar ungabarna í Danmörku
hefðu verið varaðir við hugsanlegum
ofnæmisvaldandi efnum í blautklút-
um ætluðum ungbörnum. Sam-
kvæmt innihaldslýsingu á þeim tíma
fannst efnið idopropynyl butylcarb-
amate í Pampers Sensitive-blaut-
klútum, en efnið getur valdið ofnæmi
og jafnvel lifrarskemmdum. Þetta
sögðu innflytjendur og framleiðend-
ur Pampers Sensitive á misskilningi
byggt og að pakkningarnar hefðu
verið rangt merktar.
Að sögn Huga Sævarssonar mark-
aðsstjóra hjá Íslensk-ameríska
verslunarfélaginu sem flytur inn
vöruna eru nýjar pakkningar ekki
enn komnar á markað. „Í næstu
sendingu verður þetta rétt merkt.
Við gerum ráð fyrir að rétt merkt
sending verði komin á markað í sept-
ember.“
Hugi segir að klútarnir hafi verið
rannsakaðir og reynt að greina hvort
efnið skaðlega væri í þeim. „Við báð-
um um að þetta yrði rannsakað á Til-
raunastöð Háskóla Íslands í meina-
fræði á Keldum. Þeir gátu staðfest
að klútarnir væru ekki skaðlegir.
Þeir fundu ekki umrætt efni en gátu
þó ekki með sínum mælingum úti-
lokað að það væri í klútunum, eða
eins og segir í skýrslu þeirra: Aðeins
er hægt að segja að það sé minna en
0,001% í vökvanum ef það er til stað-
ar. Til samanburðar má nefna að
hæsta leyfilega magn af efninu í
snyrtivörum í Danmörku er 0,05%.“
Rannsóknin gat því að sögn Huga
útilokað að efnið væri í það miklu
magni að það gæti talist skaðlegt.
„Það góða við þessa rannsókn er að
þó hún sýni ekki fram á að efnið sé
ekki í blautklútunum sýnir hún þó að
ef svo er þá er það nánast ógrein-
anlegt. Því er ekkert til fyrirstöðu að
varan sé á markaði enda komin stað-
festing á því að hún er ekki skaðleg.“
Klútarnir
ekki
skaðlegir
GRUNUR leikur á að rekja megi 3
dauðsföll í Svíþjóð til neyslu á orku-
drykknum Red Bull sem inniheldur
m.a. mikið magn af koffíni. Í 2 til-
vikum létust ungmenni eftir að hafa
blandað drykkinn með áfengi. Þetta
kemur fram í sænska dagblaðinu
Dagens Nyheter. Hópur lækna í
Stokkhólmi hyggst rannsaka hvort
drykkurinn hafi valdið dauða þre-
menninganna en þeir segja að aug-
ljóslega sé varasamt að blanda sam-
an áfengi og Red Bull-drykknum.
Hér á landi hefur, að sögn Stein-
ars B. Aðalbjörnssonar næringar-
fræðings hjá Hollustuvernd, þrisvar
verið sótt um að fá að flytja inn orku-
drykkinn Red Bull.
„Ein umsókn barst árið 1997 og
tvær árið 1998 en í öllum tilvikum
var vörunni hafnað.
Koffínmagnið í drykknum var of
hátt þegar það var borið saman við
reglur sem gilda hér á landi.“
Ollu orkudrykkir dauðsföllum?
Sótt um innflutningsleyfi
hérlendis þrisvar sinnum
Í SUMAR mun þjóðgarðurinn í Jök-
ulsárgljúfrum bjóða upp á göngu-
ferðir með landvörðum.
Alla daga kl. 11 og 14 er farið í
stutta gönguferð um botn Ásbyrgis.
Gönguferðin tekur tæpa klst.
Alla daga kl. 14 er farið í stutta
gönguferð um Hljóðakletta.Göngu-
ferðin tekur um 1–1,5 klst.
Öll kvöld kl. 20:00 er farið í stutt
rölt frá tjaldsvæðinu í Ásbyrgi. Geng-
ið er um nágrenni tjaldsvæðisins og
tekur gangan um 1 klst.
Gönguferðir eru alla daga nema
sunnudaga.
Á mánudögum er gengið frá tjald-
svæðinu í Ásbyrgi um Áshöfðann og
að gljúfrum Jökulsár. Gangan hefst
kl. 14 og tekur um 3 klst.
Á þriðjudögum er gengið frá tjald-
svæðinu í Vesturdal að Karli og Kerl-
ingu og þaðan um Eyjuna í Vestur-
dal. Gangan hefst kl. 14 og tekur um
2–3 klst.
Á miðvikudögum er gengið frá
tjaldsvæðinu í Ásbyrgi og farið upp á
barma Ásbyrgis. Gangan hefst kl. 14
og tekur um 3 klst.
Á fimmtudögum er gengið frá
tjaldsvæðinu í Vesturdal um Hljóða-
kletta og farið á Rauðhóla. Gangan
hefst kl. 14 og tekur um 3 klst.
Á föstudögum er gengið frá tjald-
svæðinu í Ásbyrgi og upp á Eyjuna
sem skiptir Ásbyrgi í tvennt. Gangan
tekur um 2 klst og hefst hún kl. 14.
Á laugardögum er gengið frá tjald-
svæðinu í Vesturdal að Svínadal sem
er gamalt eyðibýli í miðjum þjóðgarð-
inum. Þaðan er gengið að Kallbjargi
þar sem áður var kláfur yfir Jökulsá
og síðan til baka með Jökulsá. Gang-
an hefst kl. 14 og tekur um 3 klst.
Á laugardögum er einnig farið í
gönguferð frá Hljóðaklettum í Ás-
byrgi. Lagt er af stað kl. 13 og tekur
gangan um 4–5 klst. Til að komast í
Hljóðakletta frá Ásbyrgi er hægt að
taka áætlunarbíl sem fer frá Ásbyrgi
kl. 11:40 en æskilegt er að tilkynna
þátttöku deginum áður svo tryggt sé
að laus sæti séu í bílnum.
Þjóðgarðurinn í
Jökulsárgljúfrum