Morgunblaðið - 10.07.2001, Side 19
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 19
Munið söfnunarreikninginn
vegna hæstaréttardóms
nr. 286/1999 og kæru til
Mannréttindadómstóls Evrópu
4 4 4 4 4
í SPRON á Skólavörðustíg.
Nokkur frábær fyrirtæki
1. Þekkt bakarí með tveimur sölustöðum og mörgum föstum, stórum
og öruggum viðskiptavinum. Stöðug söluaukning er og ávallt
hagnaður af rekstri. Góður tækjakostur.
2. Skemmtileg atvinna. Nú eru allir alltaf að ljósmynda út og suður
og nóg að gera hjá framköllunarfyrirtækjunum. Góð og þekkt fram-
köllunarstofa með öllum tækifærum fyrir áhugamenn um ljósmyndir.
Skemmtilegt sjálfstætt fyrirtæki með endalausa möguleika.
3. Ein fallegasta og þekktasta gjafa- og húsbúnaðarverslun borgar-
innar. Flytja inn allar vörur sjálfir. Góð velta sem skilar góðum
hagnaði. Mjög sanngjarnt verð.
4. Blómabúð á frábærum stað í höfuðborginni. Vaxandi velta. Búð
sem gefur af sér góðar og öruggar tekjur. Skemmtileg og litrík
vinna.
5. Lítil hársnyrtistofa með fjórum stólum sem á að seljast ódýrt
því eigandinn er að fara að eiga barn. Nú er rétta tækifærið
að kaupa góða stofu fyrir lítinn pening.
6. Vantar þig aukavinnu? Leikjakassar sem bjóða upp á 70 nýja
og skemmtilega leiki og eru dreifðir víðsvegar um borgina. Góðar
tekjur og hægt að vinna þetta auðveldlega eftir venjulegan vinnu-
dag, bara til að raka saman peningum.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
MJÖG góð loðnuveiði var á miðunum
norður af Halamiðum um helgina og
fylltu skipin sig þar í fáum köstum.
Veiðisvæði íslensku loðnuskipanna
undanfarna daga hefur verið 70–75
mílur norðnorðaustur af Straumnesi
og hafa skipin verið að veiða alveg við
ísröndina, sem liggur um sex mílur
frá landhelgislínunni milli Íslands og
Grænlands.
Leiðindaveður hamlaði hinsvegar
veiðum í gær og voru því fá skip á
miðunum og nokkur á landleið.
Þannig var Sigurður VE á leið til
Vestmannaeyja í gær með um 800
tonn. Samkvæmt löndunartölum
Samtaka fiskvinnslustöðva hafa nú
borist rúm 67 þúsund tonn af loðnu til
íslensku fiskimjölsverksmiðjanna,
þarf af um 54 þúsund tonn frá íslensk-
um skipum.
Loðnan nánast í túnfætinum
Frá loðnumiðunum við Halann er
styst til löndunar hjá fiskimjölsverk-
smiðju Gnáar hf. í Bolungarvík, en
þar er nú búið að landa um 3.500 tonn-
um af loðnu að sögn Einars Jónatans-
sonar, framkvæmdastjóra. Afkasta-
geta verksmiðjunnar er um 700–800
tonn á sólarhring en alls vinna um 15
manns við bræðsluna. Einar segir að
verksmiðjan sé keyrð á fullum afköst-
um þessa dagana.
„Segja má að sumar- og haustver-
tíðin sé okkar tími en við fengum
einnig töluvert af loðnu á síðustu vetr-
arvertíð en þá gekk loðnan vestur fyr-
ir landið öllum að óvörum. Við liggj-
um vel við miðunum á sumrin, enda er
loðnan nánast í túnfætinum hjá okk-
ur. Það er hinsvegar ekki á vísan að
róa þegar sumarloðnan er annarsveg-
ar.
Sumarvertíðin hefur verið fremur
stutt undanfarin ár en vonandi verður
hún ekki eins endasleppt og oft áður.
Við reynum því að bræða eins mikið
og kostur er, loðnan er ágætis hrá-
efni, þótt hún sé ekki eins feit og hún
var fyrir austan. Það leggur samt sem
áður ekki hina svokölluðu „peninga-
lykt“ yfir bæinn, enda er verksmiðjan
vel tækjum búin,“ segir Einar.
Norsk og færeysk skip hafa einnig
verið að loðnuveiðum á miðunum
norðvestur af landinu undanfarnar
vikur. Norskum skipum er heimilt að
veiða samtals 46.054 tonn af loðnu í
efnahagslögsögu Íslands á vertíðinni
og eru þau langt komin með kvótann.
Norsku skipunum er aðeins heimilt
að stunda veiðarnar til 15. febrúar
2002 og norðan við 64°30’N. Allar
veiðar eru bannaðar í fiskveiðiland-
helgi Íslands tímabilið 16. ágúst–15.
september 2001.
Mokveiði var á
loðnumiðunum
Bræla hamlaði veiðum í gær
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Það gefur hressilega yfir loðnuskipin þegar þau sigla á „nösunum“ til
hafnar, eins og sést á þessari mynd sem tekin var um borð í Hörpu VE .
Loðnu dælt um borð í loðnuskipið Hörpu VE frá Vestmannaeyjum á
Halamiðum um helgina.
= "5'"
" ""8/" " '">
% %