Morgunblaðið - 10.07.2001, Blaðsíða 25
fyrr en hún hefur fengið formlegt
erindi þar um.
Hlutverk
Þjórsárveranefndar
Að mati þeirrar sem hér heldur á
penna er Þjórsárveranefnd fengið í
hendur skýrt og vel afmarkað er-
indi í auglýsingunni um friðlandið
og hefur hingað til unnið sín störf
samkvæmt því. En nú virðist
lagaprófessorinn líta svo á, að hún
hafi ekki nægar forsendur til að
vinna sín störf fyrr en Landsvirkj-
un hefur lagt fram nákvæmar til-
lögur um verktilhögun og útfærslu
mannvirkja. Gott og vel, við skul-
um ganga út frá því að lokaniður-
staða um slíka hluti þurfi að liggja
fyrir áður en endanleg ákvörðun
um framkvæmd eða ekki-fram-
kvæmd er tekin. En að ætla að
þagga niður í Þjórsárveranefnd á
þessu stigi málsins er aldeilis frá-
leitt, enda virðist nefndin hafa
verið í nánu samstarfi við Lands-
virkjun varðandi mögulegar fram-
kvæmdir við Norðlingaöldu og
Kvíslaveitur svo árum skiptir. Allt
um það má lesa á heimasíðu
Landsvirkjunar [www.lv.is]. Það er
því grunsamlegt þegar iðnaðarráð-
herra virðist hafa uppi tilburði til
að gera Þjórsárveranefnd tor-
tryggilega, sama dag og Lands-
virkjun tilkynnir að hún hafi
ákveðið að láta framkvæma mat á
umhverfisáhrifum Norðlingaöldu-
miðlunar. Það er vonandi ekki
ástæða fyrir þeim ótta sem læðist
að manni, að það sé ætlunin að
reka fleyg í samstarf Landsvirkj-
unar, Náttúruverndar ríkisins,
Þjórsárveranefndar og viðkomandi
sveitarfélaga, sem við – sem fylgj-
umst með utanfrá höfum verið látin
halda að sé með ágætum. En ef hin
grunsemdin sem vaknar er rétt þá
er alvarleiki málsins jafnvel enn
meiri.
Í miðopnu Morgunblaðsins 22.
júní 2001 er gerð grein fyrir rökum
Landsvirkjunar fyrir því að hefja
hið formlega matsferli nú. Þar
verður ekki annað séð en að
Landsvirkjun telji það ekki lengur
hlutverk Náttúruverndar ríkisins
að segja af eða á um framkvæmdir
á friðlýstum svæðum. Satt að segja
vonar maður að hér sé um ein-
hvern misskilning að ræða því lög
um náttúruvernd eru alveg afdrátt-
arlaus hvað þetta varðar.
Í þeim segir: Leyfi Náttúru-
verndar ríkisins þarf til fram-
kvæmda þar sem hætta er á að
spillt verði friðlýstum náttúruminj-
um.
Nei, það er ekki skrýtið þótt
maður taki þann ótta sem læðist að
manni alls staðar að sem hvatningu
til að herða varðstöðuna um verin.
Þeir eru ófáir sem vilja leggja allt í
sölurnar til að bjarga Þjórsárver-
um frá því að verða virkjana-maníu
stjórnvalda að bráð. Í því sambandi
má rifja upp fjölmennan fund í Ár-
nesi á dögunum, þar sem Gnúp-
verjar ályktuðu að nú væri komið
nóg; nógu fórnað af náttúruverð-
mætum vegna virkjanafram-
kvæmda í Þjórsárverum. Menn
ættu líka að hafa það í huga í þess-
ari umræðu að verndargildi er ekki
flatarmálseining, eins og oft mætti
halda af máli þeirra virkjanaglöðu,
heldur fjársjóður sem fólginn er í
því að koma með himnaríki í aug-
unum til byggða að lokinni dvöl á
stað eins og Þjórsárverum.
Þjórsárver
Hvers virði er friðlýs-
ing, spyr Kolbrún
Halldórsdóttir, ef
mörk hins friðlýsta
svæðis eru ekki heilagri
en svo að flytja megi
þau til eftir þörfum
orkufrekra ráðherra?
Höfundur er alþingismaður.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 25
SIGNÝ Jóhannesdóttir formaður
Verkalýðsfélagsins Vöku í Siglufirði
hefur gert athugasemd við grein,
sem birtist eftir hana í blaðinu síð-
astliðinn laugardag.
Greinin hafði beðið alllengi birt-
ingar vegna rúmleysis í blaðinu og
verða lesendur að lesa greinina í því
ljósi. Signý segir í athugasemd sinni-
að hún hafi orðið mjög undrandi
þegar hún sá að verið var að birta
gamla grein um „efni sem þá var efst
á baugi, en í dag verður að skoða
með augum sagnfræðinnar. Það
hefði verið heldur skárra að birta
greinina með breytingunum. Mér
þætti vænt um að þessari athuga-
semd minni væri komið á framfæri í
blaðinu hið fyrsta, t.d. innan tveggja
daga.
Signý Jóhannesdóttir“
Athuga-
semd
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face