Morgunblaðið - 10.07.2001, Page 43
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 43
SNEMMA í morgun, 9. júlí, hringdi
ég til lögreglunnar í Hafnarfirði og
tilkynnti að ég teldi að á gangstétt-
inni, við götuna þar sem ég bý, væri
hjól sem líklega hefði verið stolið og
skilið þar eftir. Hjólið hefði staðið
þarna ólæst dögum saman á gang-
stéttinni, en ekkert hús er við gang-
stéttina, og kæmi mér ekki á óvart ef
þarna væri hjól sem eigandinn sakn-
aði. Lögreglumaðurinn sem ég talaði
við tók þessa ábendingu niður og
spurði mig síðan um kennitölu, en
þar sem ég er þeirrar skoðunar að
notkun kennitalna sé stórlega ofnot-
uð á Íslandi, auk þess sem ég get ekki
séð að það komi málinu neitt við, vildi
ég ekki gefa honum upp kennitölu
mína. Og viðbrögð lögreglumannsins
við þessari neitun minni voru þessi:
„Þá látum við bara hjólið liggja.“ Og
þar með lauk samtalinu. Vafalaust er
lögreglan í Hafnarfirði með númera-
birti hjá sér og getur séð úr hvaða
númeri er verið að hringja og skráð
það niður, telji hún það nauðsynlegt.
En að sinna ekki ábendingu um mál-
efni sem varðar hugsanlega stolnar
eigur Hafnfirðinga vegna þess að við-
mælandinn vill ekki gefa upp kenni-
tölu sína, finnst mér fyrir neðan allt
velsæmi og svarið vera ruddalegt.
Ég tel mig hafa þann rétt að gefa
ekki upp kennitölu mína ef ég vil það
ekki, en ég tel að lögreglan í Hafn-
arfirði hafi ekki þann rétt að sinna
ekki ábendingum um grun um þýfi
nema að fá kennitölu viðmælanda
síns fyrst.
Nú er mikið talað um að besta
vörnin við innbrotum á heimili sé ná-
grannavarsla og er ég sammála því.
Skiltum hefur verið komið upp í
Hafnarfirði þar sem vakin er athygli
á þessu atriði og er það vel. En geta
íbúar Hafnarfjarðar átt von á sömu
svörum frá lögreglunni í Hafnarfirði
og ég fékk ef þeir tilkynna um eitt-
hvað athugavert við hús nágrannans
en vilja ekki gefa lögreglunni upp
kennitöluna sína? Ef hringt yrði til
lögreglunnar í Hafnarfirði og henni
sagt að verið væri að bera út búslóð
nágrannans og það væri ekki ná-
granninn sem stæði í þeim útburði,
gæti þá svarið ef til vill orðið eitthvað
á þessa leið: Nú, ef þú vilt ekki gefa
okkur upp kennitölu þína þá látum
við bara þessa menn halda áfram að
hreinsa út hjá nágrannanum!
Varðandi hjólið þá tel ég rétt að
upplýsa, ef einhver saknar þess, að
þetta er dökkblátt ALBATROS Uni-
ted gírahjól sem stendur við Glitvang
í Hafnarfirði, því ekki er það hjá lög-
reglunni í Hafnarfirði – hennar
vegna má það bara liggja þarna
áfram úr því hún fékk ekki kennitöl-
una mína.
GUÐMUNDUR ÓSKARSSON
Glitvangi 15, Hafnarfirði.
Hjólið
ennþá í
óskilum
Frá Guðmundi Óskarssyni:
FRÉTTIR
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Ármúla 21,
sími 533 2020
Fagmennirnir þekkja Müpro
Rörafestingar
og upphengi
Allar stærðir og gerðir
rörafestinga og
upphengja
HEILSALA - SMÁSALA
Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til þessarar heill-
andi borgar. Þú bókar tvö sæti til Mílanó þann 27.
júlí, en greiðir bara fyrir eitt, og kemst til einnar
mest spennandi borgar Evrópu á frábærum kjörum. Frá Mílanó liggja
þér allar leiðir opnar um Evrópu og hjá Heimsferðum getur þú valið um
gott úrval 3ja og 4ra stjörnu hótela.
Aðeins 28
sæti í boði
Tveir fyrir einn
til
Mílanó
27. júlí
frá 15.207 kr.
Verð kr. 15.207
Flugsæti á mann, m.v. 2 fyrir 1.
30.414.- / 2 = 15.207.-
Skattar kr. 2.495 ekki innifaldir.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.-
Forfallagjald kr. 1.800.-
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Þar sem garðáhöldin fást
Geri
ð
verð
sam
anb
urð
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd:
Prestsetrasjóður vill koma fram
eftirfarandi upplýsingum vegna
blaðagreinar um lóðarleigu í landi
Útskála.
Með bréfi dags. 13. mars 2000 var
leigutökum á landi Útskála tilkynnt
að lóðarleigusamningar væru út-
runnir og að sjóðurinn hefði ákveðið
að láta útbúa nýja samninga í sam-
ræmi við þá lóðarleigusamninga sem
almennt eru notaðir í sveitarfélaginu.
Í bréfinu var tekið fram hver leigan
yrði á hvern fermetra ásamt því að
leigutaka var tilkynnt hver stærð lóð-
arinnar væri skv. skrám Fasteigna-
mats ríkisins. Í því bréfi upplýsti
sjóðurinn að lóðarleiga fyrir árið 2000
yrði krafin. Í þessu bréfi var leigutök-
um boðið að koma með athugasemd-
ir.
Athugasemdir bárust einungis frá
þremur leigutökum og vörðuðu at-
hugasemdir tveggja um gjaldtökuna
en eins um stærð lóðarinnar. Náðst
hefur samkomulag um að minnka lóð-
ina umtalsvert. Frá upphafi hefur
legið ljóst fyrir að Prestsetrasjóður
ákvað að hafa sama gjald og tíðkast
hjá meirihluta landeigenda í hreppn-
um. Gjaldtaka sjóðsins kom skil-
merkilega fram í bréfinu til leigutak-
anna.
Þar sem ekki bárust frekari at-
hugasemdir var ákveðið að fá bygg-
ingarfulltrúa Gerðahrepps til að út-
búa lóðarbréf í samræmi við eldri
lóðarleigusamninga og skrá Fast-
eignamats ríkisins. Þeirri vinnu lauk
nú á vordögum.
Þann 6. júní sl. var leigutökum sent
nýtt bréf ásamt leigusamningi og
gíróseðlum eins og boðað var í fyrra
bréfi. Í því bréfi var enn á ný óskað
eftir að leigutakar hefðu samband við
lögmann sjóðsins hefðu þeir einhverj-
ar athugasemdir fram að færa.
Eftir það bréf hafa nokkrir leigu-
takar óskað eftir því að lóðirnar yrðu
minnkaðar og er verið að vinna að
því.
Í lok júní sl. óskaði einn leigutaki,
fyrir hönd leigutaka í Útskálalandi,
eftir fundi með forsvarsmanni og lög-
manni sjóðsins. Sá fundur var ákveð-
inn þann 16. júlí nk. og gat ekki orðið
fyrr vegna sumarleyfa. Þetta sam-
þykkti leigutakinn og væntanlega
hefur hann séð um boðun fundarins.
Ljóst er að þannig stóðu málin þegar
leigutakar ákveða að leita aðstoðar
Gerðahrepps og áðurnefnd blaða-
grein birtist.
Það er ljóst að það eru ekki margir
leigutakar sem hafa haft samband við
forsvarsmann eða lögmann sjóðsins
eins og staðhæft er í viðtali við einn
viðmælanda blaðsins.
Athyglisvert er að viðmælandi
blaðsins upplýsir að íbúar séu tilbún-
ir að borga sambærilega lóðarleigu
og aðrir í hreppnum. Það er einmitt
það sem Prestsetrasjóður hefur boð-
ið leigutökum.
Ljóst er að með nýju fasteignamati
lóða í Gerðahreppi er gjaldtaka
Gerðahrepps hærri nú en sú sem
Prestsetrasjóður er að bjóða leigu-
tökum. Það vekur hins vegar undrun
að hreppurinn sem ekki er leigutaki á
landi frá Útskálum muni ætla að
kosta lögfræðilegt álit á lóðarleigu
Prestsetrasjóðs sem búið var áskilja í
bréfi í mars 2000.
F.h. Prestsetrasjóðs,
Bjarni Kr. Grímsson
form. stjórnar.
Athugasemd frá
Prestsetrasjóði
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fimmtudaginn
12. júlí. kl. 19.
Kennsludagar verða 12., 16. og 17.
júlí. Kennt verður frá kl. 19-23.
Námskeiðið telst vera 16 kennslu-
stundir.
Einnig verður haldið 8 kennslu-
stunda endurmenntunarnámskeið
dagana 19. og 23. júlí. Kennt verður
frá kl. 19-22. Notað verður nýtt
námsefni sem RKÍ gaf út fyrir
skömmu. Þátttaka er heimil öllum 15
ára og eldri. Námskeiðin verða hald-
in í Fákafeni 11, 2. hæð.
Námskeið í skyndihjálp