Morgunblaðið - 10.07.2001, Side 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Á leikferð um landið:
$3'+?/ $ !
-
?/:
5 ;?/
,
0?/
*?/ ()
1?/
!" #" $% $&''()&
% *+ "" ,% &-- ..'//**!""0+1!2/!
333 & ( $4 & (
HEDWIG KL. 20.30
Fös 13/7 örfá sæti laus
Lau 14/7 örfá sæti laus
Fös 20/7 nokkur sæti laus
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
Miðasalan er opin frá kl 10-14 í Iðnó og 14-18 í
Loftkastalanum alla virka daga og frá kl. 14 fram
að sýningu á sýningarkvöldum.
Hópasala er í síma 530 3042 og skrifstofusími er
530 3032 eða 530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Lau 14. júlí kl. 20 – NOKKUR SÆTI LAUS
Lau 21. júlí kl. 20 – LAUS SÆTI
Fö 27. júlí kl 20 – LAUS SÆTI
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR
WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason
Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU
Fi 12. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
Fi 19 júlí kl. 20 –LAUS SÆTI
Ath. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Eyjólfur Kristjánsson
í kvöld
HVER er sinnar gæfu smiður segir
máltæki en ég er nú bara ekkert viss
um að ég sé sammála því. Í dag virðist
þetta oft vera; „velgengni foreldra
þinna er þinn gæfu smiður“! Þá
kannski sérstaklega í vestrænu þjóð-
félagi.
Fyrir vikið hefur mótast ný kyn-
slóð svokallaðra „slackera“ – hópur
ungs fólks sem er þess full-
visst að það eigi ekkert tæki-
færi til að öðlast velgengni í
lífinu. Það hefur sér því ekk-
ert skýrt takmark og er í
raun skítsama um allt og alla.
Þessar andhetjur hafa orðið
mjög vinsælar í myndasögum
sem öðrum bókmenntum á
síðastliðnum áratug.
Andhetjurnar láta sig
fljóta frá einum deginum til
þess næsta og eiga í stöðugri
og harðri baráttu við að halda
jafnvægi á milli upplífgandi
og niðurdrepandi upplifana.
Hámark sælunnar er að finna
í frumnautnum mannsins.
Þar af leiðandi eru öll líkam-
leg þægindi vel þegin; borða
góðan mat, ódýrar skemmt-
anir, komast í einhvers konar
vímu. Hámarkinu er svo náð
með sóðalegum skyndikynn-
um. Yfirleitt elska þessar
persónur sjálfar sig of lítið til
þess aðrar eigi einhverja von
um að geta gert það.
Í nýjustu bók sinni gerir Ed Bru-
baker, sem er að móta sér nafn á með-
al athyglisverðustu myndasöguhöf-
unda samtímans, þessa dæmigerðu
bandarísku andhetju sér að umfangs-
efni. Og það er í raun hægt að segja að
Tommy, persónan sem hann gerir að
söguhetju sinni, sé með þeim lágkúru-
legustu sem birst hafa í römmum
myndasagna hans.
Áður en við afgreiðum verkið sem
„ófrumlegt“ og „klisjukennt“ eru
tveir þættir sem við verðum að taka
tillit til. Í fyrsta lagi er þetta safn eldri
verka og í öðru lagi er verkið sjálfs-
ævisögulegt.
Í formála sögunnar opinberar
Brubaker að margir hans nánustu
hafi orðið illa særðir við lestur
myndasögunnar sem á eftir fylgir en
það sé hið dýra gjald heiðarleikans.
Þó viðurkennir hann að hafa aðskilið
sig frá Tommy með nokkrum mynd-
arlegum ýkjum og skemmtilegum til-
búningum.
En þrátt fyrir það lítur út fyrir að
tilvist Ed Brubakers á yngri árum
hafi verið ansi fjarri því að þykja
aðdáunarverð. Bókinni er skipt niður
í nokkrar smásögur sem segja frá
hinum ýmsu „ævintýrum“ Tommys.
Hann hendist áhugalaus frá einni
vinnunni í aðra, klúðrar þeim sam-
böndum sem hann kemst í og er í
raun afar óaðlaðandi maður. Hann er
óheiðarlegur, kemst í kast við lögin og
yfirmenn sína í vinnunni. Samt er
hann alls enginn vitleysingur og það
er kannski það sem gerir hann hvað
hættulegastan.
Eftir að hafa lesið þessa bók öðlast
önnur verk Brubakers aukið gildi þar
sem maður fær á tilfinninguna að
hann þekki þá glæpaheima sem hann
skrifar vanalega um. Hann er greini-
lega góður mannþekkjari og fær í að
skynja kosti og galla persóna. Þar er
hann sjálfur engin undantekning. Ef
til vill hefur hann notað sköpunargáfu
sína til þess að tappa af þeim erjum
sem hafa hrjáð hann og nuddað sam-
viskubiti sínu á pappír með blýanti
sínum.Við verðum bara að vona að
honum líði aðeins betur í dag.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Samviskubit á pappír
A Complete Lowlife eftir Ed Bru-
baker. Gefin út af Top Shelf Pro-
ductions árið 2001. Fæst í mynda-
söguverslun Nexus.
Birgir Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
FJÖLSKYLDUMYNDIN Cats and
Dogs var ívið vinsælli en Scary
Movie 2 meðal bandarískra bíó-
gesta um helgina. Báðar slógu
þær hins vegar við mynd Spiel-
bergs, A.I., sem féll fyrir vikið
niður í þriðja sætið.
Kettir og hundar er brellum
hlaðin grínmynd sem sögð er fyr-
ir alla fjölskylduna. Hún segir frá
hörku orrustu milli katta og
hunda sem beita háþróaðri
njósnatækni til að klekkja hverjir
á öðrum, án minnstu vitneskju
eigenda sinna, mannfólksins. Jeff
Goldblum og Elizabeth Perkins
eru helstu leikararnir úr röðum
mannvera en raddir atkvæða-
mestu katta og hunda í myndinni
eru eign Alec Baldwins, Tobeys
Maguires og Susan Sarandons.
Scary Movie 2 er framhald
grínhrollvekjunnar vinsælu frá í
fyrrasumar, þeirrar sem lofaði að
engin framhaldsmynd myndi
fylgja. Það virðist samt sem áður
vera töluverður áhugi á frekara
hryllingsbulli frá þeim Wayans-
bræðrum.
Það er mál manna að hægt sé
að finna eitthvað við allra hæfi í
bíóhúsunum um þessar mundir,
svo mikil þykir fjölbreytnin. Fjöl-
skyldumynd í fyrsta, grínhroll-
vekja í öðru, vísindaskáldsaga í
þriðja og í því fjórða kemur inn
ný bardagamyndin Kiss of the
Dragon með nýjustu hetjunni úr
þeim geiranum, Jet Li.
Kappakstursmyndin The Fast
and the Furious ætti að skríða yf-
ir 100 milljónir dollara á næstu
dögum og verður þar með sjö-
unda myndin á árinu til að afreka
það. The Mummy Returns stefnir
hins vegar örugglega að 200
milljóna dollara markinu og verð-
ur, þegar og ef það gerist, ein-
ungis önnur myndin á árinu, á
eftir Shrek, til að ná því mikla af-
reki.
!"
#
$ %
&!
'()* +
',)( +
(-)* +
.')/ +
.0.)( +
*.)( +
..()/ +
,0)0 +
/-), +
0)1 +
Fjölskyldumyndin sá við gamanhryllingnum
Talandi
kettir og
hundar
Reuters
Jeff Goldblum og Elizabeth Perkins með Herra Tinkles, valdaóðum
persneskum ketti, í Köttum og hundum.