Morgunblaðið - 10.07.2001, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NAFNIÐ eitt fær mann til að brosa.
Jack Lemmon, sem féll frá fyrir
rúmri viku, var einn af sannkölluðum
gleðigjöfum kvikmyndanna. Oftar en
ekki færði hann með sér sól og yl, var
einstaklega geðfelldur leikari sem
kom fram í einum 100 kvikmyndum.
Bestur var hann þegar persónurnar
voru tregablandnar, líkt og í The Odd
Couple, eða öðrum þræði drama-
tískar, eins og í Lyklinum undir mott-
unni – The Apartment og Some like it
hot, verkunum sem öðrum fremur
munu halda nafni hans á lofti um
ókomin ár. Við minnumst hans gjarn-
an sem óborganlegs hrakfallabálks,
með einstaka hæfileika til að koma
sér í hinar vandræðalegustu kring-
umstæður. Hraðmæltur, ör í hreyf-
ingum, oftar en ekki sem á barmi
minniháttar taugaáfalls. Lemmon
var firnasterkur persónuleiki á tjald-
inu, senuþjófur með einstaklega geð-
þekka útgeislun og það hefur örugg-
lega verið notalegt að vera í návist
hans.
Leiklistin framar kleinubakstri
Lemmon fæddist 1925, í Boston,
þar sem faðir hans stjórnaði kleinu-
hringjaframleiðslu. Einkasonurinn
var ekki á því að taka við kleinu-
bakstri fjölskyldunnar, var kallaður
til að þjóna landi sínu á ofanverðum
stríðsárunum síðari og hóf, að þeirri
reynslu fenginni, nám í herstjórnar-
fræðum við Harvard. Þar kynntist
Lemmon leiklistinni sem tók hug
hans allan; flutti til New York og
stundaði leiklistarnám hjá Utu Hag-
en. Greiddi fyrir skólavistina með því
að spila undir gömlum, þöglum stutt-
myndum í einu af kvikmyndahúsum
borgarinnar.
Síðan hófst þessi venjubundni
slagur í sumarleikhúsum, aukahlut-
verkum á Broadway og sjónvarpi í
beinni útsendingu. Lemmon fór með
aðalhlutverk ásamt Cynthiu Stone,
fyrri eiginkonu sinni, í tveimur sjón-
varpsþáttum. Allt varð þetta til þess
að Columbia bauð honum samning
árið 1954.
Billys þáttur Wilder
Leikarinn stóð nú á þrítugu og
hjólin tóku að snúast. Hann var lán-
aður til Warner og hlaut óskarsverð-
launin fyrir bestan leik í aukahlut-
verki í Mister Roberts, 1955. Nýr,
athyglisverður gamanleikari hafði
kvatt sér hljóðs og leiðin framundan
var greið.
Þáttaskil urðu á ferli leikarans
1959 er samvinna hans og leikstjór-
ans Billys Wilder hófst með klassík-
inni Some like it hot. Hún skilaði af
sér 7 myndum, þ.á m. nokkrum bestu
verkum beggja. Sú næsta, Lykillinn
undir mottunni, kom tveimur árum
síðar og er að margra mati besta verk
þeirra Wilders. Lemmon var aðeins
tilnefndur til óskarsverðlaunanna
fyrir ógleymanlega frammistöðu sína
í báðum myndunum en fékk sárabót í
verðlaunum Bresku kvikmyndaaka-
demíunnar og samtaka kvikmynda-
gagnrýnenda í New York, fyrir bæði
hlutverkin.
Sjöundi áratugurinn var einkar
glæsilegur á ferli Lemmons. 1962 var
hann enn og aftur tilnefndur til ósk-
ars, að þessu sinni fyrir trúverðuga
frammistöðu sem drykkjusjúklingur
í Dögum víns og rósa – Days of Wine
and Roses. Hann hafði betur en Cliff
Robertson (sem hafði farið eftir-
minnilega vel með hlutverkið í beinni
útsendingu í sjónvarpi) í keppninni
um kvikmyndahlutverkið en Robert-
son hafði af honum konuna. Ári síðar
áttu þeir Wilder skínandi endurkomu
með gamanmyndinni Irma La
Douche. Ekki spillti Shirley Mclaine
fyrir í titilhlutverki gleðikonunnar
frönsku sem heillar breyskan lag-
anna vörð (Lemmon). Myndin var
óhemjuvinsæl, ekki síst í Tónabíói
sáluga.
Vinir til æviloka
1966 verða enn tímamót í lífi leik-
arans þegar Wider leiðir þá Walter
Matthau saman í fyrsta sinn, í The
Fortune Cookie, með svo mögnuðum
árangri að þeir félagar áttu eftir að
leika saman í 12 myndum til viðbótar
næstu 32 árin, og verða eitt lífseig-
asta og vinsælasta teymi gaman-
myndanna. Þeir Matthau gerðu jafn-
vel enn betur tveimur árum síðar í
The Odd Couple, sem var tvímæla-
laust toppurinn á þeirra minnisstæðu
samvinnu.
Áttundi áratugurinn hófst með
Kotch, enn einu samstarfsverkefni
þeirra Matthaus. Að þessu sinni leik-
stýrði Lemmon, sem var jafnframt í
eina skiptið sem hann var í því hlut-
verki. Myndin fékk góða dóma, ekki
síst túlkun Matthaus á gamalmenni
sem neitar að hlýða afkomendunum.
1973 fékk Lemmon hin eftirsóttu
óskarsverðlaun fyrir bestan leik í að-
alhlutverki Save the Tiger, hádrama-
tísku og tæpast einu af hans bestu.
Áratugnum lauk hann með drama-
tísku hlutverki í The China Syndr-
ome (’79), ádeilu á beislun kjarnork-
unnar og hættunum sem eru þeirri
orkulind samfara.
Buddy, Buddy (’81), enn eitt sam-
starfsverkefni þremenninganna,
Lemmons, Matthaus og Wilders, var
lítið eftirtektarvert og hádramatískt
hlutverk í Missing, ári síðar, gerði
mun meira fyrir feril Lemmons sem
nú var farinn að nálgast sextugt og
hlutverkunum farið að fækka.
Safarík smáhlutverk
Tíundi áratugurinn gekk í garð
með þremur leikafrekum; í JFK (’91),
fór nettum höndum um píanóið í The
Player, góðri mynd eftir Robert Alt-
man, og var enn betri í Short Cuts,
annarri mynd leikstjórans, tveimur
árum síðar. Langbesta túlkunin var
þó í háalvarlegu hlutverki útbrunnins
fasteignasala í The Glengarry Glen
Ross, vel skrifaðri kvikmyndagerð
Davids Mamet á eigin leikhúsverki.
Heimurinn var ekki búinn að
gleyma Lemmon og Matthau. Þeir
voru komnir undir sjötugt er
Grumpy Old Men, enn einn smellur-
inn, fæddist. Gamla formúlan dugði
enn, og í nokkrar myndir til viðbótar.
Lemmon kveinkaði sér en Matthau
var rustinn í þessari ágætu gaman-
mynd og Grumpier Old Men (’95), My
Fellow American (’96), og enn fóru
þeir á kostum í Out to Sea (’97).
Svanasöngur þessa einstaka tvíeykis,
The Odd Couple II (’97), hefði hins-
vegar mátt missa sín. Langur og
bjartur dagur sólskinsdrengja kvik-
myndanna var að kvöldi kominn.
Lemmon var ýmis sómi sýndur á
lífsleiðinni, var m.a. gerður heiðurs-
meðlimur Bandarísku kvikmynda-
stofnunarinnar (American Film
Institute), árið 1988. Hann var tví-
giftur og eignaðist tvo syni og dóttur.
Stjörnurkvikmyndanna
eftir Sæbjörn Valdimarsson
JACK LEMMON
Reuters
Enginn er fullkominn: Skutlurnar Jack Lemmon, Tony Curtis og
Marilyn Monroe í Some Like It Hot.
Reuters
Jack Lemmon
LYKILLINN UNDIR MOTT-
UNNI – THE APARTMENT
(1960) Ungur starfsmaður (Jack Lemm-
on) lánar forstjóranum (Fred
McMurray) íbúðina sína svo hann
geti gamnað sér með einkaritaran-
um (Shirley McLaine) sem smám
saman heillar blókina upp úr skón-
um. Unaðsleg mynd í alla staði,
gædd hinum bestu „sjaplínsku“ eig-
inleikum; mannleg, hlý, bráðfyndin
og lýkur á farsælan hátt. Listilega
gerð í alla staði, handritið ósvikin
perla, sérstaklega í kaldhæðnislegri
lýsingu á stéttasamfélaginu og af-
vegaleiddu siðferði, jafnframt bráð-
fyndið og skiptir um gír gjörsam-
lega áreynslulaust. Lemmon og
McLaine óaðfinnanleg og myndin
hlaut verðskuldað Óskarinn sem
besta mynd ársins, fyrir leikstjórn
og handrit. Ómissandi.
SOME LIKE IT HOT (1959)
Eitt af meistaraverkum gaman-
myndanna gerist á bannárunum
vestra. Tveir atvinnulausir tónlist-
armenn (Tony Curtis og Jack
Lemmon) verða óvart vitni að
morðunum á degi heilags Valent-
ínusar og fá Mafíuna á hælana. Þeir
dulbúast sem meðlimir í kvenna-
hljómsveit þar sem Marilyn Monroe
er aðalsöngkonan. Ekki eitt, dautt
augnablik. Wilder og handritshöf-
undurinn I.A.L. Diamond, dæla frá
sér hverri drepfyndinni uppákom-
unni afannarri sem þremenningarn-
ir túlka ógleymanlega. Ómissandi.
THE ODD COUPLE (1968)
Bráðskemmtileg gamanmynd,
byggð á feikivinsælu leikriti Neils
Simons um stirða sambúð Jacks
Lemmon, sem er nýfráskilinn í
sjálfsmorðshugleiðingum og sest
upp á vin sinn, og Walters Matthau.
Samvistirnar eru hinar spaugileg-
ustu og gerast ekki illskeyttari milli
karls og konu þar sem Lemmon er
kveinandi og kvartandi yfir sóðan-
um Matthau. Myndin státar af fjöl-
mörgum, óborganlegum atriðum.
Eitt það besta er þegar Lemmon
tekst að rústa kvennafar þeirra
Matthaus með óborganlegu sífri.
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Dundee-leikur á vísi.is
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15. Vit nr. 250 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 249
Hann heyrði að
það væri villt í LA.
hann vissi ekki hversu villt!
Hann heyrði að
það væri villt í LA.
hann vissi ekki hversu villt!
Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Ghostbusters!
Sýnd kl. 6, 8 og 9.30. Vit 235. B.i. 12.
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu.
Dundee er mættur aftur, sprækari en nokkru sinni fyrr í þessari
sprenghlægilegu gamanmynd um ævintýri Krókódíla Dundee.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 242.
Kvikmyndir.com
Hausverk.is
Spot Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr. 236.
Nýi Stíllinn Keisarans
Sýnd kl. 3.45. Vit nr. 213.
The Mummy returns
Sýnd kl. 3.45, 5.30 og 8. Vit 234
Valetine Sýnd kl. 10.20.
B. i. 16. Vit nr. 238
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 6 og 10. B. i. 16.
Keanu Reeves og James Spader eru
fantagóðir í þessum frábæra spennutrylli
í anda Seven
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16
Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi
Frábær hasarmynd sem fór
beint á toppinn í Bandaríkjunum
Stærsta ævintýri sumarsins er hafið
Loksins ný mynd frá
leikstjóra Fucking Ámal.
Sænsk snilld og óborganlegur
húmor sem kemur öllum í gott
skap. Tékkið á þessari.
TILLSAMMANS
betra er að
borða grautinn
saman en
steikina einn
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 12 ára.
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2 Kínversk
kvikmyndahátíð
5.-10. júlí
Vegurinn Heim kl. 8
Sýnd kl. 6 og 10. Sýnd kl. 8.
ÓHT Rás 2
RIEN SUR ROBERT
SV Mbl