Morgunblaðið - 12.07.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MYNDVARPI TIL SÖLU
Mjög öflugur – dregur 35-40 metra
Allar upplýsingar gefur Vilhelm í síma 892 0413
FRAMKVÆMDIR við jarðgöng
milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar
hófust í byrjun vikunnar þegar hafist
var handa við að leggja veg út í ósinn
í Ólafsfirði, en sá vegur verður not-
aður til að hægt verði að undirbúa
smíði brúarinnar yfir ósinn. Starfs-
menn Vegagerðarinnar komu svo í
kjölfarið til að hefja rannsóknarvinn-
una við ósinn.
Þetta er fyrsti sýnilegi vottur þess
að jarðgöngin verði að veruleika.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Starfsmenn Vegagerðarinnar hófust handa við að leggja veg yfir ósinn í
vikunni, en þar með hófust framkvæmdir vegna fyrirhugaðra jarð-
ganga milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.
Vegur lagður út í
ósinn í Ólafsfirði
Vottur um að göng verði að veruleika
REYKJAVÍKURBORG hefur
ákveðið að kaupa tvær slökkvibif-
reiðar af MT-bílum í Ólafsfirði fyrir
slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.
Kaupverðið er um 39 milljónir króna.
MT-bílar áttu lægsta tilboðið í smíði
slökkvibifreiðanna.
Tvö önnur tilboð bárust. Þar var
um innflutta bíla að ræða en þeir hafa
verið nánast einráðir á markaðnum
þar til nú. Bílana á að afhenda árið
2002 og 2003.
Sigurjón Magnússon hjá MT-bílum
segir ánægjulegt og jákvætt að
Reykjavíkurborg skuli hafa ákveðið
að taka tilboði frá innlendu félagi.
Þetta verkefni renni styrkari stoðum
undir starfsemi fyrirtækisins því
smíði hvors bíls taki 6–7 mánuði.
Nú er verið að leggja lokahönd á
smíði stórrar slökkvibifreiðar fyrir
slökkviliðið í Grundarfirði og verður
hún afhent um næstu helgi. Næst á
dagskránni er smíði slökkvibifreiða
fyrir slökkviliðið á Akranesi og í
Ólafsfirði. Þá segir Sigurjón að verið
sé að smíða sýningarbíl til að fara með
um landið. Sigurjón gerir ekki ráð
fyrir að þurfa að fjölga starfsmönnum
þrátt fyrir aukin verkefni en hjá fyr-
irtækinu starfa sjö manns. Hins veg-
ar segir hann að smíði heitra potta og
báta úr trefjaplasti, sem fyrirtækið
var byrjað á, verði slegið á frest, og
starfsmenn einbeiti sér að smíði
slökkvibifreiðanna á næstu mánuð-
um, hvað sem síðar kunni að verða.
Smíðin tekur um 7
mánuði og kaup-
verð er 39 milljónir
Ólafsfjörður
Reykjavíkurborg kaupir
tvo slökkvibíla frá MT-bílum
MIKLIR fagnaðarfundir urðu þeg-
ar dísarfuglinn Dísa komst aftur
heim til sín eftir að hafa verið týnd-
ur í fimm sólarhringa.
Fuglinn, sem er 14 ára gamall,
hefur verið í eigu Brynhildar Egg-
ertsdóttur í 11 ár, en hefur verið í
fóstri hjá afa hennar og ömmu þar
sem hún býr nú í Danmörku. Bróðir
hennar, Einar Már, sem er jafnaldri
fuglsins, hefur einnig verið tryggur
vinur Dísu og tók hann hvarf henn-
ar í síðustu viku nærri sér.
Dísa flaug frá heimili sínu í
Skarðshlíð á miðvikudag í síðustu
viku og sást hún síðar í Kotárgerði,
en það var svo um helgina sem íbú-
ar hússins við Aðalstræti 66 urðu
fuglsins varir í garði sínum og
héldu fyrst að þar væri svala á ferð.
Lögðu þeir mikið á sig við að hand-
sama fuglinn, en án árangurs fyrr
en þeir fóru með lítinn páfagauk í
búri út í garð að þá lét Dísa lokkast
og kom að búrinu. Greinilegt var að
hún var mjög þyrst en að öðru leyti
þokkalega á sig komin eftir margra
kílómetra ferðalög um bæinn síð-
ustu daga.
„Ég er mjög feginn að hún er
fundin, mér fannst óþægilegt að
vita af henni úti og fullt af köttum
út um allt,“ sagði Einar Már.
Dísa fannst
eftir fimm
sólarhringa
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Páfagaukurinn Dísa kominn aft-
ur heim. Hér er hann með glöð-
um jafnaldra sínum, Einari Má.
FJÖGUR tilboð bárust í nýja stóla-
lyftu í Hlíðarfjalli, en bæjarráð sam-
þykkti fyrir nokkru að leita tilboða í
nýja lyftu. Bæjarráð mun í dag,
fimmtudag taka ákvörðun um hvort
ráðist verði í að setja upp nýja lyftu í
stað þeirrar sem fyrir er, en hún er
34 ára gömull og hennar tími liðinn
að sögn Guðmundar Karls Jónsson-
ar forstöðumanns í Hlíðarfjalli.
Leitner á Ítalíu átti lægsta tilboði,
um 87 milljónir króna, þá bauð
Doppelmayr í Austurríki 92 milljónir
króna, tilboð frá Poma Galski hljóð-
aði upp á 99 milljónir króna og Gara
Venta í Sviss átti hæsta tilboðið, 133
milljónir króna.
Guðmundur sagði þetta öll helstu
fyrirtækin á þessu sviði, allt traust
fyrirtæki með góðar lyftur. Tilboðin
hafa verið yfirfarin og er nú verið að
skoða tvö þau lægstu, frá Leitner og
Doppelmayr, en Guðmundur Karl
sagði að verð á lyftunum væri eitt og
flutningsgetan annað. Þannig annaði
stólalyftan frá Leitner 1800 manns á
klukkustund en lyfta Doppelmayr
flytur 2216 manns á klukkustund.
Vetraríþrótta-
miðstöðin á Akureyri
Leitner átti
lægsta tilboð
í stólalyftu
TRÍÓ Reynis Sigurðssonar leikur í
Deiglunni í kvöld, kl. 21.30. Reynir
er slagverksleikari í Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og leikur jöfnum hönd-
um klassíska tónlist, djass og dæg-
urlög. Hann lék á víbrafón á Hótel
KEA á 6. áratugnum við góðan orðs-
tír og leikur á hann á tónleikunum.
Með Reyni leika þeir Eðvarð Lár-
usson á gítar og Birgir Bragason á
kontrabassa en báðir eru hagvanir á
djassvangi Akureyrar og léku á síð-
asta listasumri. Tríóið hefur aflað
sér vinsælda með leik sínum við ýmis
tækifæri, s.s. á tónleikum, í afmæl-
um, í brúðkaupum, á kynningum hjá
fyrirtækjum og við ráðstefnuhald.
Á efnisskránni eru lögin af stofni
blúsins, ballöðunnar, bossanova og
bebops í bland við norrænar alþýðu-
perlur. Aðgangseyrir er 500 kr.
Tríó Reynis
Sigurðssonar
leikur
♦ ♦ ♦
UMSE, Ungmennasamband
Eyjafjarðar, sendir 75 keppend-
ur til leiks á Landsmót UMFÍ
sem stendur yfir á Egilsstöðum
fram á sunnudag, 15. júlí. Auk
þess taka 16 börn á aldrinum 11
til 14 ára þátt í „æskuhlaupi“
sem fram fer í tengslum við
landsmótið.
Mikill meirihluti keppenda
UMSE á mótinu er úr Dalvík-
urbyggð, og má þar nefna
körfuboltalið, blaklið, sundlið,
skákmenn og keppendur í
hestaíþróttum. Þá eru nokkrir
frjálsíþróttamenn héðan sem og
keppendur í starfsíþróttunum
sívinsælu. Meðal keppenda er
Friðgeir Jóhannsson sem nú er
á 81. aldursári, en hann keppir í
hestadómum. Reyndar keppa
fjórir ættliðir á mótinu; Frið-
geir, börn hans Stefán og
Ragnheiður, Ómar sonur Ragn-
heiðar og dóttursonur Stefáns,
Eyþór, sem er 12 ára gamall.
Milli Friðgeirs og langafa-
barnsins Eyþórs eru því tæp 70
ár, og mjög til efs að önnur
íþróttafélög geti státað af ann-
arri eins breidd í keppnishópum
sínum.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Stefán, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Friðgeir, Ómar Sævarsson,
Sævar Ingason og Ragnheiður sem öll taka þátt í landsmótinu.
Fimm ættliðir
á Landsmót