Morgunblaðið - 12.07.2001, Blaðsíða 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 23
Flatur salatfífill („Endevie“ eða
„Esscarol“) gengur ýmist undir
nafninu flatur og sléttblaða sal-
atfífill. Þrátt fyrir nafnið er
hann með hrokknar blaðbrúnir.
Bragðið er svolítið beiskt og því
er þetta salat gjarnan notað
með öðrum salattegundum.
Salatfífill er trefjaríkur eða 4
g/100 g og tiltölulega kalkríkur
eða 100 mg/100 g.
Flatur salatfífill
Trefjaríkt
salat
Klettasalat („Rucola“) er kalk-
ríkt salat eða 160 mg/100 g.
Klettasalat er einnig járnríkt
eða 1,46 mg/100 g.
Klettasalat
Járnríkt
Rauðkál er náskylt hvítkáli og
er nokkuð líkt því í samsetn-
ingu. Það er frekar C-vítamín-
ríkt eða 51 mg/100 g.
Rauðkál
C-vítamín-
ríkt
Rómverskt salat („Romaine“)
hefur einnig verið nefnt bindi-
salat og cos-salat. Blöðin eru
ílöng og minna nokkuð á kína-
kál. Rómverskt salat er
stökkt, safaríkt og bragðgott
og geymist þar að auki lengur
en flestar aðrar gerðir salats.
Það er fremur trefjaríkt og
hentar vel í hrásalat. Innstu
blöðin eru sætari á bragðið en
hin ytri.
Rómverskt salat
Innstu blöð-
in sætari
Rauðlaufssalat („Radicchio“)
er náskylt hvítlaufssalati en er
með áberandi rauðum blöðum
með hvítum blaðstilkum. Það
er einkum notað til skrauts með
öðru salati, en það má steikja,
sjóða, grilla og borða hrátt.
Sum afbrigði þess eru þó hnött-
ótt. Rauðlaufssalat er E-víta-
mínríkara en flest önnur salöt
eða 2,26 mg/100 g.
Rauðlaufssalat
E-vítamín
ríkt
Eikarlaufssalat („Feuille de
chéne“) er dökkrautt og
grænt með tenntum brúnum
og er afbrigði laufsalats. Það
minnir á afbrigði af fífla-
blöðum. Það er bragðgott og
mikið notað í hrásalöt og
skreytingar.
Eikarlaufssalat
Mikið notað
í hrásalat
Brauðbörnin eru í sumarskapi. Nú fylgir boðsmiði
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með öllum Brallara-
brauðum: Pyslu- hamborgara- og samlokubrauðum.
Halli og Brauðbörnin bjóða þér að koma og
skemmta þér í frábærum leiktækjum og heilsa upp
á öll dýrin í garðinum. Láttu sjá þig félagi!
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opinn alla daga frá kl. 10-18.
Sumarglaðningur fylgir öllum Brallarabrauðum í júlí
Boðsmiði í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn
X
Y
Z
E
T
A
/
S
ÍA