Morgunblaðið - 12.07.2001, Side 25
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 25
HÁTÍÐ var haldin í Kerlingarfjöllum
kvöld eitt fyrir skömmu. Tilefnið var
að fjörutíu ár eru liðin frá því þrír eld-
hugar hófu að stunda skíðakennslu í
fjöllunum. Þeir eru Sigurður Guð-
mundsson, Eiríkur Haraldsson og
Valdimar Örnólfsson. Einnig að nýir
eigendur hafa nú gengið til liðs við
það fólk sem hefur staðið að uppbygg-
ingu og rekstrinum í Kerlingarfjöll-
um í áratugi. Drjúgur hópur þessara
unnenda Kerlingarfjalla, sem drifið
hefur staðinn áfram, kom til hófsins
svo og hreppsnefnd og fjallskilanefnd
Hrunamanna ásamt mökum.
Páll Gíslason verkfræðingur, frá
Hofi í Vatnsdal, hafði orð fyrir at-
hafnahópnum sem stendur að rekstr-
inum. Hann rifjaði upp í stórum
dráttum sögu skíðaskólans og upp-
byggingu á staðnum. Þegar mest var
umleikis hjá skíðaskólanum var
starfsfólk 20 til 30 manns og um 100
nemendur. Hann sagði frá þeim fram-
kvæmdum sem hafnar eru og áform-
aðar eru á næstu árum.
Hálendisperla
Páll sagði það álit sitt að Kerling-
arfjöllin væru mesta hálendisperla
landsins til útivistar, þar væri hægt
að gera margt til að laða þangað úti-
vistarfólk. Hann sagði m.a. að draum-
ur rekstraraðila væri að leiða heitt
vatn ofan úr Hveradölum sem er talið
eitt stærsta háhitasvæði landsins.
Nýpurnar svokölluðu, sem skíða-
skólanemendur gistu í á blómatíma
skólans, hafa nú verið gerðar að sjálf-
stæðum einingum með eldunarað-
stöðu og snyrtingu. Í athugun er að
stækka þau hús. Þá yrðu gerðar lag-
færingar á tjaldsvæði og bætt aðstaða
fyrir hestamenn en hún er nokkur
fyrir. Dálítið er um að hestafólk dvelji
í fjöllunum yfir nótt á ferðum sínum
um hálendið. Merktar verða göngu-
leiðir. Vegna snjóleysis nú í sumar
verður ekki um að ræða starfsemi á
skíðasvæðinu en Páll sagði að allir
möguleikar yrðu reyndir í þeim efn-
um næsta vor enda lyftubúnaðurinn
fyrir hendi.
Svæðið fagurt en viðkvæmt
Loftur Þorsteinsson oddviti
Hrunamanna sagði í ávarpi sínu að af-
ar ánægjuleg samskipti, sem aldrei
hefði borið skugga á, hefðu verið á
milli þess kraftmikla fólks sem hefur
séð um reksturinn í Kerlingarfjöllum
undanfarna áratugi og sveitarfélags-
ins sem hefur lögsögu yfir staðnum.
Hann minnti á hve svæðið væri fagurt
en afar viðkvæmt fyrir umferð bif-
reiða, hesta og manna. Ekki mætti
leyfa neins konar umferð utan við
merktar brautir og engum væri betur
treystandi en þeim sem hafa verið og
verða við stjórnvölinn í fjöllunum að
gæta þeirra. Þetta fólk ber virðingu
fyrir þessu landi og dáir það, sagði
Loftur.
Hann sagði einnig að sveitarfélagið
væri með framkvæmdum neðar á af-
réttinum að reyna að opna fjöllin með
vegagerð og viðhalda leitarmanna-
skála.
Hrunamenn virða þessa starfsemi
sem fram fer í Kerlingarfjöllum og
vonast til að hún eigi eftir að eflast og
blómgast sagði Loftur. Hann afhenti
síðan bókina Árnesingar I. Hruna-
menn, tvö bindi árituð sem geyma
margvíslegan fróðleik um Hruna-
mannahrepp og íbúa er þar bjuggu og
eru búsettir nú. Bókin er gjöf til Kerl-
ingarfjallabúa frá íbúum sveitarinnar.
Mikilvægur
ferðamannastaður
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra kom til hátíðarinnar ásamt eig-
inkonu sinni og dóttur. Hann óskaði
rekstraraðilum til hamingju með að
láta drauminn rætast áfram í Kerl-
ingarfjöllum. Það skipti íslenska
ferðaþjónustu miklu máli að slíkri
starfsemi yrði haldið áfram og sjálf-
sagt og rétt að hafa sem flest net úti í
þeim efnum. Það hefur lengi verið
draumur margra að Árskarðsá verði
brúuð og lofaði ráðherrann að það
mál yrði skoðað með heimamönnum á
næstunni. Áin er þó að jafnaði fær öll-
um bílum en getur breytt um ham í
vatnsveðrum og verið varasöm.
Eiríkur Haraldsson, einn frum-
kvöðlanna, sagði í skemmtilegu
ávarpi að hann hefði alltaf séð mikla
möguleika fyrir ferðaþjónustu í Kerl-
ingarfjöllum. Nú með nýjum hópi
manna sem kæmu inn í reksturinn
myndi snjóboltinn stækka og staður-
inn dafna. Haraldur Sveinsson, bóndi
á Hrafnkelsstöðum, rifjaði upp margt
frá fjallferðum og skemmtilegum
samskiptum við Kerlingarfjallafólk á
árum áður. Hann færði staðnum trjá-
plöntur að gjöf frá sér og eiginkonu
sinni Jóhönnu B. Ingólfsdóttur.
Aukin ferða-
þjónusta í
Kerlingar-
fjöllum
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
Kerlingarfjöll eru sérstæð
fjallaþyrping sem rís yfir há-
sléttuna suðvestur af Hofsjökli.
Flatarmál þeirra er um 150 fer-
kílómetrar. Kerlingarfjöll munu
draga nafn af drang einum
miklum eða Kerlingu sem
gnæfir upp úr ljósleitri líparít-
skriðu sunnan í Kerlingartindi í
vestanverðum fjöllunum.
Hæstu tindar eru í 1400 til
1500 m hæð og sést af þeim í
góðu skyggni til hafs fyrir sunn-
an land og norðan.
Netfang www.kerling-
arfjoll.is Símar:
5526500 /8524223
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hópurinn sem staðið hefur vörð um rekstur Kerlingarfjalla um árin
ásamt þeim sem nýlega komu að rekstrinum.
Kerlingarfjöllin hafa stundum verið kölluð hálendisperla landsins. Nýpurnar svokölluðu, sem skíðaskólanemendur gistu í á blómatíma skólans, hafa nú
verið gerðar að sjálfstæðum einingum með eldunaraðstöðu og snyrtingu.
DAGANA 20. til 28. júlí verða sigl-
ingadagar á Ísafirði og nágrenni.
Áhugi landsmanna á kajakasigling-
um hefur aukist mikið undanfarið
og eru siglingadagarnir hluti af Ís-
landsmeistarakeppni Kajaka-
klúbbsins. Stefnt er að því að gera
siglingadagana að árvissum við-
burði á Ísafirði.
Dagskráin hefst með þriggja
daga kajakanámskeiði sem fara
mun fram bæði á sjó og í sundlaug-
inni. Slegið verður upp bátaballi í
Ögri við Ísafjarðardjúp og vænt-
anlega verða skútur, hraðbátar,
farþegabátar og kajakar á staðn-
um. 24. júlí stendur svo Kajaka-
klúbburinn fyrir þriggja daga ferð
í Jökulfirði.
Siglingadagarnir enda með kaj-
akakeppni. Keppt verður í fimm og
tíu kílómetra vegalengdum í karla-
og kvennaflokkum. Lengri keppnin
verður póstaleikur með léttu ívafi
og keppendur látnir leysa þrautir á
láði og legi á leiðinni. Að lokum
verður svo baujurall á Pollinum á
Ísafirði. Þar keppa allir saman á
stuttri vegalengd með mörgum
beygjum og má búast við miklum
hamagangi og skemmtun fyrir
bæði keppendur og áhorfendur.
Siglingadagar
fyrir vestan