Morgunblaðið - 12.07.2001, Qupperneq 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Verð frá
kr. 140 þúsund,
4-8 manna.
HEITIR POTTAR
Á GÓÐU VERÐI!
Skeifan 7, sími 525 0800
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Nýkomin í sölu glæsileg 3ja - 4ra
herb. 87 fm íbúð á tveimur hæðum.
Góð stofa, opið eldhús, 2 baðherb.,
sjónvarpshol og 2 góð svefnherbergi.
Stórar suðaustursvalir með miklu
útsýni. Þvottaaðst. í íb. Flísar á
gólfum. Hús í góuð ástandi að utan.
Verð 12,9 millj.
Rekagrandi
FRANSKIR rannsóknardómarar, sem eru að
rannsaka meint fjármálaspillingarmál sem teng-
ist Jacques Chirac Frakklandsforseta, færðu
rannsóknina skrefi nær forsetanum í gær, er
þeir kölluðu dóttur hans, Claude, til yfirheyrslu í
málinu, sem snýst um dýrar orlofsferðir sem
Chirac fór í ásamt sínum nánustu á tímabilinu
1992–1995, þegar hann var enn borgarstjóri Par-
ísar, og greitt var fyrir með reiðufé.
Þróun rannsóknarinnar hefur magnað upp
þrýsting á forsetann, sem enn hefur ekki tjáð sig
opinberlega um málið. Setur þetta Chirac í klípu,
svo skömmu áður en hann heldur Bastilludags-
ávarp sitt til þjóðarinnar í beinni sjónvarps-
útsendingu nú á laugardaginn, 14. júlí.
Fram að þessu hafði enginn eins nákominn
Chirac verið yfirheyrður við rannsókn málsins,
en nú þegar búið er að kalla dóttur hans fyrir er
talið mjög líklegt að forsetafrúin Bernadette
Chirac verði einnig kölluð til að bera vitni. Par-
ísarblaðið Le Monde hafði eftir heimildarmönn-
um úr innsta samstarfsmannahring forsetans, að
verði forsetafrúnni stefnt til yfirheyrslu yrði litið
á það sem „stríðsyfirlýsingu“.
„Flugmiðahneykslið“ er það nýjasta í röð spill-
ingarásakana á hendur Chirac, en hann hefur
ekki þurft að tjá sig formlega um neinar þeirra
vegna stjórnarskrárvarinnar friðhelgi þjóðhöfð-
ingjans. En rannsóknadómararnir vilja komast
til botns í því hvaðan féð var upprunnið sem not-
að var til að greiða fyrir ferðir borgarstjórans
fyrrverandi. Fyrir 20 ferðir, sem Chirac og hans
nánustu fóru meðal annars til Máritíus, New
York og Japans á tímabilinu 1992–1995, voru
greiddar sem svarar yfir 31 milljón króna í
reiðufé. Rannsakendur málsins vilja fá úr því
skorið hvort hér geti verið um fé að ræða sem
byggingarfyrirtæki í París hafi greitt borgar-
stjóranum þáverandi í því skyni að „liðka fyrir“
ábatasömum byggingasamningum við borgaryf-
irvöld.
Claude Chirac, sem vinnur sem ráðgjafi föður
síns forsetans, var yfirheyrð í eina klukkustund í
gærmorgun, eftir því sem forsetaskrifstofan
greindi frá. Lögfræðingur var ekki í fylgd með
henni.
Samkvæmt heimildum útvarpsstöðvarinnar
France Info var Claude Chirac sérstaklega
spurð út í tvær ferðir, þar á meðal lúxusskreppi-
ferð með Concorde-þotu frá París til New York
sem kostaði 119.000 franka, andvirði yfir 1,5
milljóna króna.
Talsmenn forsetans hafa sagt, að hluti fjárins
sem notað var til að greiða fyrir ferðirnar kæmi
úr löglegum „ráðherrabónussjóði“ sem Chirac
hafi haft tilkall til er hann var forsætisráðherra
á árunum 1986–1988.
Dóttir Jacques Chirac yfirheyrð í tengslum við fjármálahneyksli
Rannsóknin færist
nær forsetanum
Reuters
Claude Chirac og móðir hennar, for-
setafrúin Bernadette Chirac, tala við
Jacques Chirac Frakklandsforseta á ferða-
lagi á Indlandshafseynni Réunion fyrir
fjórum árum.
París. AP.
LÖGREGLAN í Washington hóf
húsleit hjá Gary Condit, sem á sæti í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings, seint í
fyrrakvöld í tengslum við rannsókn á
hvarfi lærlingsins Chandra Levy.
Lögreglan segir enn of snemmt að
segja til um hvort húsleitin
muni gefa upplýsingar um
hvarf konunnar.
Tekin var ákvörðun um
húsleit eftir að lögmaður
Condit, Abbe Lowell, hét
fullri samvinnu við lögregl-
una varðandi rannsókn
málsins. Þá mun lögreglan
einnig taka DNA-sýni úr
þingmanninum til rannsókn-
ar en lögmaður hans heim-
ilaði bæði húsleit og að hann
myndi leggja fram DNA-
sýni.
Dularfullt hvarf Levy hef-
ur vakið mikla athygli fjöl-
miðla eftir að sá orðrómur
komst á kreik að hún hefði átt í ást-
arsambandi við Condit. Hann neitaði
ástarsambandinu í upphafi rann-
sóknarinnar og kvað þau Levy aðeins
hafa verið „góða vini.“ Þingmaðurinn
viðurkenndi síðar í yfirheyrslum hjá
lögreglu að hafa átt í ástarsambandi
við Levy allt fram að hvarfi hennar.
Condit er þó ekki grunaður um sak-
næmt athæfi.
Íhugar að taka lygapróf
Lögreglan hefur yfirheyrt Gary
Condit þrisvar sinnum og vill nú að
hann gangist undir lygapróf. Að sögn
Charles Ramsey, lögreglustjóra í
Washington, er farið fram á þetta til
að hægt sé að staðfesta sannsögli
Condits um hvarf stúlkunnar. „Við
viljum vita í eitt skipti fyrir öll hvort
það borgar sig fyrir okkur að halda
rannsókn málsins áfram í þessa átt.“
Lowell sagði þingmanninn tilbúinn
að íhuga það að gangast undir lyga-
próf þrátt fyrir að lögmaðurinn hefði
efasemdir um áreiðanleika slíkra
prófa. Lögmaðurinn hvatti jafnframt
til þess að fjölmiðlar létu Condit og
fjölskyldu hans í friði og einbeittu sér
þess í stað að vísbendingum sem
gætu leitt til lausnar málsins.
Gary Condit er 53 ára gamall og
kvæntur en Levy er 24 ára og
var lærlingur hjá fangelsismála-
stofnun í Washington. Ekkert
hefur til hennar spurst frá 30.
apríl. Lögreglan í Washington
hefur margendurtekið að hún
hafi enga ákveðna kenningu um
hvað orðið hafi af Levy.
Condit sakaður um að
hvetja til meinsæris
En hvarf Levy er ekki eina
vandamál Condits um þessar
mundir. Flugfreyja að nafni
Anne Marie Smith fullyrðir að
þau Condit hafi átt ástarfundi
skömmu eftir hvarf lærlingsins en að
þingmaðurinn hafi beðið sig að und-
irrita falska yfirlýsingu um að þau
hafi ekki átt í ástarsambandi. Condit
hefur neitað því að hann hafi beðið
nokkurn um að veita misvísandi upp-
lýsingar. Þá hefur einn lögmanna
hans, Joe Cotchett, fullyrt að yfirlýs-
ing, sem Smith hafi verið afhent, hafi
einungis verið uppkast sem hún hafi
verið hvött til að breyta ef hún sæi
ástæðu til.
Húsleit gerð hjá Gary Condit vegna hvarfs Chandra Levy
Gengst undir lygapróf
Washington, AFP. AP. The Washington Post.
Chandra Levy Gary Condit
SKÝRT var frá því í gær að þjóð-
arframleiðsla í Singapore hefði enn
minnkað á síðastliðnum ársfjórð-
ungi, nú um 10,1%. Á fyrsta fjórð-
ungi minnkaði hún um 11% og er því
ljóst að samkvæmt hefðbundnum
skilgreiningum hagfræðinga ríkir nú
samdráttur í Singapore en þar er
einn af helstu verðbréfamörkuðum
Asíu. Sumir sérfræðingar óttast að
minnkandi hagvöxtur í Bandaríkjun-
um og Evrópulöndum geti innan tíð-
ar valdið sams konar þróun víðar í
Asíu en aðrir draga þó úr óttanum.
Nokkir segja að fari svo að tvö ríki
sem eiga nú í miklum efnahagsvanda
og skulda mikið, Argentína og Tyrk-
land, geti ekki greitt afborganir af
erlendum lánum sé hætta á ferð.
Áhrifin gætu valdið ölduhreyfingu í
efnahagskerfi heimsins.
Dagblaðið International Herald
Tribune hafði í gær eftir embættis-
manni í bandaríska fjármálaráðu-
neytinu, John Taylor, að hættan
væri lítil á almennum samdrætti í
heiminum og þar sæju menn ekki
margar vísbendingar um að erfið-
leikarnir myndu breiðast út með
sjálfvirkum hætti.
Deilt um gengi dollara og evru
Eitt af því sem veldur áhyggjum
er að evran, sem féll hratt fyrst eftir
að hún var tekin í notkun í janúar
1999, hefur enn látið undan síga í
samanburði við Bandaríkjadollara.
Ósamkomulag virðist ríkja um mat á
gengismálum meðal helstu stjórn-
enda í bankamálum. Eddie George,
seðlabankastjóri Bretlands, sagði
nýlega að staða dollarans gerði
bandarískum útflutningsfyrirtækj-
um erfitt fyrir en drægi samtímis úr
neyslu í evrulöndunum tólf.
Dagblaðið Financial Times full-
yrðir að margir af helstu ráðamönn-
um í seðlabönkum Evrópu og Banda-
ríkjanna séu sama sinnis og George.
En yfirmaður seðlabanka Evrópu
(ECB), Hollendingurinn Wim Duis-
enberg var, að sögn Financial Times,
ósammála. „Evran er ekki veik, hún
er mjög stöðug,“ sagði Duisenberg.
Evran hækkaði á mörkuðum á
þriðjudag en lækkaði síðan aftur, að
sögn vegna orða Duisenbergs.
Skýrt frá minnkandi þjóðarframleiðslu í Singapore
Uggur vegna efnahags-
samdráttar víða um heim
BRETINN Brian Milton, sem fyrir
þremur árum átti viðkomu á Íslandi
undir lok hnattferðar sinnar á fisi,
brotlenti fisi sínu rétt eftir flugtak á
Nýfundnalandi um helgina, þaðan
sem hann ætlaði sér að fljúga í einum
áfanga yfir Atlantshafið til Írlands.
Kanadísk stjórnvöld höfðu neitað
Milton um leyfi til að reyna flugtak á
fisinu en hann hafði bætt stórum
eldsneytisgeymi á fjaðurvigtarflug-
vélina. Viðbótarþyngdin varð til þess
að Milton tókst ekki að ná nægilegri
flughæð eftir flugtakið sl. laugardag
til að komast hjá því að rekast á tré
sem urðu í vegi hans. Fisið er mikið
skemmt eftir brotlendinguna en
Milton sjálfur komst svo gott sem
ómeiddur frá henni, eftir því sem
brezka blaðið The Times greinir frá.
Ætlun Miltons var að leika eftir
flug brezku frumherjanna Johns Al-
cock og Arhuts Brown, sem flugu frá
sama stað á Nýfundnalandi til Ír-
lands árið 1919. Hafði hann safnað
sem svarar yfir tíu milljónum króna í
áheit og reyndi að stelast til að kom-
ast undan flugtaksbanninu með því
að hella í skjóli myrkurs 416 lítrum
af eldsneyti á tanka flygildisins á
Exploits-flugvelli við Botwood á Ný-
fundnalandi.
Reyndi Atl-
antshafs-
flug á fisi
♦ ♦ ♦
HUGMYNDIR um tveggja mánaða
ferð norsku seglskútunnar Pauline til
Hvítahafsins virðast nú vera runnar
út í sandinn, því ráðuneyti efnahags-
mála í Moskvu hefur skyndilega neit-
að henni um leyfi til að koma að höfn í
Arkangelsk.
Skútan var smíðuð árið 1897 og
siglingin, sem átti að ljúka við Hvíta-
haf, hófst í lok júní í Þrándheimi.
Markmiðið með ferð Pauline var að
vekja athygli á árangri sem náðst hef-
ur í umhverfismálum með samstarfi
landa sem liggja að Norður-Íshafinu.
Rússneskir embættismenn hafa verið
með í ráðum við undirbúninginn, sem
staðið hefur í tvo mánuði, en umhverf-
isráðuneytið í Ósló skipulagði ferðina.
Um 30 blaðamenn áttu að fara með.
Talsmaður norska umhverfisráðu-
neytisins í Ósló tjáði Aftenposten að
Rússar væru andvígir því að blaða-
menn væru um borð. Norskum ráða-
mönnum er sagt á bak við tjöldin að
raunverulega ástæðan fyrir banninu
sé að verið er að hefja aðgerðir til að
lyfta flaki kjarnorkukafbátsins Kúrsk
af botni Barentshafs og svæðið sé því
lokað. „En við vitum að skemmti-
ferðaskip hafa fengið leyfi til að sigla
um þessar slóðir svo að það hljóta að
vera aðrar ástæður fyrir því að okkur
er hafnað,“ segir talsmaðurinn.
Rússar stöðva
för seglskútu
Ósló. Morgunblaðið.