Morgunblaðið - 12.07.2001, Qupperneq 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 29
VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti
hefur lýst sig andvígan endurupp-
töku dauðarefsinga í Rússlandi,
þrátt fyrir víð-
tækan stuðning
við þær meðal
þjóðarinnar.
„Ríkið getur
ekki tekið sér rétt
til að binda enda
á líf manna, að-
eins almættið
hefur það vald,“
sagði Pútín í
ávarpi á fundi
með evrópskum dómsmálasérfræð-
ingum í Kreml. „Ég get tjáð ykkur
fortakslaust að ég er andvígur því að
dauðarefsingar verði teknar aftur
upp í Rússlandi,“ bætti forsetinn við.
61% Rússa fylgjandi
dauðarefsingum
Bann var lagt við framkvæmd
dauðarefsinga í Rússlandi árið 1996
en það var skilyrði fyrir inngöngu
landsins í Evrópuráðið. Dómstólarn-
ir dæma sakamenn þó enn til dauða
enda hefur refsingin sem slík ekki
verið numin úr lögum.
Víðtækur stuðningur er við
dauðarefsingar meðal stjórnmála-
manna og þjóðarinnar allrar en sam-
kvæmt nýlegri skoðanakönnun er
61% Rússa hlynnt þeim. Á undan-
förnum vikum hafa auk þess þjóð-
kunnar persónur á borð við dóms-
málaráðherrann Júrí Sjaíka og
Nóbelskáldið Alexander Solsjenitsj-
ín hvatt til þess að dauðarefsingar
verði aftur teknar upp yfir hryðju-
verkamönnum.
Pútín sagði í ávarpi sínu að hann
skildi þennan stuðning að nokkru
leyti, enda hefði öngþveiti ríkt í
landinu eftir hrun kommúnismans
og tilræði tsjetjsenskra hryðju-
verkamanna hefðu orðið hundruðum
Rússa að bana á undanförnum árum.
„En þessi skoðun byggir ekki á
skynsemi,“ sagði forsetinn. „Sem
löglærður maður geri ég mér grein
fyrir að herðing refsinga útrýmir
ekki glæpum.“
Pútín kveðst andvíg-
ur dauðarefsingum
Moskva. AFP, AP.
Vladímír
Pútín
FERÐAMÁLARÁÐHERRA Rúmen-
íu, Matei Dan, tilkynnti nýlega að til
stæði að byggja nýjan fjölskyldu- og
skemmtigarð tileinkaðan Vlad Te-
pes, sem er betur þekktur sem Dra-
kúla.
Vlad Basarab, prins í rúmenska
héraðinu Vallakíu á fimmtándu öld,
var sonur Vlads Dracul og kallaði
sjálfan sig Vlad Draculea eða „son
Draculs“. Viðurnefnið Tepes,
„stjaksetjari“, fékk hann eftir að
hann lést en hann var þekktur fyrir
að taka óvini sína af lífi með því að
stjaksetja þá.
Írski höfundurinn Bram Stoker
gerði nafnið Drakúla frægt með
samnefndri skáldsögu sinni sem
kom út árið 1897. Fyrir utan við-
urnefnið Drakúla og þjóðernið er
fátt sem vampíran Drakúla og Vlad
Tepes eiga sameiginlegt. Prinsinn
drakk ekki blóð og er álitinn þjóð-
hetja í Rúmeníu vegna þess hve öt-
ullega hann barðist gegn óvinum
þjóðarinnar; Tyrkjum, Söxum og
Búlgörum.
Skemmtigarðurinn verður
byggður í fæðingarbæ Vlads Tepes,
Sighisoara, í Transylvaníu og búast
ferðamálayfirvöld við að hann muni
draga til sín milljónir túrista. Efna-
hagur Rúmeníu er mjög bágborinn
og vonast menn til að garðurinn
muni bæta þar nokkuð úr. „Garð-
urinn mun skapa um 3000 ný störf,“
sagði ráðherrann. „Goðsögnin um
Drakúla er til, við viljum pakka
henni fallega inn og selja túristum
hana.“
Elisabeth Miller, prófessor í Dra-
kúlafræðum, hefur hins vegar
áhyggjur af því að garðurinn muni
fórna sagnfræðilegum sannindum
fyrir ferðamannafé. „Verður þetta
hallærislegur skemmtigarður þar
sem eyrum Mikka Músar er skipt út
fyrir vampírutennur?“ Miller segist
halda að hægt sé að gera þetta vel
en aðstandendur garðsins verði að
gera skýran greinarmun á Vlad
prinsi og vampírunni Drakúla.
Matei Dan segist ekki hafa áhyggj-
ur af slíkum efasemdarröddum. „Ég
er raunsæismaður. Þetta er frábært
verkefni,“ sagði ráðherrann.
Nýr skemmtigarður í Rúmeníu
Drakúlaland
Búkarest. AFP.
Vlad Tepes, prins af Vallakíu
1456-1462 og 1476.