Morgunblaðið - 12.07.2001, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 31
Ath Sendum í póstkröfu.
Laugavegi 18b Sími 562-9730 Fax 562-9731
Kringlunni Sími 568-0800 Fax 568-0880
Akureyri Sími 462-7800 Fax 462-7801
Grænt númer 800-5730
ALLAR
SUMARVÖRUR
MED ALLT AD
60%
AFSLÆTTI
Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til þessarar heill-
andi borgar. Þú bókar tvö sæti til Mílanó þann 27.
júlí, en greiðir bara fyrir eitt, og kemst til einnar
mest spennandi borgar Evrópu á frábærum kjörum. Frá Mílanó liggja
þér allar leiðir opnar um Evrópu og hjá Heimsferðum getur þú valið um
gott úrval 3ja og 4ra stjörnu hótela.
Aðeins 28
sæti í boði
Tveir fyrir einn
til
Mílanó
27. júlí
frá 15.207 kr.
Verð kr. 15.207
Flugsæti á mann, m.v. 2 fyrir 1.
30.414.- / 2 = 15.207.-
Skattar kr. 2.495 ekki innifaldir.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.-
Forfallagjald kr. 1.800.-
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
MEÐ skírskotun til sögunnar um
hrun borgarmúra Jeríkóborgar var
Mozart hræddur við básúnuhljóm-
inn og lengi vel hugðu
menn básúnuna ekki
henta vel í sinfóníu-
hljómsveit og mun
Tuba mirum þátturinn
í Sálumessu Mozarts
og lokakaflinn í
fimmtu sinfóníu
Beethovens vera með
fyrstu dæmunum um
notkun básúnu í sin-
fónískum verkum
klassískra tónskálda.
Mjög snemma var bás-
únan eini lúðurinn þar
sem allur hinn króma-
tíski tónstigi var til-
tækur og hljóðfærið í
margvíslegum gerðum
mikið notað á 16. og
17. öld. Með þróun í smíði strengja-
og tréblásturshljóðfæra vék básún-
an úr forystuhlutverki sínu sem
hljómsveitarhljóðfæri og átti svo
ekki afturkvæmt fyrr en á 19. öld-
inni og ekki vel fyrr en með risa-
stórum hljómsveitum rómantíska
tímans, í verkum tónskálda eins og
Berlioz sem vildi hafa 16 básúnur í
einu verka sinna. Sá þrumuhljómur
sem framan af var helst talinn ein-
kenni básúnunnar er ekki lengur
ráðandi því básúnuleikur nútímans
býður upp á einhvern fallegasta og
þýðasta hljóm sem framkalla má á
málmblásturshljóðfæri.
Ungur básúnuleikari, Ingibjörg
Guðlaugsdóttir, hélt tónleika í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar sl.
þriðjudag og til aðstoðar henni var
Þorsteinn Gauti Sigurðsson.
Tónleikarnir hófust á sónötu í c-
moll eftir Telemann, sem upphaf-
lega var samin fyrir flautu, og mátti
greina að liðleiki tónlínunnar hent-
aði ekki þungri færð-
inni á básúnunni svo
að leikur Ingibjargar
var ekki fyllilega í
jafnvægi; bæði of
sterkur fyrir leikandi
tónmál verksins og
auk þess gætti nokk-
urs taugaóstyrks.
Það brá til hins
betra í fantasíu eftir
Zygmunt Denis Antoni
Stojowskí (1869–1946),
pólskan píanista og
tónskáld sem lærði hjá
Zelenskí og Pade-
rewskí í Póllandi og
Delibes og Massenet í
París en starfaði seinni
hluta ævinnar í New
York. Þetta er moderne-rómantískt
verk og þarna var tónmálið sniðið
fyrir syngjandi tón básúnunnar og
var leikur Ingibjargar í góðu jafn-
vægi. Morceau symphonique, eftir
franska flautuleikarann Philippe
Gaubert (1879–1941), var næst á
efnisskránni og eru þessir sinfón-
ísku molar töluvert tónverk og m.a.
ýmislegt að gerast í píanóröddinni,
þótt merkja mætti að ekki hafði
gefist mikill tími til samæfinga og
samstillingar í styrk. Þetta var
nokkuð áberandi í lokaverki tón-
leikanna, sónötu eftir Hindemith, en
þar var píanóið einum of hljóm-
frekt, með á köflum mikilli notkun
pedals svo að jafnvel básúnan hafði
ekki í fullu tré við píanóið. Annar
þátturinn, sem er sérlega falleg tón-
smíð, var bæði fallega leikinn á
píanóið og mjúklega sunginn á bás-
únuna.
Ingibjörg Guðlaugsdóttir er góð-
ur básúnuleikari en leikur of sterkt
og nýtir því ekki fínlegri blæbrigði
básúnunnar sem þó brá fyrir í í gra-
zioso þættinum eftir Hindemith og í
fantasíunni eftir Stojowskí.
TÓNLIST
L i s t a s a f n S i g u r j ó n s
Ó l a f s s o n a r
Ingibjörg Guðlaugsdóttir og
Þorsteinn Gauti Sigurðsson fluttu
tónverk eftir Telemann, Stojowskí,
Gaubert og Hindemith.
Þriðjudagurinn 10. júlí, 2001.
SAMLEIKUR Á BÁSÚNU
OG PÍANÓ
Styrkur og fínleiki
Ingibjörg
Guðlaugsdóttir
Jón Ásgeirsson
SÖNGKONAN Ragnheiður
Gröndal heldur tónleika ásamt
hljómsveit á veitingahúsinu
Vídalín (áður Fógetinn) í kvöld.
Með henni spila Ómar Guðjóns-
son á gítar, Þorgrímur Jónsson
á kontrabassa og Hjörleifur
Örn Jónsson á trommur.
Leikin verða popplög og
jazzlög í útsetningum hljóm-
sveitar.
Tónleikarnir hefjast klukkan
22:00.
Tónleikar
á Vídalín
Meistarafélag
Bólstrara
www.bolstrun.is
M
EI
ST
AR
AF
ÉLAG BÓLSTRA
R
A
STOFNAÐ 1928