Morgunblaðið - 12.07.2001, Qupperneq 44
MINNINGAR
44 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Árni Sigurðssonfæddist í Reykja-
vík 9. desember
1915. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans, Landakoti,
27. júní síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Sigurður Árnason,
vélstjóri í Reykjavík,
f. 29. nóvember
1877, d. 18. apríl
1952, og Þuríður
Pétursdóttir hús-
móðir, f. 22. júní
1886, d. 15. desem-
ber 1949. Systkini
Árna voru 14. Þau eru: Ingveldur,
f. 1905, látin; Ingibjörg, f. 1907,
látin; Helga, f. 1909, látin; Bryndís,
f. 1911, látin; Elísabet, f. 1912, lát-
in; Þuríður, f. 1917, látin; Emelía,
f. 1917, látin; Pétur, f. 1918, látinn;
Erlendur, f. 1919; Sigurður f.
1921, látinn; Haraldur Örn, f.
1924; Valur, f. 1925; María, f. 1928,
og Bergljót, f. 1931. Systkinahóp-
urinn ólst upp á Bergi v/Suður-
landsbraut. Árni kvæntist 25. maí
1940 Sigríði J. Guðmundsdóttur, f.
17. nóvember 1918, d. 19. janúar
2000. Árni og Sigríður eignuðust
fimm börn: 1) Ása Auður, f. 24. júlí
1940, d. 17. júlí 1943. 2) Þuríður
skrifstofumaður, f. 1. október
1946, maki Christo-
pher Ian Collett, f. 20.
ágúst 1948, d. 22. júní
1984, sonur þeirra er
Árni James. Sam-
býlismaður Þuríðar
er Jakob Gunnarsson
landfræðingur, dóttir
þeirra er Íris Björk.
3) Sigurður kerfis-
fræðingur, f. 12. des-
ember 1947, maki
Þorbjörg Kristjáns-
dóttir, þau skildu,
dætur þeirra eru Erla
og Elínborg. 4) Sigur-
bjarni, f. 13. júlí 1948,
d. 28. ágúst 1949. 5) Valgerður
kennari, f. 29. ágúst 1951, maki
Jón Rúnar Sveinsson félagsfræð-
ingur, börn þeirra eru Árni Freyr,
Hallveig og Arnór. Árni og Sigríð-
ur eiga 6 barnabarnabörn.
Árni vann hjá Burstagerðinni
sem ungur maður og síðan um ára-
bil hjá Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur. Síðustu starfsárin starfaði
Árni hjá fjölritunarstofunni Letri
og seinna við rekstur eigin fjölrit-
unarstofu. Árni og Sigríður
bjuggu lengst af í Reykjavík, en
síðastliðin sex ár í Vogatungu 25a í
Kópavogi.
Útför Árna fór fram í kyrrþey
fimmtudaginn 5. júlí.
Fallinn er frá heiðursmaðurinn
Árni Sigurðsson á 86. aldursári.
Leiðir okkar Árna lágu saman fyr-
ir rúmlega 16 árum er ég kynntist
dóttur þeirra Árna og Sigríðar,
Þuríði. Árni var seintekinn til
kynna og talaði ekki mikið, það
sem einkenndi hann öðru fremur
var hógværð í orði og æði. Smám
saman varð mér ljóst hversu mik-
inn öðlingsmann hann hafði að
geyma. Sérstaklega kom það skýrt
í ljós í sambandi hans við dóttur
okkar. Þolinmæði og góðvild ein-
kenndi alla hans framkomu í garð
hennar. Annar ómetanlegur eig-
inleiki Árna var hversu auðvelt
hann átti með að vera leikfélagi
hennar og vinur. Þau voru ófá
skiptin sem afi hafði lag á að gera
gott úr öllu á sinn rólega og milda
hátt ef eitthvað kom upp á og fá
dóttur okkar til að brosa og hlæja
á ný. Árni og Sigríður voru fasta-
gestir í sumarbústaðaferðir fjöl-
skyldunnar og við fráfall Árna
verða þessar ferðir mun tómlegri
en áður. Árni hafi yndi af sígildri
tónlist, einkum og sér í lagi fiðlu-
tónlist og lék sjálfur listavel á
fiðlu. Þegar dóttir okkar hóf píanó-
nám var það sjálfgefið að hún æfði
sig á píanóið heima í stofu hjá afa
og ömmu og að afi leiðbeindi henni
á sinn lágstemmda og góðlega
hátt.
Eiginkona Árna, Sigríður Guð-
mundsdóttir, lést fyrir einu og
hálfu ári. Þau Árni höfðu þá verið
gift í hartnær 60 ár og var missir
Árna mikill við fráfall hennar. Eins
og hans var von og vísa bar hann
sorg sína í hljóði en við vissum að
tómleikatilfinningin var mikil.
Fyrr á þessu ári kenndi hans sér
meins í maga en var rólfær þar til
með vorinu að hann lagðist inn á
sjúkrahús og lést á Líknardeild
Landspítalans að Landakoti að-
faranótt 27. júní. Árni minn, þakka
þér fyrir góð kynni, þín verður
sárt saknað.
Jakob Gunnarsson.
Nú er hann Árni afi dáinn, far-
inn til ömmu og ég bæði sorg-
mædd og þakklát. Þakklát vegna
þess að hann þurfti ekki að þjást
lengur og vera einn, án ömmu,
ófær um að vera heima hjá sér og
bjarga sér sjálfur. Ég veit að afi
var sáttur við að fara og það róar
mig að vita af því.
Ég á margar góðar minningar af
honum afa og streymdu þær í
gegnum mig eftir að ég heimsótti
hann á spítalann. Þær elstu eru frá
því ég var fjögurra ára heima hjá
ömmu og afa á Langholtsveginum
og við afi í göngutúrum og hann
alltaf svo þolinmóður og áhuga-
samur um allt sem mér fannst vert
að skoða. Hann var aldrei að flýta
sér eða reka á eftir mér og ég
hugsa oft til hans þegar ég bið litla
strákinn minn að hraða sér aðeins
og ég spyr sjálfa mig, af hverju
þennan hraða? Ekki þurfti afi
neinn asa.
Mér er einnig minnisstætt
hversu áhugasamur hann var að
mæla hvað ég hafði stækkað í
hvert sinn sem ég kom í heimsókn
og hann krotaði alltaf strik á vegg-
inn sem mér fannst vera mikill
heiður, því það mátti sko alls ekki
heima.
Afi hafði mikinn áhuga á tónlist
og kenndi mér á flautu og píanó í
nokkurn tíma. Hann komst svo að
því seinna að ég hafði meiri áhuga
á myndlist og bauð mér á nám-
skeið í Myndlista- og handíðaskól-
anum. Afi vissi líka af söngáhuga
Ellu systur og bað hana einn dag-
inn að koma með sér niður í Söng-
skóla Reykjavíkur og tala við
kennarana og skoða skólann.
Ella systir fór með honum og
þegar þangað kom var hún dregin
í inntökupróf sem hún stóðst og
sótti skólann í 2 ár. Fyrir þennan
einlæga áhuga á okkur og okkar
áhugamálum erum við þakklátar
afa.
Það er skrýtin tilfinning að
páska- og jólaboðin verða ekki
fleiri í Vogatungunni en síðasta
boðið var einmitt afmæli hjá afa.
Ég á eftir að sakna þess að hitta
fjölskylduna heima hjá ömmu og
afa.
Hvíldu í friði, elsku afi.
Þín sonardóttir,
Erla Sigurðardóttir.
Mig langar að segja nokkur orð
til að minnast Árna afa. Núna,
þegar hann og Sigga amma eru
bæði dáin, sakna ég þeirra svo
mikið.
Það var alltaf jafn gaman að
koma í heimsókn til þeirrra, þau
voru alltaf í góðu skapi og svo
ánægð að fá gesti. Amma var
óþreytandi að bjóða okkur eitthvað
gott að borða og drekka. Oftast
voru þau að hlusta á einhverja
góða tónlist í útvarpinu og á sumr-
in þegar veðrið var gott sátu þau
úti í garði, orðin brún og sælleg.
Ég man mjög vel þegar þau áttu
heima í húsinu á Njarðargötu. Það
var algjör draumastaður fyrir mig
að fá að fara upp á loft og skoða
allt sem leyndist þar í skápum og
skúmaskotum og eitt skiptið leyfðu
þau meira að segja mér og nokkr-
um vinkonum að koma og skoða.
Þetta var þegar ég var svona 13
eða 14 ára unglingur, ég fann öll
gömlu hippafötin sem mamma og
systkini hennar höfðu átt, það var
sko fjör. Það var sama hvað ég
vildi eiga eða fá lánað, alltaf sögðu
afi og amma: „Já Halla, auðvitað
máttu fá þetta“.
Ég man eitt sinn þegar amma
var á spítala og við vorum á leið-
inni heim að afi sagði mér frá því
þegar hann hitti ömmu í fyrsta
sinn. Hann var þá að labba rúntinn
og sá þá undurfagra dömu í rauðri
kápu standa fyrir utan skemmti-
stað. Hann fór auðvitað beint til
hennar og byrjaði að spjalla við
hana, og þar með hófst þeirra
saga.
Elsku Árni afi, ég mun alltaf
minnast þín með gleði, þú og
amma voruð þau bestu í heimi.
Hallveig.
Elsku afi. Eftir að amma dó
heimsótti ég afa aðeins meira til að
halda honum félagsskap og til að
spila fyrir hann á píanóið. Reyndar
hef ég alltaf verið frekar löt við að
æfa mig en afi sagði að ég ætti
alltaf að spila 30-40 mínútur á dag
og hvatti mig áfram. Afi fór nokkr-
um sinnum með okkur í leikhús.
Við sáum saman ýmis leikrit eins
og Kysstu mig Kata, Landkrabb-
ann, Horfðu reiður um öxl, Með
fulla vasa af grjóti o.fl. Með fulla
vasa af grjóti var síðasta leikritið
sem afi sá og ég er ánægð með það
af því að það er uppáhaldsleikritið
mitt.
Afi minn kallaði mig „Litla
Ljósálf“ og ég kallaði afa „Kol-
bein“ og enginn nema ég veit af
hverju. Afi er með safn inni í íbúð-
inni sinni sem heitir „Árnasafn“.
Þar er hægt að finna spólur, gam-
alt dót, verkfæri, bækur og margt
annað. Þegar ég kom með vinkon-
ur mínar í heimsókn til afa, feng-
um við að fara í bakarí og í sjopp-
una síðan fórum við í lautarferð í
garðinum hans afa. Þar spiluðum
við á fiðlur og gítar. Ég mun sakna
þín afi minn og páskaboðanna og
jólaboðanna sem þið amma hélduð.
Það er ekki hægt að finna betri
mann en þig.
Íris Björk Jakobsdóttir.
ÁRNI
SIGURÐSSON
við Nýbýlaveg, Kópavogi
!
"#" $ %
& #
' !
! ()
) *+ *
"
)
! ""
"
#$ % $ ""
! !&
! ! !& '
,' )
)
()* +(,-
*-.+,, /0$/#
)
+ ! !
&)
-
./
.//0
%# "123 "
2 23& "
23 +4 ""
,4" ""
*#"!$$ "
* ""
!3&53 "
51 " 64 2$ $ ""
! !&
! ! !& '
1
#
#
% !%!
(*'(
(
/7 4! 05
"8
#
)
#"$ 9
)
#"$##'
2
#
)
3& ()
4' !%
! 8$ 2' )#7 4""
""
' "
# 3 "
"#)' "
! !&
! ! !& '
,' )
)
*:-2
5..+,, ) ! ;;
$7 3
5)
./ .//0
$
! 4
3
!"
(44
" " +#/ "
"
) #)# " 26 +#/""
'
< ('+
1# 34$"
)0 8#;=
0
& )
.6 .600
( '< " )& +#/""
*# !
) )/ 4 ""
+#/ < )"
$#"
:".&/ )'