Morgunblaðið - 12.07.2001, Qupperneq 49
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 49
FÁ garðtré í ræktun
á Íslandi eru jafn
glæsileg í blóma og
gullregnið. Heiðgulir
blómklasarnir lýsa
upp umhverfið og
geta jafnvel bætt
garðeigendum upp
sólarleysi þegar svo
ber við. Gullregn
eru af ertubauna-
ættinni, Fabaceae
og eru því skyld
merkilegum plöntum
eins og lúpínunni.
Plöntur af þessari
ætt eru með sambýli
við niturbindandi
bakteríur á rótinni
en bakteríur þessar binda köfn-
unarefni (N) úr andrúmsloftinu.
Köfnunarefni er eitt af mikilvæg-
ustu næringarefnum plantna og
eru plöntur ertubaunaættarinnar
því komnar vel á veg í sjálfsþurft-
arbúskapnum. Bakteríurnar láta
plöntunum köfnunarefni í té í
skiptum fyrir sykrur og önnur
næringarefni sem plönturnar taka
annars vegar upp úr jarðvegi og
framleiða hins vegar sjálfar með
ljóstillífun.
Innan Laburnum ættkvíslarinn-
ar eru tvær tegundir sem þrífast
villtar í náttúrunni. Þær eru
fjallagullregn, Laburnum alpinum
og strandgullregn, Laburnum
anagyroides. Báðar þessar teg-
undir eiga heimkynni sín í Mið-
og Suður-Evrópu. Hér á landi
hefur fjallagullregnið verið rækt-
að um áratugaskeið og reynst
harðgert og blómviljugt. Munur-
inn milli þessara tegunda er eink-
um fólginn í vaxtarlaginu. Fjalla-
gullregnið getur orðið allt að 10 m
hátt hérlendis en
strandgullregnið,
sem er nú sjaldséð á
Íslandi, er mun
minna, einungis 5-6
m á hæð. Blóm
fjallagullregns eru
minni og dekkri á lit
en blóm strandgull-
regns, en blómklas-
ar fjallagullregnsins
eru lengri. Aldin
gullregna eru fræ-
belgir sem innihalda
dökk, nærri því
svört fræ. Fjalla-
gullregn er yfirleitt
margstofna og getur
króna trésins orðið
mjög umfangsmikil. Gullregn vilja
fremur sendinn jarðveg og er
nauðsynlegt að gróðursetja þau á
sólríkum stað í garðinum ef þau
eiga að blómstra mikið og vel.
Plöntur eiga ekki gott með að
taka til fótanna ef voða ber að
greinum. Þær hafa því þróað aðr-
ar aðferðir til að bregðast við
áreiti af ýmsum toga. Gullregn
framleiðir annars stigs efni af
flokki alkaloida og eru þessi efni
eitruð. Efni þessi eru aðallega
staðsett í berki og fræjum þótt öll
plantan sé í raun eitruð. Af þess-
um sökum er ekki talið mjög
heppilegt að leggja sér gullregn
til munns. Eitrun af völdum gull-
regnsáts getur meðal annars kom-
ið fram sem sviði í munni, upp-
köst, niðurgangur, kaldur sviti,
höfuðverkur, útvíkkuð sjáöldur,
svimi og öndunarerfiðleikar. Í ná-
grannalöndum okkar eru þekkt
ýmis dæmi um eitrun í húsdýrum
en sem betur fer er slíkt sjald-
gæft. Börn eru oft spennt fyrir
því að smakka það sem náttúran
hefur upp á að bjóða og eru því í
sérstökum áhættuflokki gagnvart
gullregni. Það verður þó að segj-
ast eins og er að börn í íslensku
umbúðaþjóðfélagi eru ekki líkleg
til að leggjast á beit í gullregnið,
fræbelgirnir eru loðnir og lítt
spennandi til átu. Þó er full
ástæða til að vara börn við því að
leggja sér fræin til munns, talið
er að 2 fræ séu nóg til að fram-
kalla eitrunareinkenni. Öllu er
haganlega fyrir komið í nátt-
úrunni, gullregnið passar upp á
fræin sín með því að gera þau óæt
og tryggir þannig afkomu tegund-
arinnar. Önnur afleiðing eitur-
efnaframleiðslunnar er sú að mjög
lítið er um óboðna gesti á borð við
skorkvikindi á gullregni.
Til er blendingur milli strand-
gullregns og fjallagullregns sem
ýmist er kallaður garðagullregn
eða blendingsgullregn, Laburnum
x watereri. Blendingsgullregn
sameinar helstu kosti beggja for-
eldra sinna, blómklasarnir eru
langir eins og hjá fjallagullregni
og blómin stór eins og hjá strand-
gullregni. Yrkið Laburnum x
watereri ‘Vossi’, sem er upprunnið
í Hollandi um 1875, er sérstaklega
verðmæt garðplantna. Það er
ágrætt og blómstrar því strax en
fjallagullregn blómstrar ekki fyrr
en það verður kynþroska allt að
15-20 ára gamalt. Blómklasar
‘Vossii’ yrkisins geta orðið allt að
50 cm langir. Einn af aðalkostum
blendingsgullregns er sá að það
myndar örsjaldan fræ og þá ein-
ungis örfá í einu en fræin eru ein-
mitt eitraðasti hluti gullregna.
Nokkuð hefur borið á því að
gullregn lifna seint og illa á vorin,
sum bæra jafnvel ekki á sér fyrr
en langt er liðið á sumar. Svo
virðist sem kuldakast á þeim tíma
þegar brumin eru að byrja að
þrútna, frá miðjum maí fram í
byrjun júní, hreki plönturnar
aftur í vetrardvala og tekur það
þær nokkrar vikur að hrista af
sér dvalaslenið. Plöntur sem lifna
svona seint geta vissulega orðið
fyrir haustkali en það virðist ekki
vera alvarlegt.
Gullregn eru stórglæsileg tré
og ættu vera í sem flestum görð-
um. Óþolinmóðir garðeigendur á
barneignaraldri geta valið sér
blendingsgullregn sem blómstrar
strax og er ófrjótt en þeir sem
vilja taka lífinu með ró geta setið í
skugga fjallagullregnsins og beðið
eftir blómunum.
Guðríður Helgadóttir.
Blendingsgullregn, Laburnum x watereri ‘Vossi’.
GULLREGN
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
444. þáttur
LABURNUM
DONNIE Swaggart frá Jimmy
Swaggart Ministries er væntanleg-
ur til landsins í vikunni. Jimmy
Swaggart Ministries er með trú-
boðsstarf í meira en þrjátíu þjóð-
löndum. Trúboðsstarfið er þekkt-
ast fyrir sjónvarpsþátt sem það
framleiðir og sýndur er vikulega
víða um heim. Þátturinn hefur ver-
ið sýndur á sjónvarpsstöðinni
Omega um eins árs skeið. Donnie
Swaggart mun predika á samkom-
um í Krossinum í Kópavogi á föstu-
dagskvöld kl. 20.30, laugardags-
kvöld kl. 20.30 og á sunnudaginn
kl. 16.30.
Safnaðarstarf
Áskirkja Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14-17. Söngstund kl. 14-15
í neðri safnaðarsal. Kristján Sig-
tryggsson organisti leiðbeinir og
stýrir hópnum. Allir hjartanlega
velkomnir til að syngja eða hlusta.
Boðið upp á kaffi á eftir. Mikið
spjallað og stundum tekið í spil.
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar
kl. 12-12.30. Hlín Pétursdóttir
sópran og Kári Þormar orgel.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 21.
Þangað sækir maður frið og kyrrð,
staldrar við í asa lífsins, tekur and-
artak frá til þess að eiga stund með
guði. Lifandi ljós og reykelsi bjóða
mann velkominn. Tónlistin fallin til
að leiða mann í íhugun og bæn. All-
ir velkomnir.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyr-
ir ung börn og foreldra þeirra kl.
10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi.
Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Von-
arhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Nú er biblíu- og
fræðsluhópurinn hættur fram á
haust en bæna- og kyrrðarstund-
irnar verða áfram í sumar kl. 22 í
Vídalínskirkju. Hressing á eftir.
Samkomur í
Krossinum með
Donnie Swaggart
FRÉTTIR
um stuðning frá kirkjunni til að ráða
mann í eitt ár til að vera fram-
kvæmdastjóri yfir endurskoðuninni
með nefndinni og jafnframt skóla-
stjóri skólans,“ segir Hörður.
Til stendur að skoða mögulega þró-
un eða breytingu á starfi söngmála-
stjóra næsta árið, meðal annars með
tilliti til þess að nú er að taka til starfa
tónlistardeild við Listaháskóla Ís-
lands og þess að mikil eftirspurn hef-
ur verið eftir námskeiðum og fjar-
kennslu fyrir organista sem starfa úti
á landi. Einnig þarf að skoða hvað
kirkjan vill og getur látið renna til
þessa málaflokks.
STJÓRN Tónskóla þjóðkirkjunnar
hefur ákveðið að fresta því að auglýsa
embætti söngmálastjóra þjóðkirkj-
unnar laust til umsóknar, en Haukur
Guðlaugsson, núverandi söngmála-
stjóri, lætur af störfum í sumar eftir
27 ára starf. Kristinn Örn Kristins-
son, píanóleikari og tónlistarkennari,
hefur verið ráðinn til að sinna starfi
skólastjóra Tónskóla þjóðkirkjunnar
sem söngmálastjóri hefur gegnt, og
vinna auk þess ásamt stjórn skólans
að endurskoðun á stöðunni.
Kirkjuráð skipaði fyrir skömmu
nýja stjórn skólans samkvæmt nýjum
starfsreglum um söngmál og tónlist-
arfræðslu á vegum þjóðkirkjunnar.
Hörður Áskelsson, formaður
stjórnarinnar, segir að hlutverk söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar sé að vera
samræmingaraðili fyrir organista í
landinu og veita þeim upplýsingar og
uppörvun en söngmálastjóri hefur
jafnframt verið skólastjóri Tónskóla
þjóðkirkjunnar þar sem verðandi
organistar fá menntun.
Stofnanir kirkjunnar
í endurskoðun
Að sögn Harðar fer nú fram endur-
skoðun á stofnunum kirkjunnar og
því hafi verið ákveðið að nota tæki-
færið við mannaskipti nú til að endur-
skoða stöðu söngmálastjóra og verð-
ur það í verkhring stjórnar skólans að
vinna að henni. Auk Harðar sitja í
stjórninni þau Kristján Valur Ingólfs-
son og Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
Stjórnin hóf störf í mars og fékk
það hlutverk að velja eftirmann
Hauks. „Hins vegar sáum við strax að
nokkurn tíma þyrfti til að sinna þeirri
skoðun á stöðunni sem okkur var ætl-
að að gera. Því lögðum við til, og feng-
Tónskóli þjóðkirkjunnar
Nýr skólastjóri ráð-
inn til skemmri tíma
SKÓLASLIT Rafiðnaðarskólans
og útskrift nemenda fór fram 15.
júní s.l. Að þessu sinni voru út-
skrifaðir 136 nemendur. Athöfnin
fór fram í Salnum í Kópavogi.
Útskrifaðir voru nemendur af
eftirtöldum brautum: Tölvu- og
rekstrarnám 25 nemendur, „Ertu
kennari og viltu verða tölvukenn-
ari?" 12 nemendur, MCP braut 65
nemendur, Umsjón og rekstur
tölvukerfa 15 nemendur, Tölvu-
og kerfisfræði 19 nemendur.
Þessar námsbrautir eru frá því
að taka eina önn og upp í það að
standa yfir í tvö ár eins og Tölvu-
og kerfisfræðin. Þrjár síðasttöldu
námsbrautirnar eru til undirbún-
ings alþjóðlegum prófgráðum frá
Microsoft og CompTIA s.s. A+,
Network+, MCP eða MCSE.
„Hér voru í fyrsta skipti útskrif-
aðir nemendur af MCP braut en
það er ein af nýjum námsbrautum
við skólann sem sett var upp eftir
að Rafiðnaðarskólinn fékk vottun
frá Microsoft s.l. haust sem CTEC
tæknikennslusetur. Næsta skólaár
verður MCP braut ásamt fleiri
námsbrautum sem leiða til al-
þjóðlegra viðurkenninga kennd
undir nafni CTEC á Íslandi. Sá
skóli verður starfræktur í glæsi-
legu húsnæði í Faxafeni 10 og er í
eigu Rafiðnaðarskólans. CTEC á
Íslandi er eini skólinn hér á landi
með vottun frá Microsoft en einn-
ig er skólinn í samstarfi við
CISCO systems auk þess að vera
Prometric prófamiðstöð.
Við athöfnina spiluðu flautu-
leikararnir Guðrún Birgisdóttir
og Martial Nardeau nokkur lög.
Athöfnin var bæði í senn hátíðleg
og glaðleg þar sem nemendur
voru að uppskera laun erfiðis síns.
Margir hafa þó ekki sagt skilið við
skólann heldur munu sækja nám á
framhaldsnámsbrautum að loknu
sumarfríi.
Á þessu skólaári höfðu einnig
um 50 nemendur lokið námi af
námsbrautunum Tölvur og vinnu-
umhverfi 1 og 2. Auk þess stund-
uðu fjölmargir nemendur nám á
styttri námskeiðum skólans,“ seg-
ir í fréttatilkynningu frá Rafiðn-
aðarskólanum.
Skólaslit
Rafiðnaðarskólans
Útskriftarnemar í tölvu- og kerfisfræði, sem er tveggja ára nám.
Í fimmtudagskvöldgöngunni 12. júlí
á vegum þjóðgarðsins á Þingvöllum
mun Skúli Skúlason skólastjóri
Hólaskóla fjalla um lífríki Þingvalla-
vatns. Skúli ásamt öðrum hefur um
langt árabil stundað rannsóknir á líf-
ríki Þingvallavatns þar sem sýnt hef-
ur verið fram á hversu fjölbreytt líf-
ríki vatnsins er og hvað það er sem
greinir Þingvallavatn frá öðrum
stöðuvötnum í veröldinni.
Farið verður frá bílastæði í Vatns-
viki í norðausturhorni Þingvalla-
vatns og gengið með vatninu. Gang-
an hefst kl. 20:00 og tekur um eina og
hálfa klukkustund og er ókeypis að-
gangur. Nánari upplýsingar veita
landverðir í þjónustumiðstöð Þjóð-
garðsins.
Fræðst um
lífríki Þing-
vallavatns