Morgunblaðið - 12.07.2001, Qupperneq 56
DAGBÓK
56 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
ÁGÚST Einarsson skrifaði
góðan pistil um „konumál“
Ólafs Ragnars Grímsonar.
Það sem er undarlegt í
málinu eru viðbrögð fjöl-
miðla og annarra sem tjáð
hafa skoðun sína á þessu
máli er; enginn virðist hafa
skilið grein Ágústar Ein-
arssonar. Hann var ekki að
setja út á að Ólafur ætti
„vinkonu“, heldur var hann
að benda á það, að það væri
ekki æskilegt að þessi kona
kæmi fram opinberlega er-
lendis og innanlands, með
Ólafi Ragnari, fyrir hönd
Íslands og íslensku þjóðar-
innar á meðan staða henn-
ar gagnvart þjóðinni er
óljós.
Páll.
Við viljum réttlæti
ÉG vil taka undir með því
fólki sem skrifar í Velvak-
anda, þetta var allt of væg-
ur dómur yfir þessum
manni, sem fór svo hræði-
lega illa með þessa ungu
stúlku. Ég er sammála
Berglindi sem skrifar í Vel-
vakanda, að stúlkan sé al-
gjör hetja að vera á lífi. Ég
bið fyrir henni og vil hvetja
aðra til þess að gera það
líka, því ekkert er sterkara
en máttur bænarinnar.
Ofbeldi hefur því miður
aukist mikið. Ég las í blaði
um konu, sem rænt var úr
strætisvagnaskýli á leið úr
vinnu. Það voru menn sem
drógu hana inn í bílinn,
helltu ofan í hana ólyfjan
og hentu henni svo út úr
bílnum niður í bæ. Þegar
hún sagði mennina sem
rændu henni og bílstjórann
líka vera drukkna, sagði
lögreglan það ekki geta
staðist. Hún gaf lögregl-
unni skýrslu, en kærði ekki
eftir því sem sagt var frá í
blaðinu. Hvers vegna kem-
ur lögreglan svona fram
við fórnarlamb? Engin
kæra.Þýðir það að þeir geti
haldið áfram iðju sinni án
þess að þurfa að taka af-
leiðingum gjörða sinna? Og
á meðan svo er, stafar okk-
ur hinum hætta af þeim.
Litla sæta Reykjavík er
orðin eins og stórborgirnar
erlendis, þar sem fólki er
hvorki óhættt að ganga um
göturnar né heldur bíða
eftir strætó.
Fyrir nokkrum árum var
ráðist á konu í einum af
görðum borgarinnar og
haft var eftir lögreglu í
fréttum að konur ættu ekki
að fara einar á þessa staði.
En við viljum, konurnar,
geta farið einar hvert sem
okkur sýnist. Það er okkar
réttur. Það er yfirvalda að
sjá um öryggi okkar og
annarra borgara. Það á að
birta nöfn og myndir af
stórhættulegum glæpa-
mönnum, svo við getum
varað okkur á þeim. Það
þarf að þyngja dóma vegna
ofbeldis og nauðgunar.
Við viljum réttlæti og
öryggi hér í samfélaginu.
Konur.
Dýrahald
Fress vantar heimili
FJÖGURRA ára geldur
fressköttur fæst gefins á
gott heimili vegna ofnæm-
is. Hann er blanda af
abyssiníu og íslenskum.
Kassi og karfa fylgja með.
Upplýsingar í síma 697-
9896.
Læða í óskilum
GRÁBRÖNDÓTT stálpuð
læða er í óskilum að Fjöln-
isvegi 6. Hún er með ör-
mjóa svarta ól um hálsinn,
en merkið gæti hafa dottið
af. Upplýsingar í síma 862-
6059.
Mósi er týndur
MÓSI hvarf frá heimili
sínu að Seylugranda 2,
miðvikudagskvöldið 4. júlí
sl. Hann sást síðast við
Hagamel sunnudaginn 8.
júlí sl. Mósi er fjórtán ára
svartbröndóttur högni,
mjög stór og rosalega gæf-
ur. Hann er eyrnamerktur
R0157. Mósa er sárt sakn-
að. Upplýsingar í síma 864-
2239.
Kettlingar fást gefins
MJÖG fallegir, fjórir átta
vikna kettlingar fást gefins
á góð heimili. Kassavanir.
Upplýsingar í síma 483-
4906.
Tapað/fundið
Færeyskir fánar tekn-
ir traustataki
ÞEIR, sem tóku færeysku
fánana á færeysku dögun-
um í Ólafsvík, eru vinsam-
legast beðnir að skila þeim
til Svövu Alfonsdóttur,
Ólafsbraut 56, Ólafsvík.
Fánanna er sárt saknað og
mikill kostnaður er í gerð
slíkra fána.
Gullúr tapaðist
GULLÚR týndist við Suð-
urver sl. sunnudag. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 898-3481. Góð fundar-
laun í boði.
Svört plasttaska og
gallajakki í óskilum
SVÖRT plasttaska ásamt
gallajakka með glimmers-
áferð, fannst á Skugga-
barnum helgina 6.-7. júlí sl.
Skilríki voru í tösku á nafni
Kristrúnar Eiríksdóttur.
Vinsamlegast sækið
töskuna og jakkann á
Skuggabarinn á skrifstofu-
tíma eða hafið samband við
Siggu Dögg í síma 698-
4665.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Heitmey
Ólafs ?
Víkverji skrifar...
EINU sinni sem oftar fór Víkverjiá dögunum með fjölskyldunni
að borða á einum af þeim skyndibita-
stöðum sem vinsælir eru meðal
yngstu meðlima fjölskyldunnar.
Yfirleitt er margt um litla matar-
gesti á þessum stöðum og því þykir
Víkverja það hvimleitt að þessir
staðir skuli ekki hafa tekið upp þá
fjölskylduvænu stefnu að banna al-
farið reykingar við matarborðin, þar
sem lítill minnihluti reykingamanna
telur það sjálfsagða kurteisi að leyfa
öðrum að njóta reyksins. Sem betur
fer reykja þó flestir gestanna ekki,
enda eiga börn ekki skilda þá með-
ferð að reykt sé í sama herbergi eða
á sama stað og þau eru að borða á.
Þetta leiðir hugann að því hve
hefðir og venjur eru sterkt afl í sam-
félagi manna. Það er jafnan ákaflega
erfitt og tekur langan tíma að breyta
því sem hefur áunnið sér ákveðinn
hefðarrétt, þótt öll góð og gild rök
mæli með breytingum eða afnámi.
Þannig er málum háttað með reyk-
ingar sem margir virðast telja í fullri
trú að sé eins og hver önnur neysla á
lífsins gæðum. Það sé einfaldlega val
hvers og eins að reykja líkt og hver
og einn ákveður hvort hann vilji
borða gróft eða fínt brauð, tómat eða
gúrku eða sleppt því. Hins vegar er
ljóst að ef tóbak væri nú óþekkt og
einhver reyndi að koma því á mark-
að, yrði sá sami líklega ákærður fyrir
glæpi gegn mannkyni, eða eitthvað í
þá áttina.
Staðreyndin er auðvitað sú að
tóbaksreykingar eru hin mesta
plága og líklega vildu flestir reyk-
ingamenn vera lausir við þá áþján
sem reykingum fylgir. Enda fylgir
þeim lítið annað en óþörf fjárútlát,
sóðaskapur, krabbamein og annað
banvænt heilsuleysi, svo talað sé
tæpitungulaust um hlutina.
x x x
Langt fram eftir síðustu öld vartalið sjálfsagt að reykja, jafnvel
flott, og enginn maður með mönnum
nema púa út í loftið og ofan í lungun.
Víkverji ólst sjálfur upp það að faðir,
móðir og eldra systkin reyktu öll og
oft var þykkt reykjarkóf í stofunni á
kvöldum þegar fjölskyldan sat sam-
an við sjónavarpið, og þótti í hæsta
máta eðlilegt. Þau viðhorf hafa sem
betur fer breyst til betri vegar. Nú
þykir á flestum heimilum og opin-
berum stöðum sjálfsagt mál að loftið
sé hreint og laust við tóbaksreyk,
jafnvel reykingamenn sjálfir vilja
helst ekki vera í herbergjum mett-
uðum af reyk. Á vinnustöðum hefur
orðið gerbylting til hins betra þótt
ekki sé langt síðan menn höfðu ösku-
bakka á vinnuborðunum.
Ástæðan fyrir þessum sinnaskipt-
um er ekki síst sú að fólk hefur áttað
sig á réttindum þeirra sem ekki
reykja, að þeir eigi kröfu til ómeng-
aðs andrúmslofts á vinnustöðum og
öðrum stöðum þar sem menn koma
saman til leiks og starfa. Þennan rétt
eiga þeir sem ekki reykja að nýta sér
til fullnustu og krefjast þess að fá að
vera í friði fyrir tóbaksreyk. Það er
úreltur og nöturlegur hugsunarhátt-
ur að einhver einstaklingur hafi rétt
til að reykja þar sem aðrir eru. Þetta
ættu allir að hafa í huga þegar farið
er á veitingastaði. Reykingamönnum
ber skylda til að taka tillit til hinna
og þeir sem ekki reykja eiga að
krefjast réttar síns. Vert er einnig að
hafa í huga að rúmlega 75% þjóð-
arinnar reykja ekki, þannig að reyk-
lausir teljast vart minnihlutahópur.
LÁRÉTT:
1 jurt, 4 trjástofn, 7 dánu,
8 staðfesta venju, 9 mán-
uður, 11 tottaði, 13 kven-
fugl, 14 ófullkomið, 15
næðing, 17 með tölu, 20
stefna, 22 lítils nagla, 23
rándýr, 24 peningar, 25
sér eftir.
LÓÐRÉTT:
1 manna, 2 hljóðfæris, 3
skrökvaði, 4 einungis, 5
ládeyðu, 6 blaðra,
10 dapurt, 12 aðgæsla, 13
óhreinka, 15 gjálfra, 16
garfar, 18 líffæri, 19 lifir,
20 hæðir, 21 munnur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 Reykjavík, 8 rímur, 9 greið, 10 púa, 11 kurla,
13 ræður, 15 bugar,
18 stolt, 21 orm, 22 kjark, 23 áttur, 24 bifreiðar.
Lóðrétt: 2 eimur, 3 karpa, 4 argar, 5 ígerð, 6 brák, 7 æð-
ur, 12 lúa, 14 ætt,
15 bekk, 16 glati, 17 rokur, 18 smári, 19 ostra, 20 torf.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Goða-
foss, Mánafoss, Árni
Friðriksson, Switzer-
land og Bjarni Sæ-
mundsson og út fara
Switzerland, Peggy,
Goðafoss, Ikkamiut og
Arnarfell.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
gær fór Selfoss frá
Straumsvík.
Viðeyjarferjan. Tíma-
áætlun Viðeyjarferju:
Mánudaga til föstudaga:
til Viðeyjar kl. 13, kl. 14
og kl. 15, frá Viðey kl.
15.30 og kl. 16.30. Laug-
ardaga og sunnudaga:
Fyrsta ferð til Viðeyjar
kl. 13, síðan á klukku-
stundar fresti til kl. 17,
frá Viðey kl. 13.30 og
síðan á klukkustundar
fresti til kl. 17.30.
Kvöldferðir eru föstu-
daga og laugardaga: Til
Viðeyjar kl. 19, kl. 19.30
og kl. 20, frá Viðey kl.
22, kl. 23 og kl. 24. Sér-
ferðir fyrir hópa eftir
samkomulagi. Viðeyjar-
ferjan, sími 892 0099.
Lundeyjarferðir dag-
lega, brottför frá Við-
eyjarferju kl.10.30 og
kl. 16.45, með viðkomu í
Viðey u.þ.b. 2 klst. Sími
892 0099.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laugar-
daga kl. 13.30–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofa og
bókband og öskjugerð,
kl. 9.45–10 helgistund,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 opin
smíðastofa, kl. 10–16
púttvöllur opinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–16 almenn
handavinna og fótaað-
gerðir, kl.9.30 morgun-
kaffi/dagblöð, kl. 11.15
matur, kl. 15 kaffi.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerðir,
kl. 10 hársnyrting, kl.
11.20 leikfimi, kl. 11.30
matur, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 15 kaffi.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fótaaðgerðir
mán. og fimmt. Uppl. í
síma 565 6775.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar á Hrafn-
istuvelli á morgun,
föstudag, kl. 14–16. Or-
lofið á Hótel Reykholti í
Borgarfirði 26.–31.
ágúst nk. Skráning og
allar uppl. í símum
ferðanefndar: 555 0416,
565 0941, 5650005 og
555 1703. Panta þarf
fyrir 1. ágúst. Félags-
heimilið Hraunsel verð-
ur lokað vegna sumar-
leyfa starfsfólks til 12.
ágúst.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Dagsferð 14. júlí
Gullfoss–Geysir-Hauka-
dalur. Fræðasetrið
skoðað. Leiðsögn Sig-
urður Kristinsson og
Pálína Jónsdóttir. Tak-
ið með ykkur nesti.
Brottför frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 9. Eigum
nokkur sæti laus. Eig-
um tvö sæti laus vegna
forfalla í 6 daga ferð
um Eyjafjörð–Skaga-
fjörð og Þingeyjarsýsl-
ur 26. –31.júlí. Silfurlín-
an er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum kl. 10 til12
f.h. í síma 588 2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10 til 16 í
síma 588 2111.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–17 hár-
greiðsla og böðun.
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1 og Hæðargarð-
ur 31. Fimmtudaginn
19. júlí verður farið í
ferð á Þingvelli og
Laugarvatn. Ekið verð-
ur um línuveg og
Grafning til Þingvalla.
Þaðan verður farið að
Laugarvatni þar sem
drukkið verður kaffi á
Veitingahúsinu Lind-
inni. Til baka verður
farið um Grímsnes og
Hellisheiði. Leiðsögu-
maður er Anna Þrúður
Þorkelsdóttir. Lagt
verður af stað frá
Norðurbrún 1 kl. 12.30
og síðan verða teknir
farþegar í Furugerði og
Hæðargerði. Skráning í
Norðurbrún 568-6960, í
Furugerði 553-6040 og
Hæðargarði 568-3132.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæfing-
ar á vegum ÍTR í
Breiðholtslaug á þriðju-
dögum og fimmtudög-
um kl. 9.30. Púttvöllur-
inn er opinn virka daga
kl. 9–18, kylfur og bolt-
ar til leigu í afgreiðslu
sundlaugarinnar. Allir
velkomnir. Veitingabúð
Gerðubergs er opin
mánudaga til föstudaga
kl. 10–16. Félagsstarfið
lokað vegna sumarleyfa
2. júlí–14 ágúst.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9.30–16.
Gullsmári. Lokað
vegna sumarleyfa til 7.
ágúst.
Hraunbær 105. Kl. 9
fótaaðgerð, kl. 9.45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 13
handavinna, kl. 14
félagsvist.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar í júlí
vegna sumarleyfa.
Vesturgata 7. Kl. 9
dagblöð og kaffi, fótaað-
gerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15–15.30 al-
menn handavinna, kl. 10
boccia, kl.11.45 matur,
kl. 13–14 leikfimi, kl.
14.30 kaffi.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund og almenn
handmennt, kl. 10
boccia og fótaaðgerðir,
kl. 11.45 matur, kl. 13
frjálst spil, kl.14 létt
leikfimi, kl.14.30 kaffi.
Ga-fundir spilafíkla eru
kl. 18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður við
Fannafold í dag kl. 10,
kl. 14 við Hamravík í
Grafarvogi og á morgun
kl. 10 við Freyjugötu og
kl. 14 við Brekkuhús.
Minningarkort
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Breið-
firðingafélagsins eru til
sölu hjá Sveini Sigur-
jónssyni, s. 555 0383,
eða 899 1161.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort. Þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlega hringi í
síma 5524994 eða 553
6697, minningarkortin
fást líka í Háteigskirkju
við Háteigsveg.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju,
s. 520 1300, og í blóma-
búðinni Holtablómið,
Langholtsvegi 126.
Gíróþjónusta er í kirkj-
unni.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju,
sími 520 1300, og í
blómabúðinni Holta-
blómið, Langholtsvegi
126. Gíróþjónusta er í
kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67, og í
Kirkjuhúsinu v/Kirkju-
torg.
Í dag er fimmtudagur 12. júlí, 193.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Hingað til hafið þér einskis beðið í
mínu nafni. Biðjið, og þér munuð
öðlast, svo að fögnuður yðar verði
fullkominn.
(Jóh. 16,24.)