Morgunblaðið - 12.07.2001, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 57
DAGBÓK
hefst á morgun
LAUGAVEGI 1, S. 561 7760.
ÚTSALAN
Velkomin um borð
O F S C A N D I N A V I A
hefst í dag
Opið til kl. 22
Snertilinsur
- fyrir golfáhugamenn -
6 linsur í pakka,
prófun, meðferðarkennsla,
vökvi og box.
frá 7.500.- kr.
sólgleraugu fylgja með! sími 551 1945
Innilegar þakkir til allra þeirra sem á einn eða
annan hátt glöddu mig í tilefni af níræðisaf-
mæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjartur Ó. Ólason,
Skipholti 6.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert röskur og ráðagóður
og fólk lítur gjarnan til þín
um forystu. Velgengni á ekki
að skemma.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú átt það til að segja hlutina
umbúðalaust sem gerir það
að verkum að þú færð fólk
upp á móti þér. Söðlaðu um
og fáðu fólk til liðs við þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur byrinn með þér til
að klára þau verkefni sem
setið hafa á hakanum.
Gakktu þó ekki fram af þér
við þetta, því þú þarft að eiga
orku aflögu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú lætur bókstaflega allt
fara í taugarnar á þér í dag
svo það reynir verulega á
þolinmæðina. Þér liði betur
ef þú reyndir að vera örlítið
jákvæðari
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú átt í erfiðleikum með að
tjá það sem þér býr í brjósti
en þarft að leggja þig fram
við það því að öðrum kosti
nærðu ekki að leysa málin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef þú ert ekki ánægður með
verk annarra skaltu taka þau
að þér sjálfur. Þá muntu sjá
að oft er betra um að tala en í
að komast. Vertu sanngjarn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér finnst það skylda þín að
deila vitneskju þinni með
öðrum. Gefðu þér samt fyrst
tíma til að hafa samband við
alla þá sem málið varðar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert vel upplagður og allt
virðist ganga upp hjá þér.
Vertu því til staðar til að lið-
sinna þeim sem þurfa á að-
stoð þinni að halda.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er mikil togstreita innra
með þér svo að þú átt erfitt
með að einbeita þér. Komdu
jafnvægi á þetta svo þú getir
komið einhverju í verk.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt þú sért ekki hlynntur
því sem ættingi þinn er að
gera skaltu láta það afskipta-
laust. Láttu hann um að
standa eða falla með sinni
ákvörðun.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú veist að þú ert á réttri leið
og þarft því ekki að gefa
neitt eftir. Haldir þú festu
þinni gegnum þykkt og
þunnt mun enginn reyna að
andmæla.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gerir miklar kröfur til
sjálfs þín og annarra og set-
ur sjálfum þér oft ströng
skilyrði. Veltu þér ekki upp
úr því þótt eitthvað fari úr
skorðum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú verður beðinn um að vera
málsvari vinnufélaganna og
þarft því að kynna þér mál-
efnið vandlega áður en þú
lætur nokkuð frá þér fara.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 12.
júlí, verður áttræður Brynj-
ólfur Árnason, bóndi, Vöðl-
um, Önundarfirði. Brynjólf-
ur er kvæntur Brynhildi
Kristinsdóttur. Brynjólfur
ætlar að taka á móti gestum
í Holtsskóla á afmælisdegi
sínum kl. 16-19.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun föstudaginn
13. júlí verður fimmtugur
Benedikt Sveinsson, for-
stjóri Iceland Seafood Cor-
poration í Ameríku. Af því
tilefni tekur hann og eigin-
kona hans, Sif Haraldsdótt-
ir, á móti gestum á morgun,
kl. 18-22 í Ými, húsi Karla-
kórs Reykjavíkur, Skógar-
hlíð 20.
50 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 12.
júlí verður fimmtugur Hall-
dór Kr. Stefánsson, starfs-
maður Ísals, Ystabæ 5,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Þóra G. Bragadóttir,
kaupmaður.
LJÓÐABROT
ÚR GRETTISSÖGU
Gekk ek í gljúfr it dökkva,
gein veltiflug steina
við hjörgæði hríðar
hlunns úrsvölum munni.
Fast lá fram á brjósti
flugstraumr í sal naumu;
heldr kom á herðar skáldi
hörð fjón braga kvónar.
Ljótr kom mér í móti
mellu vinr ór helli;
hann fekkst, heldr at sönnu
harðfengr, við mik lengi.
Harðeggjat lét ek höggvit
heftisax af skefti.
Gangs klauf brjóst ok bringu
bjartr gunnlogi svarta.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
ÞÓTT Finnar eigi ágæta
og leikreynda spilara hafa
þeir ekki náð að brjóta ís-
inn á alþjóðamótum og
taka virkan þátt í toppbar-
áttunni. Oft fara þeir vel af
stað, en missa þolinmæðina
um mitt mót og fara þá út í
ævintýralega áhættuspila-
mennsku, sem kostar alltaf
meira en hún gefur. Hér
slapp þó einn þeirra besti
spilari, Kauko Koistinen,
með viðvörun. Samlandi
hans og góðvinur Íslend-
inga, bridsblaðamaðurinn
Heinz Guthwert, skýrir frá
þessu spili Kauko í móts-
blaði EM í síðasta mánuði:
Norður
♠ ÁD4
♥ 9653
♦ K106
♣ K65
Vestur Austur
♠ G632 ♠ 98
♥ G1072 ♥ --
♦ ÁG82 ♦ 95
♣8 ♣ÁDG1097432
Suður
♠ K1075
♥ ÁKD84
♦ D743
♣--
Kauko var í suður en
félagi hans Kiema í norður.
Þetta var gegn Líbanon –
enginn á hættu og norður
gjafari. Kiema passaði í
upphafi og austur vakti á
fimm laufum. Hvað á suður
gera? Pass eða dobl eru
hinar rökréttu sagnir, en
Kauko sagði galvaskur
fimm hjörtu! Og allir pass.
Vestur kom út með ein-
spilið í laufi. Kauko tromp-
aði, lagði niður hjartaás og
sá leguna þar. Þá sneri
hann sér að spaðanum, tók
þrjá efstu og trompaði
þann fjórða. Hann fór næst
heim á hjarta til að spila
tígli á tíu og aftur til að
spila tígli á kóng. Vestur
gaf ranglega og upp var
komin þessi óvenjulega
endastaða:
Norður
♠ --
♥ --
♦ 6
♣ K6
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ G ♥ --
♦ ÁG ♦ --
♣-- ♣ÁDG
Suður
♠ --
♥ 8
♦ D7
♣--
Kauko trompaði lauf
með áttunni og vestur gat
valið hvort hann gaf þar úr-
slitaslaginn eða á tígul-
drottningu síðar.
60 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 12.
júlí er sextug Birna Óladótt-
ir, Ásabraut 17, Grindavík.
Hún og eiginmaður hennar,
Dagbjartur Einarsson, taka
á móti vinum og vanda-
mönnum föstudaginn 13. júlí
í Festi kl. 20. Örvar Krist-
jáns og Diddú mæta á stað-
inn.
Staðan kom upp á EM ein-
staklinga er lauk fyrir
skömmu í Ohrid í Make-
dóníu. Sergei Movsesjan
(2661) hafði
hvítt gegn ung-
verska kollega
sínum Zoltan
Gymesi (2571).
50.Dxh5! Ein-
falt og snoturt.
50...Dxh5 Ekki
gekk upp að
leika 50...Dxe4
sökum 51. Be6+
Kh8 52. De8+
Kg7 53. Df7+
og hvítur mátar
í næsta leik. Í
framhaldinu
verður hvítur
sælum manni
yfir. 51.Rf6+ Kf7 52.Rxh5
Bd6 53.Bf5 og svartur
gafst upp. Töluverður
fjöldi Íslendinga er í skák-
víking í Evrópu um þessar
mundir. Skak.is fylgist
grannt með gangi mála og
geta áhugasamir fengið
þar daglegar upplýsingar
um nýjustu afdrif þeirra.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ó nei, mig klæjar
svo í nefinu.