Morgunblaðið - 12.07.2001, Qupperneq 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RAPPSVEITIN XXX Rottweiler-
hundar mun halda roknatónleika/teiti
í Leikhúskjallaranum í kvöld ásamt
Ómari Ragnarssyni, þeim eilífa grall-
ara og skemmtikrafti.
Að sögn Erps Eyvindssonar, Rott-
weilerhunds, er tilefnið einfaldlega að
minna á sveitina en í haust er vænt-
anleg fyrsta breiðskífa sveitarinnar.
„Plötusnúðurinn okkar, Gummo,
var líka að koma til landsins,“ upp-
lýsir Erpur. „Það er búið að taka upp
alla plötuna og nú er bara verið að
hljómjafna hana.“
Erpur segir að í kvöld verði tveir
Ómarar, einn rauðhærður og annar
með meira hár. „Þ.e. Ómar Ragnars-
son og Ómar Suarez úr Quarashi.
Ómar úr Quarashi ætlar að rappa
með okkur en Ómar Ragnarsson ætl-
ar að vesenast með okkur.“
Ómar R. hefur einmitt verið að
vinna með Hundunum að áðurnefndri
plötu og verður sjálfur með eitthvað
uppistand á tónleikunum. Erpur seg-
ist aðspurður að Ómar hafi gengið
fast á eftir því að verða fullgildur
meðlimur í XXX Rottweilerhundum.
„Það myndi auðvitað hækka meðal-
aldurinn í sveitinni ef það myndi ger-
ast,“ segir Erpur. „Ómar er náttúr-
lega snillingur,“ bætir hann við og fer
fögrum orðum um samstarf sveitar-
innar við þennan landsfræga
skemmtikraft.
Plötusnúðurinn Tommi White mun
einnig koma fram og hefst það stund-
víslega kl. 22. Miðaverð er 1.000 kr.
XXX Rottweilerhundar og Ómar Ragnarsson spila í kvöld
Rottweilerómar
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
XXX Rottweilerhundar að gera allt vitlaust á
Gauki á Stöng í maí í fyrra.
Ómar
Ragnarsson
Fortíðardraugar
(The Yards)
S p e n n u m y n d
Leikstjórn James Gray. Aðal-
hlutverk Mark Wahlberg, Joaquin
Phoenix, Charlize Theron, James
Caan. (115 mín.) Bandaríkin 1999.
Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
HÉR ER sögð gamalkunn saga.
Ungur maður snýr heim eftir að hafa
afplánað fangelsisvist. Hann vill
snúa lífi sínu til betri vegar en reyn-
ist það illmögulegt sökum umhverfis,
vina og fjölskyldu
sem komu honum
upphaflega í
klandur. Inni við
beinið er hann
heiðarlegur og vill
snúa frá villu síns
vegar en til þess
þarf hann að snúa
baki við sínum
nánustu, svíkja
þá, og það er hæg-
ara sagt en gert fyrir mann sem al-
inn er upp við að vera hollur sínum,
hvað sem það kostar.
Þetta er myrkt og á köflum ill-
skeytt spennudrama eftir James
Gray, er gat sér nafn með Little
Odessa, og er að hluta til byggt á eig-
in reynsluheimi. Hér er mun meira
drama en spenna á ferð og leikurinn
er í alla staði pottþéttur.
Útkoman er því öðruvísi glæpa-
saga þar sem enginn er hetjan, eng-
inn er sá vondi og enginn sigurvegari
– rétt eins og í lífinu sjálfu.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Hver hefur
sinn djöful
að draga
Sade
(Sade)
D r a m a
Leikstjórn Benoît Jacquot.
Aðalhlutverk Daniel Auteuil,
Isild Le Besco. (95 mín.) Frakkland
2000. Góðar stundir. Bönnuð
innan 16 ára.
ÁRIÐ ER 1794. Allt er í lausu lofti
vegna byltingarinnar frönsku og
Marquis de Sade er fluttur í stofu-
fangelsi ásamt öðrum aristókrötum.
Samföngum hans stafar ógn af klám-
fengi hans og sið-
leysi en smám
saman tekst hon-
um að snúa þeim á
sitt band með
kænski og silki-
mjúkri tungu. En
sem ávallt hefur
hann ráð undir rifi
hverju, nefnilega
að vinna traust og
trúnað ungrar
jómfrúr og sýna fram á að hægt sé að
spilla henni líkt og öllu öðru – meira
að segja byltarbörnunum.
Þetta er önnur tveggja mynda
sem komu út á síðasta ári um mark-
greifann Sade, þennan ögrandi „kyn-
lífsfræðing“ og skáld, og verður að
segjast sem er að hin, Quills, stendur
henni töluvert framar í nær alla
staði; sagan sterkari, kvikmynda-
gerðin ágengari og sjálfur Sade
óhugnanlegri í meðförum Geoffreys
Rush. Þótt Auteuil sé góður leikari
þá gerir hann Sade miður góð skil –
alveg bitlausan.
Skarphéðinn Guðmundsson
Bitlítill
Sade
♦ ♦ ♦