Morgunblaðið - 12.07.2001, Blaðsíða 68
& " &
9:
; <
'()
*
!"#!
TVEIR Íslendingar, sem saknað
hafði verið í frumskógum Ekvadors
í um tvo sólarhringa, eru komnir
fram heilir á húfi. Íslendingarnir,
par á þrítugsaldri, voru á ferð um
Amazon-svæðið í norðausturhluta
Ekvadors ásamt tveimur frönskum
ferðamönnum og fjórum leiðsögu-
mönnum þegar hópurinn virðist
hafa villst í frumskóginum.
Hópurinn kom fram árla morguns
9. júlí sl. Fólkið var svangt og að nið-
urlotum komið af þreytu en að öðru
leyti var það við ágæta heilsu, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins. Hópurinn kom fram á tjaldsvæði
á svonefndu Pañacocha-svæði um
150 kílómetra austur af bænum
Coca. Að sögn Julio Jarrín Nube,
sem rekur ferðaskrifstofuna Ex-
pediciones Jarrín, amaði ekkert að
fólkinu þegar það kom fram.
„Allir eru við ágæta heilsu. Hóp-
urinn villtist í frumskóginum en á
þessu svæði er hann gífurlega þétt-
ur og ósnortinn með öllu,“ sagði
Julio. Hann kvað hópinn vera á leið
til Coca.
Tilkynnt var um að hópsins væri
saknað sl. laugardag en ekkert hafði
heyrst frá honum frá miðvikudegin-
um í síðustu viku þegar ferðin hófst.
Átti hún upphaflega að taka fimm
daga. Haldið var af stað á bátum frá
bæ sem nefnist Baños og siglt eftir
ánni Napo, sem rennur yfir í Perú
og sameinast þar Amazon-fljótinu.
Í beiðni þeirri sem ferðaskrif-
stofan kom á framfæri við yfirvöld
var farið fram á aðstoð hersins því
hugsanlegt var talið að fólkinu hefði
verið rænt.
Komu fram heilir á húfi
en svangir og þreyttir
Tveir Íslendingar villtust í frumskógum Ekvadors
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
RANNVEIG Sigurðardóttir, hag-
fræðingur Alþýðusambands Íslands,
segir að 0,8% hækkun vísitölu
neysluverðs milli júní og júlí megi
túlka hvort tveggja sem jákvæð tíð-
indi og neikvæð. Jákvætt sé að
hækkun milli mánaða sé minni en
undanfarna þrjá mánuði, en hækkun
húsnæðisverðs nú veki áhyggjur og
spurningar. Þá hefur hagfræðingur
ASÍ áhyggjur af því að útsölur versl-
ana sem víða eru að hefjast kunni að
lenda mitt á milli vísitölumælinga og
nýtast þannig ekki sem skyldi í
næstu mælingu til lækkunar.
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,8% milli júní og júlí og vísitala
neysluverðs án húsnæðis hækkaði
einnig um 0,8% frá júní en fjármála-
fyrirtæki höfðu spáð 0,4–1% hækkun
vísitölunnar. Þetta er minni hækkun
en verið hefur undanfarna mánuði
þegar vísitalan hefur hækkað um
1,2–1,5 milli mánaða. Síðastliðna tólf
mánuði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 7% og vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis um 7,3%. Und-
anfarna þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 3,7% en það jafngildir
15,8% árshækkun. Hækkunin milli
mánaða nú svarar til 9,4% árshækk-
unar.
Vísitala neysluverðs hefur undan-
farna þrjá mánuði hækkað um 1,2–
1,5% milli mánaða þannig að breyt-
ingin nú er heldur minni. Að sögn
Rannveigar gefur hækkunin nú vís-
bendingar að um verðbólguskot
kunni að vera að ræða, þar sem
hækkunin sé ekki jafnmikil og áður.
Henni sýnist að áhrif gengisbreyt-
inga að undanförnu séu væntanlega
að mestu komin fram.
„Jákvæðasta breytingin um síð-
ustu mánaðamót fólst í lækkun hús-
næðisverðs,“ segir Rannveig. „Þess
vegna finnst mér verulegt áhyggju-
efni ef það er aftur á uppleið og hlýt
að spyrja hvað veldur. Eru það
breytingar á húsnæðis- og bruna-
bótamati eða breyttar útlánareglur
Íbúðalánasjóðs?“
Að auki segir hún mikla hækkun á
verði raforku og hita nú sýna mik-
ilvægi þess að hið opinbera gangi á
undan með góðu fordæmi. „Það kem-
ur okkur öllum til góða að ekki sé
farið af stað með óþarfa verðhækk-
anir og hið opinbera er þar ekki und-
anskilið.“
Rannveig bætir því við að haldi
þessi þróun áfram, þ.e. að dragi úr
hækkun neysluvísitölu og komi jafn-
vel til lækkunar í næstu mælingum
eins og jafnan gerist síðsumars og á
haustin með útsölum, geti það leitt
til jákvæðari verðbólguþróunar með
haustinu og staðfest þær skoðanir
margra að aðeins sé um verðbólgu-
skot að ræða.
„Það er þó ástæða til að hafa
áhyggjur af því að útsölurnar hafi
ekki jafnmikil áhrif til lækkunar við
næstu mælingu og vænta mætti.
Tímasetningin nú virðist verða
óheppileg hvað varðar tímasetningu
mælinganna í upphafi hvers mánað-
ar,“ segir Rannveig en útsölurnar í
ár eru fyrr á ferð en oftast áður.
Hún bætir því við að ýmsir þættir
geti einnig haft áhrif til hækkunar til
mótvægis við áhrif af útsölum. Þann-
ig hefjist skólastarf mun fyrr í haust
en áður og því geti áhrif ýmissa
skólavara og vetrarfatnaðar orðið
meiri en ella.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,8% á milli júní- og júlímánaða
Útsölur geta fallið á
milli vísitölumælinga
MIKIÐ var um að vera á Umferðar-
miðstöðinni í Reykjavík í gær þegar
miðasala hófst á þjóðhátíð í Eyjum
um verslunarmannahelgina. „Það
hefur verið röð út úr dyrum síðan
salan hófst klukkan þrjú,“ sagði Ey-
þór Guðjónsson, starfsmaður Ferða-
skrifstofu BSÍ.
Knútur Óskarsson, framkvæmda-
stjóri Ferðaskrifstofu BSÍ, sagði að
enn hefði verið röð um kvöldmatar-
leytið og því var ákveðið að hafa
miðasöluna opna til klukkan tíu.
Knútur sagði afgreiðslu hvers far-
þega taka lengri tíma en áður.
„Núna þurfum við að skila far-
þegalistum fyrir ferjuna þar sem
fram kemur nafn, fæðingardagur og
ár farþega,“ sagði hann og bætti við
að hann teldi þennan hátt ekki hafa
verið hafðan á áður. „Salan tekur
þess vegna lengri tíma og er fyrir-
hafnarmeiri en áður,“ sagði hann.
Beðið eftir
þjóðhátíð
Morgunblaðið/Jim Smart
Einkavæðing
Landsbanka Íslands
First
Union
fylgist
með af
áhuga
FIRST Union-bankasamstæð-
an fylgist grannt með áformum
um einkavæðingu Landsbanka
Íslands hf., en samstæðan er
næst stærsti hluthafinn í
Landsbankanum, með 4,25%
hlut.
Að sögn James Pope, for-
stjóra hjá First Union og
stjórnarmanns í Heritable and
General-fjárfestingarbankan-
um, sem Landsbankinn á 70%
hlut í, er of snemmt að segja til
um hvort First Union sýni
áhuga á að kaupa stóran hlut í
Landsbankanum. Ekki liggi
endanlega fyrir hversu stór
hluti verður seldur til kjölfestu-
fjárfestis né heldur verðmat á
bankanum. Hann segist fagna
ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um að einkavæða bankann og
hún eigi eftir að verða honum
til góðs.
Að sögn Pope mun hann
koma fljótlega til Íslands og
nota tækifærið til þess að ræða
við forráðamenn Landsbank-
ans um fyrirhugaða sölu á
bankanum.
Auglýst eftir
ráðgjöfum
Í ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar um sölu á Landsbankanum
kemur fram að með umtals-
verðum hlut til kjölfestufjár-
festis sé átt við að minnsta kosti
þriðjung hlutafjár í félaginu.
Ráðgert er að salan fari fram
fyrir árslok 2001.
Nú þegar hefur verið auglýst
eftir ráðgjöfum til að vinna að
undirbúningi sölunnar með ís-
lenskum stjórnvöldum. Verk-
efni ráðgjafans er m.a. að gera
tillögu um hverjir eigi að taka
þátt í lokuðu útboði, semja skil-
mála og vinnureglur vegna lok-
aðs útboðs, veita ráðgjöf um
lágmarksverð og gera tillögur
um hvaða tilboði skuli tekið.
LANDSMÓT UMFÍ verður sett á Egilsstöðum í kvöld,
en keppendur mættu flestir í gær. Þeir Heiðar Róbert
Hallgrímsson, José Henriksen og Guðjón Ólafsson frá
Ungmennafélaginu Óðni í Vestmannaeyjum voru með
þeim fyrstu á tjaldbúðasvæði keppenda í gærkvöldi og
sneru sér að matseld, eftir að hafa komið upp tjaldinu.
Morgunblaðið/Steinunn
Landsmót UMFÍ sett í dag
Lyftistöng/34
Hækkun/C16