Morgunblaðið - 28.08.2001, Síða 1
194. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 28. ÁGÚST 2001
ÍSRAELSSTJÓRN lét í gær myrða
róttækan leiðtoga einnar stærstu
stjórnmálahreyfingar Palestínu-
manna í djörfu tilræði sem talsmenn
palestínsku heimastjórnarinnar
sögðu að markaði endalok friðarvona
og upphaf „algers stríðs“. Haft er eft-
ir ónafngreindum talsmanni Ísraels-
stjórnar í ísraelska dagblaðinu Haar-
etz í dag, að Ísraelar muni ekki gera
háttsetta menn í palestínsku heima-
stjórninni eða í nánasta samstarfs-
mannaliði Yassers Arafats að skot-
marki slíkra tilræða.
Abu Ali Mustafa, 63 ára leiðtogi
PLFP, samkeppnishreyfingar Frels-
issamtaka Palestínu, PLO, sem Yass-
er Arafat fer fyrir, lét lífið er flug-
skeytum var skotið úr ísraelskum
herþyrlum inn á skrifstofu hans í
gærmorgun. PLFP hefur beitt sér
eindregið gegn friðarsamningum við
Ísrael. Tilræðið vakti mikla reiði í röð-
um Palestínumanna, sem flykktust í
þúsundatali út á götur til að mótmæla
því og heita hefndum. Gyðingur úr
einni af landnemabyggðum Ísraela á
Vesturbakkanum var skotinn til bana
í hefndarárás síðdegis.
Réttir ellefu mánuðir voru í gær frá
því nýjasta átakabylgjan í Mið-Aust-
urlöndum hófst. Gerði morðið á Must-
afa að engu alþjóðlegar vonir um að
takast mætti að fá fulltrúa Ísraels-
stjórnar og Palestínumanna aftur að
samningaborðinu á næstunni.
„Að taka þennan mann úr umferð
var liður í herferð okkar gegn mönn-
um sem eru virkir í skipulagningu
hryðjuverka,“ sagði Ari Pazner, tals-
maður Ariels Sharons, forsætisráð-
herra Ísraels, um tilræðið gegn Must-
afa. Pazner sagði Mustafa hafa borið
ábyrgð á röð bílsprengjutilræða í
Ísrael á síðustu mánuðum.
Mustafa er mesti áhrifamaðurinn í
röðum Palestínumanna sem hefur
verið myrtur í nafni þeirrar stefnu
Ísraelsstjórnar að elta uppi og drepa
þá sem hún telur ógna öryggi Ísraels.
Yasser Abed Rabbo, upplýsinga-
málaráðherra palestínsku heima-
stjórnarinnar, kallaði tilræðið „einn
hættulegasta glæp sem Ísraelsstjórn
hefur nokkru sinni framið“. Og Nabil
Abu Rudeina, náinn samstarfsmaður
Arafats, sagði Ísraela fremja þessi
ódæði í skjóli Bandaríkjamanna.
Arafat láti verkin tala
Talsmenn Bandaríkjastjórnar for-
dæmdu tilræðið gegn Mustafa, en
ítrekuðu gagnrýni á Arafat og heima-
stjórn Palestínumanna fyrir að sýna
ekki nægilegan vilja í verki til að rjúfa
vítahring átakanna með því að grípa
til ráðstafana sem dygðu til að halda
aftur af herskáum Palestínumönnum.
Palestínskur stjórn-
málaleiðtogi myrtur
Ramallah, Jerúsalem. AP, AFP.
RÍKUSTU þjóðir heims eldast
svo hratt að þær gætu verið
dæmdar til varanlegrar efna-
hagskreppu vegna verulegrar
fækkunar vinnufærs mannafla,
minni neyslu og álagsins af því
að sjá um hina öldruðu. „Öldrun
alþjóðasamfélagsins gæti orðið
stærsti vandinn á fyrri helmingi
21. aldarinnar,“ sagði Paul He-
witt, forstöðumaður rannsókn-
armiðstöðvar um alþjóða- og
skipulagsmál, við setningu al-
þjóðlegrar ráðstefnu um öldrun-
arvandann í Tókýó í gær.
„Varanlegur samdráttur, sem
við höfum kosið að kalla öldrun-
arsamdrátt, á eftir að hrjá hinn
iðnvædda heim,“ sagði Hewitt.
Hewitt dró upp dökka mynd
af efnahagsástandi framtíðar-
innar og vitnaði í tölur frá
OECD sem hann sagði benda til
þess að hagvöxtur í hinum iðn-
vædda heimi muni lamast nema
atvinnu-, skatta- og félagsmál
verði tekin til róttækrar endur-
skoðunar. Hann sagði nóg að líta
til Japan, sem hefur verið í efna-
hagslegri lægð í tíu ár, til að
gera sér grein fyrir umfangi
vandans. Hewitt sagði Japani
vera í vítahring, enda er fæðing-
artíðni þar er sú lægsta í veröld-
inni en þar er jafnframt mesta
langlífi í heimi.
Varanleg
kreppa
af völdum
öldrunar?
Tókýó. AP.
MALAJINN Azlan Ismail stekkur
ofan af Petronas-háhýsinu í Kuala
Lumpur í gær, í æfingum fyrir
fyrstu opinberu alþjóðlegu heims-
meistarkeppnina í BASE-stökki, en
í þessari íþrótt stökkva menn með
fallhlíf ofan af mannvirkjum eða
klettum. Hollendingurinn Jean-
Louis Becker, einn hinna 51 ofur-
huga sem skráðir eru til leiks, fót-
brotnaði við æfingarnar í gær þar
sem fallhlíf hans opnaðist ekki að
fullu. Stokkið er af svölum í 266 m
hæð, en Petronas-turnarnir eru 452
m háir.
Hinn hálf-íslenzki Arne Aarhus,
sem stundað hefur þessa hættulegu
íþrótt af kappi, er ekki meðal þátt-
takenda að þessu sinni, að eigin
sögn vegna þess að mótshaldarar
hafi farið fram á hátt þátttökugjald,
sem aldrei hafi verið gert áður. Í
mótmælaskyni við þessa ráðstöfun
hafi margir beztu BASE-stökkvar-
arnir ákveðið að mæta ekki.
Stokkið
í Kuala
Lumpur
AP
HERLIÐ Atlantshafsbandalagsins í Makedóníu
sýndi festu í gær og hóf að safna saman vopnum
skæruliða Makedóníu-Albana þrátt fyrir að brezk-
ur NATO-hermaður hefði verið drepinn á sunnu-
dagskvöld og að Makedóníustjórn lýsti enn
óánægju með að umsaminn fjöldi vopna sem til
standi að gera upptækan sé allt of lítill hluti
vopnabúrs skæruliða.
Verkefni NATO-herliðsins í Makedóníu, sem
fengið hefur nafnið „Nauðsynleg uppskera“ og
snýst um að gera 3.300 byssur og önnur vopn
skæruliða upptæk á 30 dögum, var hrint í fram-
kvæmd samkvæmt áætlun þótt að á sunnudag
hefðu makedónsk ungmenni valdið dauða NATO-
hermanns með því að henda steypubita ofan af brú
á herbíl sem ók undir hana.
„Fyrsti dagur vopnaupptökunnar hefur verið
mjög árangursríkur,“ tjáði Alex Dick, brezkur
höfuðsmaður í afvopnunarliði NATO, blaðamönn-
um síðdegis í gær í Matejce í Kumanovo-héraði,
þar sem liðsmenn hins svokallaða Þjóðfrelsishers
Makedóníu-Albana afhentu um 350 hríðskota-
byssur og um 50 önnur vopn.
Dick sagði að stjórnendur NATO-liðsins von-
uðust til að takast myndi að safna þriðjungi um-
samins magns skæruliðavopna saman á þremur
fyrstu dögunum, þ.e. á miðvikudaginn. Áður höfðu
talsmenn NATO sagt að stefnt yrði að því að þessu
marki yrði náð fyrir lok þessarar viku.
Makedóníustjórn óánægð
Makedóníustjórn, sem álítur uppreisnarmenn
Makedóníu-Albana vera „hryðjuverkamenn“ sem
hafi einsett sér að sölsa undir sig sem stærst land-
svæði, hefur lýst afvopnunarleiðangri NATO sem
farsa. Stjórnin telur víst að skæruliðar búi yfir
tugþúsundum vopna og því sé hið umsamda magn,
3.300 stykki, fáránlega lítið.
Fyrsti afvopnunardagurinn
í Makedóníu árangursríkur
Skopje, Otlja í Makedóníu. AP, AFP.
Reuters
Brezkir NATO-hermenn vinna við að skrá
vopn sem makedóníu-albanskir uppreisnar-
menn afhentu í þorpinu Otlja í gær.
MATARSKORTUR og hungur hrjá
nú allt að 1,6 milljónir manna í Mið-
Ameríku. Er ástæðan miklir þurrkar
síðastliðna þrjá mánuði en við eðli-
legar aðstæður hefði rigningartím-
inn gengið í garð fyrir allnokkru.
Í tilkynningu frá Matvælaaðstoð
Sameinuðu þjóðanna sagði, að
ástandið væri alvarlegt og verst hjá
um 700.000 manns. Ekki hefði þó enn
tekist að koma aðstoð nema til helm-
ings þeirra. Er þurrkurinn mestur í
Gvatemala, El Salvador, Níkaragva
og Hondúras. Um er að ræða mestu
náttúruhamfarir á þessu svæði síðan
fellibylurinn Mitch gekk yfir það fyr-
ir þremur árum og varð þá 26.000
manns að bana.
Sérfræðingar telja, að um 80% af
meginkornuppskerunni hafi nú þeg-
ar farið forgörðum vegna þurrkanna
en einnig er um að kenna ólöglegu
skógarhöggi. Það veldur því, að í
rigningum veldur vatnið skyndileg-
um skriðuföllum í berum fjallshlíð-
unum í stað þess að skógurinn geymi
það og miðli á löngum tíma.
Hungurs-
neyð í Mið-
Ameríku
Tegucigalpa. AP.