Morgunblaðið - 28.08.2001, Síða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu Toyota Landcrusier
GX 3.0 diesel, f.skrd. 07.07.
1999, ekinn 29 þ. km, blár, 5
dyra, 33" breyting og dráttar-
kúla. Verð 3.290.000
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hef-
ur gefið út reglugerð sem heimilar
að lán Íbúðalánasjóðs vegna íbúða-
kaupa geti numið allt að 85% af
brunabótamati íbúðar, en áfram er
við það miðað að lánshlutfallið verði
ekki hærra en sem nemur 65% eða
70% af kaupverði. Breytingarnar
ganga í gildi um mánaðamótin.
Guðrún Árnadóttir, formaður
Félags fasteignasala, segir að þessi
niðurstaða valdi vonbrigðum.
Á blaðamannafundi kom fram að
á fundi stjórnar Íbúðalánasjóðs 23.
ágúst síðastliðinn hafi verið lagt til
að áfram verði grundvallarreglan
sú að lána 65% eða 70% af kaup-
verði íbúðar en lögð til sú breyting
á reglugerð um húsbréf og hús-
bréfaviðskipti að lán skuli ekki vera
hærri en sem nemur 85% af bruna-
bótamati íbúðar. Með því móti náist
að upphefja sem næst þau áhrif
sem boðuð breyting á brunabóta-
mati, sem tekur gildi 15. september
næstkomandi þegar gengur í gildi
endurmat brunabótamats, myndi
hafa að óbreyttu á útlán Íbúða-
lánasjóðs.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, sagði að þessar breyttu regl-
ur vægju upp þær breytingar sem
nýtt brunabótamat hefði í för með
sér og gott betur. Það væri hins
vegar ástæða til að stíga varlega til
jarðar og þessar breytingar ættu
hvorki að vera þensluhvetjandi né
að hækka verð á fasteignum.
Páll bætti því við að hámarkslán
Íbúðalánasjóðs hefðu verið hækkuð
í maí síðastliðnum og væru nú 8
milljónir kr. vegna kaupa á not-
uðum íbúðum og 9 milljónir kr.
vegna nýbygginga.
Páll sagði að haft hefði verið náið
samráð við Seðlabankann út af
þessum breytingum og hefði hann
fallist á þær.
Fram kom að með þessum breyt-
ingum væri við það miðað að
ástandið héldist sem næst óbreytt
hvað varðaði útlán Íbúðalánasjóðs.
Páll sagði að hann teldi þetta sann-
gjarna niðurstöðu, þó fasteignasal-
ar hefðu sjálfsagt viljað sjá miklu
hærra lánshlutfall.
Skekkir verðmyndun
á fasteignum
Guðrún Árnadóttir, formaður
Félags fasteignasala, sagði að þessi
niðurstaða væri vonbrigði fyrir
kaupendur og seljendur fasteigna,
en ekki fyrir fasteignasala eins og
félagsmálaráðherra léti liggja að.
Þetta myndi skekkja verðmyndun á
fasteignum og hafa áhrif á sölu-
möguleika margra eigna, auk þess
sem þetta myndi hafa áhrif á þær
leiðir sem kaupendur þyrftu að fara
til að fjármagna fasteignakaup.
Guðrún sagði að þetta myndi
koma verst niður á þeim sem væru
að kaupa sína fyrstu íbúð, tækju
90% lán og væru með meðaltekjur.
Of margir myndu þurfa að sætta
sig við skerðingu húsbréfalána og
þurfa því hugsanlega að leita dýrari
leiða til fjármögnunar og sitja uppi
með meiri greiðslubyrði af þeim
sökum.
Guðrún sagði að þó fullyrt væri
að meðaltalsútkoman yrði svipuð og
áður, þá lægju mörg dæmi að baki
meðaltalinu og nú þegar hefðu þau
hrópandi dæmi um það til dæmis
hvað sölumöguleikar eigna yrðu
miklu minni en áður.
Húsbréfalán geta numið
85% af brunabótamati
BROTIST var inn í sendibíl lakkr-
ísgerðarinnar Kóluss við Tunguháls í
gærmorgun og þaðan stolið sælgæti
að verðmæti 300.000 krónur. Að
sögn lögreglunnar í Reykjavík voru
einnig unnar nokkrar skemmdir á
bifreiðinni.
Nokkuð var um innbrot og eigna-
spjöll í Reykjavík í fyrrinótt.
Eignaspjöll urðu er slagsmál brut-
ust út á Kringlukránni skömmu fyrir
miðnætti.
Þá var tilkynnt um innbrot í fyr-
irtæki í austurborginni klukkan 0:55
og í bíl í Breiðholti klukkan 3:44.
Undir morgun var síðan lögregla
ködd til til vegna manna sem létu
ófriðlega og hentu grjóti í rúður húss
í Bústaðahverfi.
Sælgæti fyr-
ir 300 þús-
und stolið
NOKKUR dæmi eru um það í
sumar að bílar hafi skemmst í
akstri utan vega. Í sumum til-
fellum töldu tryggingatakar að
kaskótrygging ökutækis bætti
slík tjón. Svo er þó ekki og
þurfa bíleigendur eða umráða-
menn bíls, þegar eigandi er
fjármögnunarleiga, að kaupa
sérstakt utanvegakaskó, sem
yfirleitt kostar um 10% af
grunniðgjaldi kaskótrygging-
ar, eða á bilinu 3-4 þúsund kr. á
ári.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sjóvá-Almennum kemur þetta
fram í skilmálum trygginganna
og sé viðskiptavinum yfirleitt
bent á þetta þegar því verður
komið við. Oftlega sé hins vegar
gengið frá tryggingum af fjár-
mögnunarfyrirtækinu og um-
ráðamaður bíls kemur þar
hvergi nærri. Hann fær hins
vegar skilmála tryggingarinnar
senda. Utanvegakaskótrygging
er einkum hugsuð fyrir björg-
unarsveitir og menn sem eru
vanir fjallaferðum.
Guðríður Ólafsdóttir, yfir-
maður útlánasviðs Lýsingar,
segir að um þetta gildi hið sama
og um æfingaakstur. Leigutaki
bíls í eigu Lýsingar þarf m.ö.o.
að sækja um sérstaka trygg-
ingu og fá leyfi til æfingaakst-
urs. Á sama hátt þurfi umráða-
maður bíls að sækja
sérstaklega um tryggingu
vegna aksturs utanvega. Þótt
umráðamaður bíls komi ekki
við sögu þegar bíll í eigu fjár-
mögnunarfyrirtækis er tryggð-
ur fær hann engu að síður skil-
málana og staðfestingu frá sínu
tryggingafélagi. Guðríður segir
að tjón sem verður utan vega
falli á umráðamann bíls ef ekki
er tryggt á annan hátt en með
venjulegri kaskótryggingu.
Kaskó-
trygging
nær ekki
til tjóna í
utanvega-
akstri
ÞRESKING á korni hófst óvenju
snemma þetta árið á bænum Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum en
þresking hefst yfirleitt ekki fyrr en
um miðjan september. Kornrækt
hefur verið stunduð á Þorvaldseyri
í 40 ár og segir Ólafur Eggertsson
ábúandi að kornræktin hafi heppn-
ast á hverju ári allan þann tíma.
Uppskeran er um 60 til 70 tonn á
ári og er kornið fyrst og fremst nýtt
í kjarnfóður fyrir nautgripi.
Að sögn Ólafs er ástæðan fyrir
snemmbúnum slætti sú að und-
anfarin tvö ár hefur hann sáð ís-
lensku kornafbrigði sem kynbætt
hefur verið fyrir íslenskar að-
stæður á Rannsóknastofnun land-
búnaðarins.
„Það er kornið sem ég er að slá
þessa dagana og er a.m.k. hálfum
mánuði á undan öðrum tegundum.
Þetta þarf bara styttra sumar og er
orðið svona bleikt og fínt á mun
skemmri tíma en aðrar tegundir.“
Á Þorvaldseyri er ræktað korn á
um 20 hekturum og íslenska af-
brigðið á u.þ.b. helmingnum. Ólafur
segir að kornrækt sé heldur að
aukast hér á landi en um 150 bænd-
ur stunda nú kornrækt á landinu.
Úrvalsfóður
„Afurðin er notuð sem kjarnfóð-
ur og sumir blanda sitt kjarnfóður á
búunum sjálfir og aðrir senda korn-
ið í verksmiðju þar sem þeir fá það
blandað. Þetta er úrvalsfóður. Við
notum ekki eiturefni og úðum þetta
lítið sem ekki neitt. Síðan er kornið
okkar alltaf ferskt og nýtt sem við
erum að gefa skepnunum en við vit-
um ekki alltaf hvaðan hitt er upp-
runnið. Þá hefur kornið staðið sig
fyllilega í gæðum í samanburði við
útlent korn,“ segir Ólafur.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þresking á korni hófst nýlega á bænum Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Ólafur bóndi segir að þetta sé úrvals fóður fyrir skepnur.
Bleikir akrar
undir Eyjafjöllum
BÍLL fór út af veginum við gatna-
mót Austurlandsvegar og Hafnar-
vegar síðdegis í gær.
Bíllinn fór tvær heilar veltur og
hafnaði á hjólunum á túni sem nýbú-
ið var að bera kúamykju á.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Höfn slapp ökumaðurinn
ómeiddur.
Valt út af vegi
og út á tún
♦ ♦ ♦