Morgunblaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÍBÚAR á Kjalarnesi kvarta undan
því að bílar verði fyrir skemmdum
vegna sandblásturs frá malarnám-
um við Vesturlandsveg í Kollafirði.
Þá segja þeir krossumferð vinnubíla
við veginn skapa slysahættu.
Þetta kom fram á borgarafundi
sem nýverið var haldinn á Kjalar-
nesi.
Jónas Vigfússon, formaður sam-
starfsráðs Kjalarness, segir að
ábendingum íbúanna verði komið til
umhverfis- og heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur.
Um er að ræða nokkrar malar-
námur, að sögn Jónasar, en náman
við Esjuberg sé þó stærst.
Aðpurður hvort um væri að ræða
mikið fok frá námunum, segir Jón-
as:
„Það var reistur varnarveggur
meðfram veginum til að koma í veg
fyrir að fok bærist á veginn og hef-
ur það minnkað mikið við tilkomu
hans.“
Hann tekur undir að krossumferð
vinnubíla hafi aukist. „Umferðin á
Vesturlandsvegi er mjög mikil og
hröð. Umferð þvert yfir veginn er
hættuleg, sérstaklega þegar um er
að ræða þungavinnuvélar. Það er
líka hættulegt að taka vinstri beygj-
ur inn á heimreiðar annars staðar.“
En telur hann að gerð verði sú
krafa að svæðið verði ræktað upp á
ný? „Borgaryfirvöld munu væntan-
lega gera það í framtíðinni en þá
verður námuvinnslu að vera lokið.
Það þýðir ekkert að rækta upp
svæðið á meðan malarnám stendur
yfir.“
Steypustöðin ehf. og Vinnuvélar
ehf. hafa verið með malarnám á
meira en 20 hektara svæði í Kolla-
firðinum síðan 1955.
Hafa aldrei þurft að bæta tjón
Halldór Jónsson, framkvæmda-
stjóri Steypustöðvarinnar, segir að
skemmdir á bílum í Kollafirðinum
séu ekki endilega tengdar sandfoki
frá námum á svæðinu.
„Við höfum aldrei þurft að bæta
tjón á bílum þar sem ekkert hefur
fokið frá okkur. Fólk hefur reynt að
koma á okkur sök og reynt að fá
tjón á bílum sínum bætt en það hef-
ur aldrei náðst að sanna. Fólk held-
ur að við berum ábyrgð á þessu öllu
saman en ég bendi á það að þarna
fýkur allt lauslegt þegar um er að
ræða sviftivinda sem eru algengir á
svæðinu. Þá skal nefna að enginn er
ábyrgur fyrir tjóni sem hlýst af
vindhraða yfir 27 metrum á sek-
úndu. Þá er um að ræða fárviðri.“
Vegna ábendinga íbúa um að
krossumferð vinnubíla skapi mikla
slysahættu, segir Halldór:
„Það er eiginlega ekkert um
krossumferð þarna. Þá er ekkert
meiri slysahætta þarna heldur en á
öðrum afleggjurunum. Það hefur
aldrei orðið slys þarna enda sést vel
til beggja hliða.“
Halldór segir að Steypustöðin
hafi stundað malarnám á umræddu
svæði löngu áður en Vesturlands-
vegur hafi verið lagður þar sem
hann er nú.
„Það var Vegagerðin sem kaus að
leggja hann þarna og þeir vissu vel
af tilvist okkar. Ef við truflum um-
ferð um veginn þá ætti vegurinn að
fara þar sem við komum þarna á
undan.“
Aðspurður segir Halldór að
Steypustöðin muni halda áfram
malarnámi á svæðinu um ókomna
tíð. Engin áform séu um að hætta
malarnámi á umræddu svæði enda
hafi sambýlið við umferðina á Vest-
urlandsveginum að mestu leyti
gengið snurðulaust fyrir sig.
Veldur
tjóni á
bílum
Morgunblaðið/RAX
Formaður samstarfsráðs Kjalarness segir að dregið hafi úr sandfokinu eftir að varnarveggur var reistur.
Íbúar kvarta undan sandblæstri og krossumferð við malarnám í Kollafirði
Kjalarnes
Morgunblaðið/Billi
Börnin skemmtu sér konunglega í spennandi leiktækjum.
ÞAÐ var sannkölluð hátíðarstemmning í Garðabæ um
helgina en þá var haldin tveggja daga fjölskylduhátíð í
bænum. Var hátíðin liður í dagskrá afmælisárs Garða-
bæjar sem á 25 ára kaupstaðarafmæli á þessu ári.
Föstudagurinn var tileinkaður eldri borgurum bæj-
arins og var efnt til hátíðarsamkomu í Kirkjuhvoli þar
sem m.a. var boðið upp á erindi um kirkjur og klerka á
Görðum á Álftanesi í fyrri tíð, söngatriði og skemmti-
þátt með Erni Árnasyni leikara.
Á laugardaginn hófst dagskráin með því að Ásdís
Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, veitti form-
lega viðtöku vatnspósti við ós Arnarneslækjar en hann
er gjöf frá Kvenfélagi Garðabæjar til bæjarins.
Þá voru sett upp leiktæki fyrir börnin við íþrótta-
miðstöðina Ásgarð og í íþróttahúsinu var barna- og fjöl-
skylduskemmtun. Þar tróðu m.a. upp Skari skrípó,
trúðarnir Búri og Jens, Gunni og Felix og íbúar Lata-
bæjar.
Að lokum voru haldnir tónleikar þar sem fram komu
hljómsveitirnar Í svörtum fötum og Sálin hans Jóns
míns.
Líf og fjör á
afmælishátíð
Morgunblaðið/Sverrir
Á hátíðarsamkomu eldri borg-
ara var Örn Árnason leikari með
söngatriði og skemmtiþátt.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri afhjúpar vatns-
póst sem er gjöf frá Kvenfélagi Garðabæjar.
Garðabær
Á FUNDI íþróttaráðs Hafnar-
fjarðar sl. miðvikudag var lagt
fram bréf frá formanni knatt-
spyrnudeildar Hauka varðandi
undirbúning og frágang á gra-
sæfingasvæði fyrir félagið
sunnan við gervigrasvöllinn á
Ásvöllum. Íþróttaráð tók já-
kvætt í erindið og fól Ingvari S.
Jónssyni, íþróttafulltrúa bæj-
arins, að boða til viðræðufund-
ar sem fyrst.
Að sögn Ingvars er um að
ræða svæði þar sem áætlað er
að framtíðarknattspyrnuvöllur
Hauka verði. Hins vegar sé
núna verið að ræða um að koma
á bráðabirgðaaðstöðu til þess
að fjölga grasæfingasvæðum.
„Þegar framkvæmdir við
íþróttahús Hauka voru að hefj-
ast var farið með lélega mold
og möl á umrætt svæði þar sem
menn voru að spara sér akstur.
Við Hafnfirðingar stöndum
mjög illa hvað grasæfinga-
svæði varðar og FH-ingar eru
til dæmis í mjög miklu basli
enda leyfir þeirra svæði enga
stækkun. Það er því jafnvel
verið að hugsa um þetta sem
lausn fyrir bæði félögin tíma-
bundið. Það á eftir að hefja við-
ræður við Haukana um þetta
en það hefur ekkert verið áætl-
að neitt um þetta í ár og reynd-
ar ekki á langtímaáætlunum.“
Ingvar tekur fram að málið
sé enn á viðræðustigi en þar
sem þörfin fyrir grasæfinga-
svæði sé mikil sé aldrei að vita
hvort brugðist verði við því.
„Í haust á að taka upp að-
alvöllinn í Kaplakrika og laga
hann. Því verða FH-ingar að
spila einhverja leiki á þessu ári
á frjálsíþróttavellinum og jafn-
vel einhverja á næsta ári. Það
mun því skerða æfingaaðstöðu
þeirra næsta vor,“ segir hann.
Viðræður um
grasæfinga-
svæði á Ásvöllum
Hugsanleg
lausn fyrir
bæði Hauka
og FH
Hafnarfjörður
ÞESSA dagana vinna iðnaðarmenn
hörðum höndum að því að rífa inn-
réttingar út úr Bíóhöllinni í Mjódd
en verið að endurnýja innviði kvik-
myndahússins. Meðal nýjunga eftir
endurbæturnar verður svokallaður
VIP-salur með meiri þægindum og
þjónustu en gengur og gerist í
venjulegum kvikmyndasölum.
Að sögn Björns Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra Sam-bíóanna, er
kominn tími á endurbætur því tíu ár
eru síðan Sagabíó opnaði en þá voru
húsakynni Bíóhallarinnar endurnýj-
uð. „Síðan hafa um fjórar milljónir
manna labbað hér í gegn þannig að
bæði var farið að sjá aðeins á bíóinu
og eins er þetta barn síns tíma,“
segir hann.
Til stendur að gerbreyta anddyr-
inu að sögn Björns auk þess sem
salirnir verða teknir í gegn. „Við
verðum líka með einn svona VIP-sal
með svörtum Lazy-T leðurstólum
með rafmagni í. Miðaverðið þar
verður hærra og kúnninn fer beint
inn í salinn þar sem hann fær frítt
popp og kók og verður sinn eigin
herra eða frú.“
Salurinn verður fyrir um 30
manns en að sögn Björns tók hann
um 120 manns í sæti þegar bíóið var
opnað þannig að í honum er stórt
sýningartjald. Hann segir að til
standi að leigja salinn út fyrir einka-
sýningar á nýjum og ókomnum
myndum auk þess sem hægt verður
að velja á milli þess að sjá nýjustu
myndirnar, sem verið er að frum-
sýna, í venjulegum sal eða VIP-saln-
um. Þá verður salurinn einnig leigð-
ur út fyrir einkahópa. Björn segir
ekki ákveðið hversu hátt miðaverðið
í salinn verður en jafnvel sé rætt um
tvöfalt verð. En er grundvöllur fyrir
sali af þessu tagi? „Já ég held það
því það eru margir sem óska eftir
meiri þægindum og vilja fá að vera í
friði. Það sést best á Saga-Class og
Saga-Lounge hjá Flugleiðum og
þetta minnir bara á það,“ segir
Björn.
Hönnuðir að endurbótunum eru
breskir arkitektar sem kalla sig
Martek og Guðbjörg Magnúsdóttir
arkitekt. Áætlað er að opna nýtt og
breytt kvikmyndahús í lok septem-
ber en kvikmyndasýningum verður
þó haldið áfram á meðan á end-
urbótunum stendur.
Bíóhöllin tekur
stakkaskiptum
Morgunblaðið/Billi
Pappafígúra virðir fyrir sér anddyrið í Bíóhöllinni en það er nánast
óþekkjanlegt eftir að iðnaðarmenn rifu stóran hluta innréttinga út.
Mjódd