Morgunblaðið - 28.08.2001, Page 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 13
STEFNT er að því að Hótel Óð-
insvé auki við hótelrýmið og hafa
forráðamenn hótelsins sótt um
leyfi fyrir stækkun þess til bygg-
ingarnefndar Reykjavíkurborgar í
þeim tilgangi.
Alls verða byggð fimm ný her-
bergi en fyrir er hótelið með 40
gistiherbergi. Við framkvæmd-
irnar verður hins vegar eitt þeirra
lagt niður og fjölgar því hótelher-
bergjum í 44.
„Þegar ljóst var að það þyrfti að
endurnýja þakið á Þórsgötu 1
lögðum við fram óskir um nokkra
hækkun þaksins um leið og það
yrði endurnýjað,“ segir Bjarni Ing-
var Árnason hjá Óðinsvéum. Í
fundargerð skipulags- og bygging-
arnefndar segir að sótt sé um leyfi
til að lyfta mæni hússins og koma
þar fyrir tveimur herbergjum. Þá
verði byggt ofan á bakbyggingu og
innréttuð þrjú hótelherbergi þar.
Segir Bjarni að hann áætli að við
þetta aukist nýtanlegt húsnæði
hótelsins um allt að 100 fermetra.
Í afgreiðslu nefndarinnar segir
að nefndin geri ekki athugasemd
við að veitt verði byggingarleyfi að
uppfylltum tilgreindum skilyrðum.
Morgunblaðið/Sverrir
Hótel Óðinsvé verður með 44 gistiherbergi að framkvæmdum loknum.
Hótel
Óðinsvé
eykur við
gistirými
Þingholt
ALMENNINGSSALERNI við
göngustíga í borginni verða hugsan-
lega að veruleika fyrir næsta sumar
nái tillaga Sigrúnar Jónasdóttur,
nefndarmanns í umhvefis- og heil-
brigðisnefnd, fram að ganga. Tillagan
var fram borin á fundi í nefndinni á
fimmtudag og var henni vel tekið að
sögn Sigrúnar.
Lagt er til að nefndin beiti sér fyrir
uppsetningu almenningssalerna á
lengstu gönguleiðum borgarinnar og
eru nefndar leiðirnar Miðborg-Laug-
arnes og Ægisíða-Nauthólsvík sem
dæmi. Að sögn Sigrúnar er tillagan
sprottin af þörf. „Það voru fulltrúar
gönguklúbbs sem komu að máli við
mig vegna þessa. Þetta eru svo langar
leiðir og við erum búin að vera dugleg
að setja göngustíga víða en höfum
ekki alltaf munað eftir þessum þætti.“
Hún segir markmiðið vera að sal-
ernin stingi sem minnst í stúf við um-
hverfið. „Við vonumst til að finna
lausn sem getur jafnvel fallið inn í
landslagið. Við sjáum til dæmis ekki
fyrir okkur plastkassana heldur eitt-
hvað smekklegt.“ Tillögunni var vísað
áfram til vinnuhóps um útivistarmál
og segir Sigrún hana hafa fengið já-
kvæð viðbrögð í nefndinni. „Það tóku
allir vel í þetta þannig að ég á von á
því að fljótlega á næstu vikum komi
einhverjar tillögur frá vinnuhópnum
um lausn. Ég geri þá fastlega ráð fyr-
ir að þetta verði sett upp fyrir næsta
vor,“ segir hún að lokum.
Salerni við
göngustíga
Reykjavík
♦ ♦ ♦